Dagur - 23.11.1987, Blaðsíða 5

Dagur - 23.11.1987, Blaðsíða 5
23. nóvember 1987 - DAGUR - 5 eru vissulega allra góðra gjalda verðir, en starfssystkin eiga þeir „úti á landi“, sem ekki nutu verkefna, sem þau gátu þó sinnt þekkingar og aðstöðu vegna. En er þá ástæða til þessarar van- metatilfinningar og minnimáttar- kenndar, sem hrjáir þá, sem á lands- byggðinni búa? Er þar ekkert - eða að minnsta kosti harla fátt - sem er þess virði, að að því sé hlúð? Eru mál svo vaxin, að menninguna sé að mestu að finna „fyrir sunnan“ og að nokkuð víst sé, að lista sé helst ekki að leita nema þar? Öllum þessum spurningum og fleirum í sama dúr hljóta þeir sem vita vilja af þeim efnivið og þeim jarðvegi, sem fyrir hendi er í hinum dreifðu byggðum að svara neitandi. Pví að hvað er efniviður í listamann? Það er maðurinn, karlinn, konan, sem hefur hugsjón, sem leggur tíma sinn í það að skapa; sem vill ekki vera einungis þiggjandi, heldur gef- andi, ekki einungis áhorfandi, heldur gerandi, auðgandi samfélag sitt með framlagi sínu til listar á því sviði, sem fyrir valinu hefur orðið. Og sjáum við ekki og þekkjum fjölda af þessu fólki í heimabyggðum okkar? Pað er fólkið, sem mætir á leikæfingar eftir vinnutíma - kauplaust. Það er fólkið, sem situr ekki fyrir framan sjón- varpstækið eftir strangan vinnudag, heldur notar tímann til annars - söngs, ritstarfa, myndsköpunar, grúsks. Það er fólkið, sem leggur hvíldartíma sinn í það að veita umhverfi sínu vídd, aukið gildi, meira innihald en það, sem fæst með brauðstritinu einu saman. Eru störf þessa fólks einskis virði? Alls ekki! Eru þau ekki veigamikill þáttur í menningarviðleitni hinna „dreifðu byggða"? Vissulega! Og skapar þetta fólk ekki verðmæti í menningarlegu tilliti, sem við viljum ekki vera án? Svo sannarlega! Ætti þá ekki að hlúa að starfsemi þess? Að sjálfsögðu! En hvers vegna er það þá ekki gert betur en raun ber vitni? íslenskar sveitarstjómir hafa unnið gott verk flestar í því að koma á atvinnuöryggi í byggðum þessa lands. Við búum við þau öfundsverðu skil- yrði, að hér á landi þurfa menn ekki að ganga um atvinnulausir, ef þeir vilja vinna. Hér er lítið um skort og þar sem hann knýr dyra, er aðstoð samfélagsins til reiðu, þar sem henni verður við komið. Flest okkar hafa það fyrir satt, að maðurinn lifi ekki af brauði einu saman. Við vitum að hann er félags- vera, að hann þarfnast afþreyingar, afslöppunar, samfélags með öðrum í gefandi og uppbyggjandi starfi. Við vitum, að þegar lífsafkoman er orðin örugg og þakið yfir höfuðið er fengið, fer maðurinn að þarfnast þeirra þátta, sem aðgreina hann framar öðrum frá dýrum merkurinn- ar. Hann þarfnast menningar, lista, fagurra hluta, sköpunar og eigin þátttöku í þessurn þáttum og tækifæra til þess að njóta þeirra. Þarna er komið að einum helsta þættinum í því, hvers vegna menn flytja úr byggðum, þar sem afkoma þeirra er góð og ekkert virðist skorta í efnalegu tilliti; það er vanmati á gildi félags- og menningarlífs og þeim skorti, sem þar af kemur, á tækifær- um til þess að njóta menningar og lista. Raunar korna fleiri atriði til svo sem