Dagur - 19.11.1987, Side 16
DACHJR
Akureyri, fímmtudagur 19. nóvember 1987
Snvrtivörur í úrvali - Okkar merki - Snyrtivönjr í úrvali
Bæjargjöldin:
Lakari innheimta
„Það verður að segjast eins og
er að innheimtan er aðeins lak-
ari en í fyrra og munar þar 2-
3%. Auðvitað geta alltaf orðið
sveiflur í þessu milli ára en mér
þykir heldur miður að inn-
heimtan hafí farið niður á
við,“ sagði Valgarður Bald-
vinsson, bæjarritari á Akur-
eyri.
Þau gjöld sem um er að ræða
eru útsvar, aðstöðugjöld og fast-
eignagjöld auk eftirstöðva fyrra
árs og álagðra dráttarvaxta. Mið-
að er við stöðuna 1. nóvember
1987. Að sögn Valgarðs er inn-
heimta bæjargjalda oft ekkert
betri þrátt fyrir þenslu á vinnu-
markaði og mikla atvinnu því
kostnaðarhækkanir væru miklar
hjá fyrirtækjunum. EHB
Alþýðumaðurinn
kemur út á ný
Hugmyndir eru uppi meöal
aðstandenda Alþýðumannsins,
blaðs alþýðuflokksmanna á
Akureyri, að hefja útgáfu
blaðsins að nýju eftir nokkuð
langt hlé sem varð á útgáfunni
eftir kosningar.
Haraldur Helgason, einn for-
svarsmanna blaðsins, sagði að
ekkert væri fastákveðið ennþá
varðandi útgáfu Alþýðumannsins
en menn gerðu sér vonir um að
blaðið gæti komið út hálfsmánað-
arlega í vetur, jafnvel í hverri
viku. Nokkrir endar væru þó
lausir ennþá og yrði ekkert
ákveðið fyrr en í næstu viku í því
efni. í gær kom út fyrsta tölublað
Alþýðumannsins sem gefið er út
eftir kosningar. EHB
Akureyri:
Sana stækkar
„Okkur veitir ekki af að fara
að huga að stækkun fyrirtækis-
ins. Þetta er mikil framkvæmd
og há fjárfesting en vegna þess
að þekkingin er til staðar á
Akureyri þótti hagstæðara að
stækka verksmiðjuna hér en í
Reykjavík,“ sagði Baldvin
Valdemarsson, framkvæmda-
stjóri Sana.
Að sögn Baldvins er þörf á
stækkun verksmiðjunnar með til-
liti til framleiðslu gosdrykkja og
léttöls en mikil aukning hefur
orðið á sölu þeirra undanfarna
mánuði. Þá varð einnig ljós í
DNG færavindan:
í bullandi
samkeppni
við netin
haust breytt afstaða meirihluta
þingmanna til sölu og dreifingar á
bjór innanlands. Ýmsir nýir þing-
menn hefðu komið fram í dags-
Ijósið sem væru fylgjandi
bjórnum. Sanitas hf. þyrfti því
hugsanlega á stækkun að halda og
hefði niðurstaðan orðið sú að ef
af slíku yrði í framtíðinni væri
sh'k verksmiðja betur staðsett á
Akureyri þar sem þekking og
reynsla væri fyrir hendi með tilliti
til ölgerðar. Einnig væri rekstrar-
öryggi talið meira á Akureyri en í
Reykjavík.
Bygginganefnd Akureyrar hef-
ur samþykkt tillöguteikningu frá
Birgi Agústssyni að tankagangi
og gerjunargámum úr stein-
steypu og stáli að Norðurgötu 57.
Framkvæmdir munu hefjast von
bráðar og hefur þegar verið sam-
ið við Jón Björnsson, bygginga-
meistara, um verkið. Ef bjór-
frumvarpið verður samþykkt eru
frekari stækkunarmöguleikar
húsnæðisins fyrir hendi. EHB
Mikil vinna er þessa dagana hjá skógarhöggsmönnum í Kjarnaskógi. Hér eru þeir að fella myndarlegt grenitré fyrir
jólin.
Rafeindavirkjar hjá Pósti og síma:
Deila um launaflokk
á leið í félagsdóm
„Lögfræðingur okkar hefur
leitað eftir því að ákveðnir
menn fái þetta greitt og það er
ennþá verið að kljást um það.
