Dagur - 23.11.1987, Page 11
23. nóvember 1987 - DAGUR - 11
Gísli Þorleifsson:
Enn um Svarfaðardalsá
- Svar við hugleiðingum Helgu á Bakka,
sem birtust í Degi þann 12. nóvember sl.
Teikning af þessum umrædda
skurði sem nær út fyrir land Hofs-
ár er til og á ég ljósrit af henni.
Einnig er búið að merkja með
hælum hér fyrir neðan Hofsá
þangað sem stokkur þessi átti að
ná í haust.
Þar sem áin skiptir merkjum
geta bændur vestan ár ekki breytt
henni nema í samráði við bændur
austan ár.
Þær fáu grjótpylsur sem settar
voru í Grundar-bakka hafa
stöðvað landbrot og eru allar þar
enn og af þeirri reynslu var
ákveðið að bæta grjóti þar við
Kuggur og
fleiri fyrirbæri
- eftir Sigrúnu Eidjám
Bókaútgáfan Forlagið hefur sent
frá sér nýja bók eftir myndlistar-
konuna og barnabókahöfundinn
Sigrúnu Eldjám. Nefnist hún
Kuggur og fleiri fyrirbæri og þar
segir frá drenghnokka sem m.a.
hefur gert garðinn frægan í
Stundinni okkar. Sögur Sigrúnar
hafa notið vinsælda meðal barna
og í sumar hlaut bók hennar -
BÉ-TVEIR - verðlaun Fræðslu-
ráðs Reykjavíkur sem besta
frumsamda barnabókin árið
1986.
í bókinni segir frá Kuggi og
kostulegum vinum hans: Málfríði
og mömmu Málfríðar - skrýtnum
kerlingum sem ekki kalla allt
ömmu sína þegar taka skal til
hendinni, Geirólfi bónda á
Grísatá, að ógleymdum Mosa -
glaðlyndu og hrekkjóttu kríli sem
býr yfir ótrúlegum hæfileikum og
leysir vanda vina sinna eins og
ekkert sé.
Kuggur og fleiri fyrirbæri er 32
bls., prýdd rúmlega fjörutíu lit-
myndum eftir höfundinn. Prent-
smiðjan Oddi hf. prentaði.
Móðir, kona, meyja
- Fyrsta skáldsaga Nínu
Bjarkar Árnadóttur komin út
Út er komin hjá Forlaginu skáld-
sagan Móðir, kona, meyja eftir
Nínu Björk Árnadóttur. Petta er
fyrsta skáldsaga höfundar en
Nína er löngu þjóðkunn sem
ljóð- og leikritaskáld.
Um efni bókarinnar segir m.a.
á kápubaki: „Haustið 1958 held-
ur Helga litla í Heiðarbæ suður
og ræðst í vist til ríkmannshjóna í
Reykjavík. Sextán ára sveita-
stelpa sem eignast hefur barn í
lausaleik. Árið í húsinu er tími
mikilla atburða og skiptir sköp-
um í lífi hennar. Helga lætur eng-
an ósnortinn - hún er náttúru-
barn og ögrun við Iífið á möl-
inni. . .
Nína Björk ljær því fólki mál
sem ekki er til frásagnar um hlut-
skipti sitt, hvort heldur það er
fína frúin Heiður sem fléttar sorg
sína og sviknar tilfinningar í vef-
inn sem hún brennir að hausti -
Sína og Setta, síðustu niðursetn-
ingar íslenskra sveita - eða
Ameríkusonurinn Villý sem
berst fyrir tilveru sinni í bragga-
hverfum Reykjavíkur . . . Frá-
sögnin er spennandi, hún ein-
kennist af heitum erótískum lýs-
ingum, einstæðu næmi á and-
stæður þjóðfélagsins og er gædd
þeim ljóððrænu töfrum sem Nína
Björk Árnadóttir hefur flestum
skáldum betur á valdi sínu.“
milljónum af almannafé í svona
framkvæmdir, sem skemma
fegurð sveitarinnar og eyðileggja
hlunnindi bænda, sem eru alltaf
að verða meira og meira virði.
Þar sem Helga vitnar í að áin
sé að fara með Bakkabæinn má
segja fyrir þá sem ekki þekkja til
að landbrot þetta er nokkru
norðan við bæinn og skil ég ekki
að á sem rennur í norður brjóti
land í suðurátt.
Við sem höfum verið að deila á
þessar framkvæmdir erum fyrst
og fremst að deila á að ekki skuli
hafa verið athugaðir allir mögu-
leikar til að stöðva landbrotið,
heldur einblínt á þessa fáránlegu
lausn, að ekki skuli hafa verið
leitað til sérfróðra manna hvað
varðar náttúru og lífríki árinnar
eða til bænda sem málið snertir.
Við deilum á hvernig staðið hefur
verið að framkvæmdum og þau
spjöll sem þær hafa í för með sér.
Og að lokum. Ég hef ekki
breytt farvegi árinnar á nokkurn
hátt. Ég hef heldur ekki stefnt
mönnum til fundar á Bakka og vil
ég því biðja þá sem boðuðu
stjórn veiðifélagsins þangað að
hreinsa mig af þessum áburði.
Hofsá 16.11. 1987
Gísli Þorleifsson.
