Dagur - 14.01.1988, Blaðsíða 16
Hafið þið reynt
okkar þjónustu? cpediGmyndir
Hafnarstræti 98 - Akureyri Sími 96-23520.
Grýtubakkahreppur:
Samið um
skuldir
ríkisins við
hreppinn
„Það liggur fyrir heimild til að
semja um þessa skuld en við
erum ekki búin að semja um
hana. Eg hef ekki framreikn-
aða tölu en þetta eru 13 til 14
milljónir króna,“ sagði Guðný
Sverrisdóttir, sveitarstjóri
Grýtubakkahrepps, en ríkis-
sjóður skuldar hreppnum fé
frá fyrri árum.
Að sögn Guðnýjar eru skuld-
irnar þannig til komnar að Grýtu-
bakkahreppur átti upprunalega
aðiid að Stórutjarnaskóla. Þegar
kennsla 7., 8. og 9. bekkjar var
tekin upp á Grenivík, og kennsla
þessara árganga hafin á neðri
haáð skóiahússins, sem var áður í
eigu Grýtubakkahrepps, var ljóst
að hreppurinn átti rétt á endur-
greiðslu frá ríkinu.
„Það verður vonandi gengið
frá þessu á næstu vikum. Við gæl-
um við þá hugmynd að fá þetta fé
endurgreitt á næstu 2-3 árum,
það væri mjög æskilegt, og ég trúi
ekki öðru en að það gangi,“ sagði
Guðný. EHB
Ráðstöfun afla hjá ÚA:
Svipuð framleiðsla á freðfiski
en samdráttur í saltfiskvinnslu
- Minna til annarra aðila en 1986
í yfirliti yfír rádstöfun á afla
togara Útgerdarfélags Akur-
eyringa kemur fram að af um
18.250 tonna afla togaranna
sex, voru 17.560 tonn sett í
Bakara-
dagar á
Akureyri
vinnslu hjá fyrirtækinu sjálfu
316 tonn voru látin öðrum físk-
verkendum á svæðinu í té og
tæplega 380 tonn voru unnin
um borð í Sléttbak. Útgerðar-
félag Akureyringa keypti á síð-
asta ári tæplega 58 tonn á Fisk-
markaði Norðurlands hf.
Minna fór af afla ÚA til ann-
arra aðila á síðasta ári en árinu
1986 þegar þannig var ráðstafað
tæplega 600 tonnum. Um er að
ræða aðila í Ólafsfirði, á Greni-
vík og víðar.
Af freðfiski voru á síðasta ári
framleidd 6.424 tonn hjá ÚA en
það er einu tonni minna en á
árinu 1986. Að öðru leyti skiptist
framleiðsla ÚA þannig að fram-
leidd voru 20 tonn af skreið, mest
fyrir Ítalíumarkað, 683 tonn af
saltfiski og verkuð 205 tonn af
hausum. Aukning varð í fram-
leiðslu skreiðar og hausa en tals-
verður samdráttur í saltfiskverk-
un því á árinu 1986 voru fram-
leidd af honum 923 tonn.
Loks kemur vinnsla um borð í
frystitogaranum Sléttbak. Fryst
voru 180 tonn í flökum og í heil-
frystingu.
Stærstur hluti af afurðum Slétt-
baks var óseldur í árslok en að
öðru leyti voru litlar birgðir áætl-
aðar hjá fyrirtækinu í árslok. ET
Dagana 21.-23. janúar
verða svokallaðir bakara-
dagar á Akureyri. Þá verður
haldinn á Hótel KEA aðal-
fundur Landssambands
bakarameistara og samfara
honum ve'rður sýning í
Skemmunni á Akureyri.
Sýningin, sem er sérhæfð
fagsýning verður formlega
opnuð kiukkan 16.00 þann 21.
janúar, en á laugardagnn
verður hún opin almenningi.
Þarna verða sýndar vélar, tæki
og hráefni til köku- og brauð-
gerðar, en lítið verður um sýn-
ingu afurða. 12 aðilar munu
standa að þessari sýningu og
komust ekki allir að sem vildu.
