Dagur - 06.01.1988, Side 5

Dagur - 06.01.1988, Side 5
6. janúar 1988 - DAGUR - 5 „Stórir bæir verða að fá að eflast og verða samkeppnisfærir við höfuðborg- arsvæðið.“ gjörningaveðri dýrtíðardraugsins og svo að þjóðfélagið verði gjald- gengt í samfélagi annarra þjóða. Pjóðin verður að læra þá köldu staðreynd, að treysta ekki happa og glappaaðgerðum, með erlend- um fjármagnsgusum í margvís- legu gervi. Við megum ekki við- halda, vegna hallareksturs á ríkisbúskapnum hávaxtastefnu, sem gerir erlendum fjármagns- eigendum fýsilegt að ausa fé inn í fjársvelt samfélag, sem er að svala fjárfestingarþorsta sínum. Við megum ekki með þessum hætti stuðla að því að fjármagns- leiga er að verða besti atvinnu- vegurinn í landinu. Atvinnuveg- irnir þola ekki þessa vaxtastefnu og munu dragast aftur í sam- keppni um fjármagn og vinnuafl við „báknið“. Hverfa verður frá úreltum húsráðum Það verður að leggja rétt lóð á vogarskálar heilbrigðar byggða- þróunar í landinu. Gömul húsráð í landsbyggðarpólitík hafa brugðist. íslenskur landbúnaður hefur í mörgum efnum verið rek- in í gerviheimi, þar sem fram- leiðslustefnan hefur hvorki stuðst við eiginlega verðmyndun eða markaðsaðstæður. Jafnhliða var ýtt undir framleiðsluaukningu með niðurgreiddu fjárfestingarfé og framlögum úr ríkissjóði. Það er ljóst að svonefnd heiðarbýlis- stefna, sem miðast við að halda hverju býli í ábúð eða óheft framleiðslustefna í landbúnaði geta hvorug staðist. Fráhvarf frá þessum slitnu húsráðum verða að eiga sér stað. Framleiðslan verð- ur að komast á það stig að bændastéttin markaðssetji vörur sínar í samræmi við eftirspurn. Tilviljanakennd búháttabreyting, án tillits til samhengis í tilveru byggða, getur verið jafn skaðleg og fyrra stjórnleysi. Samfélagsvitund var undirstaða samhæfra byggðaaðgerða Sú stefna að byggja upp fiskiðju- ver og kaupa skuttogara á hverja vík, þar sem safnast hefur saman tiltekinn fjöldi íbúa, hefur þrátt fyrir allt skilað miklu í þjóðarbú- ið, og á stóran þátt í þeirri fram- leiðniaukningu, sem var ávöxtur byggðastefnu á sínunt tíma. Petta á sínar skuggahliðar. í mörgum tilvikum eru þessir staðir ekki í stakk búnir til þess að koma upp margþættri þjónustu. Þess vegna njóta þessi byggðarlög ekki hagn- aðar af framlagi þeirra til þjóðar- búsins. Hráefnisöflun er oft á tæpasta vaði og nægir ekki vel rekinni fiskvinnslu, sem hafi skil- yrði til að tileinka sér bestu aðferðir urn hagkvæmni í rekstri. |>að sem gerir þessum byggðarlög- um fært að standast áföll, er félagsleg vitund fólksins og sam- félagslegt átak þess um atvinnu- reksturinn í byggðunum. Þetta er séríslenskt fyrirbrigði. í þessu felst styrkur uppbyggingar fram- leiðslubyggðarlaganna í landinu, sem hefur leyst frjálsa framtakið af hólmi, þar sem það hefur lagt upp laupana. Afleiðing fábreyttra atvinnuhátta Megin annmarki byggðaþróun- ar í mörgum sjávarstöðum er sá, að það stendur oft að á endum, þegar lokið er uppbyggingu fram- leiðslutækjanna, að þá fer að draga úr íbúafjölgun og aftur stefnir á ný til stöðnunar. Skýringin er augljós, æ færra fólk þarf í framleiðsluna og ekki eru næg atvinnutækifæri heima fyrir sem henta þeim mörgu, sem verða að leita í aðrar atvinnu- greinar. Þessi þróun talar sínu máli í flestum sjávarbyggðum landsins, þrátt fyrir vissa vel- gengni og háar meðaltekjur. Þróunarkj arnastefnan er byggðamál Því verður ekki hjá því komist að stefna að eflingu þeirra þéttbýlis- kjarna, sem hafi skilyrði og burði til að mynda breiðan atvinnu- markað m.a. til þess að mæta þeirri búseturöskun, sem kemur fram í tilfærslu frá sjávarstöðum vegna einhæfra atvinnuhátta. Þetta er þróunarkjarnastefnan. Það er með öðrum orðum ljóst að ekki er hægt að skapa mótvægi gegn höfuðborgarsvæðinu, nema stórir bæir fái að eflast og verði í vaxandi mæli samkeppnisfærir