Dagur - 22.10.1987, Síða 18
18 - DAGUR - 22. október 1987
Kvarts keramik gallery:
„Allt frá fitlum skálum
upp í skúlptúra"
- segir Margrét Jónsdóttir
næði í Miðbænum þá getum við
varla þrifist hérna.“
Marga faliega gripi er að fínna í Kvarts.
Mynd: TLV.
Kvarts sf. er keramikvinnu-
stofa í Hamragerði sem Mar-
grét Jónsdóttir rekur ásamt
manni sínum. Hún er með
Keramik gallery í Hafnarstræti
103 þar sem hún selur munina.
Margrét var spurð út í starf-
semina.
- Hvenær tók verslun þín í
Miðbænum til starfa Margrét?
„Við fengum húsnæðið á leigu
hjá bænum í sumar, í byrjun
júní. Við erum með verkstæði og
vinnustofu uppi í Hamragerði og
seljum tilbúna hluti í versluninni.
Það er sem sagt engin vinnustofa
niðurfrá. Verslunin verður opin
þangað til snemma á næsta ári.
Þá á að rífa húsið.“
- En verður það nokkuð rifið
fyrr en einhver hefur tekið að sér
að byggja þar?
„Nei, reyndar ekki. Og það
liggur við að maður vonist til að
það dragist eitthvað. Petta er
mjög góður staður og miklu betra
að selja þarna í fallegu umhverfi
heldur en á vinnustofunni. Pað
verður mjög slæmt að ntissa þetta
húsnæði en ég vona að við finn-
um annað í staðinn."
- Hvernig gekk í sumar?
„Það gekk mjög vel í surnar og
það er ekki hægt að líkja því
saman hvað þetta gengur mikið
betur þegar við erum með sölu-
möguleika í Miðbænum. Við
erum búin að sjá það eftir þetta
sumar að ef við fáum ekki hús-
- Segðu mér, eru þetta Iist-
ntunir eða nytjalist sem þú fæst
við?
„Bæði og. í svona litlum bæ
verðum við að vera með fjöl-
breytta framleiðslu, bæði stóra
og smáa hluti. Allt frá litlum
skálum upp í skúlptúra og
myndir.“
- Gerðir þú ekki skálina sem
Vigdís fékk að gjöf á Akureyrar-
afmælinu?
„Jú. Pað er alltaf að verða
meira og meira um pantanir og
verkefni sem við fáum. Við erum
búin að vera hér í rúm tvö ár,
komum til Akureyrar í júní ’85
og verkefnin eru alltaf að aukast.
Ég held því að það sé markaður
fyrir okkur hér áfram.“
- Ertu menntuð í faginu?
„Já, ég lærði í Danmörku, var
þar í skóla í fjögur ár. Maðurinn
minn er með sömu menntun. Það
er sjálfsagt hægt að starfa við
þetta án þess að hafa menntun en
þá tekur allt miklu lengri tíma
því maður þarf að fá mikla þjálf-
un til að geta sinnt þessu starfi."
SS
Bókabúðin Huld:
„Það er til teikning
af húsi á lóðinni"
— segir Sveinbjörn Vigfússon
í bókabúðinni Huld. Eigandinn, Huld Jóhannesdóttir, t.h. Mynd: tlv
Bókabúðin Huld í Hafnar-
stræti byggir á gömlum merg
bókaverslanna. Bókabúðin
Huld ber nafn eigandans sem
er Huld Jóhannesdóttir, en
hún rekur verslunina ásamt
syni sínum, Sveinbirni Vigfús-
syni. Ég ræddi við Sveinbjörn
um bókabúðina.
- Bókabúðin Huld er ekki
bara bókabúð, eða hvað?
„Þetta er fyrst og fremst
bókabúð en við erum líka mikið
með túristavarning á sumrin. Þá
meina ég ullarvörur og minja-
gripi ýmiss konar.“
- Nú var gott ferðamannasum-
ar, var mikið að gera hjá ykkur?
„Pað var alveg þokkalegt en
manni virðist þó sem áhuginn á
ullarvörum sé eitthvað að dala og
því hefur salan á þeim dregist
saman. Hins vegar gengur ágæt-
lega að selja póstkort og aðra
minjagripi."
- Hver er nú sagan á bak við
Bókabúðina Huld?
„Petta er upphaflega Bókabúð
Rikku, sem Ásgeir Jakobsson
rak og reyndar stóð sú búð á eldri
merg. Við tókum við af Ásgeiri
rétt fyrir áramótin ’63-’64 að mig
minnir og þá var nafninu náttúr-
lega breytt.“
- Og þið hafið bætt við útibú-
um á síðustu árum?
„Já, við erum komin með útibú
í Sunnuhlíð og uppi í Kaupangi.“
- Veistu nokkuð um framtíð
hússins að Hafnarstræti 97?
