Dagur - 02.10.1987, Page 3
Á hvítum reitum og svörtum. Margeir í þungum þönkum.
Það er alltaf erfitt
að vinna skák
- rætt við Margeir Pétursson stórmeistara,
en fiest bendir til þess að hann sigri á Skákþingi íslands
í dag verður tefld 13. og jafn-
framt síðasta umferðin í
landsliðsflokki á Skákþingi
íslands. Að Ioknum 12
umferðum er Margeir Péturs-
son efstur með 11 vinninga,
Helgi Ólafsson er með 10
vinninga, í 3. sæti er Hannes
Hlífar með 7,5 vinninga, þá
kemur Karl Þorsteins með
7 vinninga og eina frestaða
skák og Davíð Ólafsson er í
5. sæti með 7 vinninga. Þrett-
ánda umferðin hefst að sjálf-
sögðu klukkan 13 í dag í
Alþýðuhúsinu. Margeiri næg-
ir jafntefli í skák sinni við
Gylfa Þórhallsson.
Það rigndi svolítið úti þegar
Margeir kom á ritstjórn Dags
ásamt ungri dóttur sinni. í gær,
þegar Dagur ræddi við Margeir,
var frídagur hjá skákmönnun-
um. Þeir voru í óða önn að
undirbúa sig fyrir síðustu
umferðina en flest bendir til að
Margeir hafni í efsta sæti og að
Helgi Ólafsson fylgi fast á eftir.
- Hvernig hefur mótið verið
það sem af er?
„Þetta er búið að vera gífur-
legt baráttumót. Það hefur ver-
ið erfitt hvað það snertir að
maður hefur orðið að vinna
margar skákir. Ég vissi það
raunar fyrir að mótið myndi
vinnast á háu vinningshlutfalli
og því mátti ekki slaka á klónni
eitt andartak. Ef við berum
þetta mót saman við mótið í
fyrra þá má segja að þar hafi
verið fleiri titilhafar en færri
keppendur. Þá dugðu mér átta
vinningar af ellefu. Nú er ég
hins vegar kominn með tíu
vinninga af ellefu mögulegum
og næsti maður er með níu af
ellefu. í fyrra gat ég leyft mér
að gera jafntefli í tveimur síð-
ustu umferðunum til að tryggja
mér sigurinn. Að vísu nægir
mér jafntefli á morgun en mikil
spenna hefur einkennt allt mót-
ið vegna hins háa hlutfalls sem
ég minntist á.“
- Hefur einhver skákin á
þessu móti verið öðrum erfið-
ari?
„Það er alltaf erfitt að vinna
skák. í svona móti nýt ég góðs
af því að þekkja andstæðing-
ana. En ég væri í mun erfiðari
aðstöðu erlendis á móti í sam-
bærilegum styrkleikaflokki. Þar
þekki ég ekki andstæðingana.
Ég þekki þá sem ég leik við hér
heima og get gert áætlanir í
samræmi við það.“
- Hvernig hefur ykkur líkað
að tefla hér á Akureyri?
„Mjög vel. Aðbúnaður er til
fyrirmyndar. Við teflum í stóra
salnum í Alþýðuhúsinu sem er
mjög hentugt. En ég hef orðið
fyrir nokkrum vonbrigðum með
aðsókn að mótinu. Akureyring-
ar virðast ekki hafa mikinn
áhuga á að koma og fylgjast
með skákunuin - aftur á móti
virðast allir vita nákvæmlega
um stöðuna í mótinu. Það er
sama hvert maður kemur. Við-
mælendurnir vita um stigin og
hvernig skákirnar fóru. Sérstak-
lega á þetta þó við um skákir
Akureyringanna.“
- Nú ert þú búinn að tefla og
hefur unnið eða gert jafntefli í
25 skákum á undanförnum
vikum. Er þetta ekki óvenju
góður árangur?
„Við verðum að hafa það í
huga að allnokkrir þeirra sem
ég hef unnið eða gert við jafn-
tefli eru ekki mjög sterkir and-
stæðingar. En ég hef teflt til
vinnings í þessum 35 skákum og
hef unnið 24.“
- Hvernig ætlar þú að tefla
síðustu skákina. Munt þú ein-
beita þér að því að ná fram jafn-
tefli?
„Ætli ég muni ekki haga segl-
um eftir vindi."
- Hvað með næstu mót?
„Fram til áramóta mun ég
ekki taka þátt í neinum meiri
háttar mótum. En á nýju ári
verður mikið að gerast. Ég tek
þátt í a.m.k. þremur mjög
öflugum mótum. Eitt er í Kan-
ada, annað er Reykjavík og það
þriðja er í New York. Einnig
getur verið að ég tefli í Sviss.
Nú hef ég hækkað í stigum og ef
ég kemst í um 2550 stig þá verð
ég ekki í vandræðum með að
komast á mót ef ég leita eftir
því.“
Dagur þakkar fyrir viðtalið
og hvetur bæjarbúa til að fara í
Alþýðuhúsið við Skipagötu
klukkan eitt í dag.
Helgi Ólafsson stórmeistari er sá eini sem getur veitt Margeiri keppni á
Skákþinginu í dag.
2. október 1987 - DAGUR - 3
á mokka- og leðurfatnaði
er í fullum gangi
Henni lýkur á laugardag kl. 4
Verslun Iðnaðardeildar
Sambandsins
suu
t
FRIGOR
frystikistur
FRIGOR frystikistur
200 lítra, 275 lítra,
460 lítra,
380 lítra væntanlegar.
10% staðgreiðslu
afsláttur.