Dagur - 21.10.1987, Page 1
70. árgangur Akureyri, miðvikudagur 21. október 1987 200. tölublað
Filman þin
á skiiiö þaö
besta /
Nýja Filmuhúsið
Hafnarstræti 106 - Sími 27422 - Pósthólf 196
gæðaframköllun
Hrað-
framköllun
Opið á
laugardögum
frákl. 9-12.
segir Þórhallur Jónasson
hjá SR á Siglufirði
„Þetta er búið að vera algjör
dauði og djöfull. En við von-
umst til að fá loðnu í næstu
Dræm
rjúpnaveiði
- við upphaf vertíðar
Rjúpnavertíðin sem byrjaði á
fimmtudag í fyrri viku virðist
ekki hafa byrjað með neinni
fádæma góðri veiði. Dagur
hefur spurnir af nokkrum
veiðimönnum í Þingeyjarsýsl-
um sem fengu allt frá einni
upp í fimmtán rjúpur yfir
daginn sem sennilega verður
að teljast í lakari kantinum.
Einar Long í skotfæraversl-
uninni Eyfjörð á Akureyri sagði
í samtali við blaðið að mikið
hefði verið farið til rjúpna
fyrstu dagana sem leyfilegt var
að skjóta en svo virtist sem
menn hafi ekki haft árangur
sem erfiði.
„Þess ber náttúrlega að gæta
að veður hafa verið mjög óhag-
stæð þessa fyrstu daga þannig
að reynslan á þetta er ekki kom-
in enn. Hitt er svo annað mál að
maðtir hefur ekki heyrt að það
hafi sést mjög mikið af rjúpunni
á þeim svæðum sem menn hafa
farið þ.e. bæði hér austur og
vestur um,“ sagði Einar.
viku ef tíðin skánar og skipin
komast á veiðar,“ sagði Þór-
hallur Jónasson hjá Síldar-
verksmiðjum ríkisins á Siglu-
firði í samtali við Dag. Þangað
hefur engin loðna borist á
þessari haustvertíð, en á sama
tíma í fyrra hafði verið landað
þar 70 þúsund tonnum.
„Það er ekki laust við að við
séum að verða alvarlega
svekktir því við erum ekki
búnir að fá neitt upp í fyrirfram-
samninga sem við höfum gert og
þurfum að standa skil á. Ef ekki
rætist eitthvað úr málunum í
þessum mánuði verður útlitið
orðið dökkt og svona er þetta
auðvitað hjá fleiri verksmiðjum."
Aðspurður sagði Þórhallur að
næg vinna hefði verið hingað til
hjá starfsmönnum verksmiðjunn-
ar, við viðhald ýmiss konar.
Starfsmenn vélaverkstæðisins
hafa unnið mikið síðustu mánuði
við viðhald og endurbætur í verk-
smiðjunum fyrir austan, á Rauf-
arhöfn, Seyðisfirði og Reyðar-
firði. T.d. hefði verið sett ný soð-
stoð í verksmiðjuna á Raufar-
höfn. Á Siglufirði hefur verið
mikil vinna í sumar og haust við
niðurrif á Pálsverksmiðjunni
gömlu, svokölluðu. -þá
Vilja
Ullariðnaður SÍS og Álafoss renna saman í eitt fyrirtæki á næstunni. Nýja fyrirtækið hefur ekki hlotið nafn ennþá
en þessi mynd er tekin í vefsal ullariðnaðardcildarinnar á Akureyri. Mynd: ehb
Rækjuframleiðendur:
50% af rækjukvóta
„Erum að verða
alvarlega svekktir"
- telja að annað muni leiða til byggðaröskunar
Sennilega má búast við að
rjúpnaveiðimenn verði mikið á
ferðinni næstu helgar ef veður
leyfir. Vert er að minna menn á
auglýsingar landeigenda um
leyfi til rjúpnaveiði sem birtast í
dagblöðunum. JÓH
„Það er lítilsvirðing við öldr-
unarráð og ekki síst formann
þess að ganga framhjá ráðinu á
þennan hátt. Hætt er við að
formönnum og nefndarmönn-
um í nefndum og ráðum bæjar-
ins þætti sér freklega misboðið
ef slík vinnubrögð væru við-
höfð gagnvart þeim,“ sagði
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir,
bæjarfulltrúi, á bæjarstjórnar-
fundi í gær.
