Dagur - 21.10.1987, Qupperneq 9
Jþróttir.
Umsjón: Kristján Kristjánsson
Vfi-yt v-vkv.’/W'. to ^ yjri\Ari n
21. október 1987 - DAGUR - 9
„Starfsgmndvellinum nánast
kippt undan mótanetnd"
—segir Jón H. Guðmundsson formaður mótanefndar HSI en stjórn
HSÍ hefur frestað leikjum í 1. deild í óþökk mótanefndar
„Það eru aðrir en mótanefnd
farnir að ráðskast með íslands-
mótið og það er hlutur sem ég
er alls ekki sáttur við. Ég sá
enga ástæðu til þess að fresta
þessum leikjum og var því
alfarið á móti því,“ sagði Jón
H. Guðmundsson formaður
mótanefndar HSÍ í samtali við
Dag í gær. Stjórn HSÍ hefur
ákveðið að fresta nokkrum
leikjum í 6. umferð 1. deildar
vegna ferða A-landsIiðsins til
Sviss og piltalandsliðsins til
Þýskalands í þessari viku og er
það gert þrátt fyrir mótmæli
mótanefndar.
„Þessi vinnubrögð eru fyrir
neðan allar hellur og því má
spyrja til hvers er mótanefndin
og hvert er hlutverk hennar. Við
vissum af þessum ferðum lands-
liðanna þegar við röðuðum niður
í mótið og þetta átti allt að ganga
upp,“ sagði Jón ennfremur.
- Hyggst þú segja af þér sem
formaður mótanefndar vegna
þessa máls?
„Ég hafði hótað því að segja af
mér en hef verið beðinn að íhuga
það mál betur og mun gera það.
Það er komin upp mjög slæm
staða í mótanefnd og það er nán-
ast búið að kippa starfsgrundvell-
inum undan nefndinni. FH-ingar
sóttu á sínum tíma um frestun á
leiknum við KA vegna þessara
ferða en mótanefnd hafnaði því
þá,“ sagði Jón H. Guðmundsson
að lokum.
Handbolti:
Landsliðið keppir í Sviss
Handknattleikslandslið íslands liðið tekur þátt í fjögurra liða
hélt í morgun til Sviss, þar sem æfingamóti á næstu dögum. Á
Alfreð Gíslason keppir með landsliðinu í Sviss en hann er í geysilega góðu
formi um þessar mundir.
föstudaginn mætir liðið A.-
Þjóðverjum, Svisslendingum á
laugardag og Austurríkis-
mönnum á sunnudag. Auk
leikjanna mun liðið æfa af
krafti.
Bogdan Kowalczyk landsliðs-
þjálfari valdi 15 leikmenn til far-
arinnar og auk þess einn til vara.
Hópurinn er skipaður eftirtöld-
um leikmönnum:
Markverðir:
Einar Þorvarðarson Val
Guðmundur Hrafnkelsson UBK
Gísli Felix Bjarnason KR
Aðrir leikmenn:
Þorgils Óttar Mathiesen FH
Bjarni Guðmundsson W.Eickel
Karl Þráinsson Víkingi
Sigurður Gunnarsson Víkingi
Alfreð Gíslason Essen
Páll Ólafsson Dusseldorf
Guðmundur Guðm.ss. Víkingi
Kristján Arason Gummersbach
Geir Sveinsson Val
Sigurður Sveinsson Lemco
Júlíus Jónasson Val
Jakob Sigurðsson Val
Til vara valdi Bogdan Bjarka
Sigurðsson úr Víkingi, þar sem
ekki er víst að Bjarni Guðmunds-
son geti verið með í mótinu. Sem
fyrr er Þorgils Óttar Mathiesen
fyrirliði liðsins.