Reiknað er með góðri þátt-
töku á bakaradögum en fjöldi
manns mun koma til Akureyr-
ar víðs vegar að. VG
Símaklefinn í göngugötunni á Akureyri:
Skemmdir fyrir
tugi þúsunda á ári
Símaklcfínn í göngugötunni
hefur orðið óþyrmilega fyrir
barðinu á skemmdarvörgum
sem ekkert virðast hafa annað
gagnlegra að gera en sýna
kraftana á saklausum símaklef-
um. Frá því klefínn var settur
upp hefur margoft þurft að
gera við hann og símtækið
sjálft en einn veturinn var
brugðið á það ráð að fjarlægja
tækið alveg um tíma. Þessu
hefur fylgt mikill kostnaður og
óþægindi en vonandi er að
fólk fari að láta af ósómanum.
Á dögunum var sett upp nýtt
símtæki í klefanum, svokallaður
takkasími sem vonast er til að lát-
inn verði í friði. Kostnaður vegna
viðgerða á símaklefanum var 60
þúsund krónur á síðasta ári og
árið 198ö var viðgerðarkostnað-
urinn svipaður. Algengast er að
heyrnartólið sé fjarlægt og oft fer
skífan á tækinu svipaða leið.
Notkun á þessum síma er mikil
og á síðasta ári voru tekjur af
símanum rúmar 200 þúsund
krónur sem telst vera nokkuð
mikið miðað við tæki af þessu
tagi. „Við gefumst ekki upp,“
sagði starfsmaður á símstöð Pósts
og síma á Akureyri í samtali við
Dag á dögunum þegar nýja sím-
tækið var sett upp. JÓH
ÚKE Grímsey:
Uppbygging
og uppstokkun
saltfiskvinnslu
Nú stendur yfír tæknilegur
undirbúningur vegna uppbygg-
ingar og endurskipulagningar
saltfískvinnslu Kaupfélags Ey-
fírðinga í Grímsey en hluti af
fískverkunarhúsi fyrirtækisins
brann í byrjun nóvember.
Ekki hefur verið ákveðið
hvenær uppbygging hefst en
Valur Arnþórsson kaupfélags-
stjóri segist vona að það verði í
sumar.
Þegar tæknileg framtíðar-
skipulagning vinnslunnar hefur
verið ákveðin verður ákveðið
hversu rnikið af eldra húsnæði
verður rifið og þá hve mikið
verður byggt. Næsta skref þar á
eftir mun þá vera hönnun nýs
húsnæðis.
Að sögn Vals er stefnt að því
að saltfiskvinnsla KEA í Gríms-
ey verði ekki minni en fyrir brun-
ann og er ætlunin að stokka
starfsemina verulega upp og hag-
ræða rekstrinum.
Gera má ráð fyrir að byggt
verði 3-400 fermetra húsnæði og
að byggingarkostnaður þess verði
á bilinu 10-12 milljónir króna.
Þar ofan á bætist svo kostnaður
við vélvæðingu vinnslunnar. ET
Ólafur bekkur ÓF 2:
- í fyrstu veiðiferð ársins
Börkur Birgisson og Hermann S. Jónsson unnu við að setja upp nýtt símtæki
í klcfanum í göngugötunni á dögunum. Mynd: tlv
Ólafur bekkur, togari Útgerð-
arfélags Ólafsfjarðar, bilaði í
fyrstu veiðiferð sinni á nýju
ári. Togarinn kom inn til
Ólafsfjarðar sl. mánudags-
kvöld með bilaðan spilmótor
og kom í Ijós að skipta þurfti
um mótor. Fenginn var mótor
frá Reykjavík en vegna ófærð-
ar beið flutningabíll með hann
á Dalvík í gær.
Ólafur bekkur kom frá Pól-
landi í október sl. en þar voru
framkvæmdar miklar breytingar
á skipinu á síðasta ári. Spilmótor-
inn sem nú hrundi var gerður
upp í Póllandi og átti því að vera
í góðu standi. Þorsteinn sagði að
mótorinn yrði skoðaður og fund-
in ástæða bilunarinnar. Ekki væri
því enn hægt að segja til um
hvort skipasmíðastöðin í Pól-
landi, þar sem breytingar á skip-
inu voru gerðar, væri bótaskyld
fyrir biluninni.
„Skipið hefur komið ágætlega
út frá því breytingarnar voru
gerðar. Að vísu hafa komið í ljós
smávægilegir barnasjúkdómar en
verra hefur þó verið hve lítið hef-
ur fiskast síðan skipið komst til
veiða á ný,“ sagði Þorsteinn
Ásgeirsson í samtali við Dag.
Vonast er til að viðgerö á skip-
inu ljúki um helgina. JÓH
„Barnasjúkdómar“ hrjá Olaf bekk.
Nýuppgerður spilmótor hmndi