Dagur - 02.10.1987, Blaðsíða 5
VQOr leyrJAtNÍr* O __ Ql iíTiAn __ K
2. október 1987 - DAGUR - 5
Jón Ingi Cesarsson er trúnaðar-
maður póstmanna á Akureyri
en þessa dagana er mánuður lið-
inn frá því níu faglærðir póst-
afgreiðslumenn sögðu starfi sínu
lausu. Jón Ingi ræddi við
blaðamann um kjaramál póst-
Jón Ingi Ccsarsson.
//
Póstmenn eru verst launaða
starfsfólk ríkisins"
- Jón Ingi Cesarsson trúnaðarmaður póstmanna
á Akureyri á línunni
manna, ástæðurnar fyrir upp-
sögnunum o.fl. sem tengist
starfinu.
- Hvað ert þú búinn að starfa
lengi við póstafgreiðslu?
- Ég byrjaði hérna í október
1971 og er því búinn að starfa
við þetta í sextán ár um þessar
mundir. Laun okkar hafa á liðn-
um árum oftast verið sambæri-
leg við önnur almenn laun í
landinu, við berum okkur t.d.
gjarnan saman við bankastarfs-
menn. Nú höfum við dregist aft-
ur úr þeim í launum og byrjun-
arlaun þeirra eru verulega hærri
en byrjunarlaun póstmanna.
- Hver er ábyrgð póstmanna
í starfi og hvernig vinna er
þetta?
- Það er erfitt að útskýra
þetta í stuttu máli en ef við tök-
um t.d. starf póstgjaldkera þá
vinnur hann í rauninni mjög
flókið starf miðað við flesta aðra
gjaldkera. Póstgjaldkeri þarf að
kunna óhemju margar gerðir
afgreiðslu og ábyrgð hans er
mikil því geysilegir fjármunir
fara um hendur hans dag hvern.
- Hvernig hefur kjarabarátta
póstmanna gengið undafarin ár?
- Þetta hefur verið hörð bar-
átta sem við höfum farið heldur
halloka í. Formaður félagsins og
fleiri halda því fram að póst-
menn séu verst launaða starfs-
stétt ríkisins og ég er sammála
því.
- Hvernig er menntun póst-
manna háttað og hvernig tengist
hún launum?
- Þetta er þriggja ára nám.
Eftir tveggja ára nám útskrifast
menn sem póstafgreiðslumenn
III. Eftir eins árs nám í viðbót fá
menn starfsheitið yfirpóstaf-
greiðslumaður. Einu sinni mun-
aði fjórum launaflokkum á
síðarnefnda starfsheitinu og
almennum póstafgreiðslumanni
en nú hefur sá munur minnkað
um helming.
- Hverju er þetta að kenna?
- Akveðin hreyfing hefur
verið í þá átt að hækka lægstu
launin m.a. til að lokka fólk að
þessari vinnu. Þeir sem eru
orðnir gamalgrónir eins og við
sem sögðum upp - og hafa
starfsaldur frá fimm og upp í
sextán ár - hafa setið á hakan-
um. Það getur verið að
samningsaðilinn hafi ofmetið
trúmennsku okkar og haldið að
við yrðum áfram sami þægi hóp-
urinn og við höfum verið. Það
gengur ekki að vinna þetta starf
af hugsjón þegar maður þarf að
framfleyta fjölskyldunni og
sjálfum sér af þessum launum.
- Viltu nefna dæmi um kaup
póstmanna?
- Yfirpóstafgreiðslumaður er
með 34.762 krónur á mánuði.
Byrjunarlaun, þ.e. póst-
afgreiðslumaður II, er með
28.855 króna mánaðarlaun. Eft-
ir 13 ára starf er yfirpóst-
afgreiðslumaður með 39.478
krónur og algjör hámarkslaun
eftir 18 ára starf eru rúmar 41
þúsund krónur. Ekkert okkar
sem sögðum upp núna hefur náð
þessum starfsaldri. Tveir eru
búnir að starfa hér í sextán ár.
Þessar tölur eru án 7,23% verð-
bóta frá 1. okt.