Nauðungaruppboð
annað og síðara, á fasteigninni Norðurgötu 17a, efri hæð,
Akureyri, þingl. eigandi Þuríður Hauksdóttir, fer fram í dómsal
embættisins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 27.
nóvember ’87 kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru: Bæjarsjóður Akureyrar, Ásmundur
Jóhannsson hdl., Ólafur B. Árnason hdl., Róbert Árni Hreið-
arsson hdl., Veðdeild Landsbanka íslands og Gunnar Sólnes
hrl.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Hafnarstræti 88, 1. hæð, s-hl. Akureyri, þingl.
eigandi Stefán Sigurðsson, fer fram í dómsal embættisins
Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 27. nóvember '87
kl. 15.45.
Uppboðsbeiðendur eru: Innheimtumaður ríkissjóðs og Bæjar-
sjóður Akureyrar.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Sólvallagötu 3, Hrísey þingl. eigandi Guðjón
Björnsson, fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107,3.
hæð, Akureyri föstud. 27. nóvember 1987 kl. 14.45.
Uppboðsbeiðandi er Tryggingastofnun ríkisins.
Sýslumaðurinn i Eyjafjarðarsýslu.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Sandskeiðt verkstæðishús, Dalvík, þingl. eig-
andi Steypustöð Dalvíkur h.f., fer fram í dómsal embættisins
Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 27. nóvember
1987 kl. 15.15.
Uppboðsbeiðandi er Iðnlánasjóður.
Bæjarfógetinn á Dalvík.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Þrastarlundi v/Skógarlund, Akureyri, þingl. eig-
andi Pétur Valdimarsson, fer fram í dómsal embættisins Hafn-
arstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 27. nóvember 1987 kl.
15.45.
Uppboðsbeiðendur eru: Bæjarsjóður Akureyrar og Fiskimála-
sjóður.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
enda stendur straumurinn þar
beint á bakkann.
Hjalti bóndi í Ytra-Garðshorni
mun hafa látið ýta upp varnar-
garði en áin skolaði honum burt.
Seinna fyrir nokkrum árum lét
hann setja grjót við umrædda
bakka og er það enn óhreyft og
gerir sitt gagn. Með þessu sést að
grjót og grjótpylsur er það sem
best dugir og breytir ekki útliti
dalsins eða skaðar ána á annan
hátt.
Núna með stórminnkandi bú-
skap og kvóta, þegar bændur
mega ekki fullnýta jarðir sínar
finnst mér að ekki eigi að eyða
ID 0G FLEIRI
rvmjimurT fyrirbæri
fomAOK) SIGRÚN ELDJÁRN
Nauðungaruppboð
annað og síðara, á skipinu Drang TFIQ, þingl. eigandi
Flóabáturinn Drangur h.f., fer fram í dómsal embættisins
Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri, föstudaginn 27. nóvem-
ber 1987, kl. 16.15.
Uppboðsbeiðendur eru: Innheimtumaður ríkissjóðs, Trygg-
ingastofnun ríkisins Gunnar Sólnes hrl. og Hákon Árnason hrl.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síðara, á fasteigninni Hafnarstræti 84, e.h. Akureyri,
talinn eigandi Ari E. Arason, fer fram í dómsal embættisins
Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 27. nóvember
1987 kl. 16.00.
Uppboðsbeiðendur eru: Gunnar Sólnes hrl., Steingrímur
Þormóðsson hdl., Veðdeild Landsbanka Islands, Sigríður
Thorlacius hdl. og Bæjarsjóður Akureyrar.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Skarðshlíð 12d, Akureyri, þingl. eigandi Einir
Þorleifsson, fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107,
3. hæð, Akureyri föstud. 27. nóvember 1987 kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru: Gunnar Sólnes hrl., Ólafur B. Árna-
son hdl., Bæjarsjóður Akureyrar, Guðjón Ármann Jónsson
hdl. og Veðdeild Landsbanka íslands.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Glerárgötu 32, hluta, Akureyri, þingl. eigandi
Raforka h.f., fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107,
3. hæð, Akureyri föstud. 27. nóvember 1987 kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru: Innheimtumaður ríkissjóðs, Iðnaðar-
banki (slands h.f. og Iðnlánasjóður.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Jörvabyggð 7, Akureyri, þingl. eigandi Halldór
Rafnsson, fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107,3.
hæð, Akureyri föstud. 27. nóvember 1987 kl. 14.15.
Uppboðsbeiðandi er: Iðnaðarbanki Islands h.f.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Austurbyggð 7 Akureyri, þingl. eigandi Helgi M.
Bergs, fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107, 3.
hæð, Akureyri föstud. 27. nóvember 1987 kl. 14.45.
Uppboðsbeiðendur eru: Brynjólfur Kjartansson hrl. og Veð-
deild Landsbanka íslands.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Grenivöllum 16,1. hæð t.v. Akureyri, þingl. eig-
andi Steindór Kárason, fer fram (dómsal embættisins Hafnar-
stræti 107, 3. hæö, Akureyri föstud. 27. nóvember 1987 kl.
16.15.
Uppboðsbeiðendur eru: Gunnar Sólnes hrl. og Bæjarsjóður
Akureyrar.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Hvammshlíð 3, Akureyri, þingl. eigandi Unnur
Jónsdóttir, ferfram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107, 3.
hæð, Akureyri föstud. 27. nóvember 1987 kl. 15.00.
Uppboðsbeiðendur eru: Gunnar Sólnes hrl. og Bæjarsjóður
Akureyrar.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
á fasteigriinni Ráðhústorgi 3, 4. hæð, Akureyri, talinn eigandi
Ragnar Jónsson, fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti
107, 3. hæð, Akureyri föstud. 27. nóvember 1987 kl. 15.30.
Uppboðsbeiðendur eru: Landsbanki fslands og Ólafur B.
Árnason hdl.
Bæjarfógetinn á Akureyri.