Tilefni ummælanna - en þeim
var beint til bæjarstjóra - var
bókun öldrunarráðs frá 13. okt.
Bókunin var gerð vegna fréttar í
í gær var haldinn á Akureyri
fundur rækjuframleiðenda á
Norðurlandi og Vestfjörðum
vegna umræðna um takmörk-
un rækjuveiða í mótun nýrrar
Degi um að verktaki við Hlíð
hafi sent öldrunarráði bréf vegna
verkloka við dvalarheimilið og
samið við bæjarstjóra um frest til
verkloka. Þótti öldrunarráði að
vonum framhjá sér gengið því
umrætt bréf hafði aldrei komið
fyrir augu meðlima þess.
Sigfús Jónsson, bæjarstjóri,
svaraði því til að hann væri í raun
yfirframkvæmdastjóri yfir öllum
verklegum framkvæmdum á veg-
um bæjarins. Mál þetta væri tæp-
lega á verksviði öldrunarráðs og
hefði hann sinnt umræddu bréfi -
sem hefði verið stílað til húsa-
meistara - með viðtali við
fiskveiðistefnu. Fundurinn
samþykkti samhljóða að ef
kvóti verður settur á veiðar
úthafsrækju á næsta ári þá sé
eðlilegt að rækjuframleiðend-
starfsmann þeirrar stofnunar og
samkomulagi við verktaka. Síðan
lét bæjarstjóri þau orð falla að ef
pólitískar nefndir á vegum bæjar-
ins ætluðu að vera með nefið
ofan í smáatriðum skyldu nefnd-
armenn fá sér annan bæjarstjóra
og standa sjálf í framkvæmdum.
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir
átaldi bæjarstjóra fyrir óskýran
málflutning og ítrekaði að
framhjá öldrunarráði hefði verið
gengið. Bað hún bæjarstjóra að
utskýra nánar hvað hann ætti við
en af því varð þó ekki á fundin-
um. Formaður öldrunarráðs tók
ekki til máls á fundinum. EHB
ur fái ráðstöfunarrétt á 50%
þess sem veiða má.
Rækjuframleiðendur hafa
áður lýst þeirri skoðun sinni að
þeim beri að fá hluta af hugsan-
legum rækjuveiðikvóta. Á fund-
inu urðu menn sammála um að
fara fram á 50% en að sögn
Kristjáns Ármannssonar fram-
kvæmdastjóra Sæbliks hf. á
Kópaskeri telja sumir í þeirra
hópi auðvelt að færa rök fyrir því
að verksmiðjurnar fái allan kvót-
ann líkt og nú gildir með veiðar á
innfjarðarækju.
„Það sem menn óttast mest, ef
skipin fá allan kvótann, er
byggðaröskun sem af því hlýst.
Þó svo að mest af rækjunni sé
veitt hér norðanlands þá hefur
það tíðkast að hluti aflans sé
fluttur suður á land á bílum.
Menn óttast að hafi heimamenn
ekki eitthvert vald yfir þessu þá
standi þeir á endanum uppi alls-
lausir,“ sagði Kristján og nefndi
til hliðsjónar að humarveiðar við
Suðurland væru eingöngu heimil-
ar bátum á því svæði. Hann sagði
ennfremur að þó að menn væru
auðvitað misjafnlega ánægðir
með kvótann þá væru þeir sam-
mála að við hann yrði að búa.
Á landinu eru nú um 40 rækju-
vinnslur en á Vestfjörðum og
Norðurlandi eru þær rúmlega 20
talsins. Á fundinum voru mættir
fulltrúar flestra vinnslustöðva á
svæðinu og var nefnd skipuð til
að vinna að tillögum um út-
hlutunina og leggja þær fyrir ráð-
gjafanefnd um mótun fiskveiði-
stefnu. ET
Miðbæjar-
blað á
morgun
Með Degi á morgun fylgir sér-
stakt blað um miðbæ Akureyrar.
Blaðið er sérstaklega tileinkað
verslun í Miðbænum og er þar að
finna kynningu á öllum helstu
verslunum Miðbæjarins í máli og
myndum. Rætt er við eigendur
og/eða verslunarstjóra og kemur
margt forvitnilegt í ljós.
Miðbæjarblað Dags er tuttugu
síður að stærð.
Akureyri:
Öldrunarráð lítilsvirt
- „Mál sem þetta tæplega á vegum ráðsins,“ segir bæjarstjóri