Dagur - 22.10.1987, Síða 6

Dagur - 22.10.1987, Síða 6
6 - DAGUR - 22. október 1987 Baldur Karlsson selur góðgæti úr hafínu. Mynd: TLV Sjávargull: „Bjóðum upp á mikið úrval af sjávarréttum'7 — segja þau Baldur Karlsson og Jóhanna Valgarðsdóttir Þráinn Lárusson setti á fót fiskverslunina Sjávargull í febrúarmánuði á þessu ári og er hún til húsa að Brekkugötu 7. Baldur Karlsson og Jóhanna Valgarðsdóttir voru að störf- um í versluninni þegar blaða- mann bar að garði og voru þau fús til að svara nokkrum spurn- ingum. - Getið þið lýst starfseminni í stórum dráttum? „Já, þetta er fyrst og fremst fiskverslun, en við erum með miklu meira en flök og heilar ýsur. Við bjóðum upp á mikið úrval af sjávarréttum. t.d. sjávar- réttapizzur og -bökur, salöt og alls kyns rétti aðra. Á föstudög- um erum við gjarnan með kjöt- rétti líka til að gefa fólki kost á enn meira úrvali fyrir helgar." - Heldur fólk kannski að þið séuð bara með flök og heilar ýsur. eins og þið komust að orði? ..Já. ég er viss um að margir standa í þeirri trú en eins og þú sérð á úrvalinu hérna þá er það mikill misskilningur." ..Þetta er besta og skemmtileg- asta búðin í bænum." sagði ánægður viðskiptavinur sem blandaði sér í umræðurnar. - En þorir fólk að prófa nýja fiskrétti? ..Akureyringar eru kannski ekki nógu kjarkmiklir, eða bara of vanafastir. Fólk kemur hingað og skoðar. hælir okkur fyrir það hvað réttirnir í borðinu eru fal- legir og girnilegir en biður svo bara um ýsuflak. Þetta er samt að breytast. Sumir eru æstir í að prófa eitthvað nýtt enda getum við óhrædd mælt með réttunum hérna. Við seljum ekkert nema það sem við treystum okkur til að borða sjálf og héðan á enginn að fara út án þess að hafa fengið eitthvað við sitt hæfi. Við leggj- um mikla áherslu á að útvega ferskasta hráefnið hverju sinni, það kostar oft mikla fyrirhöfn en útkoman er ánægðir viðskipta- vinir." - Nú sé ég hérna mjólk á boðstólum, er þetta nýtilkomið? „Já, við settum þennan kæli upp nýlega og bættum þá við okkur mjólk, gosdrykkjum og fleiru. Við seljum einnig ávexti, álegg, osta og margt fleira. Raun- ar er ótrúlegt hvað við getum boðið upp á fjölbreytt vöruúrval í ekki stærri verslun.“ SS Kompan: „Leggjum áherslu á góða hönnun" - segir Sigurbjörg Pálsdóttir Verslunin Kompan við Skipa- götu var sett á laggirnar í sept- ember 1981 í því húsnæði sem hún er nú, nema hvað rýmið var aukið um helming er versl- unin hafði starfað í 3 ár. Versl- unarstjóri Kompunnar er Sig- urbjörg Pálsdóttir. - Ert þú eigandi Kompunnar Sigurbjörg? „Já, ég var ein í upphafi en síð- an í lok ársins 1985 erum við fleiri eigendurnir. Þetta er eigin- lega fjölskyldufyrirtæki." - Hér ægir saman alls kyns vörum, er þetta ekki allt of mikið? „Það er von að þú spyrjir en það er ekki mögulegt að reka verslun hér sem er of sérhæfð, t.d. bara með matarstell. Ég býð í Kompunni ægir saman alls kyns vörum. Mynd: TLV Tipp-Topp: „Tískuverslun fyrir karla og konur" - segir Guðbjörg Halldórs Tipp-Topp. Tískuverslun með tískunafni staðsett við Ráð- hústorg, nánar tiltekið í anddyri Nýja bíós. Það er íslensk- Portúgalska verslunarfélagið sem á Tipp-Topp og nýlega var Guðbjörg Halldórs ráðin versl- unarstjóri. - Er þetta hefðbundin tísku- vöruverslun Guöbjörg? „Tískuverslanir eru kannski aldrei hefðbundnar en það er rétt, þetta er tískuverslun fyrir karla og konur." - Er þetta ekki ný verslun? „Jú, hún tók til starfa í vor, í maí minnir mig, en ég er nýlega tekin viö sem verslunarstjóri." - Þú veist þá kannski ekki hvernig sumarvertíðin hefur gengið? „Ég held að sumarið hafi gcng- ið mjög vel.“ Tipp-Topp er tískuverslun fyrir karla og konur. Mynd: tlv - Eru ekki vissar árstíða- bundnar sveiflur í þcssum tísku- bransa? „Jú. það kemur uppsveifla í söluna þcgar nýjar vörur koma viö árstíðaskipti og cinnig í kringum stórhátíöir s.s. fyrir jól.“ - En hvernig er staöan núna. Eru kannski cinhvcrjar breyting- ar á döfinni? „Reyndar. Það stendur til að breyta versluninni og þaö er ver- ið að hanna hana upp á nýtt. Við verðum t.d. mcð mcira af herra- fatnaði, þaö verða hér nýjar inn- réttingar en ég býst viö því að við opnum um mánaðamótin í nýjum búningi." SS uerslanir í miöbæ flkurEypar

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.