Dagur - 14.01.1988, Blaðsíða 11

Dagur - 14.01.1988, Blaðsíða 11
14. janúar 1988 - DAGUR - 11 \ r Oflug útgáfustarfsemi hja útflutningsráði íslands Eftir því sem útflutningur verður flóknari og markaðirnir torsóttari, vex þörfin fyrir upp- lýsingar. Stöðugt verður erfið- ara fyrir stjórnendur fyrirtækja að vinsa frá þær upplýsingar sem skipta máli. Eitt af aðal- verkefnum Útflutningsráðs íslands er upplýsingamiðlun til útflytjenda varðandi þróun, horfur og tækifæri í markaðs- málum. í því skyni hefur Útflutningsráð gefið út sex skýrslur. Fyrst ber að nefna skýrslu um matvælamarkaðinn í Svíþjóð. I skýrslu þessari er aðallega fjallað um möguleika íslenskra fiskaf- urða á Svíþjóðamarkaði. Þar er m.a. gerð grein fyrir sænska neyt- endamarkaðinum, fiskmarkaðin- um í Svíþjóð og sænska mark- aðinum fyrir fisk og fiskafurðir. Önnur skýrsla fjallar um mark- aðsþróun tilbúinna sjávarrétta í Svíþjóð, Bretlandi og Vestur- Þýskalandi. Þar er m.a. rakin almenn þróun tilbúinna sjávar- rétta í heiminum og fjallað er um helstu markaðssvæðin svo og um markaðssetningu á tilbúnum sjávarréttum. Þriðja skýrslan af þessu tagi var unnin fyrir Markaðsnefnd landbúnaðarins. Bandarískt RAÐCJÖF OG R4ÐNING4R Viltu vinnu í bóka- og ritfangaverslun? Vinnutími kl. 13-18. Æskilegur aldur 30 til 40 ár. Nánari upplýsingar á skrifstofunni að Brekkugötu 1. Sími 27577. Opið kl. 13 til 17. Stefanía Arnórsdóttir - Valgerður Magnúsdóttir Hross í óskilum! Hjá forstöðumanni jarðeigna og dýraeftirlits á Akureyri eru í óskilum 4 hross, sem voru í Hlíðarfjalli. Rauð hryssa með grátt veturgamalt trippi, grár ca. vetur- gamall foli og brúnn foli ca. 3ja vetra. Hrossanna má vitja strax hjá Svanberg Þórðarsyni í síma 25602 á daginn og á kvöldin í síma 22443. markaðsathugunarfyrirtæki var fengið til að framkvæma mark- aðsathugun á möguleikum ís- lensks lambakjöts á bandaríska markaðinum og hafði Útflutn- ingsráð íslands yfirumsjón með framkvæmdinni. Fjórða skýrslan fjallar um Grænland og skiptist hún í tvo Norræna kvennaþingið í Úsló: Ferðasjóður stofnaður Um áramótin síðastliðin var stofnaður ferðasjóður til að styrkja íslenskar konur til þátt- töku í Norræna kvennaþinginu í Ósló 1988. Félagsmálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, sem hefur sýnt málinu mikinn áhuga lagði fram 200.000 kr., til að styrkja sérstak- lega þær konur sem ekki fá til þess stuðning annars staðar frá og venjulega eiga þess ekki kost að sækja erlendar ráðstefnur og fundi. Félagsmálaráðherra vill á þennan hátt hvetja konur til virkrar þátttöku á þinginu. Norræna kvennaþingið sem haldið er að frumkvæði ráðherra- nefndar Norðurlandaráðs verður haldið dagana 30. júlí til 7. ágúst nú í sumar og er opið öllum, en haldið af konum fyrir konur. Gert er ráð fyrir að þingið sæki 7-8 þúsund konur en þar verður margháttuð dagskrá í umsjón kvennanna sjálfra. Búast má við málstofum, fyrirlestrum, vinnu- básum, sýningum, leikhúsi, söng - og hljóðfæraslætti, bíósýning- um, videósýningum, dansi o.s.frv. Undirbúningur hér á íslandi hefur nú staðið yfir í u.