Haustmót BLÍ:
Þróttur vann IS í úrslitum
- KA vann Víking í keppninni um 5. sætið
Þróttur frá Reykjavík sigraði á
æflngamóti í blaki sem fram
fór á Laugarvatni um síðustu
helgi. Þar tóku þátt þau átta
lið sem leika í 1. deild karla í
vetur og var leikið í tveimur
riðlum. Þróttarar hafa greini-
lega á að skipa mjög sterku liði
sem fyrr en liðið sigraði einnig
á Reykjavíkurmótinu sem lauk
fyrir skömmu og þá er liðið
Islandsmeistari.
Liðin átta sem tóku þátt í mót-
inu um helgina voru Þróttur R,
ÍS, HK, Fram, KA, Víkingur,
HSK og Þróttur N. KA lék tvo
leiki á föstudagskvöld, gegn
Þrótti R og HK og tapaði þeim
báðum 0:2. Á laugardaginn lék
liðið þrjá leiki og vann þá alla.
Fyrst sigraði liðið Víking 2:0 og
síðan Þrótt N einnig 2:0. Þriðji
leikurinn var síðan aftur gegn
Víkingi og var sá leikur keppni
um 5.-6. sætið á mótinu. KA-
menn sigruðu 2:1 og höfnuðu því
í 5. sæti.
Það voru erkifjendurnir Þrótt-
ur R og ÍS sem léku til úrslita,
eins og svo oft áður. Það voru
Þróttarar sem sigruðu í leiknum
2:1. Stúdentar sigruðu í fyrstu
hrinunni en þá tóku Þróttarar
leikinn í sínar hendur og unnu
næstu tvær hrinur. HK og HSK
léku um 3.-4. sætið og sigruðu
HK-menn í þeim leik 2:0. Um
7.-8. sætið léku síðan Þróttur N
og Fram og sigruðu Þróttarar 2:0.
Keppni í 1. deild karla og
kvenna á íslandsmótinu hefst um
næstu helgi. Þá leika m.a. KA og
Þróttur N í karla- og kvenna-
flokki og fara leikirnir fram á
Akureyri. Nánar verður sagt frá
þeim leikjum í blaðinu á morgun.
Handbolti kvenna:
Þór - UBK
Kvennalið Þórs sem tekur þátt í
2. deild íslandsmótsins í hand-
knattleik leikur sinn fyrsta leik í
deildinni í kvöld. Þá fær liðið
Breiðablik í heimsókn og fer
leikur liðanna fram í Skemmunni
og hefst kl. 20.
Eru félögin
að taka völdin?
Ástæðan fyrir því að stjórn HSÍ
tekur fram fyrir hendurnar á
mótanefnd, er sú að nokkur
félaganna sem eiga menn í lands-
liðunum tveimur, höfðu hótað
því að gefa sínum mönnum ekki
leyfi til að fara, nema leikjum lið-
anna yrði frestað um einhverja
daga.
Leikirnir í 6. umferð 1. deildar
áttu að fara fram á þriðjudag,
miðvikudag og föstudag í næstu
viku. Stjarnan og ÍR mætast á
þriðjudaginn eins og til stóð enda
á hvorugt liðið menn í landsliði.
Á miðvikudaginn áttu að fara
fram þrír leikir og hafa þeir allir
verið færðir til. Breiðablik og Vík-
ingur leika í Kópavogi fimmtu-
daginn 29. okt. Fram og Þór leika
í Laugardalshöll föstudaginn 30.
október og einnig Valur og KR á
Hlíðarenda. Sunnudaginn 1.
nóv. lýkur síðan 6. umferð með
viðureign KA og FH á Akureyri.
Allt er þetta hið leiðinlegasta
mál og það verður að teljast
nokkuð einkennilegt þegar félög-
in eru farin að setja HSÍ stólinn
fyrir dyrnar hvað varðar val á
leikmönnum f landslið. HSÍ
bregst síðan við því á þann hátt
að taka fram fyrir hendurnar á
mótanefnd, sem er ekki síður
alvarlegt mál. Þetta mál gæti
dregið dilk á eftir sér og jafnvel
orðið til þess að öll mótanefndin
láti af störfum.
