Dagur - 19.11.1987, Qupperneq 5
19. nóvember 1987 - DAGUR - 5
Regína Sigurðardóttir.
Næst er eldhúsið, en auk þess
að sjá um fæði fyrir sjúklinga,
bæði almennt og sérfæði, sér eld-
húsið um fæði fyrir starfsfólk
Sjúkrahússins svo og starfsfólk
og vistmenn í Hvammi. í kjallara
er aðstaða fyrir rafvirkja og
húsvörð. Á fyrstu hæð sjúkra-
hússins er heilsugæslustöðin til
húsa. Þrengslin þar eru mikil og
það verður að játast að við erum
að verða ansi langeyg eftir nýrri
Heilsugæslustöð.
Heilsugæslustöðin hefur að-
gang að rannsóknarstofu, skipti-
stofu og röntgendeild sjúkrahúss-
endurhæfingu og fleira. Auk
þessa er fæðingardeild með 4
rúmum, góðri barnastofu og
fæðingarstofu. Á þriðju hæð
hússins eru 34 sjúkrarúm fyrir
langlegusjúklinga sem því miður
fullnægir engan veginn þörf fyrir
langlegu plássum.
í>ó sjúkrahúsið sé ekki stórt,
sjáið þið að þarna fer fram fjöl-
breytt starfsemi, og til að reka
þetta sjúkrahús er áætlað að þurfi
um 130 milljónir og 395 þúsund
úr ríkissjóöi auk sértekna á árinu
1987, og finnst okkur, sem eigum
að ráðstafa þessu fé, naumt
skammtað. Margt verður að sitja
á hakanum og því miður er það
svo að þær framkvæmdir sem
bíða, verða yfirleitt bæði dýrari
og erfiðari, þegar þær loks eru
gerðar, því gjarnan er ekki hafist
handa fyrr en í eindaga er komið.
Við erum í dag með nærri 20
ára gamla sjúkrahúsbyggingu,
sem þarfnast bæði viðhalds'Og
endurbóta. Til þess þarf meiri
peninga því það fé sem sjúkra-
húsinu er ætlað nægir ekki einu
fyrir rekstrarkostnaði. Því miður
er Sjúkrahúsið á Húsavík ekki
það eina. Ég er hrædd um að
sama sagan sé hjá flestum sjúkra-
Sjúkrahúsið á Húsavík.
umhugsunarvert hversu margir
þurfa á þjónustunni að halda.
Hversu margar aðgerðir á ári
réttlæta t.d. rekstur skurðstofu,
og hversu margar fæðingar á ári
réttlæta rekstur fæðingardeildar?
Þetta er ein hliðin á málinu -
önnur er byggðastefna.
Það er staðreynd að heilsu-
gæslu- og sjúkrahúsþjónusta hef-
ur áhrif á búsetu fólks. Það
öryggi sem góð þjónusta á þess-
um sviðum veitir, hefur áhrif á
það hvar menn velja að búa.
Ljóst er að í framtíðinni eykst
þörfin fyrir langlegupláss til
muna og tímabært er að fara að
huga að þeim málum. Ef við bíð-
um of lengi, getur verkefnið því
miður orðið okkur ofviða. Ég tel
að Húsavík eigi að vera miðstöð
heilsugæslu- og sjúkrahúsþjón-
ustu í héraðinu og við eigum að
hafa það í huga þegar unnið er að
skipulagningu þessara mála.
Vissulega kostar heilsugæslu-
og sjúkrahússþjónusta mikla
peninga, en þeir peningar eru
ómetanlegir. Við höfum sem bet-
ur fer reynt að láta alla íbúa
landsins sitja við sama borð í
þessum málum. Þess vegna eig-
um við að leggja okkur frarn um
að efla þjónustu sjúkrahúsa og
heilsugæslustöðva á landsbyggð-
inni. Við verðum að halda vöku
okkar og hefja uppbyggingu þar
sem hennar er þörf.
Ég hef ekki verið með neinar
tölulegar upplýsingar í þessu
erindi mínu. Ástæðan er sú að ég
tel að langar talnaþulur segi
mönnum ákaflega lítið í raun.
Aftur á móti er staða sjúkrahús-
anna umhugsunarverð og mér
finnst að allir, sem einhver
afskipti hafa af stjórnmálum -
hvort sem er sveitarstjórna- eða
landspólitík - eigi að kynna sér
hana. Ef við viljum byggð um
landið allt má þessi þáttur ekki
gleymast."
(Höfundur starfar á Sjúkrahúsi Húsavíkur.)
Erindi flutt á kjördæniisþingi framsóknarmanna
sem haldiö var um síðustu helgi.
Opínn kynningarfundur
AA samtakanna verður haldinn í
Borgarbíói á Akureyri laugardaginn
21. nóvember kl. 14.00.
★ Ællir velkomnir ★
EININGAHRIF
Einingabréf 1 nú 13-14% umfram verð-
bólgu.
Einingabréf 2 nú 9-10% umfram verð-
bólgu.
