Dagur - 02.10.1987, Síða 12

Dagur - 02.10.1987, Síða 12
 Þœttir úr sögu... leggja í reksturinn. Skólinn fékk rekstursfé frá ríki og sýslu. Héraössambandið lét vefa og kostaði að mestu alia vefnaðar- vöru til skólans í upphafi. Það gaf trjáplöntur í skólalóðina þegar frá henni var gengið og það gekkst fyrir minningarlundi um gamla Kvennaskólann á 75 ára afmæli hans. Öll árin komu kon- ur úr kvenfélögunum í heimsókn og fylgdust þannig með skólanum og kynntust starfi hans. Aðal- fundur sambandsins var lengi haldinn í skólanum. Óhætt er að segja að sambandið leit á skólann sem sitt óskabarn. Lok skólans og frágangur eigna Eftir að kennsla hætti í skólanum var hann um árabil leigður til Hitaveitu Akureyrar. Þegar þeirri leigu lauk fóru eigendur, ríki og sýsla, að huga að frágangi eignarinnar og einkamuna skólans. Menntamálaráðuneytið bauð þá Héraðssambandi eyfirskra kvenna húsnæði í skólanum og að það tæki við einkamunum skólans, skjölum, gjafamunum, bókasafni og fleiru, til varðveislu í þessu húsnæði. Segir svo í bréfi frá ráðuneytinu: Húsnæðið á að vera fullfrágengið og Héraðssam- bandinu að kostnaðarlausu og án allra kvaða að undanskildum orkukostnaði vegna húsnæðisins og kostnaði af eigin notum Sam- bandsins og síðar viðhaldi innan húss. Petta sé gert í þakklætis- skyni til Sambandsins fyrir mikið og óeigingjarnt starf og framlag til Húsmæðraskólans um langan tíma. Sambandið hafi húsnæðið til fundarhalda og sem sitt heim- ili. Ekki voru allir í sambandinu á einu máli um þetta en það fékkst þó samþykkt að taka við þessu. Húsnæðið er á efri hæð viðbygg- ingarinnar að norðan. Ef af þessu hefði ekki orðið hefðu þessir munir gengið til ýmissa safna á Akureyri, aldrei kom til mála að selja þá. Allir fyrrverandi nemendur svo og velunnarar Húsmæðraskólans eru velkomnir í heimsókn til að skoða það sem þarna er geymt. Margt sameiginlegt með skólunum Þegar litið er yfir sögu þessara tveggja skóla, sem eru nátengdir, sést að margt hefur verið sam- eiginlegt. Til þeirra var stofnað af vakningu um það að menntun kvenna, bæði til munns og handa, sé undirstaða góðra heim- ila, heilbrigðis og góðs uppeldis þjóðarinnar, bæði andlega og líkamlega. Báðir skólarnir hafa verið undir stjórn ágætra for- stöðukvenna og haft á að skipa vel menntuðum, úrvals kennur- um. Gamli skólinn bjó við lélegan húsakost frá upphafi og að lokum húsnæðisleysi. Varð það að lok- um til þess að hann hætti. Nýi skólinn tók til starfa í nýju og góðu húsnæði, en það varð of lít- ið með tímanum og kröfur tím- ans um þægindi og húsakost juk- ust örar en úr varð bætt. Báðir skólarnir áttu sér mikla velunnara og stuðningsmenn. Má þar nefna Eggert Gunnarsson og marga aðra samtímamenn hans sem unnu að gamla skólanum. Nýi skólinn átti Héraðssamband- ið með Rósu Einarsdóitur í farar- broddi og síðan prestshjónin að Laugalandi, Benjamín Kristjáns- son og Jónínu Björnsdóttur, sem voru óþreytandi að vinna að vel- ferð hans. Fjölmargir aðrir unnu að stofnun hans og velferð, sem ekki er rúm til að telja upp hér. Ekki er ómögulegt að nýr hús- stjórnarskóli eigi eftir að rísa í stað þeirra