aðstaða til skólagöngu og í því sam- bandi gæði skóla og þeirrar mennt- unar, sem þeir veita, og þá sér í lagi á grunnskólastigi. Um þetta atriði mætti ræða langt mál, en það verður ekki gert hér, þó að verðugt væri. Af þeirri vanmetatilfinningu og minnimáttarkennd, sem þegar hefur verið á minnst, sprettur það, að framlag íbúa „úti á landi“ til menningar-, lista-, og félagslífs í byggðum sínum fær ekki þann hljóm- grunn hjá ráðamönnum byggðanna, sem skyldi. Aðrir þættir á verkefna- skránni þykja viðurhlutameiri. Ráða- menn sjá ekki sambandið á milli félagslegrar og menningarlegrar full- nægju íbúanna og þess, að þeir festist í byggðunum. I þessu sambandi verður ekki hjá því komist, að ræða frekar það mat, sem virðist ráða, þegar verkefnum sveitarfélaga er raðað. Það er áber- andi, hve aftarlega í forgangslista menningar- og félagsmál koma. Af röðuninni er augljóst, að þessir málaflokkar eru taldir lítilvægir í flestum tilfellum, þó að fyrir komi að vægi þeirra sé gert meira en er að jafnaði t.d. vegna þess, að svo vill til, að halda á upp á eitthvað eða annað viðlíka liggi fyrir. Þá virðist álit rnanna, að menning og listir séu vel til fallið skraut og gott til þess brúks, en alla aðra daga séu þessir þættir gagnslitlir og jafnvel, að þeir, sem leita eftir stuðningi til þess að stunda þá, séu heldur lciðir betlarar á fé hinna sameiginlegu sjóða. Þetta viðhorf er mikil fásinna. Það má fullyrða að það er unnt að sjá í ýmsu beint samband á milli festu manna í byggðum og tækifæranna, sem bjóðast ungum og öldnum til þess að njóta félagslífs, menningar og lista. Einnig er uggl^ust, að ástundun þessara þátta verkar sem hvati á athafnalíf, vegna þess meðal annars, að íbúarnir verða frekar kyrrir en ella og leita því leiða til þess að bæta kringumstæður sínar og af- komu innan hlutaðeigandi byggðar. Þá má ekki gleyma þeim blæ, sem skapast iðulega í byggðum, þar sem menningar- og listalífi er sinnt sem skyldi og félagslíf nær að blómgast. Enn mætti telja þann svip, sem menningarríkt byggðarlag hefur út á við; það aðdráttarafl sem það öðlast og þann vaxtarauka, sem af getur leitt. Það er öruggt, að menning borgar sig. Það er blátt áfram arðbært að leggja fé í félagsstarfsemi og listir og hlúa að þeim. Ánægðir, starfsglaðir og vakandi íbúar eru mesti auður hvers byggðarlags, þvf að í þeim er upp- spretta framfara og vaxandi vel- megunar. Af vanmetatilfinningunni og minnimáttarkenndinni leiðir enn, að ýmiss aðstaða, sem nauðsynleg er til þess að blómlegt félags- og menning- arlíf geti þrifist, er annað hvort ekki til staðar, eða hún látin föl við verði, sem verkar líkt og hemill á þá starf- semi, sem íbúarnir vilja koma af stað. Hér er til dæmis átt við það viðhorf, að félagsheimilin, sem voru reist til þess að vera menningar- og félagslífsmiðstöðvar í sínum byggð- arlögum, eru að því er virðist iðulega rekin með því hugarfari, að afnota- gjöld skuli sem mest standa undir kostnaði. Vitanlega er ekkert at- hugavert við það, að félagsheimili hafi tekjur, sem ganga upp í kostnað við rekstur. Hins vegar er það frá- leitt, þegar það