Dagur - 21.10.1987, Blaðsíða 4
2 *• Rb’öAö — Y88? \9tk)iÁv . j"S
4 - DAGUR - 21. október 1987
Ijósvakanum.
SJONVARPIÐ
MIÐVIKUDAGUR
21. október
18.20 Ritmálsfréttir.
18.30 Töfraglugginn.
Endursýndur þáttur frá 18.
október.
19.25 Fréttaágrip á tákn-
máli.
19.30 Við feðginin.
(Me and My Girl).
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og
dagskrá.
20.40 Fresno.
Lokaþáttur.
21.30 Óður böðulsins.
(The Executioner’s Song.)
Fyrri hluti.
Bandarísk sjónvarpsmynd
í tveimur hlutum, gerð eft-
ir verðlaunaskáldsögu eft-
ir Norman Mailer.
Árið 1977 var Gary
Gilmore tekinn af lífi í Utah
og vakti aftaka hans mikið
umtal á sínum tíma. Hér er
rakinn átakanlegur
aðdragandi hennar en
Gary Gilmore krafðist þess
sjálfur að dauðadómi yfir
sér yrði framfylgt.
23.05 Útvarpsfréttir í dag-
skrárlok.
SJONVARP
AKUREYRI
MIÐVIKUDAGUR
21. október
16.40 Skaup í Skírisskógi.
(Zany Adventures ot Rob-
in Hood.)
Hertoginn af Austurríki
heldur Ríkhardi Ljónhjarta
föngnum og heimtar álit-
lega upphæð í lausnar-
gjald. Vegna pólitískra
væringa á Englandi eru
greiðslur ekki inntar af
hendi þar til Hrói höttur
lætur málið til sín taka.
18.20 Smygl.
(Smuggler.)
18.45 Garparnir.
19.19 19:19.
20.30 Mordgáta.
(Murder she Wrote.)
21.30 Mannslíkaminn.
(The Living Body.)
Eins og flestir vita er
mannslíkaminn að lang-
mestu leyti vatn, Það er
því við hæfi að þessi þáttur
Mannslíkamans fjalli um
vökva líkamans, þorsta og
af hverju hann stafar, og
síðast en ekki síst um þá
mikilvægu starfsemi sem
fram fer í nýrunum.
21.55 Af bæ i borg.
(Perfect Strangers.)
22.25 Fornir fjendur.
(Concealed Enemies.)
Framhaldsmyndaflokkur
um Alger Hiss málið sem
upp kom í Bandaríkjunum
árið 1948, en það varð
upphafið að ferh Richard
Nixon fyrrverandi Banda-
ríkjaforseta.
23.20 London 0 Hull 4.
Hljómleikar með nýbylgju-
hljómsveitinni Housemart-
ins frá Hull sem slógu í
gegn með samnefndri
plötu.
23.50 Lögregluþjónn númer
373.
(Badge 373)
Eddie Ryan missir starf
sitt f lögreglunni eftir að
árás á skemmtistað fer
úr böndunum með hrylli-
legum afleiðingum. Þegar
starfsfélagi hans er
myrtur, sver hann þess
dýran eið að hefna hans.
Myndin er byggð á sögu
lögregluforingjans úr „The
French Connection". «
Bönnuð börnum.
01.45 Dagskrárlok.
0
RÁS 1
MIÐVIKUDAGUR
21. október
6.45 Veðurfregnir • Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið
með Ragnheiði Ástu Pét-
ursdóttur.
8.30 Fréttayfirlit • Lesið úr
forustugreinum dagblað-
anna.
8.35 Morgunstund barn-
anna: „Líf“ eftir Else
Kappel.
8.45 íslenskt mál.
Endurtekinn þáttur frá
laugardegi sem Guðrún
Kvaran flytur.
Tilkynningar.
9.00 Fréttir.
9.03 Dagmál.
Umsjón: Sigrún Björns-
dóttir.
9.30 Landpósturinn.
Frá Vestfjörðum.
Umsjón: Finnbogi Her-
mannsson.
10.00 Fréttir • Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Óskastundin.
11.00 Fréttir • Tilkynningar.
11.05 Samhljómur.
12.00 Fréttayfirlit • Tilkynn-
ingar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir • Til-
kynningar ■ Tónlist.
13.05 í dagsins önn - Ungl-
ingar.
Umsjón: Einar Gyifi
Jónsson.
13.30 Miðdegissagan:
„Dagbók góðrar grann-
konu" eftir Doris Lessing.
14.00 Fréttir • Tilkynningar.
14.05 Harmonikuþáttur.
(Endurtekinn þáttur frá
laugardagskvöldi.)
14.35 Tónlist.
15.00 Fréttir • Tilkynningar.
15.05 í hnotskurn.
Umsjón: Valgarður Stef-
ánsson. (Frá Akureyri.)
(Endurtekinn þáttur frá
laugardagskvöldi.)
14.35 Þingfréttir.
16.00 Fréttir • Tilkynningar.
16.05 Dagbókin.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir • Tilkynningar.
17.05 Tónlist á síðdegi -
Mozart og Beethoven.
