Dagur - 06.01.1988, Blaðsíða 12
Tvær nætur með
morgunverði á
kr. 1.920
Helgargisting á Hótel Húsavík
Hötel_________
Húsavik sími 41220.
Blönduós:
Pólarprjón hf,
gjaldþrota
- unnið að stofnun nýs hlutafélags
Pólarprjón hf. var stofnað árið
1971 og hefur síðan átt stóran
þátt í að byggja upp atvinnulíf
hér á Blönduósi. Nú um ára-
mótin var svo komið að stjórn
Pólarprjóns hf. neyddist til að
óska eftir því að fyrirtækið yrði
tekið til gjaldþrotaskipta.
Bruninn í Kringlumýri:
Söfnun
lýkur í
vikulokin
Söfnunin vegna brunans að
Kringlumýri 4 á Akureyri hef-
ur gengið vel, að sögn Jóhanns
Sigurjónssonar, skólameistara
M.A. Kennarar við Mennta-
skólann stóðu cins og kunnugt
er að söfnun til að styðja Stefán
Jónsson og fjölskyldu hans, en
íbúðarhús þeirra og innbú
urðu eldi að bráð skömmu fyr-
ir jólin.
Jóhann Sigurjónsson sagði að
fjölmargir einstaklingar hefðu
gefið fé í söfnunina allt frá því að
hún hófst daginn eftir brunann.
Þá hefðu ýmis fyrirtæki gefið fé
og annað til heimilisins en Stefán
flutti með fjölskyldu sína í íbúð í
eigu Verkamannabústaða eftir
brunann.
Kennararnir, sem að söfnun-
inni standa, reikna með að ljúka
söfnuninni og loka ávísanareikn-
ingi númer 24280 við Landsbanka
íslands á Akureyri í lok þessarar
viku. EHB
Það sem mun hafa orðið Pól-
arprjóni hf. að falli, voru við-
skipti við Dorette Egilsson og
Icelander Inc. í Bandaríkjunum á
árinu 1984. Þá keyptu nefnd
fyrirtæki ullarvöru af Pólarprjóni
hf. en hafa ekki greitt hana enn.
Hafa staðið yfir málaferli vegna
innheimtu á þessari skuld. Mála-
ferlin hafa orðið Pólarprjóni hf.
mjög kostnaðarsöm og ekki skil-
að árangri. Rekstur Pólarprjóns
hf. var endurskipulagður á árinu
1986 og hefur gengið þokkalega
þrátt fyrir slæmt ástand í ullar-
iðnaði, vegna misvægis gengis-
þróunar og hækkaðra kostnaðar-
liða innanlands. Sveitarfélög,
fyrirtæki og einstaklingar í Húna-
þingi vinna nú að undirbúningi
stofnunar nýs félags sem taki yfir
rekstur Pólarprjóns hf. Vonast er
til að starfsemi hins nýja félags
hefjist fljótlega og að síarfsmenn
Pólarprjóns hf. fái starf hjá hinu
nýja félagi. fli
Þolli í klakaböndum.
Mynd: TLV.
Söluskatt-
urinn
samþykktur
Alþingi hefur nú samþykkt hin
nýju söluskattslög ríkisstjórn-
arinnar. Jón Baldvin Hanni-
balsson fjármálaráðherra
fylgdi lögunum úr hlaði í bæði
efri og neðri deild við lítinn
fögnuð stjórnarandstöðunnar,
eins og við mátti búast.
Ráðherrann kvað söluskattinn
ekki hækka útgjöld meðalfjöl-
skyldu í landinu vegna þeirra
hliðarráðstafanna m.a. hækkun
niðurgreiðslna og barnabóta,
sem ríkisstjórnin hefur
samþykkt.
Svavar Gestsson mótmælti
þessum rökum Jón Baldvins og
kvað hann verðlagsforsendur þær
sem ríkisstjórnin gengi út frá
engan veginn geta staðist. Sagði
hann að þessi lög væru heiftarleg
aðför að launafólki í landinu.