kemur fyrir, sem vissulega er allvíða, að húsaleiga er svo há, að félagasamtök og áhuga- mannahópar um t.d. leiklist, sönglist og myndlist skirrast við að nýta fé- lagsheimili og fá þar inni vegna kostnaðar. Af því viðhorfi, sem áður var á minnst, að list utan Stór-Reykja- víkursvæðisins er ekki álitin meira en svo standa undir nafni, kemur það, að fyrirgreiðsla t.d. í formi fjár- muna, er iðulega torfengin, eða þá oft af svo skornum skammti, að lítið gagn er af. í þessu sambandi virðist oft gleymast gersamlega, hverjir það eru, sem að frjálsri menningar- og listastarfsemi standa. Það eru íbúar byggðarlagsins, og þeir greiða til þess skatta sína og skyldur. Starfsemi þeirra að menningar- og listamálum er ekki gróðavegur neins þeirra, heldur ógreidd áhugavinna, sem er hlutaðeigandi byggð iðulega til mik- ils sóma og íbúum hennar til lífsfyll- ingar og ánægju. Þeir þættir verða ekki metnir til fjár, heldur eru þeir ómetanlegir, og því lítt skiljanlegt, að í stað þess að styðja myndarlega við þá í ljósi þess, að þeir eru blátt áfram arðbærir, skuli það vera til, að á þessa starfsemi er einna helst litið sem tekjulind fyrir húsin, sem reist voru til þess að gera hana mögulega. Áheyrendur góðir. Við lifum á tímum fjölmiðlunar. Yfir okkur hell- ist á öldum ljósvakans efni, sem okk- ur hefur verið tjáð að sé list og hafi menningargildi. í öllu fárinu höfum við, sem utan höfuðborgarsvæðisins búum, of mörg misst fótana og erum farin að líta okkur of fjær eftir þeim þáttum, sem geta gætt líf okkar því innihaldi, sem við þráum að fenginni góðri afkomu. Við megum gæta okk- ar á því að við glötum ekki gildismati okkar í hvirflum rafeindavindanna og förum að trúa því, sem þegar er tekið að læðast að okkur, að framlag okkar, sem utan Reykjavíkur búum, til þjóðarmenningarinnar sé lítil- vægt. Við þurfum að sameinast um hið gagnstæða. Því að við getum ver- ið og eigum að vera verðir þeirra verðmæta, sem heimabyggðir okkar búa yfir og sem verða til þar. Menningarsamtök Norðlendinga, MENOR, voru stofnuð til þess að sinna þessu verkefni. Á síðasta Fjórðungsþingi Norðlendinga, var samþykkt eftirfarandi ályktun um samtökin: „Fjórðungsþing Norðlendinga haldið á Dalvík 26.-27. ágúst, 1987, telur að samtök eins og Menningar- samtök Norðlendinga hafi vaxandi hlutverki að gegna. Þingið skorar á sveitarfélög á Norðurlandi, mennta- málaráðuneytið og fjárveitingavald að styrkja Menningarsamtök Norð- lendinga með framlögum til þess að koma á reglulegri menningarhátíð á Norðurlandi og stuðla að áframhald- andi rekstri samtakanna." Ef til vill - og vonandi - er þessi ályktun boðberi vaxandi skilnings á mikilvægi menningar- og listalífs á Norðurlandi. Ef til vill - og vonandi - er það þing, sem við sitjum merki þess, að vitundarvakning sé að verða á meðal sveitarstjórnarmanna um það, að fleira hafi gildi í lífinu og sé þess virði að fyrir því sé barist en fjárhagsleg afkoma. Ef til vill - og vonandi - stöndum við nú við upphaf þess skeiðs, þegar tekið verður af alvöru að hlúa að viðgangi og vexti hinna sérmannlegu þátta. Menning og listir eru ekki hjóm