Dagur - 14.01.1988, Blaðsíða 15

Dagur - 14.01.1988, Blaðsíða 15
14. janúar 1988 - DAGUR - 15 fþróftir Heimsbikarkeppnin í handknattleik: Stórkostlegur sigur - ísland - Júgóslavía 23:20 Sigur yfir heiinsmeisturunum! Nú þarf maður ekki að skammast sín fyrir þjóðernið því íslenska landsliðið fór í gang í gær og sigraði heims- meistara Júgóslavíu með 23 mörkum gegn 20 í heimsbikar- keppninni í handknattleik. Leikurinn fór fram í Örrebro í Svíþjóð og hann var í járnum allt þar til 13 mínútur voru til leiksloka. Þá náðu Islendingar 5 marka forskoti og sem betur fer héldu þeir haus. Leikurinn byrjaði kröftuglega, sérstaklega hjá Júgóslövum sem skoruðu 3 fyrstu mörkin. Páll Ólafsson skoraði fyrsta mark íslendinga á 7. mín. og síðan tókst liðinu að jafna. Hálfleikurinn var hnífjafn, Júgóslavar komust að vísu í 8:6 en í hálfleik var staðan 10:10. íslenska liðið átti í nokkrum erfiðleikum í fyrri hálfleik. T.d. skoraði það aðeins 2 mörk með langskotum, Alfreð virtist miður sín þar til hann skoraði sitt fyrsta mark, 9. mark íslendinga, úr hraðaupphlaupi. Einar Þorvarð- arson varði hins vegar vel, t.a.m. eitt vítakast. í seinni hálfleik sprakk hin kraftmikla sprengja sem íslenska landsliðið er á góðum degi. Kristján byrjaði reyndar á því að klúðra vítakasti og Júgóslavar náðu tveggja marka forskoti 13:11, 14:12 og 15:13. En þá fóru stórskytturnar Alfreð Gíslason og Sigurður Gunnarsson í gang. Staðan var jöfn 16:16 og gífurleg barátta færði íslendingum 5 mörk í röð, 21:16 og 7 mínútur eftir. Isakovic og Vujovic breyttu stöð- unni í 21:19 og menn orðnir veiklaðir. Lokamínúturnar voru æsispennandi en íslenska liðir.u tókst að vinna verðskuldaðan sigur, 23:20. Alfreð Gíslason átti stórleik í seinni hálfleik. skoraði 5 mörk. þar af 4 með þrumufleygum frá punktalínu. Sigurður Gunnars- son spilaði seinni hálfleikinn og skoraði 4 glæsileg mörk. Peir lögðu grunninn að íslenskum sigri, ásamt Einari Þorvarðarsyni sem varði á mikilvægum augna- blikum, auk þess sem vörnin var sterk. Hins vegar bar lítið á horna- mönnunum og furðulegt hvað Karl Þráinsson fékk mörg tæki- færi hjá Bogdani í seinni hálf- leiknum áður en honum var kippt út af og Valdimar Grímsson kom aftur inn á og skoraði með það sama. Þá var Karl búinn að klúðra þremur upplögöum fær- um, láta dæma á sig ruðning og hlcypa Isakovie fram hjá sér Alfreð Gíslason sýndi Júgóslövum klærnar í seinni hálfleik. а. m.k. í tvígang. íslenska liðið skoraði 9 mörk utan af velli, 6 úr hraðaupphlaup- um, 3 með gegnumbrotum, 3 aí línu, 1 úrhorni og 1 úrvíti. Þessir skoruðu mörkin: Alfreð Gíslason б, Sigurður Gunnarsson 4(1), Þorgils Óttar Mathiesen 4, Kristján Arason 3, Páll Ólafsson 3. Valdimar Grímsson 1, Guö- mundur Guðmundsson 1 og Karl Þráinsson 1. Flest mörk Júgó- slava skoruðu þeir Isakovic 7 og Vujovic 5. SS Einar Karlsson og Jóliann Sigurðsson í baráttu við Haukamenn í fyrri leik