Dagur - 22.10.1987, Síða 14
14 - DAGUR -22. október 1987
Bókabúð Jónasar:
„Þetta er
draumastaður"
- segir Stefán Jónasson
Bókaverslanir eru nokkuð
margar í Miðbænum og ein
þeirra er Bókabúð Jónasar.
Stefán Jónasson er eigandi
búðarinnar, ásamt móður
sinni, en það var faðir Stefáns
sem byrjaði með verslunina í
kringum 1955.
„Pabbi var búinn að reka versl-
unina í 7 ár þegar ég fór að vinna
við hana, en það var árið 1962,“
sagði Stefán. „Petta byrjaði
þannig að pabbi tók að sér
umboðssölu fyrir Almenna bóka-
félagið og fékk síðan bóksölu-
leyfi upp frá því. Búðin er búin
að flakka heilmikið var fyrst þar
sem Súlnaberg er núna. í kring-
um 1960 flutti búðin í Brekku-
götu 3 og þaðan í húsnæði þar
sem Útvegsbankinn er nú, það
var 1963. Þar vorum við svo þar
til það húsnæði sem við erum nú
í var keypt, en það var árið
1979.“
í Bókabúð Jónasar er fyrst og
fremst verslað með bækur og
ritföng. „Við erum einnig með
vörur fyrir ferðamenn yfir sumar-
ið, en höfum ekkert farið út í að
vera með vélar af neinu tagi,
flestar bókaverslanir eru með
reiknivélar og ritvélar. Við höf-
um hins vegar haldið okkur við
það sem ekki þarf að veita neina
viðgerðaþjónustu.“
- Er gott að reka verslun á
þessum stað?
„Já, það er mjög gott, þetta er
draumastaður. Við erum mjög
ánægð með göngugötuna, sér-
staklega eftir að hitinn kom í
hana. Það hefur breytt miklu í
sambandi við þrifnað og slíkt.“
- Hvernig hefur þróunin verið
í bóksölu þessi ár sem þú hefur
starfað við hana?
„Bóksala gengur í sveiflum. Ég
held að það sé ekki minnkandi
bóksala í heild, en hún hefur
mikið færst úr bókabúðunum í
bókaklúbbana. Peir eru margir
og virðast lifa góðu lífi. Ég tel að
bóksala hafi því í heildina aukist.
Salan dettur alltaf niður þegar
nýr og sterkur miðill kemur til,
eins og Sjónvarpið á sínum tíma
og myndböndin þegar þau komu
til. Salan eykst hins vegar aftur.
Bóksala hefur líka breyst að því
leyti að kiljur lifa nú góðu lífi,
það má nefna ísfólkið og Morgan
Kane. Við seljum líka mjög mik-
ið af íslenskum tímaritum. Fólk
kaupir mikið lesmál.“
í Bókabúð Jónasar starfa níu
manns í allt, en margir eru í hálfu
starfi. Heilar stöður eru því 5-6.
Þegar skólarnir byrja á haustin
og um jólin vinna þar hins vegar
15-20 manns og þetta jafnast út í
8 heilar stöður yfir árið. HJS
„Bóksala gengur í sveifluin,“ segir Stefán.
Mynd: gve.
„Dæmigerð lítil matvöruverslun.“
Mynd: TLV.
Matvöruverslun KEA:
„Tel þörf á brauðbúð
í Miðbænum"
— segir Sigurður Sigmarsson, verslunarstjóri
Matavöruverslanir KEA í
miðbæ Akureyrar eru tvær,
önnur við Ráðhústorg og hin í
Hafnarstræti 91. Þetta er ein-
hver elsta matvöruverslun
KEA, stofnuð árið 1930 og var
hún fyrst starfandi í Hafnar-
stræti 90 en síðar flutt í núver-
andi húsnæði. Verslunarstjóri
verslunarinnar er Sigurður Sig-
marsson en í þessari verslun
hefur hann starfað í 5 ár.
Sigurður var áður verslunar-
stjóri í 20 ár í verslun KEA í
Strandgötu sem gekk undir
nafninu Alaska. Sigurður var
fyrst spurður að því hvernig
honum fyndist að vera nú
kominn á neðri hæð aðal-
stöðva KEA.
„Ég kann þessu bara vel. Það
er þægi'egt að mörgu leyti að
hafa skrifstofurnar hér uppi og
;íðan er nokkuð mikil verslun
sem við fáum frá þessu fólki sem
vinnur hér í húsinu.“
- Hvaða vörur eru hér á boð-
stólum?
