Dagur - 21.10.1987, Side 11

Dagur - 21.10.1987, Side 11
21. október 1987 - DAGUR - 11 Alyktanir kjördæmis- þings Alþýðubandalagsins - Norðurlandskjördæmi eystra, 17. október 1987 Fundur kjördæmisráðs varar við þeirri miklu óvissu sem stefnt er í með fjárhag sveitarfélaga á næsta ári. A sama tíma og allt er í óvissu með afkomu sveitarfélag- anna vegna kerfisbreytinga í skattheimtumálum á samkvæmt fjárlagafrumvarpinu að færa viðamikil verkefni af ríkinu yfir til þeirra. Þótt uppstokkun á verkaskiptingu ríkis og sveitar- félaga sé löngu tímabær er frá- leitt að bjóða sveitarfélögunum það eitt í staðinn fyrir aukin verkefni að draga úr þjófnaði ríkisins á lögboðnum tekjum sveitarfélaganna með minni skerðingu jöfnunarsjóðs. Kjördæmisþingið vill einnig sérstaklega mótmæla niðurskurði fjárveitinga á sviði samgöngu- mála, ekki síst til framkvæmda í höfnum. Sú tala sem sýnd er í nýframlögðu fjárlagafrumvarpi lýsir algeru skilningsleysi á þörf- um sveitarfélaganna við sjávar- síðuna þar sem gífurleg þörf er fyrir framkvæmdir og endurbæt- ur á þessu sviði. Einnig mótmælir kjördæmis- þingið þeim harkalega niður- skurði sem landbúnaðurinn verð- ur fyrir í frumvarpi til fjárlaga og sá niðurskurður í hróplegu ósam- ræmi við þá erfiðleika sem við er að etja í þeirri atvinnugrein. Mótmæli við matarskattinum Kjördæmisþingið fordæmir áformaða skattheimtu af matvæl- um og lýsir furðu sinni á því að ráðherra flokks sem kennir sig við jafnaðarmennsku og alþýðu skuli hafa forgöngu um slíkt. Fundurinn mótmælir einnig til- burðum fjármálaráðherra til að hóta samtökum launafólks með þessari skattheimtu. Fundurinn krefst þess að tilboði fjármála- Akureyríngar unnu Siglfirðinga - í árlegri bæjakeppni í bridds Um helgina reyndu Akureyr- ingar og Siglfirðingar með sér í sveitakeppni í bridds en keppni þessi hefur farið fram reglulega um langt árabil. Akureyringar höfðu betur að þessu sinni og sigruðu með 728 stigum gegn 672 stigum Sigl- firðinga. Alls tóku 10 sveitir þátt í keppninni, 5 sveitir frá hvoru bæjarfélagi. Urslit urðu þessi: Stig 1. Grettir Frímannsson, Akureyri 154 2. Árni Bjarnason, Akureyri 149 3. Níels Friðbjarnarson, Sigluf. 149 4. Bogi Sigurbjörnsson, Sigluf. 149 5. Þorsteinn Jóhannsson, Sigluf. 146 6. MagnúsAðalbjörnss., Akureyri 144 7. Gunnar Berg, Akureyri 138 8. Hellusteypan, Akureyri 127 9. Steinar Jónsson, Siglufirði 125 10. Georg Ragnarsson, Siglufirði 98 Sparisjóður Siglufjarðar gaf veglegan farandbikar til keppn- innar og verður hann varðveittur á Akureyri fram til næsta hausts a.m.k. en Siglfirðingar voru handhafar bikarsins síðastliðin tvö ár. Fræðist um Sovétríkin Sovétríkin eru dularfull í aug- um margra og tákna jafnvel ánauð og ófrelsi. Með Gorba- chev og „glasnost“ virðist þjóðfélagið vera að opnast, frelsi þegnanna að aukast svo og upplýsingastreymi til ann- arra landa. I kvöld getum við fræðst nánar um Sovétríkin. Alexander Vlasenko heldur fyrirlestur á vegum Alþýðusam- bands