liðanna. Ún/alsdeildin í körfubolta: Webster og fé- lagar norður - Þór og Haukar leika annað kvöld Knattspyma: íslandsmótið innanhúss Körfubolti 1. deild: Taplausu liðin mætast Það verður sannkallaður toppslagur í íþróttahúsinu á Egilsstöðum á laugardag er tvö efstu liðin í 1. deildinni í körfuknattleik, UÍA og Tindastóll mætast kl. 14. Þessi lið hafa haft nokkra yfirburði í deildinni í vetur og koma til með að slást um úrvalsdeildarsætið að ári. Tindastóll hefur leikið 8 leiki og er með 16 stig en UÍA hefur leikið 7 leiki og er með 14 stig. Stúdentar eru í þriðja sæti með 6 stig að loknum 5 leikjum. Handbolti yngri flokka: Fyrsta umferð af þremur Um helgina verður leikin fyrsta umferðin af þremur í Norðurlandsriðli á íslands- móti yngri flokka í hand- bolta. Allir leikirnir fara fram í íþróttahöllinni og leika piltarnir á laugardag en stúlkurnar á sunnudag. Liðin í Norðurlandsriðli eru KA, Þór, Völsungur og Höttur frá Egilsstöðum. Leikjaniðurrööunin er þessi: Laugardagur: Kl. 9.00 KA-Þór 5. fl. Kl. 9.40 KA-Þór 4. fl. Kl. 10.30 KA-Þór 3. fl. Kl. 11.25 Þór-Höttur 4. fl. Kl. 12.15 KA-Völsungur 5. fl. Kl. 12.55 KA-Völsungur 4. fl. Kl. 13.45 KA-Völsungur 3. fl. Kl. 14.40Höttur-Völsungur4. fl. Kl. 15.30 Þór-Völsungur 5. fl. Kl. 16.05 Þór-Völsungur 4. fl. Kl. 17.00 KA-Höttur 4. fl. Kl. 17.50 Þör-Völsungur 3. fl. Sunnudagur: Kl. 9.00 KA-Þór 4. íl. Kl. 9.35 KA-Þór 3. fl. Kl. 10.30 Þór-Völsungur 4. fl. Kl. 11.05 Þór-Völsungur 3. fl. Kl. 12.00 KA-Völsungur 4. fl. Kl. 12.35 KA-Völsungur 3. fl. Keppni í úrvalsdeildinni í körfubolta hefst á ný annað kvöld en þá fara fram tveir leikir. í íþróttahöllinni á Bikarkeppni BLÍ: Þrír leikir á Akureyri Þrír leikir fara fram hér á Akureyri á laugardag í bikar- keppni Blaksambands íslands. Fyrsti leikurinn er viðureign Eikar og Völsungs í kvenna- flokki og hefst hann kl. 13. Strax á eftir, eða kl. 14.15 leika B lið Skauta og KA og kl. 15.30 A lið Skauta og Óðinn í karla- flokki. Kvennalið KA situr yfir í 1. umferð en liðið sem sigrar í leik Eikar og Völsungs, leikur gegn KA í 2. umferð. Sigurliðin úr karlaleikjunum mætast síðan í 2. umferð sem leikin verður 6. febrúar. Akureyri leika Þór og Haukar og í Digranesi í Kópavogi mæt- ast UBK og Valur. Báðir leikirnir hefjast kl. 20.00. Þórsarar hafa aðeins unnið einn leik í deildinni til þessa og liðið situr í næstneðsta sætinu með 2 stig eins og UBK sem er í neðsta sæti. Haukarnir hafa leik- ið misjafnlega í vetur og liðið m.a. tapað bæði fyrir UMFG og UBK. Haukar hafa hlotið 8 stig í 8 leikjum og koma ekki til með að blanda sér í toppbaráttu að þessu sinni. Þórsarar töpuðu illa fyrir ÍR í bikarnum um síðustu helgi, á sama tíma og Haukarnir unnu Tindastól í sömu keppni á Króknum. Haukar endurheimtu ívar Webster fyrir keppnistímabilið en hann þjálfaði og lék með Þór eitt tímabil. Webster er mjög sterkur leikmaður og gæti reynst Þórsurum