18.00 Fréttir Tilkynningar.
18.05 Torgið - Efnahags-
mál.
18.30 Tónlist • Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir • Dag-
skrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
Glugginn - Bókamessan í
Frankfurt.
Umsjón: Arthúr Björgvin
Bollason.
20.00 Nútímatónlist.
Þorkell Sigurbjörnsson
kynnir hljóðritanir frá tón-
skáldaþinginu í París.
20.40 Fiðluleikur í Suður-
Þingeyjarsýslu og Kveld-
úlfskórinn.
21.10 Dægurlög á milli
stríða.
21.30 Að tafli.
Jón Þ. Þór flytur skákþátt.
22.00 Fréttir Dagskrá
morgundagsins Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Sjónaukinn.
Bjarni Sigtryggsson skoð-
ar þjóðmálaumræðu hér-
lendis og erlendis.
23.10 Djassþáttur.
- Jón Múli Árnason.
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur.
(Endurtekinn þáttur frá
morgni.)
01.00 Veðurfregnir.
MIÐVIKUDAGUR
21. október
7.03 Morgunútvarpið.
Dægurmálaútvarp.
Fréttayfirlit • Fréttir
Veðurfregnir • Tilkynning-
ar.
10.05 Miðmorgunssyrpa.
Gestaplötusnúður kemur í
heimsókn.
Umsjón: Kristín Björg Þor-
steinsdóttir.
12.00 Á hádegi.
Dægurmálaútvarp.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Á milli mála.
Umsjón: Gunnar Svan-
bergsson.
16.05 Dagskrá.
Dægurmálaútvarp.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 íþróttarásin.
Umsjón: Samúel Örn Erl-
ingsson, Arnar Björnsson
og Georg Magnússon.
Fylgst með leikjum á Evr-
ópumótum félagsliða í
knattspyrnu og leikjum á
íslandsmótinu í hand-
knattleik.
22.07 Háttalag.
Umsjón: Gunnar Salvars-
son.
00.10 Næturvakt Útvarps-
ins.
Guðmundur Benediktsson
stendur vaktina til
morguns.
Fréttir eru sagðar kl. 7, 7.30,
8, 8.30, 9,10,11,12.20,14,
15,16,17,18,19,22 og24.
RliqSUIVARPfÐ
ÁAKUREYRI
Svæðisútvarp fyrir Akureyri
og nágrenni.
MIÐVIKUDAGUR
21. október
8.07-8.30 og 18.03-19.00.
Umsjón: Kristján Sigur-
jónsson og Margrét Blön-
dal.
Mjóðbylgjan
FM 101,8
MIÐVIKUDAGUR
21. október
8.00 Morgunþáttur.
Þráinn Brjánsson með
fréttir af samgöngum og
veðri. Þráinn lítur í blöðin
og fær til sín fólk í stutt
spjall.
11.00 Arnar Kristinsson
spilar tónlist fyrir hús-
mæður og annað vinnandi
fólk
14.00 Olga Björg Örvars-
dóttir
með gömul og ný lög og
hæfilega blöndu af spjalli
um daginn og veginn.
17.00 í sigtinu
Ómar Pétursson og Friðrik
Indriðason verða með
fréttatengt efni og fá til sín
fólk í spjall.
19.00 Dagskrárlok.
Fréttir sagðar kl. 8.30 -
12.00 - 15.00 - 18.00.
MIÐVIKUDAGUR
21. október
07.00-09.00 Stefán Jökuls-
son og morgunbylgjan.
Stefán kemur okkur rétt-
um megin fram úr með til-
heyrandi tónlist og h'tur
yfir blöðin.
09.00-12.00 Valdís Gunnars-
dóttir á léttum nótum.
Morgunpoppið allsráð-
andi, afmæliskveðjur og
spjall til hádegis.
Og við lítum inn hjá hysk-
inu á Brávallagötu 92.
12.00-12.10 Fréttir.
12.10-14.00 Páll Þorsteins-
son á hádegi.
Létt hádegistónlist og
sitthvað fleira.
14.00-17.00 Ásgeir Tómas-
son og síðdegispoppið.
Gömlu uppáhaldslögin og
vinsældalistapopp í rétt-
um hlutföllum.
17.00-19.00 Hallgrímur
Thorsteinsson í Reykja-
vík síðdegis.
Leikin tónlist, litið yfir
fréttirnar og spjallað við
fólkið sem kemur við sögu.
19.00-21.00 Anna Björk
Birgisdóttir.
Bylgjukvöldið hafið með
tónlist og spjalli við hlust-
endur.
21.00-24.00 Örn Árnason.
Tónlist og spjall.
24.00-07.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar.
- Bjarni Ólafur Guðmunds-
son.
Tónlist og upplýsingar um
flugsamgöngur.
FIAT Duna Berlina.
- bílasýning hjá Höldi sf.
