Dagur - 22.10.1987, Síða 19
22. október 1987 - DAGUR - 19
"S
Skrautfiskabúðin:
„Þetta er _ oft eins og
barnahei imilí hér"
Flosi Jónsson er ekki aleinasta
gullsmiður og kraftakarl held-
ur og dýravinur hinn mesti.
Hann á Skrautfiskabúðina sem
er bakhús við gullsmíðastofu
hans, gengið inn í portið milli
Sporthússins og Jóns Bjarna-
sonar úrsmiðs. Hann getur því
gengið á milli gulls og gælu-
dýra eftir því hvernig liggur á
honiim.
- Hvernig stendur á þessari
gæludýrabúð Flosi?
„Ja, Skrautfiskabúðin er búin
að vera til í um 2 ár. Ég á lóðina
á bak við húsið hérna og þar var
kofi sem ég vissi ekki hvað ég ætti
að gera við. Pá fékk ég hugmynd,
tók bakhúsið í gegn og fór að
höndla nieð gæiudýr. Ég var með
stórt fiskabúr í gullsmíðastofunni
og hugmyndin kviknaði eiginlega
Flosi Jónsson ásamt fiðruðum vini.
— segir Flosi Jónsson
út frá því, enda sýndi fólk fiskun-
um mikinn áhuga, sérstaklega
börnin. í Skrautfiskabúðinni
reyni ég að hafa allt sem fjöl-
breyttast fyrir dýr. Ég er með
fugla, hamstra, naggrísi, fiska og
allt sem þessum dýrum tilheyrir.
Ég held að þetta sé eina sérversl-
unin utan Reykjavíkur mcð
svona rnikið vöruúrval."
- Er markaðssvæði þitt þá
stærra en Akureyri og nágrenni?
„Já, já. Mitt markaðssvæði nær
austur á firði. Ég sel töluvert á
Austfjörðum og reyndar vestur
eftir líka, allt til Vestfjaróa."
- Kaupa Akureyringar gælu-
dýr?
„Já, áhuginn er mikið að auk-
ast. Fólk er líka farið að átta sig á
þessari þjónustu, það getur feng-
ið margt fyrir hunda sína og ketti
hér, auk minni dýra. Á þessum
árstíma er gjarnan mikið að gera
í þessum bransa. Börnin vilja fá
gæludýr fyrir veturinn, sem er
gott, þau haldast þá frekar inni
og návist dýranna hefur góð áhrif
á þau. Síðan er ákveðinn hópur
sem vill halda í skrautfiskana
enda cru fiskabúr stofuprýöi og
mjög róandi að sitja og horfa á
fiskana."
- Nú er töluvert af dýrum í
búðinni hjá þér, konia börnin oft
í heimsókn til að fylgjast með
þeim?
„Já, blessaður vertu. Þetta er
oft eins og barnaheimili hér.
Börnin dvelja oft hér meðan for-
eldrarnir versla í bænum og oft
hjóla þau langar leiðir bara til að
koma hingað. Ég ætti eiginlega
að fá dagvistarstyrk frá bænum!"
SS
Mynd: TLV
Guðrún og Þorbjörg í Tískuversluninni Ess. Mynd: tlv
merki við flytjum inn. Við erum
bæði með dýr og ódýr merki."
- Hafa umsvifin aukist hjá
ykkur undanfarin ár?
„Já, það má segja það. Versl-
unin var stofnuð 23. október
1983 og var fyrst til húsa í
Brekkugötu 7. Um mánaðamótin
nóvember-desember '85 fluttum
við svo hingað í Skipagötuna og
stækkuðum reyndar dálítið við
okkur síðar. Viðskiptin hafa auk-
ist jafnt og þétt með meira vöru-
úrvali og einnig hafa viðskipta-
.vinirnir meiri peninga á milli
handanna í dag; greinilega meiri
peningar í bænum."
- Eruð þið ekkert súrar yfir
því að vera í Skipagötunni?