erfiður. Þórsarar léku án Konráðs Óskarssonar gegn ÍR um helgina, hann hefur átt við meiðsli að stríða en verður að öll- um líkindum með annað kvöld. Keppni á íslandsmótinu í innanhússknattspyrnu hefst um helgina í Laugardalshöll- inni en þá veröur leikið í 2. og 3. deild. Mótinu lýkur síöan um aðra helgi, með keppni í 1. og 4. deild og kvennadeild. Alls hefur 71 lið skráð sig til þátt- töku í karlaflokki og hefur fjöldinn aldrei verið meiri, en í kvennaflokki fækkar liðum frá því í fyrra. Aðeins eitt lið að norðan leikur í 2. deild, Þór frá Akureyri. Þórs- arar féllu í 2. deild fyrir ári en ætla sér örugglega að endur- heimta sæti sitt í 1. deild á ný. Liðið leikur í B-riðli ásamt Ármanni, Reyni Sandgerði og UMFG. í A-riðli leika FH, ÍBK, Einherji og Víkverji. í C-riðli leika Haukar, Breiðablik, Leikn- ir og Höttur og í D-riðli leika ÍK, Þróttur N, Skallagrímur og UMFN. í 3. deild leika fjögur lið að norðan, Völsungur, UMFS, Getraunir: Sprengivika Nú á laugardaginn munu margir sitja spenntir fyrir framan sjónvarpsskjáinn við að fylgjast með úrslitum í ensku knattspyrnunni. Ástæð- an er sú að þessa vikuna er svokallaður sprengipottur í veði. Áætlað er að rúmar 3 milljónir verði til skiptanna þessa vikuna. Sprengipottur virkar þannig að 2% hafa verið tekin af sölu hverr- ar viku og nú fer sú fjárhæð öll í pottinn á laugardaginn. Þar að auki gekk fyrsti vinningur ekki út síðasta laugardag og leggst því við sprengipottinn. Að sögn Hákonar Gunnarssonar fram- kvæmdastjóra íslenskra getrauna er salan að taka vel við sér eftir jólafríið og á laugardaginn gerir hann ráð fyrir að rúmar 3 millj- ónir verði í pottinum. AP Reynir Á og Vorboðinn. Völs- ungar leika í A-riðli ásamt Val Reyðarfirði, ÍBÍ og Hveragerði. UMFS leikur í B-riðli ásamt Austra, Bolungarvík og Grund- arfirði. Reynir Á leikur í C-riðli ásamt Stjörnunni, Leikni Fá- skrúðsfirði og Létti og Vorboð- inn leikur í D-riðli ásamt Neista Djúpavogi, Skotfélagi Reykja- víkur og Augnabliki úr Kópa- vogi. Efstu liðin í hverjum riðli í 2. og 3. deild færast upp um deild en neðstu liðin falla um deild. Handbolti: Deilda- keppni 2. flokks Fyrsta umferð í deildakeppni 2. flokks á íslandsmótinu í handknattleik verður leikin um helgina. Önnur deild verð- ur leikin á Akureyri á föstu- dag og laugardag og liðin sem keppa, eru UBK, Valur, KA, Stjarnan, FH og Haukar. Leikið verður í Höllinni á föstudag en í Skemmunni á laug- ardag. Oll liðin leika innbyrðis og er niðurröðunin þessi: Föstudag í Höllinni: Kl. 15.30 KA-Haukar Kl. 16.30 Valur-FH Kl. 17.30 KA-Stjarnan Kl. 18.30 UBK-Haukar Kl. 22.00 FH-UBK Laugardag í Skemmunni: Kl. 10.00 UBK-Valur kl. 11.00 Haukar-Stjarnan Kl. 12.00 FH-KA Kl. 13.00 KA-UBK Kl. 14.00 Stjaman-FH Kl. 15.00 Valur-Haukar Kl. 16.00 UBK-Stjarnan Kl. 17.00 Valur-KA Kl. 18.00 Haukar-FH Kl. 19.00 Stjarnan-Valur

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.