Einingabréf 3 nú 35-39% nafnvöxtun.
Raunvöxtun háð verðbólgu.
Aukið öryggi vegna dreifingar áhættu.
Obundið fé. Einingabréfin eru alltaf laus til útborgunar.
Allir geta cignast Einingabréf, því hægt er að kaupa þau
fyrir hvaða upphæð sem er.
GENGIBRÉFANNA:
Einingabréf 1 ...............
Einingabréf 2 ................
Einingabréf 3 ................
Lífeyrisbréf .................
2432.- kr.
1424.- kr.
1508.- kr.
1223.- kr.
Önnur bréf í sölu: Raunávöxtun
Spariskírteini ríkissjóðs 7,2- 8,5%
Bankatryggð skuldabréf .... 9,5-10,5%
Skuldabréf Lindar hf 11,0-11,2%
Verðtryggð veðskuldabréf . 13,0-15,0%
Lífeyrisbréf 13,0-14,0%
KAUPÞING
NORÐURLANDS HF
Ráðhústorg 5 Akureyri Sími 96-24700
ins, sem einnig eru á 1. hæð. Þar
er líka skurðstofa og við erum
það heppin að hafa starfandi 2
skurðlækna við sjúkrahúsið, sem
jafnframt eru yfirlæknar. Þeir
skipta með sér vöktum þannig að
alltaf er skurðlæknir á vakt og
það er öryggi sem er ómetanlegt.
Á skurðstofunni voru gerðar 3-
400 aðgerðir á ári á meðan aðeins
1 skurðlæknir var við störf, en á
árinu 1985, sem var fyrsta árið
sem þeir voru 2 urðu aðgerðirnar
nær 600.
Á rannsóknarstofunni, sem er
mjög fullkomin miðað við stærð
sjúkrahússins eru gerðar rann-
sóknir í blóðmeinafræði, mein-
efnafræði og sýklafræði. Með því
að hafa svona fullkomna rann-
sóknarstofu höfum við sparað
mikið fé vegna kostnaðar við
sendingar á rannsóknum suður.
Á röntgendeild er hægt að gera
allar helstu röntgengreiningar, að
vísu erum við með 17 ára gömul
röntgentæki, sem eru orðin léleg.
En á næstunni munu koma ný og
betri tæki, sem vafalaust eiga eft-
ir að létta mönnum störfin.
Auk þessa eru á 1. hæð lækna-
stofur fyrir 5 lækna sem eru í
50% starfi við sjúkrahúsið auk
þess að starfa á heilsugæslustöð-
inni. Aðstaða fyrir læknaritara og
símavakt er í þröngu húsnæði á
1. hæð. Á 2. hæð er almenn
deild, svo kölluð blönduð deild.
Þar eru lagðir inn aðgerðarsjúkl-
ingar, sjúklingar í lyfjameðferð,
Ég sagði áðan að heilsugæslu-
stöðin væri í húsnæði sjúkrahúss-
ins. Hún hefur allt of lítið hús-
húsum í landinu. Þarna verður að
verða breyting á og helst sem
fyrst.
næði og við á Húsavík erum orð-
in ansi langeyg eftir nýrri heils-
ugæslustöð. Ef af verður, eins og
tillögur hafa komið fram um að
rekstur og bygging heilsugæslust-
öðvar flytjist alfarið yfir á sveita-
félögin er hætt við að við verðum
því miður að bíða í mörg ár í
viðbót. Þess vegna er nú lögð
höfuðáhersla á byggingu nýrrar
heilsugæslustöðvar strax á næsta
ári. í rauninni má segja að það sé
lífsspursmál fyrir framtíð heils-
ugæslustöðvar á Húsavík að svo
verði.
Að mínu áliti eru það ótvíræð-
ir kostir að hafa heilsugæslustöð í
nánu sambýli við sjúkrahús. Þar
er hægt að hafa sameiginlega
rannsóknaraðstöðu og þeir sjúkl-
ingar sem lagðir eru inn á sjúkra-
hús eftir komu á heilsugæslustöð
eiga þess kost að sami læknirinn
annist þá allt frá sjúkdómsgrein-
igu og innlögn til útskriftar. Þetta
atriði veitir sjúklingum aukið
öryggi og stuðlar að markvissari
meðhöndlun. Veltum aðeinsfyrir
okkur framtíðar hlutverki sjúkra-
hússins á Húsavík í sýslunni og
umdæminu. Á sjúkrahúsið ein-
göngu að verða langlegusjúkr-
ahús eða eigum við að halda áfr-
am á sömu braut.
Mér finnst tvímælalaust að við
eigum að halda þeirri þjónustu
sem við höfum nú þegar og stefna
að því að auka hana frekar en
hitt. Alltaf kemur upp spurningin
um kostnað. Vissulega er það
K.JÓNSSON &CO
/
í tilefni af 40 ára afmæli
Niðursuðuverksmiðju K.Jónssonar & Co.
/^verðum við með sérstaka afmæliskynningu
// í KEA-verslunum eingöngu.
K. JÓNSSON & CO