Dagur - 22.10.1987, Page 2
2 - DAGUR - 22. október 1987
Ping Pong:
„Samkeppnin
vissulega
fyrir hendi"
— segir Hólmfríður S. Egilson
Verslunin Akurliljan:
„Kann vel við að versla
við marga aldurshópa"
— segir Guðrún M. Njálsdóttir
Yerslunin Akurliljan hefur verið slarfrækt um 4ra ára skeið.
Mynd: gve
Mynd: gve
Aðspurð um samkeppni í sölu
á tískufatnaði á Akureyri sagði
Hólmfríður hana vissulega vera
fyrir hendi, en þó væri hún ekk-
ert mjög hörð og allar þær versl-
anir sem eru í dag virtust ganga
ágætlega og allir hefðu því nóg.
HJS
Þær konur sem fara í miðbæ
Akureyrar til fatainnkaupa
kannast án efa flestar við versl-
unina Akurliljuna sem stendur
við austanverða göngugötuna.
Eigandi Akurliljunnar er
Guðrún M. Njálsdóttir en hún
sér ásamt 4 starfstúlkum um
afgreiðslu í versluninni. Versl-
unin hefur verið starfrækt um
4 ára skeið og verslar með föt
fyrir konur á öllum aldri. En
hvernig skyldi það ganga að
blanda aldurshópum saman
með þessu móti.
„Það gengur bara vel. Ég er
miklu hrifnari af því heldur en að
fá eingöngu konur eða eingöngu
unglinga. Þetta eru ólíkir hópar
að því leyti að eldri konurnar
skoða fötin meira heldur en á
herðatrénu, þær máta þau og
skoða nákvæmar en unglingarnir
sjá strax þegar fötin hanga á
herðartrénu hvort þau eru smart
eða ekki. Meginmunurinn liggur
í því að konurnar vilja vera öðru-
vísi klæddar en unglingarnir vilja
allir vera eins.“
- Þú heldur þá að unglings-
stúlkum finnist Akurliljan ekki
vera „konubúð'*.
„Þeim finnst áreiðanlega að
Akurliljan sé konubúð í saman-
burði við tískuvöruverslanirnar
en þó koma þær hingað til að
kaupa sér föt. Þær koma hingað
til að kaupa sér t.d. fermingarföt
og síðan oft til að kaupa sér peys-
ur eða eitthvað þessháttar. Þær
kaupa föt hér ef þær finna eitt-
hvað sem þær hafa áhuga á.“
- Nú ert þú ein í þeim hópi
kaupmanna í Miðbænum sem
voru hér með verslanir áður en
göngugatan kom til sögunnar.
Fannst þér breytingin mikil?
„Já, þetta breyttist mikið til
batnaðar. Mér finnst samt að í
götunni mætti gera meiri
stemmningu heldur en er í dag.
Fólk á að geta gengið um götuna
og notið góðs veðurs þegar svo
ber undir en mér finnst samt
greinilegt að hér í götuna vantar
bekki eða stóla þar sem fólk get-
ur sest niður. Hér er nánast
hvergi hægt að sitja í dag. Þessi
staður er þekktur fyrir veðursæld
og því ættum við að sýna það að
fólk geti, ekki síst í Miðbænum
sjálfum, sest niður og notið blíð-
unnar. En að öðru leyti er ég
stolt af götunni, og vil ekki
breyta Miðbænum mikið frá því
sem nú er,“ segir Guðrún í
Akurliljunni. JÓH
Sporthúsið:
„Áður þótti púkalegt ef manneskja
yfir fertugt gekk í jogginggalla"
segir Gunnar Gunnarsson
Verslunin var stækkuð í maí síðastliðnum.
Við Strandgötu 11 er tísku-
verslunin Ping Pong. Versl-
unin er útibú frá Ping Pong í
Reykjavík og eigandi beggja
verslananna er Jóna Péturs-
dóttir. Hólmfríður S. Egilson
er verslunarstjóri í versluninni
á Akureyri og varð því fyrir
svörum þar.
Sagði Hólmfríður að Ping
Pong á Akureyri hefði verið opn-
uð fyrir þremur árum en rúmlega
tvö ár eru síðan hún hóf störf við
verslunina. Allar vörur eru send-
ar að sunnan og það er eigandi
verslunarinnar sem sér um að
kaupa þær erlendis.