Þetta fólk er allt mjög dýr-
mætir starfskraftar því enginn
verður góður póstmaður nema á
löngum tíma. Núna er mjög
algengt að menn eru ekki nógu
lengi í þjónustunni til að ná
góðri kunnáttu í starfi og vönum
póstmönnum fækkar óðfluga.
- Hvað gerist ef allir vanir
póstmenn hætta hérna að einum
eða tveimur undanskildum?
- Það yrði gífurlegt álag á þá
menn sem eftir yrðu og satt að
segja get ég ekki ímyndað mér
slíkt ástand. Ég er hræddur um
að viðskiptavinirnir fengju
óþyrmilega að finna fyrir því ef
ólært fólk gengi inn af götunni í
þessi störf.
- Hvað segirðu um þau
ummæli Porgeirs Porgeirssonar
að hægt sé að meta góða vinnu-
aðstöðu til hlunninda?
- í þau sextán ár sem ég hef
verið hérna hef ég ekki séð neitt
gerast í sambandi við vinnu-
aðstöðu nema eðlilegt viðhald.
Hér er ekki slæm vinnuaðstaða
en það er út í hött að meta slíkt
til launa. Hvað varðar þriggja
mánaða framlengingu uppsagn-
arfrests þá er það bara þving-
unaraðgerð. Við sögðum ekki
upp í þeim tilgangi að pressa á
hlutina og vera svo áfram þó
ekkert gerist okkur til hagsbóta.
Ég get ekki skilið að þvingunar-
aðgerðir skili neinu fyrir stofn-
unina, við neyðumst til að hætta
ef við fáum ekki Ieiðréttingu.
Rót vandans er sú að ríkið verð-
ur að gera upp hug sinn með til-
liti til þess að standast sam-
keppnina um starfsmennina.
Þeir geta ekki haldið fólki á
miklu lægri launum en gerist
annars staðar, við förum ein-
faldlega í önnur störf ef þetta
breytist ekki.
- Nú voru samningar póst-
manna samþykktir á sínum
tíma. Voru þeir samningar
mistök?
- Samningarnir voru sam-
þykktir í vor með yfirgnæfandi
meirihluta atkvæða ófaglærðra
starfsmanna. 800 manns eru í
Póstmannafélagi íslands en þar
af eru ekki nema um 150 fag-
lærðir. Ég vil því orða þetta svo
að síðustu samningar hafi verið
mjög vanhugsaðir. Bréfberar og
bílstjórar fengu sæmilega viðbót
í samningunum en við hinir sát-
um alveg eftir.
- Að lokum: Gangið þið út 3.
desember ef ekki semst?
- Ég get ekki sagt til um hvað
gerist ef þriggja mánaða fram-
lenging verður sett á uppsagnar-
frestinn en við förum í önnur
störf að öllu óbreyttu. EHB
EKswer þá úfeegt
fjármagHifeix í
Allar uppiysmgar veita
verðtn^^^skiptum.
KAUPÞING
NORÐURLANDS HF
Ráðhústorg 5 - Akureyri Sími 96-24700
Ökukennarafélag
Norðurlands
Aðalfundur félagsins verður haldinn mánu-
daginn 5. október kl. 20.30 í húsnæði öku-
skólans, Kaupangi.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf, lagabreytingar, önnur
Sjórnin.
mál.
Nýtt á
Súlnabergi
RISAborgari
50% steerri
Innihald: 100% nautakjöt, laukur,
sýröar gúrkur, relish, jöklasalat,
franskar kartöflur.
Á kynningarverði vikuna 1 .-7. okt.
aðeins kr. 340.
★
Fjölskyldutilboð
á Súlnabergi
sunnudaginn 4. október
Spergilssúpa
Fyllt grísasteik
Frítt fyrir börn að sex ára aldri
V2 gjald fyrir 6-12 ára.
★
Dansleikur
laugardagskvöld
Hljómsveit Finns Eydal
leikur fyrir dansi til kl. 03.00.
Húsið opnað fyrir aðra
en matargesti kl. 23.00.