Knattspyrna:
Þorvaldur
og Rúnar
í landsliðið
Þorvaldur Örlygsson úr KA
og Rúnar Kristinsson úr KR
hafa verið valdir í knatt-
spyrnulandsliðið sem mætir
Sovétmönnum á miðviku-
daginn eftir viku. Þetta er í
fyrsta siun sem þeir félagar
eru valdir í A-landsliðið,
enda mjög ungir að árum og
eiga fast sæti í U-21 árs
landsliðinu. Leikurinn sem
er liður í Evrópukeppninni
fer fram í Sovétríkjunum.
Þetta er síðasti leikur
íslenska liðsins í riðlinum og
Ijóst er að ekki verður hægt
að stilla upp okkar sterkasta
liði.
Marga snjalla leikmenn
vantar, svo sem Ásgeir Sigur-
vinsson, Pétur Ormslev, Pétur
Pétursson, Sigurð Grétarsson
og Sigurð Jónsson svo ein-
hverjir séu nefndir. Sigfried
Held hefur valið 16 leikmenn
til fararinnar og eru þeir eftir-
taldir:
Markverðir:
Bjarni Sigurðsson Brann
Friðrik Friðriksson Fram
Aðrir leikmenn:
Arnór Guðjohnsen Anderlecht
Atli Eðvaldsson B.Uerdingen
Guðni Bergsson Val
Guðmundur Torfason Wintersl.
Gunnar Gíslason Moss
Halldór Áskelsson Þór
Ólafur Þórðarson í A
Ómar Torfason Olten
Lárus Guðmundsson Kaisersl.
Ragnar Margeirsson Fram
Rúnar Kristinsson KR
Sævar Jónsson Val
Þorsteinn Þorsteinsson Frani
Þorvaldur Örlygsson KA
Held hefur valið Guðmund
Steinsson úr Fram til vara, ef
einhverjir ofantaldra dyttu út.
1X2 1X2 1X2 1X2 1X2 1X2
Þorvaldur og
Halla jðfn
Þorvaldur Þorvaldsson og Halla Halldórsdóttir urðu jöfn í get-
raunaleiknum um helgina, bæði með 7 leiki rétta. Þau fá því að
reyna með sér aftur í þessari viku. Verði jafnt aftur um næstu
helgi, ræður hlutkesti því hvort þeirra heldur áfram. Þorvaldur
er eins og áður hefur komið fram mikill Leedsari en liðið er ekki
á seðlinum að þessu sinni. Halla er mikill aðdáandi Liverpool en
hún á greinilega von á því að liðinu fari að fatast flugið, því hún
spáir því tapi gegn Luton. En það verður fróðlegt að sjá hvort
þeirra hefur betur að þessu sinni. Spá þeirra er þannig:
Þorvaldur:
Halla:
Arsenal-Derby 1
Coventry-Newcastle 1
Everton-Watford 1
Luton-Liverpool 2
Nottm.Forest-Tottenham 1
Oxford-Charlton 1
Q.P.R.-Portsmouth 1
Sheff.Wed.-Norwich x
Southampton-Chelsea x
Birmingham-Middlesbro x
Reading-Bradford 2
Shrewsbury-Oldham 1
Arsenal-Derby 1
Coventry-Newcastle 1
Everton-Watford 1
Luton-Liverpool 1
Nottm.Forest-Tottenham x
Oxford-Charlton 1
Q.P.R.-Portsmouth 1
Sheff.Wed.-Norwich 1
Southampton-Chelsea 2
Birmingham-Middlesbro 1
Reading-Bradford 2
Shrewsbury-Oldham x
Tipparar munið að skila seðlunuin inn fyrir hádegi á fimmtudög-
um svo enginn verði nú af vinningi.
1X2 1X2 1X2 1X2 1X2 1X2