Ef þetta heldur áfram eins og
það hefur gert þá fer málið fyr-
ir félagsdóm,“ sagði Þórir
Hermannsson formaður
Sveinafélags rafeindavirkja í
samtali við Dag en eins og
komið hefur fram hafa Póstur
og sími og launadeild fjármála-
ráðuneytis ekki viljað viður-
kenna tiltekinn launaflokk fyr-
ir rafeindavirkja hjá stofnun-
inni.
Um er að ræða svokallaðan 3.
launaflokk en samkvæmt samn-
ingi eiga þeir menn sem lokið
hafa 160 tíma námskeiði að
þiggja laun samkvæmt honum.
Til þess að láta reyna á málið hef-
ur lögfræðingur félagsins eins og
áður segir leitað eftir því að þrír
menn sem valdir voru af handa-
hófi fái þetta greitt. Ef ekki verð-
ur fallist á þá kröfu þá fer málið
fyrir dóm og verður að sögn Þóris
prófmál.
Þórir sagði að lögfræðingurinn
hefði fengið svar frá ráðuneyti
sem væri þess eðlis að erfitt væri
að sætta sig við þá lausn málsins.
Málið hefur nú verið hjá lög-
fræðingi í á annan mánuð, frestur
hefur oftar en einu sinni verið
gefinn og nú er þolinmæði þeirra
rafeindavirkja á þrotum að sögn
Þóris. ET
„Við erum komnir í harða
samkeppni við netaveiðina og
gengur bara vel,“ sagði Kristján
Jóhannesson framkvæmda-
stjóri DNG en síðastliðið ár
hefur það færst mjög í vöxt að
stórir bátar sem stundað hafa
netaveiðar skipti yfír í færa-
vindur.
Að sögn Kristjáns eru þessir
bátar margir um 30 tonn að stærð
og þá algengt að um borð séu
hafðar 5-7 vindur. Vindurnar eru
taldar endast í um 10 ár og því er
þarna um góða fjárfestingu að
ræða. Aðallega eru það bátar fyr-
ir sunnan og vestan sem tekið
hafa þessa stefnu.
„Það er dýrt úthaldið í netun-
um og þeir sjómenn sem hafa
reynt þetta og við höfum talað
við eru ánægðir með þetta. Menn
á stærri bátunum hafa séð hvað
þessir litlu geta fiskað þannig að
við áttum í sjálfu sér alltaf von á
því að þetta sem nú er að gerast
yrði þróunin." ET
Dagvistun á Holtavelli:
Kaup á einingahúsi könnuð
„Ætlunin var að kaupa tvö
notuð einbýlishús en ekki
fékkst nema eitt; Sunnuhlíð
15. Dagvistarfulltrúi Akur-
eyrar hefur fengið ýmis tilboð
um einingahús frá Selfossi auk
tilboðs frá Möl og sandi hf. og
er nú verið að athuga húsin,“
sagði Þórarinn E. Sveinsson,
en hann á sæti í félagsmála-
ráði.
Samkvæmt bókun félagsmála-
ráðs frá 2. nóvember kom fram
að auglýst hafi verið eftir hús-
næði fyrir dagvist. Búið sé að
ráðstafa 8 milljónum króna af
fjárhagsáætlun ársins í ár og séu
þá eftir fjórar milljónir til ráð-
stöfunar í þessu skyni. Fyrir
fundinum lá tillaga frá félags-
málastjóra um að byggja eininga-
hús á Holtavelli við Þverholt sem
nýta mætti sem dagvist. Eftir sem
áður yrði þar þó einnig rekinn
gæsluvöllur. Að lokum var dag-
vistarfulltrúa falið að koma fram
með ákveðnar tillögur í þessu
máli á næsta fundi félagsmálaráðs.
Að sögn Þórarins E. Sveins-
sonar hafa einingahús eins og hér
um ræðir verið notuð til dagvista
bæði í Reykjavík og Kópavogi.
Húsameistara Akureyrar hefur
verið falið að gera samanburð á
þeim einingahúsum sem koma til
greina en verð þeirra er svipað.
Svo virtist sem hægt væri að reisa
einingahús fyrir 2-3 milljónir
króna en þá er ekki meðtalinn
kostnaður við grunnvinnu og inn-
réttingar, sem yrði lokið við á
næsta ári. Tilbúið undir tréverk
myndi húsið kosta milli 4 og 5
milljónir króna. EHB
Hultavöllur í Glerárhverfi. Mynd: TLV