Dagur - 02.10.1987, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 2' októ'bér 1987
LYFTARAR
Eigum til afgreiðslu nú þegar mikið úrval notaðra rafmagns-
og diesellyftara, ennfremur snúninga- og hliðarfærslur.
Tökum lyftara upp í uppgerðan, leigjum lyftara, flytjum lyft-
ara.
Varahluta- og viðgerðaþjónusta.
Líttu inn - við gerum þér tilboð.
Tökum lyftara í umboðssölu.
LYFTARASALAN HF. _____________||
Vatnagörðum 16. Símar 82770 og 82655.
Sælkerar kitla
bragðlaukana
Karlakór
Akureyrar
Karlakór Akureyrar heldur aðalfund í
Hljómborg Óseyri 6b, sunnudaginn
4. október kl. 20.00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Fjölmennið stundvíslega. stjórnin.
Mjólkursamlag KEA
verður lokað
eftir hádegi mánudaginn 5. október
vegna jarðarfarar
Magnúsar Vilhjálmssonar.
Laugardagskvöldið 26. sept-
ember síðastliðinn var haldið
svokallað sælkerakvöld í Lax-
dalshúsi. Er þetta fyrsta kvöld
sinnar tegundar í þessu elsta
húsi bæjarins og má því segja
að það hafi verið tilraun. Talað
var um að ef vel tækist til yrðu
fleiri slík kvöld haldin og það
er óhætt að segja að sú hafi
orðið raunin, því það var sann-
kölluð veisla í Laxdalshúsi.
Veislustjóri var Margrét
Blöndal, útvarpskonan góð-
kunna. Það var Hermann Huij-
bens sem sá um að töfra fram
Ijúffenga rétti með góðri aðstoð
Arnar Inga. Örn Ingi sá sömu-
leiðis um að velja vín með
matnum. En það var ekki ein-
ungis veisla fyrir bragðlaukana
heldur einnig fyrir eyrað. Tveir
pólskir hljóðfæraleikarar sáu um
þá veislu, þau heita Waclaw
Lazarz, sem spilar á þverflautu
og Dorota Manczsyk, sem spilar
á hljómborð.
Fólk mætti prúðbúið kl. 19.30
og þá var borinn fram kokteill.
Rúmlega átta var sest til borðs og
fljótlega kom fyrsti rétturinn á
borðin. Það var eggaldinblandað-
ur svepparéttur í brauði. Bragð-
aðist hann ákaflega vel. Þá kom
sinnfepssúpa með floteggi og
rjómatopp, ekki var hún síðri.
Næsti réttur á seðlinum freistaði
undirritaðrar ekki mikið, djúp-
steiktur sjósiginn þorskur með
baunaspírum. Hann reyndist þó
ekki afleitur og sumum þótti
þetta besti réttur kvöldsins.
Þegar signi fiskurinn var kom-
inn á sinn stað voru bornar fram
smjörristaðar kjúklingabringur
með sælkerafyllingu og brögðuð-
ust þær vel. Sorbit-ís með kræki-
berjahlaupi var næstur á dagskrá
og loks hreindýrasteik með kand-
ískartöflum og fleira góðgæti, alls
9 tegundum. Að öðrum réttum
kvöldsins ólöstuðum þótti undir-
ritaðri hreindýrasteikin best. í
lokin var svo kaffi og heimakon-
fekt. Virkilega ljúfur endir á
góðu kvöldi. Það er vonandi að
framhald verði á þessum sælkera-
kvöldum í Laxdalshúsi svo sæl-
kerar Akureyrar og nágrennis
geti átt þar notalegar kvöldstund-
ir yfir ljúffengum mat í vetur.
Takk fyrir mig. HJS
Sláturhross óskast
til útflutnings
í byrjun október
Vinsamlegast hafið samband við Sigurð Ragn-
arsson í Búvörudeild Sambandsins, um skrán-
ingu eða nánari upplýsingar: Sími 91-28200.
Einnig er hægt að hafa samband við kaupfélög
á staðnum.
Búvörudeild Sambandsins.
Félag hrossabænda.
