Dagur - 31.08.1987, Page 8
12 - DAGUR - 31. ágúst 1987
Nauðungaruppboð
annað og síðara, á fasteigninni Smárahlíð 4f, Akureyri, þingl.
eigandi Jón Pálmason, fer fram í dómsal embættisins Hafnar-
stræti 107, 3. hæð, Akureyri, föstud. 4. september 1987 kl.
15.30.
Uppboðsbeiðendur eru: Veðdeild Landsbanka íslands,
Bæjarsjóður Akureyrar, Gunnar Sólnes hrl., Sveinn Skúlason
hdl., Gísli Baldur Garðarsson hrl., Baldur Guðlaugsson hrl.,
Gjaldskil sf. og Guðmundur Jónsson hdl.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
KA hlaut verðlaun
fyrir góðan handbolta
á móti í Álaborg i Danmörku um helgina
Nauðungaruppboð
annað og síðara, á fasteigninni Vallargata 5, Grímsey, þingl.
eigandi Sigurður Bjarnason, fer fram í dómsal embættisins
Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri, föstud. 4. september
1987 kl. 13.45.
Uppboðsbeiðendur eru: Veðdeild Landsbanka íslands, Sig-
ríður Thorlacius hdl., Ævar Guðmundsson hdl. og Gunnar
Sólnes hrl.
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Nauðungaruppboð
annað og síðara, á fasteigninni Arnarsíða 6d, Akureyri, þingl.
eigandi Ásgeir Ingi Jónsson, fer fram í dómsal embættisins
Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri, föstud. 4. september
1987 kl. 14.30.
Uppboðsbeiðandi er Tryggingastofnun ríkisins.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Reykjasíða 19, Akureyri, þingl. eigandi Jóhann
Purkhus o.fl., ferfram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107,
3. hæð, Akureyri, föstud. 4. september 1987 kl. 15.15.
Uppboðsbeiðandi er Búnarðarbanki íslands.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Sunnuhlíð 12u, Akureyri, þingl. eigandi Verslun-
arbanki íslands, talinn eigandi Ástríður Sigvaldadóttir, fer fram
í dómsal embættisins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri,
föstud. 4. september 1987 kl. 17.00.
Uppboðsbeiðandi er Ragnar Steinbergsson, hrl.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Eins og skýrt hefur verið frá,
dvelur nú handknattleiksliö
KA erlendis og hefur tekið
þátt í mótum og stundað
æfingar. Um helgina tóku þeir
þátt í móti í Álaborg í Dan-
mörku og höfnuðu þar í efsta
sæti B keppninnar.
Liðunum í keppninni sem voru
16 talsins, var skipt í tvo flokka
eftir gæðum og lenti KA í betri
flokknum ásamt liðum frá
Svíþjóð, Danmörku og Noregi.
Opnunarleikinn lék KA á
móti Brönderslev og vann KA
þann !eik með 25 mörkum gegn
20.
Á laugardag léku þeir tvo leiki,
og töpuðu þeim stórt. AGF Dan-
mörku sigraði þá 24:15. Einnig
léku þeir gegn sænsku meisturun-
um Redbergslied, en þeir hafa á
að skipa landsliðsmönnum í
hverri stöðu, m.a. Jilsen bræðr-
unum. KA tapaði þeim leik 35:17
en staðan í hálfleik var 15:11 fyrir
Svíunum.
Þetta voru þau þrjú lið sem
KA lék með í riðli og lentu þeir í
þriðja sæti. Tvö efstu lið í hverj-
um af þeim fjórum riðlum sem
leikið var í, lentu síðan í A
keppni og tvö þau neðri í B
keppni. í hvorri keppni urn sig
var leikið í tveim riðlum.
Leikirnir í B keppninni fóru
fram á sunnudag. Onnur lið í
riðlinum voru Brönderslev,
Skien BK Noregi og Svendborg
Danmörku. Stigin sem KA hlaut
gegn Brönderslev í opnunar-
leiknum fylgdu þeim áfram.
