Dagur - 28.01.1988, Side 3
28. janúar 1988 - DAGUR - 3
Jón Þorsteinsson hjá Skildi:
„Bónusinn á eftir að
útrýma stéttinni"
- Misjöfn laun í fiskvinnslu valda því
að erfitt er að fá fólk til starfa
„Ef haldið verður áfram með
bónusinn á hann eftir að
útrýma stéttinni. Það endist
enginn til lengdar í því stressi
sem honum fylgir. Ég er búinn
að missa 18 mjög vanar konur í
aðra vinnu, vegna vöðvabólgu
og annarra kvilla, á þeim 5-
árum sem ég hef verið hér í
húsinu,“ segir Jón Þorsteinsson
verkstjóri í hraðfrystihúsinu
Skildi á Sauðárkróki.
Jón kvað ekki glóru í því að
halda áfram með bónusinn og
það væri orðið mjög erfitt að fá
fólk í vinnu, vegna þess hvað fólk
hefur misjöfn laun í fiskvinnunni.
Sú sem er virkilega fljót getur
haft allt upp í 150 krónur ofan á
tímakaupið, en manneskjan við
hliðina á henni getur farið allt
niður í 30 króna bónus á tímann.
„Mér líst mjög vel á hluta-
skiptakerfið eins og það hefur
verið kynnt fyrir mér. Með því
held ég að allt stress sé úr sög-
unni og hlutirnir geti gengið vel
upp. Það er bara vonandi að hægt
verði að laga það að aðstæðum
sem víðast. Kerfið hefur ekki
verið kynnt fyrir fiskvinnslufólki
hér, en það verður sjálfsagt gert
og það er auðvitað fólksins að
ákveða hvað það vill gera,“ sagði
Jón. Hann vildi endilega tnót-
mæla ummælum Björns Þórhalls-
sonar formanns Landssambands
verslunarmanna sem hann við-
hafði í fréttum Sjónvarpsins.
Björn sagðist vera orðinn þreytt-
ur á þessu væli í fiskvinnslufólki.
Það hefði það miklu betra en það
vildi vera láta og það væri auðvit-
að það sem kæmi upp úr launa-
umslaginu sem skipti máli. Jón
sagði að auðvitað yrði að taka til-
lit til þeirrar miklu vinnu sem fisk-
vinnslufólk legði af mörkunt. Það
væri ósköp þreytandi að hefja
vinnu klukkan 6 á morgnana
viku eftir viku yfir sumartímann
og vinna allt til klukkan 10 á
kvöldin. Á meðan vinna verslun-
armenn frá 9 til 6. -þá
Húnvetningafélagið í Reykjavík 50 ára:
Stór afmælis-
hátíð 6.
Húnvetningafélagið í Reykja-
vík er 50 ára um þessar
mundir. Af því tilefni stendur
félagið fyrir afmælishátið í
Domus Medica, laugardaginn
6. febrúar.
Að sögn Aðalsteins Helgason-
ar formanns félagsins er von á um
fjörutíu manns norðan úr Húna-
vatnssýslum til að taka þátt í há-
tíðarhöldunum. í heild er búist
við að tæplega 300 manns sæki
skemmtunina.
Karlakór Bólstaðarhlíðar kem-
ur sérstaklega til Reykjavíkur til
að syngja á 50 ára afmælinu.
Meðal annarra skemmtiatriða má
febrúar
nefna að Jóhannes Kristjánsson
mun hafa uppi gamanmál, eins
og honum einurn er lagið. Að
lokum munu nokkrir félagar
Húnvetningafélagsins verða
heiðraðir.
Ef fólk hefur áhuga á því að
kaupa miða á 50 ára afntælisfagn-
aðinn, munu þeir verða til sölu á
skrifstofu félagsins miðvikudag-
inn 3. febrúar og föstudaginn 5.
febrúar, milli klukkan 17.00 og
20.00. Síminn á skrifstofunni er
31360.
Aðalsteinn sagðist vona að
sem flestir Húnvetningar sæju sér
fært um að mæta á þetta merkis-
afmæli. AP
Vörukynning
KEA Hrísalundi
Toba dye tauiitir
verða kynntir
í Kjörmarkaði KEA,
Hrísalundi,
í dag fimmtudag
frá kl. 3-7.
UMBOÐSMAÐUR.
Golfarar eru þegar byrjaðir að endurbyggja skála sinn og ætla að Ijúka verkinu á einum mánuði. Mynd: tlv
Endurbygging hafin í golfskála GA:
„Ljúkum verkinu á mánuði“
- segir framkvæmdastjóri GA
„Viö erum komnir á fullt í aö
endurbyggja skálann og áætl-
um að vera búnir að þessu
verki eftir mánuð. Það tók
okkur ekki nema um 7 vikur
að byggja húsið frá grunni í
fyrra þannig að endurbygging-
in ætti að hafast auðveldlega á
einum mánuði,“ sagði Arni
Sævar Jónsson, framkvæmda-
stjóri GA en hann var spurður
hvenær hafnar verði lagfæring-
ar á golfskála félagsins að Jaðri
sem brann um síðustu helgi.
Árni sagði að hreinsa þyrfti allt
út úr húsinu, bæði húsgögn og
teppi af gólfum. Klæðning í loftum
væri einnig ónýt. í eldinum eyði-
lagðist einnig tölvukerfi klúbbs-
ins og margir verðlaunagripir
sem í skálanunt voru hafa orðið
fyrir skemmdum. Árni sagðist þó
vonast til að hægt verði að gera
við þá.
Nokkuð hafði verið bókað af
minni skemmtunum í húsinu síð-
ar í vetur og sagðis Árni fyllilega
gera ráð fyrir að þær pantanir
stæðust enda ætti skálinn þá að
vera kominn í gagnið. JÓH
HH
iwisÉllllI
í$iííí$:-:-í:3p!
.v.w.v.v.
HERRADEILD
Cránufélagsgótu 4
Akureyri - Sími 23599