þ.b. ár en verulegt starf hófst nú í haust. Starfshópar eru í gangi og eru um 90 konur virkar í starfinu. Vinsældalisti Hljóðbylgjunnar -vikuna 8/1-15/1 1988 Sæti Áður Vikur Lag Flytjandi 1. (1) 6 Tears on the ballroom floor . Cry/no/more 2. (2) 4 Aldrei fór ég suður Bubbi Mortens 3. (13) 3 China in your hand T’pau 4. (N) 1 Always on my mind Pet Shop Boys 5. (3) 5 Little lies 6. (N) 1 Rauðurbíll Geiri Sæm 7. (N) 1 Wonderful life Black 8. (4) 6 Járnkarlinn Bjartmar Guðlaugs og Eiríkur F 9. (5) 4 Cant take my eyes of you ... Kim Ross 10. (8) 7 I can’t stand (loosing you) .. Fate 11. (9) 2 Come back and stay Bad boys blue 12. (12) 2 Ástar-bréf (Merkt-x) Model 13. (N) 1 Need you tonight Inxs 14. (N) 1 Manstu Bubbi Mortens 15. (7) 7 Rent Pet Shop Boys 16. (16) 5 Soemotional Withney Houston 17. (25) 2 Everlasting love Sandra 18. (18) 9 Pump up the volume M/A/R/R/S 19. (6) 3 Jóla-stund Stuðkompaníið 20. (11) 5 Týnda kynslóðin Bjartmar Guðlaugsson 21. (15) 8 Loner Gary Moore 22. (19) 4 Just like heaven Cure 23. (24) 2 Púla Greifarnir 24. (N) 1 Horfðu á björtu hliðarnar Sverrir Stormsker 25. (20) 8 Mony mony Billy Idol Vinsældalisti Hljóðbylgjunnar er valinn á föstudagskvöldum, milli kl. 20 og 22, í símum 27710 og 27711. Listinn er spilaður á laugardagskvöldum milli kl. 20 og 23. Auk þess sem ný lög eru kynnt. Vertu meö. hluta. Annars vegar er fjallað um þróun og horfur á Grænlandi og hins vegar eru teknar saman al- mennar upplýsingar um skipulag opinberrar stjórnsýslu á Græn- landi, bygginga- og mannvirkja- gerð, tæknilega starfsemi og atvinnuvegi. Fimmta skýrslan fjallar um út- flutning á vörum til fiskveiða og fiskiðnaðar. Þar er að finna tölu- legt yfirlit útflutningsins, skýring- ar á sveiflum innan stuðnings- greinanna, fjallað er um útflutn- ing og útflutningsaðgerðir og einnig birt niðurstaða könnunar meðal fyrirtækja í þessari at- vinnugrein. Sjötta skýrslan fjallar um markaðsmöguleika á austur- strönd Bandaríkjanna fyrir fram- leiðendur tæknivara fyrir sjávar- útveg. Það er von Útflutningsráðs að skýrslur þessar megi koma sem flestum að notum og þeir sem áhuga hafa geta fengið eintök hjá Útflutningsráði að Lágmúla 5, Reykjavík. Ræstingarstjóri Kristnesspítali óskar aö ráða ræstingarstjóra. Upplýsingar gefur ræstingarstjóri í síma 31100. Kristnesspítali. Rafvirkjar Viljum ráöa rafvirkja nú þegar. Helst vanan þvottavélaviðgeröum. Raforka, Glerárgötu 32, sími 23257. ATVINNA Getum enn bætt við nokkrum konum. Upplýsingar hjá verkstjórum á staðnum. Niðursuðuverksmiðja K. Jónsson & Co. hf. KONTRA skrifstofuhús Kontra skrifstofuhúsgögnín meö ótat réttar lausnir. Sýningarbás á staðnum. Einnig úrval af skrifstofustólum. Vöruhús KEA, \ Hrísalundi 5, kjallara.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.