„Það stendur á eignarlóð að
mestum hluta og því ekki hægt að
reka okkur út, en hitt er svo ann-
að mál að húsið stendur ekki til
frambúðar ef tímarnir breytast
og þörf verður fyrir nýbyggingu.
Pað var reyndár byrjað á því þeg-
ar KEA byggði við hliðina á okk-
ur að ráðast í framkvæmdir bak
við húsið, grafa þetta út og
stoppa brekkuna af. Það er til
teikning af húsi á lóðinni. Petta
er bara svo stórt að það er ekki
markaður fyrir það og líka vafa-
samt að fjárfesta í steinsteypu
eins og er. Eini möguleikinn væri
að selja byggingaréttinn á efri
hæðunum, það væri skynsamleg-
ast.“ SS
Hermann Árnason, verslunarstjóri.
Mynd: TLV
Kjörbúð KEA:
Kjörbúð KEA Brekkugötu 1
er elsta kjörbúð félagsins og
hefur nú verið starfrækt í 32
ár. A tímum stórmarkaða fer
kannski lítið fyrir þessari
kjörbúð en fastir viðskiptavinir
setja svip á hana. Verslunar-
stjóri er Hermann Arnason.
- Segðu mér Hermann, nú
hefur sjálfsagt margt breyst í
rekstri kjörbúðarinnar en er
húsnæðið ekki alltaf það sama?
„Jú, þetta er alveg sama hús-
næði og frá upphafi en reksturinn
hefur breyst. Mér skilst að upp-
haflega hafi allri kornvöru verið
pakkað á staðnum og varan var
ómerkt. Það eru til hérna stimpl-
ar sem voru notaðir til að merkja
vöruna. Nú kemur þetta allt
pakkað og maður skellir þessu
bara fram í búðina.“
- Hvernig finnst þér að vera
með matvöruverslun í Miðbæn-
um?
„Það er í rauninni mjög gott. I
Miðbænum eru mörg fyrirtæki og
margt fólk sem vinnur þar. Þetta
fólk kemur mikið við hjá okkur
og ég held að það sé ekki hægt
annað en að hafa matvöruverslun
í Miðbænum.“
- En varla gerir fólk helgar-
innkaup hjá ykkur?
„Ekki stóru helgarinnkaupin,
a.m.k. ekki að staðaldri en þó er
alltaf eitthvað um það. Hér eru
engin bílastæði og það er helst
fólk sem býr hér í grenndinni sem
verslar hjá okkur og fólk sem
vinnur í Miðbænum og tekur
strætó heim eða er með bíl á
stæði hér nálægt. Svo eru mörg
fyrirtæki hér í reikningi, þetta
eru fastir viðskiptavinir. Þannig
hefur þetta verið lengi, var löngu
byrjað þegar ég kom hingað '81.“
- Hafa viðskiptin aukist eða
minnkað á síðustu árum?
„Þau hafa frekar dregist
saman. Síðan ég tók við hafa
komið þrír nýir kjörmarkaðir; í
Byggðavegi, Höfðahlíð og
Sunnuhlíð. Það hefur auðvitað
haft áhrif hjá okkur, þessar versl-
anir eru með vörur á kjörmark-
aðsverði."
- En þetta gengur samt ágæt-
lega hjá ykkur?
„Já, já, þetta gengur alveg
þokkalega vel.“ SS
Tískuverslunin Ess:
„Við erum alltaf
í essinu okkar"
— segja þær Guðrún og Þorbjörg
Tískuhúsið, eða Tískuverslun-
in Ess við Skipagötu, er tísku-
verslun fyrir konur á öllum
aldri en ekki bara fyrir ungl-
inga eins og flestar tískubúðir.
Eitthvað á þessa leið svöruðu
þær Guðrún og Þorbjörg, eig-
endur verslunarinnar, spurn-
ingu blaðamanns um vöruúr-
valið.
- Hvernig hafa svo konur á
öllum aldri sótt verslunina í
sumar?
„Mjög vel. Sumarið var
afskaplega gott og hingað kom
líka fjöldi ferðamanna þannig að
við erum mjög ánægðar, hressar
og bjartsýnar. Víð erum
nýkomnar frá útlöndum þar sem
við vorum að panta vörur fyrir
veturinn."
- Sumarvertíðin er þá væntan-
lega búin með allri litadýrðinni.
Eru vetrarfötin ekki dekkri?
„Litirnir eru mildari og jafnvel
dekkri já. Við erum einmitt að
taka upp vctrarvörurnar núna.“
- Ákveðið þið tískuna að ein-
hverju leyti eða koma fyrirmælin
að utan ?
„Tískan er ákvcðin af hönnuð-
urn og framleiðendum úti. Við
þurfum því að fara út og skoða
hvað er í tísku hverju sinni en við
ráðum auðvitað sjálfar hvaða
uerslanir í miðbæ fikureyrar