Dagur - 19.11.1987, Page 3
19. nóvember 1987 - DAGUR - 3
Kartöflugeymslan í Gilinu:
Reksturinn hefur
alltaf borið sig
- segir Ingimar Eydal
„Eitt af því sem við höfum
bent á er nauðsyn þess að
hvetja fólk til útiveru t.d. með
því að útvega því land til rækt-
unar garðávaxta og þá er
einnig þörf á leigugeymslu fyr-
ir uppskeruna,“ sagði Ingimar
Eydal sem er einn af þeim sem
vilja að endurbætur verði
gerðar á kartöflugeymslum
Akureyrarbæjar í Kaupvangs-
stræti. -v
„Þarna er um að ræða kartöfl-
ur í langflestum tilvikum og eru
fyrst og fremst tvær ástæður fyrir
því. Önnur er sú að kartöflur eru
tiltölulega auðræktanlegar og
þær hafa ágætis geymsluþol. Hin
er sú að neysla þeirra er mikil.“
Ingimar benti á að sú starfsemi
að Íeigja land og geymslur hefur
alltaf staðið undir sér. Nægt land
er fyrir hendi og viðhald geymsl-
unnar kemur á þeim tíma sem
minnst er að gera hjá Gróðrar-
stöðinni.
Ræk*un kartaflna er töluverð
búbót fyrir fjölskyldur þegar illa
árar. Þó telja ræktendur að ekki
sé um samkeppni við kartöflu-
framleiðendur að ræða því rækt-
un er ekki í það iniklum mæli og
uppskera hvers samsvarar vetrar-
neyslu einnar fjölskyldu.
„Núverandi geymsla er orðin
léleg. Þar er of hátt rakastig svo i
kartöflur spíra snemma og 1
geymsluþolið minnkar. Við
leggjum til að gerð verði úttekt á
ástandi geymslunnar. Hægt væri
að grafa frá henni og „drena", en
það er að leggja sérstök ræsi sem
taka það jarðvatn sem þar rennur
inn. Við vitum ekki hvert ástand
steypunnar í geymslunni er, en
teljum þó að ekki sé um veruleg-
an kostnað sé að ræða, þótt þyrfti
að endurbyggja geymsluna,"
sagði Ingimar að lokum. VG
Uppbygging farsímakerfis á Norðurlandi:
Margar stöðvar í
notkun á næsta ári
- mikii notkun sjómanna á farsímanum hefur valdið erfiðleikum
Uppbygging á farsímakerfinu
hefur staðiö yfir og stendur
enn. Kerfiö hefur verið í mikl-
um vexti og hefur vaxið mun
hraðar en menn áttu von á og
því hefur verið erfitt að fylgja
eftir þessari miklu eftirspurn
hvað varðar uppbyggingu á
stöðvum. I síðustu viku var
staddur á Akureyri Haraldur
Sigurðsson aðstoðarfram-
kvæmdastjóri tæknideildar
Pósts og síma í Reykjavík.
Hann var spurður hvað upp-
Sauðárkrókur.
Nýtt bakarí
Tvö bakarí eru nú starfrækt á
Sauðárkróki eftir að Gunnar
Guðjónsson opnaði brauðgerð
að Borgarteig 7 á dögunum.
Gunnarsbakarí heitir fyrirtæk-
ið, í höfuðið á meistaranum,
sem ætlar að hafa bæði brauð og
kökur á boðstólum og vera með
öðruvísi vöru en á markaðinum
er.
Aðspurður sagðist Gunnar
vera sannfærður um að grund-
völlur sé fyrir rekstri tveggja
brauðgerða á Króknum. Enda
hefðu verslanir í bænum selt
talsvert af brauði frá öðrum
brauðgerðum. -þá
Gunnar Guðjónsson í Gunnars-
bakaríi. Mynd: -þá
byggingu þessa kerfis liði og
hvað væri framundan á næsta
ári.
Haraldur sagði að vegna þess
hve notkun farsímans sé mikil
hafi ekki verið unnt að fá búnað í
móðurstöðvar til að mæta þessari
eftirspurn. Því hafi oft verið erfitt
að ná sambandi í gegnum farsím-
ann. Haraldur sagði að nú væru
185 rásir á 35 stöðum á landinu
og á þessu ári og því næsta sé
áætlað að stækka kerfið til niuna.