Notaði Svavar tækifærið til að
ráðast á Framsóknarflokkinn og
sakaði hann um að vera svíkja
stefnu sína í landbúnaðarmálum.
Jón Helgason landbúnaðarráð-
herra vísaði þessu á bug og sagði
að samkomulag væri á milli
stjórnarflokkanna um þessar
aðgerðir og væru þær í fullu sam-
ræmi við vilja Framsóknarflokks-
ins. AP
K. Jónsson & Co.:
„Mjög mikil spenna í fólki“
- segir Sævar Frímannsson og kveðst óttast átök
„Við höfum staöiö í samninga-
viðræðum við K. Jónsson um
Ieiöréttingu á premíu, en um
það hefur ekki náðst neitt sam-
komuiag,“ sagði Sævar Frí-
mannsson formaður Einingar í
samtali við Dag, en hjá niður-
suðuverksmiðjunni ríkir nú
óvissuástand í kjaramálum.
„Við tókum þá ákvörðun í
samráði við starfsfólkið að
segja premíusamningnum upp
frá og með áramótum og tekur
það gildi um næstu mánaða-
mót.“
Sævar sagði að þetta þýddi, að
þá væri fólkið samningsíaust og
hefði heimild til að fara út í
aðgerðir ef með þyrfti. „Við höf-
um verið á fundum með starfs-
fólkinu og það er mjög mikil
spenna á vinnustaðnum. Fólk er
ákaflega óánægt með sín launa-
kjör eins og hjá fiskvinnslufyrir-
tækjum sem orðið hafa á eftir.
Mér heyrist vera mikill vilji hjá
starfsfólki að gera eitthvað rót-
tækt til að knýja fram samninga.
Ef samningar nást ekki fyrir 1.
febrúar, óttast ég að átök séu
framundan.“
Ekki hefur verið boðað til nýs
samningafundar. Tilboð barst frá
K. Jónssyni rétt fyrir áramót, en
því var alfarið hafnað. Sævar
sagði að eftir að það tilboð hefði
verið skoðað, hefðu þeir komist
að þeirri niðurstöðu að útilokað
væri að það væri umræðugrund-
völlur til frekari samningagerðar.
VG
Margir áttu í basli með að koma bílum sínum í gang á Akureyri í gær enda frost um 20 gráður. Viðar Gunnarsson
var einn þeirra en hér brá hann á það ráð að fá léðan straum úr næsta bíl til að koma ökutæki sínu í gang. Mynd: tlv.
Gaddurinn:
Bílar neita að
fara í gang
Þeir hiksta, kvcinka sér og
reyna af öllum mætti að belgja
sig út af lífsvökvanum. Smám
saman verða tilraunir þeirra
ámátlegri uns þeir gefast upp
og þegja. Þessi lýsing gæti átt
við marga bíla á Akureyri í
gærmorgun, þeir neituðu að
fara í gang og víða mátti sjá
fólk á þönum, veifandi start-
köplum.
Ekki er okkur kunnugt um
meiriháttar vandræði af völdum
kuldabola en margir lentu þó í
nokkrum erfiðleikum. Frostið fer
eflaust frekar illa með sumar bíl-
vélar og jafnvel fleiri hluti, s.s.
viðkvæm hljómflutningstæki sem
gjarnan má sjá í héluðum bifreið-
unum.
Hjá Vatnsveitu Akureyrar
fengust þær upplýsingar að frost-
ið hefði ekki haft áhrif á dreifi-
kerfi veitunnar, enda er það
djúpt grafið í jörðu. Hins vegar
er hætt við því að vatn frjósi í
leiðslum gamalla húsa sem eru
illa einangruð þegar slíkur
fimbulvetur ræður ríkjum.
Helst eru það lifandi verur sem
frostið bitnar á og við hvetjum
fólk til að klæða sig vel, hlynna
að dýrum sínum og huga að
soltnum smáfuglum. SS