sem hér hefur verið lýst. Óhætt er að segja að sú mennt- un og menning sem nemendur þessara skóla hafa flutt með sér til sinna heimabyggða hafi verið heimilum þeirra og þá þjóðfélag- inu öllu til blessunnar. Með þessum orðum lýkur frá- sögn af tveimur merkum skóla- stofnunum. Höfundur er formaður Héraðssambands eyfirskra kvenna og fyrrverandi kennari við Húsmæðraskólann að Laugalandi. Skólasöngur Húsmæðraskólans að Laugalandi eftir Friðgeir H. Berg. Sunginn fyrst við vígslu skólans 3. október 1937. Þar sem söngur salinn fyllir sálir þroska ná. Þar sem höndin hörpu stiliir hörfa skuggar frá. Þar sem léttir hlátrar hljóma hlýnar land og blóð. Dauðir hlutir enduróma æsku sigurljóð. Syngjum inn í sali alla sólarljós og yl. Meðan fer um hlíð og hjalla hríð með vetrarbyl. Svo að dísir láns og lista læðast til vor inn. Þar sem slíkir gestir gista gróa vísindin. Viftugöt Gerum viftugöt fyrir eldhús og baðherbergi. Verkval Símar: 27272, 26262 og 985-23762. Akureyri - Mývatn - Akureyri Vetraráætlun Gildir frá 08.10.’87-09.05.’88. Ath. Breyting á áætlun um jól og páska. Frá Akureyri fimmtudag kl. 20.00 föstudag kl. 16.30 sunnudag kl. 14.00 Frá Reynihlíð föstudag kl. 08.00 og 20.00 sunnudag kl. 17.00 Farpantanir í Hótel Reynihlíð s 96-44170 og afgreiðslu Sérleyfisbíla Geislagötu 10 s 96-24729 og 24475. SÉRLEYFISBÍLAR AKUREYRAR SF. Byggingavömr Glerárgötu 36 Sími 96-21400. Naglatappinn er plasttappi með skrúfunagla. Festinguna má festa í flest efni t.d. vikurplötur og steinsteypu. Skrúfunaglinn er rafhúðaður með sinki og skrúfuhaus sem hægt er að losa upp aftur. Slag-ankeri í enda ankersins er kólfur sem sleginn er inn og við það þenst ankerið út. Eftir það er það tilbúið til notk- unar. Torgrip- múrboltar Kostir: - festing fyrir þunga hluti í steinsteypu - festist gegnum hlutinn' - einföld notkun - gerðir fyrir alla notkun FESTIEFNI VEITIR FESTU ALLS STAÐAR Naglatappi i Fundarstaður Sælkeranna Opið á laugardagskvöldum frá kl. 18.00. Annars opið hvenær sem er fyrir pantanir. Húsið hentar vel fyrir hópa frá 10-70 manns í hvers konar samsæti: Afmælis- veislur, erfidrykkjur, brúðkaupsveislur og fleira. Matseðill helgarinnar er fjölbreyttur að vanda: 3 forréttir - 3 kjötréttir og 3 eftirréttir. Upplýsingar og borðapantanir í símum 26680 og 22644. ★ Ath. lokað vegna haustfría 4.-18. október. ★ Laugardaginn 24. október verður síðan stórkostlegt villibráðakvöld með sérstöku vínvali - hljóðfæraleik og veislustjóra. Þeir sem vilja tryggja sér þátttöku strax geta haft samband við matreiðslumeistarann Hermann Huijbens í síma 22497 eftir kl. 20.00. Borgarbíó Föstud. kl. 9.00 Laugard. kl. 9.00 Sunnud. kl. 5.00 og 9.00 Þrír vinir Verð kr 250.- Föstud. kl. 9.10 Laugard. kl. 9.10 Sunnud. kl. 5.00 og 9.10 Morgan kemur heim Föstud. kl. 11.00 Sunnud. kl. 11.10 Burglar Föstud. kl. 11.10 Vítisbúðir Sunnud. kl. 11.00 Lethal Weapon Verð kr. 250 Sunnud. kl. 3.00 Ráðagóði róbótinn Aðgangur kr. 100.- ---------------------- Tóbaksreykur v____________________/ mengar C/IPlhO og er hættulegur heilsunni. Ull LANDLÆKNIF

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.