Norðurlands kl. 20.30 í kvöld að Skipagötu 14, 4 hæð. Hann fjallar sérstaklega um sovésku verkalýðshreyfinguna á tímum breytinga í þjóðfélaginu og eru allir velkomnir á þennan fyrirlestur. SS Óskar eftir að ráða umboðsmann á Dalvík frá og með 1. nóv. ’87. Upplýsingar gefur Hafdís Freyja Rögnvaldsdóttir í síma 24222. ráðherrans, um að falla frá matarskattinum gegn hógværari kaupkröfum og aukinni samn- ingalipurð verkafólks, verði þeg- ar í stað hafnað og mótmælt sem ósvinnu og lítilsvirðingu við vinn- andi fólk. Kjaramál Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins í N.e. lítur á það sem höfuðverkefni í íslensku efnahagslífi og þjóðlífi að stór- hækka kaupmátt dagvinnulauna og hverfa frá þeirri gegndarlausu vinnuþrælkun sem nú viðgengst. Fundurinn skorar á samtök launafólks í landinu að sameinast um kröfuna um mannsæmandi laun fyrir 40 stunda vinnuviku. Fundurinn bendir á þær alvar- legu afleiðingar sem láglauna- stefnan hefur haft í för með sér fyrir opinbera þjónustu og fram- leiðslugreinar, sérstaklega fisk- vinnsluna. Fundurinn krefst þess að gerðar verði sérstakar ráðstaf- anir til að draga úr óhóflegu álagi og löngum vinnutíma starfsfólks í fiskvinnslu um leið og kjör þess verði bætt. Einnig leggur fundur- inn áherslu á nauðsyn þess að opinberir aðilar séu samkeppnis- færir við aðra um launakjör og aðbúnað starfsfólks þannig að unnt sé að halda uppi velferðar- þjónustu í landinu með vel hæfu starfsfólki sem ber úr býtum mannsæmandi laun. Kjördæmisþingið varpar fram þeirri hugmynd að í næstu kjara- samningum verði gengið frá sér- stakri áætlun um stighækkandi dagvinnulaun og styttingu vinnu- vikunnar sem ásamt tryggingu kaupmáttarins verði meginkrafa verkalýðshreyfingarinnar í öllum viðræðum og samningum við at- vinnurekendur og ríkisvald á næstu misserum. Frá menntamálaráðuneytinu: Lausar stöður við framhaldsskóla: Við Menntaskólann á ísafirði er staða stærðfræðikennara laus til umsóknar. Ráða þarf í stöðuna hið allra fyrsta og gef- ur skólameistari nánari upplýsingar. Við Flensborgarskóla í Hafnarfirði er staða kennara í viðskiptagreinum laus frá áramótum. Umsóknarfrestur til 15. nóvember. Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík. Menntamálaráðuneytið. SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA ÁNORÐURLANDI EYSTRA Sólborg Óskum eftir að ráða faglærðan deildarstjóra á vinnustofur frá 1. nóv. eða í síðasta lagi frá 1. jan. Æskilegt er að umsækjandi hafi iðjuþjálfa-, hand- avinnukennara- eða þroskaþjálfamenntun. Vinnutími frá 9-17. Nánari upplýsingar í síma 21755 frá kl. 10-16. Forstöðumaður. Flokksstjóri Óskum eftir ad ráða flokksstjóra við gæruklippingu í Blautsal Skinnaiðnaðar. Upplýsingar hjá starfsmannastjóra. IDNADARDEILD SAMBANDSINS GLERÁRGÖTU 28 AKUREYRI SÍMI (96)21900 Breyttur opnunartími á laugardögum Frá og með laugardeginum 17. október verður verslunin opin frá kl. 10-14 HAGKAUP Akureyri

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.