og spé. Þær fela í sér gróandann, sem auðgar allt umhverfið og vekur menn til dáða. Þær hafa reynst einmitt þetta, þar sem þær hafa náð að njóta sín: Lyftistöng mannslífsins á hverj- um stað. Við skulum vona, að þær aðstæður skapist í hinum dreifðu byggðum íslands, að þær fái notið þess kynngimagns, sem felst í sköpun og sköpunargleði einstaklingsins. Sú framtíðarsýn - uppfylling þess draums - er í ykkar höndum, sveitar- stjórnarmenn góðir. Það er ekki líklegt, að þið getið unnið íbúum byggða ykkar og framtíð þeirra þarf- ara verk en það að láta drauminn rætast. Akureyri 11.11.87 Haukur Ágústsson, formaður MENOR LYFTARAR Eigum til afgreiðslu nú þegar mikið úrval notaðra rafmagns- og diesellyftara, enníremur snúninga- og hliðarfærslur. Tökum lyftara upp í uppgerðan, leigjum lyftara, flytjum lyft- ara. Varahluta- og viðgerðaþjónusta. Líttu inn - við gerum þér tilboð. Tökum lyftara í umboössö LYFTARASALAN HF. Vatnagörðum 16. Símar 82770 og PÓST- OG SiMAMÁLASTOFNUNIN Rafeindavirkjanám - lokaáfangi Póst- og símamálastofnunin býður rafeinda- virkjanemum á 7. önn í bóklegt nám og starfs- þjálfun, sem hefst í byrjun janúar 1988. Útskrifast þeir þá sem rafeindavirkjar frá Póst- og símaskólanum eftir 13 mánuði. Starfsþjálfun, sem erfólgin í uppsetningu og við- haldi á mörgum og mismunandi tækjum og kerf- um, fer fram í ýmsum deildum stofnunarinnar í Reykjavík og víðsvegar um landið. Laun eru greidd á námstímanum. Umsóknir, ásamt prófskírteini eða staðfestu afriti af því, berist Póst- og símaskólanum fyrir 10. desember n.k. Nánari upplýsingar eru veittar í Póst- og síma- skólanum í síma 91-26000. Umsóknareyðublöð liggja frammi í Póst- og símaskólanum, hjá dyravörðum Landsímahúss- ins við Austurvöll og Múlastöðvar við Suður- landsbraut og ennfremur á póst- og símstöðvum. Reykjavík 12.11. 87 Skólastjóri FARARHEILL ’87 EFNIR TIL SAMKEPPNI UM GERÐ HANDRITS AÐ MYNDBANDITIL N0TKUNAR VIÐ UMFERÐARFRÆÐSLU j/g Skila skal frumsömdu handriti að myndbandi, sem er 2x20 mínútur, til notkunar við umferðarfræðslu í þremur efstu bekkjum grunnskóla, 7.-9. bekk. Handritum skal skila sem kvikmyndahandritum, þar sem fram kemur skýr lýsing á mynd, efnisatriðum og öðrum nauðsynleg- um upplýsingum. mm Sérstök dómnefnd verður skipuð og er Sigurður Helgason, c/o Fararheill ’87, Suðurlandsbraut 6,108 Reykjavík, sími 91-37320, trúnaðarmaður hennar og veitir hann allar nauðsynlegar upplýsingar. Mm Veitt verða ein verðlaun kr. 150 þúsund fyrir besta hand- ritið að áliti dómnefndar. Verðlaunin framselja rétt til gerðar og sýn- ingar myndarinnar til Fararheillar ’87. Gera ber sérstakan samning um framleiðslu hennar. Jafnframt kemur til greina að nýta fleiri hug- myndir samkvæmt samkomulagi. J/f Handritum skal skila ómerktum, ásamt lokuðu umslagi með nafni höfundar. Þau skulu send til Fararheillar ’87, c/o Samband ís- lenskra tryggingafélaga, Suðurlandsbraut 6,108 Reykjavík, í síðasta lagi 15. desember 1987. Þátttakandi samþykkir reglur samkeppn- innar með afhendingu handrits. ÁTAK BIFREIÐATRYGGINGAFELAGANNA

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.