Dagur - 22.10.1987, Page 9

Dagur - 22.10.1987, Page 9
22. október 1987 - DAGUR - 9 Hrönn Friðriksdóttir er verslunarstjóri í Nýja Filmuhúsinu. Mynd: tlv Nýja Filmuhúsið: „Við framköllum langmest af barnamyndum" — segir Hrönn Friðriksdóttir Filmuhúsið, Hafnarstræti 106, hafði verið starfrækt til fjölda ára en um síðustu áramót var það skírt upp á nýtt og heitir nú Nýja filmuhúsið. Um leið tóku Oddur Thorarensen, yngri og systkini við verslun- inni, en áður var faðir þeirra eigandi. Auk Odds eru það Hildur, Ellen, Margrét og Gunnlaug Thorarensen sem eru eigendur. Verslunarstjóri í Nýja filmu- húsinu er Hrönn Friðriksdóttir, en auk hennar vinna Guðmundur Brynjarsson og Kristinn Einars- son í versluninni og Gunnborg Gunnarsdóttir er í hlutavinnu. í Nýja filmuhúsinu má segja að fáist allt til myndatöku, þar fást filmur, myndavélar, efni til fram- köllunar, myndarammar, mynda- albúm og svona mætti lengi telja. Ýmsar nýjungar eru einnig á döf- inni og ein þeirra er að hefja sölu á hljómtækjum og er reiknað með að hafin verði sala á þeim seinnipartinn í október. í febrúar var byrjað með hrað- framköllunarþjónustu í Nýja filmuhúsinu. Að sögn Hrannar er hún mjög vinsæl. „Fólk er mjög ánægt með að fá myndirnar sínar strax, sérstaklega yfir sumartím- ann. Ferðamennirnir nota þetta mikið. Þeir eru oft á hraðferð í gegnum bæinn og láta þá fram- kalla nokkrar filmur úr ferðalag- inu. Akureyringum liggur hins vegar ekki eins mikið á. Jú, fram- köllunarþjónustan tekur mestan okkar tíma, við erurn rneira og minna að framkalla allan daginn,“ sagði Hrönn. Hrönn sagi jafnframt að erf- itt væri að segja hvað mikið væri framkallað á dag í versluninni, það væri mjög mismunandi. Mest er að gera á mánudögum, fólk virðist taka mikið af myndum um helgar, en síðan er minna að gera eftir því sem líður á vikuna. Nýja filmuhúsið hefur marga fasta viðskiptavini. „Pað eru margir sem taka mikið af mynd- um og sumir láta framkalla 2- 3svar í mánuði. Svo eru aðrir sem taka nokkrar filmur yfir sumarið og síðan aðeins um jól. Við fram- kölium lang mest af barnamynd- um, ætli þær séu ekki um 50% af þeim myndum sem fara í gegn hjá okkur,“ sagði Hrönn að lokum. HJS „Ég er hálfgert bitbein hérna,“ segir Valgerður. Mynd: TLV Örkin hans Nóa: „Við erum aðeins með besta leðrið" — segir Jóhann Ingimarsson, Nói Í Örkinni hans Nóa, Ráðhús- torgi 7a, eru seld húsgögn og það eru hjónin Jóhann Ingi- marsson og Guðrún Helga- dóttir, eða Didda og Nói sem eru eigendur verslunarinnar. Þau byrjuðu með verslunina árið 1970 og hún er því orðin gróin í Miðbænum. Að sögn Diddu og Nóa gengur reksturinn í sveiflum og fer það eftir árferði neytandans, þegar fólk hefur lítið fé milli handanna eru kaup á húsgögnum látin sitja á hakanum. í Örkinni hans Nóa er mikið úrval af mjög fallegum húsgögn- um, aðallega leðursófasettum og koma þau mest frá Ítalíu. „Við erum aðeins með besta leðrið,“ segir Nói. „Það eru allt of margir Sögðu þau Didda og Nói að þó þetta góða leður væri dýrara þá gengi vel að selja það. „Ef það standa tvö sett saman, annað með fínu leðri en hitt með lak- ara, þá fer dýrara settið með góða leðrinu yfirleitt alltaf á undan.“ Nói er nýkominn af húsgagna- sýningu í Mílanó og sagði hann að toppurinn í dag væru svört, grá og hvít húsgögn. Einnig er stál, gler, marmari og háglans mjög vinsælt. Sterkir litir eru síð- an gjarnan settir með, t.d. svart- ur skápur með sterk rauðum skúffum. Eins og áður sagði eru Didda og Nói mest með leður, en hafa þó alltaf sófasett með tauáklæði með til að geta þjónað sem flestum. „Við erum mest með Nói og Didda byrjuðu með verslunina árið 1970. Mynd: TLV með þunnt leður og einnig er sett plast nreð leðri og það verður íjótt. Við erum eiginlega ein- göngu með gegnumlitað leður og aðallega með ysta lagið af húð- inni. Það er kallað anilín. Þegar leður er unnið er því flett í þrennt og ysta lagið er anilín, næsta lag er svokallað spalt leður og það er frekar lélegt. Ég get tekið sem dæmi að við fórum með stól til Reykjavíkur í viðgerð. Það hafði verið strikað í hann með bleki og á stólnum var anilín leður. Viðgerðarmaðurinn sagði okkur að hafa engar áhyggjur, blekið myndi hverfa, þetta væri það gott leður. Eftir þrjá mánuði var það horfið." sófasett, sófaborð og borðstofu- húsgögn. Plássið hefur ekki leyft meira, en einnig erum við með skrifstofuhúsgögn til sölu og það er innlend framleiðsla.“ En það eru fleiri en Akureyr- ingar og nærsveitamenn sem versla í Örkinni hans Nóa, þó nokkuð hefur verið selt til Reykjavfkur og eitt sófasett fór alla leið til Bandaríkjanna. Það var íslensk kona, búsett í Banda- ríkjununt, sem var á ferð á Akur- eyri og sá sófasett sem hana lang- aði í. Var það sent með skipi til heimkynna konunnar og sagði hún að sófasett í svipuðum gæða- flokki myndi kosta helmingi meira í Bandaríkjunum. HJS

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.