Dagur - 14.01.1988, Blaðsíða 3
14. janúar 1988 - DAGUR - 3
Ný fjárlög:
Hríseyingar
fengu 3
milljónir
króna
- í stofnstyrk vegna smíði
nýrrar ferju
Á nýafgreiddum fjárlögum
fengu Hríseyingar 3 milljónir í
stofnstyrk vegna smíði nýrrar
Hríseyjarferju. Sótt var um
fjárveitingu á lánsfjárlögum en
þar sem ekki fékkst fjárveiting
þar, var sótt um fé á fjárlög-
um. Fyrir þessa upphæð verð-
ur byrjað að hanna ferjuna í
endanlegri mynd en sem kunn-
ugt er hafa frumdrög hennar
verið gerð í Slippstöðinni á
Akureyri.
Að sögn Guðjóns Björnsson-
ar, sveitarstjóra Hríseyjarhrepps
þarf sem fyrst að fá svar frá ríkis-
valdinu hvort krafist verður
útboðs á smíðinni. Pví er ekki
hægt að segja enn til um hvort
teikningar verða unnar í Slipp-
stöðinni eða ekki en Guðjón
sagði að frekast verði leitað eftir
að fá endanlegar teikningar að
ferjunni unnar innan Eyjafjarð-
arsvæðisins.
Talið er að ný ferja kosti 50-70
milljónir króna. Guðjón sagði að
þau frumdrög sem búið er að
gera séu að flestu leyti góð þó að
trúlega verði einhverju breytt á
endanlegum teikningum.
Guðjón taldi að ef afgreiðsla
hefði fengist á þessu máli á láns-
fjárlögum hefði verið hægt að
fara langt með smíði ferjunnar á
þessu ári.
„Ástæðan fyrir að málið er
afgreitt með þessu móti er sú að
nýbyrjað er að sækja um fé í
þetta verkefni. Það eru ekki upp-
fylltar óskir allra í einu þannig að
menn geta þurft að bíða einhvern
tíma eftir að fjárveiting fáist,“
sagði Guöjón Björnsson. JÓH
Leiðrétting:
Sparisjóð-
um víxlað
I frétt af breytingu innlána og
útlána hjá bönkum og spari-
sjóðum á Akureyri í mánu-
dagsblaði Dags, urðu þau leiðu
mistök að tölum fyrir Spari-
sjóð Akureyrar og Arnarnes-
hrepps var víxlað við tölur fyrir
Sparisjóð Glæsibæjarhrepps.
Sparisjóður Glæsibæjarhrepps
var á síðasta ári með innlán að
upphæð 121,7 milljónir og jukust
þau um 48,7% frá árinu 1986.
Útlánin voru 93 milljónir og juk-
ust um 48%.
Réttar tölur fyrir Sparisjóð
Akureyrar og Arnarneshrepps
eru hins vegar þær að innlán voru
81,5 miiljónir og jukust um 33%
en útlán voru 73,8 milljónir og
jukust um 30,6%. Beðist er vel-
virðingar á þessum mistökum
blaðamanns. ET
Filmuvinnsla
Filmuvinnsla
Filmuvinnsla
Fllmuvinnsla
Filmuvinnsla
Filmuvinnsla
Fllmuvinnsla
Filmuvinnsla
Filmuvinnsla
Filmuvinnsla
Filmuvinnsla
Filmuvinnsla
Filmuvlnnsla
Filmuvinnsla
Filmuvinnsla
Filmuvinnsla
Filmuvinnsla
Filmuvinnsla
Filmuvinnsla
Filmuvinnsla
Nýjung
Sendum viðskiptavinum okkar bestu nýárskveðjur
og þökkum fyrir frábœrar móttökur.
Vegna undirtekta ykkar höfum við ákveðið að lengja opnunartíma
verslunarinnar á eftiifarandi hátt frá og með 14. janúar 1988.
Virka daga
Verslunin opin inn frá kl. 9.00-19.00.
Lúga frá kl. 19.00-23.30.
Kjötborð opið frá kl. 9.00-18.30.
Laugardaga
Verslunin opin inn frá kl. 10.00-16.00.
Lúga frá kl. 16.00-23.30.
Kjötborð opið frá kl. 10.00-16.00.
Sunnudaga
Verslunin opin inn frá kl. 10.00-16.00.
Lúga frá kl. 16.00-23.30.
Kjötborð lokað.
Heimsendingarþjónusta jyrir aldraða.
Pantanir í síma 21234 kl. 10.00-12.00.
Heimkeyrsla kl. 17.30-18.30.
Ath. nýr fiskur flesta daga.
Dagspient
Strandgötu 31 • ® 24222
Kaupangi.
Bestu foeðjur
MATVÖRU
MARKABURINN