„Það sem hefur komið okkur
mjög á óvart er ntikil notkun
sjómanna á farsímanum. Þó að
ekki sé nema hluti allra farsíma í
bátum og skipum þá sýnir sig að
meirihluti síntaumferðar þessa
búnaðar fer í gegnum þessa fáu
síma. Þetta hefur gert okkur
nokkuð erfitt fyrir og veldur því
að stöðvar sem þannig eru settar
fá meiri umferð en gert var ráð
fyrir," sagði Haraldur.
Nýbúið er að setja stöðvar upp
á Tjörn á Skaga, Viðarsfjalli og
Húsavíkurfjalli. Á næsta ári er
áætlað að fjölga um a.m.k. 120
rásir á landinu. Á Norðurlandi er
áætlað að setja upp farsímastöðv-
ar á Dalvík, Olafsfirði, Siglufirði,
í Fljótum, í Námaskarði og Ax-
arfirði þannig að notkun farsím-
ans vinsæla ætti að geta verið
auðveldari með þessari þéttingu
á netinu. JÓH
Æskulýðsráð vill kanna
áhugamál unglinga
Á fundi æskulýðsráðs í síðustu
viku var samþykkt að athuga
kostnað við gerð ítarlegrar
könnunar á tómstundum og
áhugamálum unglinga á Akur-
eyri. Innan skamms hyggst
æskulýðsráð gera framkvæmda-
áætlun til langs tíma og yrðu
upplýsingar sem fengjust með
könnun sem þessari mjög
gagnlegar í slíkri áætlunar-
gerð. Reynist kostnaðurinn
viðráðanlegur verður væntan-
lega gert ráð fyrir honum á
fjárhagsáætlun næsta árs.
Tillaga þessa efnis kom frá
Braga V. Bergmann sem sæti á í
æskulýðsráði. í greinargerð með
tillögunni segir hann m.a. að
aukið mikilvægi unglinga sem
neytendahóps og sú einangrun
aldurshópa sem einkennir
nútímasamfélög hefur skapað
grundvöll fyrir sérstaka unglinga-
menningu. Hlutverk æskulýðs-
ráðs sé m.a að skapa æsku Akur-
eyrar sem bestar aðstæður til
tómstundaiðkunar og mikilsvert
sé að hafa upplýsingar um hver
helstu áhugamál hennar eru.
Nú eru litlar upplýsingar hand-
bærar um þetta efni og á síðustu
árum hafa neysluvenjur unglinga
breyst verulega. Valkostir eru
fleiri en áður og því vandara fyrir
unglinga að ákveða hverning
tómstundum skuli varið. VG
Bílamarkaðurinn:
Sölutregða í eldri bílum
Töluvert óvissuástand virðist
ríkja á markaði nýrra bíla í
dag. Þessi óvissa á sér ýmsar
rætur og sölutregða eldri bOa
er einn stærsti þátturinn.
Óhemjumikið hefur verið selt
af nýjum bílum undanfarin tvö
ár vegna lækkunar aðflutnings-
gjalda og kunnugir menn telja
að verulegra breytinga geti
verið að vænta á markaðinum.
Finnbogi Eyjólfsson hjá Heklu
hf. í Reykjavík sagði að það gæfi
augaleið að ekki væri endalaust
hægt að flytja inn 20 þúsund bíla
á ári, markaðurinn væri að mett-
ast og hlyti að koma að því að
innflutningur staðnæmdist við
ákveðna tölu. Á aðalfundi Bíl-
greinasambandsins var því spáð
að innflutningur myndi staðnæm-
ast í 12-14 þúsund bílum á ári
næstu árin en það magn myndi
nægja til að viðhalda bílaflota
landsmanna í sæmilegum meðal-
aldri.
„Þessa dagana er verið að
afskrá 3-4 öftustu árganga bíla-
flotans og það hefur sín áhrif til
að halda sölunni uppi. Þá má
nefna það að flestir vilja eignast
bíl þegar þeir fá bílpróf. Sumar
fjölskyldur eiga fleiri en einn bíl
en sá markaður er að ná mettun-
armarkinu, að því er spekingarn-
ir segja,“ sagði Finnbogi.
Gylfi Guðmarsson hjá Véla-
deild KEA sagði að ekki virtist
vera neitt lát á pöntunum í nýja
bíla og allir bílar af næstu send-
ingu væru löngu seldir. Þó væri
ekki hægt að útiloka bakslag í
bílasölu á næsta ári með tilliti til
þess að umboðin eru almennt
tregari en áður að taka eldri
árgerðir bíla upp í nýja og slíkt
gæti vissulega haft sínar
afleiðingar. EHB
Frakkar
★ Föt einhneppt
og tvíhneppt.
★ Frakkar,
þykkir, þunnir
Aldrei meira né
glæsilegra úrval.
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599