Skien gaf síðan sinn leik og var
KA þá komið með fjögur stig.
Næst vinna þeir Svendborg 21:12
og unnu því þennan riðil.
Ostakarlinn
- besti vinur barnanna kemur á Iðnsýningu
iVlánudaginn 31. agust kl.
Þriðjudaginn I.september .... kl.
Miðvikudaginn 2. september .... kl.
Fimmtudaginn 3. september .... kl.
Föstudaginn 4. september .... kl.
Laugardaginn 5. september .... kl.
Sunnudaginn 6. september .... kl.
17.00-19.00
17.00-19.00
17.00-19.00
17.00-19.00
17.00-19.00
16.00-18.00
16.00-18.00
Mjólkursamlag KEA
Akureyri Simi 96-21400
4
Að lokum fór fram úrslitaleik-
ur á milli efstu liða í báðum B
keppnisriðlunum. Það var því
KÁ sem lenti á móti GOG Dan-
mörku. Þetta var að sögn, hörku-
leikur og var KA undir í hálfleik.
Þeir tóku svo á í seinni hálfleik
og náðu að sigra 23:20.
Einu verðlaunin sem veitt voru
í keppninni voru fyrir besta
handknattleik og hlaut KA þau
verðlaun.
KA mennirnir eru ánægðir
með þennan árangur og ferðina í
heild. Þeir eiga eftir að leika einn
leik í Svíþjóð í vikunni. VG
Olympíulandsliðið:
Held velur í
leikinn gegn
A-Þjóðverjum
Sigfried Held landsliðsþjálfari
Islands í knattspyrnu hefur val-
ið 16 leikmenn í landsleikinn
gegn A-Þjóðverjum, sem fram
fer á Laugardalsvellinum á
miðvikudaginn kemur. Leikur-
inn er liður í undankeppni
Ólympíuleikanna. Eins og oft
áður vekur val hans nokkra
athygli.
Guðmundur Hreiðarsson er
valinn í hópinn sem annar mark-
vörður íslenska liðsins, frekar en
Birkir Kristinsson markvörður
ÍA en Guðmundur hefur vermt
varamannabekk Vals að undan-
förnu. Birkir hefur aftur á móti
átt mjög gott keppnistímabil með
ÍA og verið einn besti maður
liðsins. Þá virðist ekki pláss í
hópnum fyrir Erling Kristjánsson
varnarmann úr KA en Erlingur
hefur leikið' frábærlega vel í
sumar. Ástæðan fyrir því að Erl-
ingur er ekki í hópnum gæti þó
verið sú að hann eigi frekar að
nota í leikinn gegn Norðmönnum
í Evrópukeppninni annan mið-
vikudag.
Halldór Áskelsson leikmaður
Þórs er eini leikmaður norðanlið-
anna sem er í hópnum. Hópurinn
lítur annars þannig út:
Markverðir:
Friðrik Friðriksson Fram
Guðmundur Hreiðarsson Val
Aðrir leikmenn:
Guðni Bergsson Val
Ágúst Már Jónsson KR
Þorsteinn Þorsteinsson Fram
Valur Valsson Val
Ingvar Guðmundsson Val
Pétur Arnþórsson Fram
Viðar Þorkelsson Fram
Guðmundur Steinsson Fram
Ormarr Örlygsson Fram
Guðmundur Torfason Wintersl.
Sveinbjörn Hákonarson ÍA
Ólafur Þórðarson ÍA
Halldór Áskelsson Þór
Njáll Eiðsson Val
Halldór Áskelsson er í hópnum sem
mætir A-Þjóðverjum á miðvikudag.
Ritföng
Námsbækur
Skólavörur
í úrvali.
■Bókabúðin EddaH
■m Hafnarstræti 100 Akureyri Sími 243341MB