við höfuðborgarsvæðið. Þetta er miskunnarlaus staðreynd, sem ekki verður sniðgengin, ef menn vilja stöðva aðstreymið til höfuð- borgarsvæðisins og skoða málið í heild. Endurskoða verður vanhæfa byggðastefnu síðustu ára Við rekum vanhæfa byggða- stefnu, sem ber keim af sýndar- mennsku og óraunsæi. í ineðferð mála gætir markaðshyggju stjórnmálamanna um of. Fyrir þetta líða byggðamálin í landinu. Byggðastefna á að stuðla að því að landið sé byggt í samræmi við landkosti, þannig að fólkið í landinu búi við stjórnarfarslegt og félagslegt jafnræði, án tillits til búsetu. Besta leiðin í þessu efni er að framleiðslan, sem er undir- staða velmegunar þjóðarinnar og framlag landsbyggðar til þjóðar- búsins búi við frelsi, til þess að fá sannvirði fyrir framlag sitt í erlendum gjaldeyri. Þjóðfélagið getur ekki staðist til langframa, nema undirstöðu- atvinnuvegirnir búi við fullan hlut í þjóðarbúinu. Þetta er einnig undirstaða réttlátrar byggðastefnu og farsællar þjóð- félagsstefnu í bráð og lengd. Askell Einarsson framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Norðlendinga Þrettánda- brenna á Bjargnamelum í kvöld verður haldin árleg þrettándabrenna á Bjargna- melum sunnan Möðruvalla. Brenna af þessu tagi hefur ver- ið haldin síðustu árin en aðstandendur hennar er fólk af nærliggjandi sveitabæjum. Kveikt verður í bálkestinum kl. 21 í kvöld og er vonast til að sem flestir sjái sér fært að mæta að brennunni. Ekki sakar að fólk hafi með sér flugelda og blys og söngröddina í lagi því væntanlega verða sungnir þrettándasöngvar að venju. JÓH Leikstjóri Borgar Garðarsson. Leikmynd Örn Ingi Gíslason. Lýsing Ingvar Björnsson. Tónlist Jón Hlöðver Áskelsson. 5. sýning fimmtud. 7. jan. kl. 20.30. 6. sýning föstudag 8. jan. kl. 20.30. 7. sýning laugardag 9. jan. kl. 18.00. 8. sýningsunnudag 10. jan. kl. 16.00. Athugið breyttan sýningartíma. Forsala aðgöngumiða hafin. MIÐASALA SiMI 96-24073 lEIKFéLAG AKUREYRAR NOTAR^Íl ÞÚ •*. m, use0*" Verslunarhúsnæði til leigu: Um 120 fm verslunarhúsnæði á jarðhæð í Miðbæ Akureyrar er laust til leigu. Nánari upplýsingar eru gefnar í símum 22890 og 21794. Bridge - Bridge Svæðamót Bridgesambands Norðurlands eystra, sveitakeppni, verður haldin í Iðnskólanum á Akureyri 15.-17. janúar 1988. Þátttökutilkynningar þurfa að berast fyrir 8. janúar til Arnar Einarssonar sími 96-21058 eða Stefáns Ragnarssonar í síma 96-22175. FLUGMÁLASTJÓRN Flugmálastjórn auglýsir: Námskeið fyrir verðandi flugkennara hefst á Reykja- víkurflugvelli þriðjud. 19. janúar og lýkur laugardag- inn 26. mars. Próf verða haldin laugardaginn 9. apríl. Kennt verður sem hér segir: Þriðjudaga frá kl. 17.30-20.30 fimmtudaga frá kl. 17.30-20.30 laugardaga frá kl. 9.00-13.00 Rétt til þátttöku eiga þeir sem þegar hafa lokið bók- legu námi til atvinnuflugmanns 3. flokks og blind- flugsréttinda og þeir sem eru í slíku námi og áætla að Ijúka því á árinu. Áætlaður kostnaður er kr. 25.000.- fyrir hvern nemanda. Innritun og frekari upplýsingar hjá flug- málastjórn/ loftferðaeftirliti, flugturninum, Reykjavík- urflugvelli, sími 91-694100. Námskeio 1. januar Kennarar: Innritun og upplysingar A,ice> Asta> Ellen> Hu,da> Katrín. frá kl. 17 til 20 Skírteinaafhending verður í síma 24979. sunnudaginn 10. jan. frá kl. 14-16 Jazzdans: Fyrir stráka og stelpur 7 ára og eldri byrjendur og framhald. Jazzleikfimi: Fyrirkonur, byrjendur og framhald. Róleg leikfimi: Fyrir konur á öllum aldri. Almenn kvennaleikfimi: Hentar vel þeim konum sem eru í lítilli eða engri þjálfun. Jazzleikskóli: Fyrir börn 4-6 ára börn. Byrjendurog framhald. Dans, leikræn tjáning, söngur og leikir. Aerobic-Þolfimi: Hressilegir tímar fyrir hresst fólk byrjendur og framhald. Karlatímar: Styrkjandi æfingar, teygjur og þrek.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.