„Hér erum við með ýmsar mat-
vörur, hreinlætisvörur, náttúru-
lækningavörur og fleira. Þetta er
svona dæmigerð lítil matvöru-
verslun þó að við séum ekki með
kjötborð eins og er í mörgum
matvöruverslunum í dag.“
- Er ekki að verða breyting á
þessari verslun á næstunni?
„Jú, rétt er það. Um áramótin
verður sennilega sú breyting að
þessi verslun verður aflögð sem
matvöruverslun og hér verður
sett upp brauðbúð. Ég held að
það sé þörf á brauðbúð hér í
Miðbænum, jafnframt því sem ég
geri mér grein fyrir að margir
koma til með að sakna þessarar
verslunar. Þessi verslun á sér
marga fasta viðskiptavini, bæði
hér úr hverfum í nágrenninu og
líka meðal þess fólks sem vinnur
hér í Miðbænum.“
- Nú þekkir þú vel þessar
dæmigerðu hverfaverslanir.
Finnst þér mikill munur á þeim
og verslun sem þessari sem er
mitt í þys Miðbæjarins?
„Já, munurinn er mikill. Mað-
ur þekkti nánast alla á Eyrinni
eftir að hafa verið í Alaska í svo
langan tíma. Hér aftur á móti er
þysinn meiri og maður sér fleira
fólk. í Strandgötunni var allt
umhverfi rólegra en ég kann báð-
um stöðunum vel.“ JÓH
Pedromyndir:
„Nú þarf fólk ekki að bíða
í hálfan mánuð"
— segir Friðrik Vestmann
„Sumariö er húið að vera
feikilega gott en það má búast
við einhverri lægð í október.
Síðan verður alit brjálað aftur í
janúar þcgar fólk vill fá jóla-
myndirnar sínar,“ sagði Friðrik
Vestmann í Pedromyndum
þegar hlaðamaður ræddi stutt-
lega við hann og eiginkonuna,
Guðrúnu Hjaltadóttur, um
starfsemina.
„Við erum náttúrlega með
framköllunarþjónustu, filmur,
albúm, ramma og allt sem þessu
tengist," sagði Guðrún.
- Er þetta ekki orðið býsna
gamalgróið fyrirtæki?
„Jú, Pedro var stofnað árið
1965 og meiningin var að fram-
kalla svart-hvítar filmur í hjá-
verkum en það gekk engan
veginn, þetta varð fljótlega fullt
starf og ríflega það,“ sagði Friðrik
og sýndi mér mynd af Pedro,
teiknimyndafígúru sem Walt
Disney skapaði. „Fólk fór síðan
að skipta yfir í litmyndir. Við
vorum í sambandi við fyrirtæki í
Þýskalandi en fólk þurfti að bíða
hátt í mánuð eftir myndum
sínum, hálfur mánuður þótti
mjög gotl. Við urðum því að taka
upp framköllun á litfilmum til að
geta boðiö upp á almennilega
þjónustu en Pedro var brautryðj-
andi í framköllun á svart-hvítum
filmum á Norðurlandi."
- Nú þarf fólk ekki að bíða í
hálfan mánuð eftir myndum
sínum, hvað tekur framköllun
langan tíma núna?
„Nei, nú þarf fólk ekki að bíða
í hálfan mánuð en það getur hins
vegar orðið óþolinmótt ef það
þarf að bíða í eina og hálfa
klukkustund,“ sagði Guðrún.
„Við byrjuðum með hraðfram-
köllun um mánaðamótin febrúar-
mars þannig að nú getur fólk
fengið litmyndir á klukkutíma og
við náum viðskiptavinum sem
eru kannski á hraðferð í gegnum
bæinn,“ sagði Friðrik.
Þau hjónin sögðu að hraðfram-
köllunin bætti þjónustuna en um
leið minnkaði plássið fyrir ýmsar
vörur og raunar væri plássleysið
helsta vandamálið hjá Pedro-
myndurn í dag.
„Ég vil bara minna á eitt að
lokum,“ sagði Friðrik, „að það er
útbreiddur misskilningur hjá
fólki að það þurfi að senda filmur
sínar úr landi til að fá stórar lit-
myndir. Við erum með Pedro
super, 10x15, sem er einmitt sú
stærð sem fólk er að sækjast eftir.
Þá getum við líka stækkað mynd-
irnar upp í 13x18 ef því er að
skipta.“ SS
uEPsIanir í miflbæ flkurEypar