Um síðustu helgi var haldin
Fiat-bílasýning á vegum Hölds
sf. á Akureyri. A sýning-
unni var lögð sérstök áhersla á
kynningu DUNA-línunar
1988, og hafa bifreiðar þeirrar
gerðar hlotið verðskuldaða
athygli. Fiat-bifreiðar hafa
löngum þótt ódýrar og góðar
til síns brúks. Þetta eru léttir
og eyðslugrannir bílar sem fara
vel með farþega og ökumann
og eru taldir sterkir og þola vel
íslenskar aðstæður.
í tæknilegu tilliti er Fiat Duna
framhjóladrifinn, og vélin er
hljóðlát. Sjálfstæð fjöðrun er á
öllum hjólum sem hlýtur að nýt-
ast vel við langkeyrslu. Gírkassi
er 5 gíra.
Fiat Duna Berlina er 4 dyra
með 1301 cc vél, sem gefur af sér
67 hestöfl, en það er yfirdrifinn
kraftur fyrir svo léttan bíl. Verð-
ið er kr. 398 þúsund fyrir utan
ryðvörn og skráningu. Verð mið-
ast við 12. október 1987.
Fiat Duna Weekend heitir
skutbíllinn af þessari gerð. Hann
er með sömu vélarstærð og Ber-
lina og kostar kr. 415 þúsund.
Verður þetta að teljast merkilega
lítill verðmunur frá 4 dyra bíln-
um og þykir undirrituðum líklegt
að Duna Weekend muni njóta
mikilla vinsælda.
Hægt er að velja um tíu mis-
munandi liti á bílunum, bæði
standard og metallakk. Um er að
ræða fimm mismunandi sætis-
áklæðaliti. Eftirtalda standard-
FIAT Duna Weekend.
og aukahluti er um að ræða í
Duna-bílunum: Hitaða aftur-
rúðu, neyðarljós, spegla stillan-
lega innanfrá, stillanlega hnakka-
púða, rafdrifnar rúður, central-
læsingar, vakúmmæla, litaðar
rúður, viðvörunarljós v. hemla,
snúningshraðamæli, digital-
klukku, halogenljós, rúðuþurrku
á afturrúðu og afturleggjanlegt
aftursæti.
Aðrar tæknilegar upplýsingar
eru helstar þessar (Duna 70
Weekend): Þjöppunarhlutfall
9,3/1. Lengd bíls 4,04 metrar,
breidd 1,55 m, hæð 1,45 m.
Þyngd 890 kg óhlaðinn (eigin
þyngd). Bensíntankur tekur 54
lítra, hámarkshraði 158 km/klst.,
hröðun (0-100 km/klst.) 13,3
sek., stærð hjólbarða 165/70 SR
13. Bensíneyðsla er sem hér
segir: Á 90 kílómetra hraða 5,1
lítrar á 100 km, í bæjarakstri er
reiknað með 8,3 lítrum á hundr-
aðið. EHB
Fiat Duna á Akureyri
Fallegasta fnmerídð 1986
Síðastliðinn vetur og vor var efnt
til skoðanakönnunar um falleg-
asta frímerkið útgefið 1986.
Atkvæðaseðlar voru sendir þeim
sem fá tilkynningar um nýjar
útgáfur frá Frímerkjasölu Póst-
og símamálastofnunar, einnig
lágu seðlar frammi í öllum póst-
afgreiðslum landsins. Dreift var
rúmlega 30 þúsund seðlum. Velja
skyldi þrjú fallegustu frímerkin
(1, 2, 3). Innkomnir seðlar voru
um 5 þúsund (4867 gildir).
Fallegasta frímerkið var valið
smáörk útgefin 9. október með
mynd eftir Auguste Meyer, verð-
gildi 20 kr. + 10 kr. og hlaut það
1345 atkvæði. í öðru sæti var
Evrópufrímerki útgefið 5. maí,
Jökulsárgljúfur, verðgildi 12 kr.
Þriðja fallegasta merkið var úr
sömu útgáfu, Skaftafell í Öræf-
Fallegasta frímerkið að dómi þeirra
sem þátt tóku í skoðanakönnuninni.
um, verðgildi 10 kr. Þröstur
Magnússon teiknaði merkin.
Alls bárust seðlar frá 48
löndum. Flest voru atkvæðin frá
Danmörku, 929, næst flest frá ís-
landi, 700, 695 frá Svíþjóð, 618
frá Vestur-Þýskalandi, 510 frá
Noregi, 329 frá Bandaríkjunum
og 207 frá Hollandi. Frá öðrum
löndum bárust færri atkvæði.
Dregið var úr öllum innsend-
um seðlum. Verðlaun voru 1
fyrstadagsumslag og 4 óstimpluð.
merki af öllum útgefnum frí-
merkjum 1987. 25 nöfn voru
dregin út og skiptust þau milli
hinna ýmsu landa. Viðstaddir
útdrátt vinningshafa voru nokkrir
yfirmenn Póst- og símamála-
stofnunar og fulltrúar frá félög-
um frímerkj asafnara.
Ákveðið hefur verið að hafa
skoðanakönnun um frímerki
útgefin 1987 með sama sniði.
Reykjavík 12. október 1987.