í Ping Pong er seldur dömu-,
herra- og barnafatnaður, auk þess
er hægt að kaupa þar skó, töskur
og snyrtivörur. í maí síðastliðn-
unt var verslunin stækkuð og haf-
in sala á herra- og barnafatnaði
til viðbótar við dömufatnaðinn.
Sagði Hólmfríður að ágæt sala
hefði verið í herra- og barnafatn-
aðinum, en hún mætti vera mciri
og það virtist vera að fólk vissi
almennt ekki af þessari viðbót.
Það selst því mest af dömufatn-
aði í Ping Pong.
Ping Pong er ekki alveg inni í
miðri hringiðu Miðbæjarins og
Hólmfríður var því spurð hvort
það stæði versluninni eitthvað
fyrir þrifum að vera örlítið út úr.
„Nei, nei, alls ekki. Mér fannst í
byrjun eins og fólk nennti ekki að
koma hingað, en það hefur
breyst og mér finnst enginn setja
það fyrir sig lengur.“
Margur gæti haldiö aö Sport-
húsið seldi aðeins vörur fyrir
afburöafólk í íþróttum en svo
er nú ekki. Þegar inn er komiö
blasir viö manni alls kyns fatn-
aður, gallabuxur og sportleg
föt, auk íþróttabúnaöar af öllu
tagi. Bræðurnir Sigbjörn og
Gunnar Gunnarssynir reka
verslunina og var þaö Gunnar
sem lenti í klónum á blaöa-
manni.
- Allt á sér upphaf og endi.
Segðu ntér frá upphafi Sporthúss-
ins?
„Sporthúsið er orðið býsna
gamalt. Það er stofnað árið 1976,
þann 19. júní minnir mig. Sig-
björn stofnaði það á sínum tíma
og nú er þetta sennilega þriðja
elsta sportvöruverslun á landinu.
Starfsemin byrjaði hér, þar sent
við sitjum núna, verslunin flutti
síðan yfir í húsnæðið þar sem
Skart er og aftur hingað 1980.“
- Og síðan voruð þið að
stækka í sumar, ekki satt?
„Jú, viö stækkuðum um helm-
ing í sumar og erum vonandi
komnir í endanlegt húsnæði."
- Hafa viðskiptin aukist mikið
á þessum árum?
„Já, umsvifin hafa aukist tölu-
vert. Fyrst upp úr 1980 en mest
hefur aukningin orðið síðastliðin
2-3 ár. Tíðarandinn hefur líka
breyst. Áður þótti púkalegt ef |
manneskja yfir fertugt gekk í
jogging galla, nú gengur annar
hver maður í slíkunt fatnaði.“
- Er þetta ekki eina sport-
vöruverslunin á Akureyri í dag?
„Þetta er eina sérhæfða sport-
vöruverslunin já, en við erum
ekki eingöngu nteð fatnað fyrir
sportista heldur allan almenning.
Við erum nteð gallabuxur, sport-
fatnað, yfirhafnir, jogging galla
og jafnvel ballhæfan fatnað eða
tískuvörur. Síðan erum við auð-
vitað með allt sem þarf til
íþróttaiðkana.“
- Er þá engin samkeppni á
þessum markaði?
„Jú, það hlýtur að vera. Stór-
markaðir bjóða upp á sport-
fatnað en við erum auðvjtað
miklu sérhæfðari. Við erum hins
vegar ekki með skíði. Hér áður
fyrr voru hátt í 10 aðilar með
skíðabúnað en ég held að það séu
ekki nema 2 í bænum sem selja
skíði í dag. Við eigum okkar
fasta kúnnahóp, sem er stór, en
auövitað er samkeppnin alltaf
fyrir hendi."
- Einhver fróm lokaorð
Gassi?
„Ég vil bara benda á það að við
reynum alltaf að fylgjast með og
vera ferskir og förum á sýningar
erlendis í því skyni. Okkar
áhersla er lögð á góða vöru og
góða þjónustu.“ SS
uEPsIanir í miðbæ RkuPEyrar