„Súrar? Nei, þvert á móti. Við
erum mjög ánægðar hér í Skipa-
götunni og þetta er jafnvel enn
betri staður en göngugatan. Hér
keyrir fólk framhjá í bílum
sínum, rekur kannski augun í
útstillingarnar, leggur þá bílnum
og kemur hingað. Nú er líka nóg
af bílastæðum hér rétt hjá. Samt
sem áður mætti gera meira fyrir
Skipagötuna, laga gangstéttarnar
og lífga dálítið upp á götulífið
með skreytingum."
- Þið eruð þá hæstánægóar
með tilveruna?
„Já, það má koma skýrt fram
að við erum alltaf í essinu
okkar." SS
Unnar Þór Lárusson og Jón Ellert Lárusson. Mynd: tlv
Tölvutæki—Bókval:
„Allt fyrir
skrifstofu-
reksturinn"
- segir Unnar Þór Lárusson
Um síðustu áramót keyptu
bræðurnir Unnar l»ór og Jón
Ellert Lárussynir verslunina
Bókval af Aðalsteini Jóseps-
syni og fjölskyldu hans. Þeir
bræður voru áður með fyrir-
tækið Tölvutæki og eftir eig-
endaskiptin voru fyrirtækin
sameinuð í eitt; Tölvutæki-
Bókval.
En hafa einhverjar breytingar
orðið á starfsemi Bókvals eftir
eigendaskiptin? Unnar Þór Lár-
usson situr fyrir svörum: „Jú, við
höfunr bætt við ýmsum vörum en
breytingarnar eru kannski fyrst
og fremst fólgnar í því að menn
geta nú valið úr miklu úrvali af
tölvum og hugbúnaði. Þá erum
við með Seríu skrifstofuhúsgögn-
in frá Á. Guðmundssyni og
Mólínó, sem eru ný skrifstofu-
húsgögn frá Trésmiðjunni Þór
hér á Akureyri. Einnig erum við
með síma og símakerfi til sölu,
svo eitthvað sé nefnt."
- Hvaða tölvur eru þið með í
Bókvali?
„Við erum umboðsaðilar fyrir
Skrifstofuvélar og erurn þar af
leiðandi með IBM. Einnig höfurn
við umboð fyrir Hewlet-Packard,
við erum með Star og NEC
prentara og ýmsa fylgihluti sem
kallast einu nafni jaðartæki. Ekki
má gleyrna BBC tölvunum fyrir
skólana en við seljum þær líka
rnikið inn á heimili, þær eru vin-
sælar sem kennslu- og heimilis-
tölvur."
- BBC tölvur eru mikið notað-
ar í skólurn, ekki satt?
„Jú, t.d. er Glerárskóli ein-
göngu með BBC tölvur en hann
er einna lengst kominn í tölvu-
væðingunni af grunnskólunum.
Barnaskóli Akureyrar og
Lundarskóli eru líka að byrja í
þessu og gagnfræðaskólar víða á
Norðurlandi eru að panta BBC
enda er mikið til af íslenskum
hugbúnaði fyrir BBC.“
- Leggur Bókval kannski
minni áherslu nú en áður á
bækur, ritföng og slíkt?
„Nei, við reynurn auðvitað að
standa undir nafni sem bókabúð
og salan á bókum og skólavörum
hefur gengið vel, eðlileg aukning
á milli ára. Hinu er ekki að leyna
að okkar markaður er fyrirtækin,
við erunt að stíla á allt fyrir skrif-
stofureksturinn, en samt ætlum
við ekki að slaka á hvað varðar
bækur og skólamarkaðinn."
- Að lokum Unnar. Hvernig
leggst 25% tölvuskatturinn í þig?
„Verð á tölvum hefur verið á
niðurleið undanfarin ár og mér
finnst í rauninni ekki rangt að
setja söluskatt á tölvur líkt og
gert er með reiknivélar. ritvélar
o.fl. Salan datt að vísu niður
fyrst, enda fengum við jól á
miðju ári þegar salan fór upp úr
öllu valdi, en ég býst við því að
eftir nokkra mánuði verði hún
komin í eðlilegt horf. Tölvurnar
halda áfrant að lækka og ég býst
við að þróunin verði þannig að
ódýru eftirlíkingarnar detti út
þegar fullkomnari tölvur fást á
nrjög viðunandi verði." SS
uerslanir í mi3bæ fikurEyrar