Innritun
hjá skátum
A sunnudag verður innritun hjá
skátafélaginu Klakk. í skátafé-
laginu Klakk eru starfandi 360
börn og unglingar á öllum aldri.
Skátastarf býður upp á óþrjót-
andi verkefni, jafnt úti sem inni,
allan ársins hring.
Innritunin fer fram eins og
áður segir á sunnudaginn milli kl.
14.00 og 17.00 á eftirtöldum
stöðum:
I skátaheimilinu Hvammi, Hafn-
arstræti 49.
í skátaheimilinu Völubóli, Helga-
magrastræti 17.
í Lundarskóla, kjallara, gengið
inn að norðan.
I Síðuskóla aðalinngangi.
Og auk þess í símum 26894 og
21812 á sama tíma.
Auk þess verður tekið við
umsóknum á skrifstofu félagsins
alla næstu viku milli klukkan
17.00 og 19.00. Skrifstofan er í
Hvammi, Hafnarstræti 49 og sím-
inn þar er 26894.
Skátafélagið Klakkur.
Hilniar Gíslasun mun stýra öðru liðinu í Bændaglímunni.
Golf:
óskar eftir að ráða hugmyndaríkt fólk
til að skrifa fasta þætti í blaðið.
Tilskilin er góð íslensku- og vélritunarkunnátta
og góð almenn menntun.
Um eftirtalda efnisþætti er að ræða:
★ Unglingar
★ Neytendur
★ Hannyrðir
★ Popptónlist
★ Sígild tónlist
★ Matargerð o.fl.
Ennfremur óskar blaðið eftir fólki
til að skrifa fasta þætti um sjálfvalið efni.
Umsóknir berist Braga V. Bergmann ritstjóra,
sem jafnframt veitir nánari upplýsingar ef óskað er.
Umsóknarfrestur er til 10. október nk.
Strandgötu 31, Akureyri. Slmi 24222.
Bændaglíman
- a morgun
Keppni samkvæmt mótaskrá hjá
Golfklúbbi Akureyrar lýkur á
laugardag en þá fer Bændaglím-
an fram. Bændur að þessu sinni
verða tveir valinkunnir bæjarbú-
ar, þeir Hilmar Gíslason bæjar-
verkstjóri og Guðjón Jónsson
formaður Sjómannafélags
Eyjafjarðar.
Hilmar hefur æft þokkalega í
sumar, þetta 8-10 sinnum í viku
og hann á ekki von á því að það
verði erfitt að leggja sjóarann að
velli. Guðjón er hvergi banginn
og ætlar sér og sínu liði sigur
gegn landkrabbanum. Það má
því búast við jafnri og skemmti-
legri keppni þar sem þeir Hilmar
og Guðjón ætla sér báðir sigur.
Allir félagar í GA jafnt byrj-
endur sem þeir sem eru lengra
komnir eru hvattir til þess að
mæta og vera með í keppninni.
Leiknar verða 9 holur og hefst
keppni kl. 13.
íbúðir fyrir aldraða:
Norðurverk bauð lægst
A fundi framkvæmdanefndar
íbúða fyrir aldraða á Akureyri
síðastliðinn föstudag, voru
opnuö tilboð í jarðvegsskipti
fyrir 30 íbúða húsi og bílastæö-
um því tilheyrandi.
Þrjú tilboð bárust í verkið.
Lægsta tilboðið átti Noröurverk
hf. 1.155.700, Möl og sandur
bauð 1.568.500 og Rúdolf Jóns-
son og Guðmundur Kristjánsson
buðu 1.613.375 krónur.
Nefndin ákvað á fundi sínum
að fela Magnúsi Garðarssyni
starfsmanni nefndarinnar að
ganga til samninga viö Norður-
verk unt að vinna verkiö. Kostn-
aðaráætlun hljóðaði upp á
1.946.000 krónur þannig að til-
boð Norðurverks er 79,5% af
henni.
Húsið scm um ræðir er fyrsti
áfangi íbúðabygginganna en
veröur boðiö út í þremur hlutum.
Annar hlutinn verður steypa á
gólfplötu cn sá þriðji og síðasti
allt þar fyrir ofan. ET