Dagur - 28.01.1988, Síða 11

Dagur - 28.01.1988, Síða 11
_ Minning: T Siguriaug Sölvadóttir Fædd 7. mars 1906 - Dáin 10. desember 1987 Þann 10. desember sl. andaðist á Dalbæ, heimili aldraðra á Dalvík, amma mín, Sigurlaug Sölvadóttir. Hún var fædd 7. mars 1906 í Kjartansstaðakoti í Skagafirði. Foreldrar hennar voru hjónin Sigurjón Sölvi Jóhannsson, landpóstur og Sigur- laug Björnsdóttir, húsfreyja. Af 16 börnum þeirra eru nú fjögur á lífi. Þann 9. apríl 1929 gengu amma mín og afi, Jón Sveinbjörn Vigfússon, vélstjóri, í hjónaband og settu saman bú að Sælandi á Dalvík. Það varð þeirra heimili meðan bæði voru á lífi, en afi andaðist 1. maí 1959. Og þar bjó amma áfram uns hún fluttist að Dalbæ, þegar heimilið var opnað árið 1979. Hún var fyrsti íbúi Dalbæjar. Ömmu og afa varð firnm barna auðið: Sverrir, f. 7. okt. 1929, d. 18. sept 1983. Ekkja hans er Friðgerður Oddmundsdóttir. Vigfús, f. 10. jan. 1931, d. 17. júlí 1981. Ekkja hans er Hrefna Haraldsdóttir. Jónína Hólmfríð- ur, f. 1932. Hún dó á fyrsta ári. Ásta Jónína, f. 27. nóv. 1934, ekkja Gunnars Þórs Jóhannsson- ar. Birna, f. 29. sept. 1942, gift Sigurði Kristmundssyni. Barna- börn þeirra eru 14 og barnabarna- börn 9. Það er margs að minnast og margt að þakka þegar ég kveð ömmu mína elskulegu. Ég minn- ist tíðra og notalegra stundanna í Sælandi. Amma í eldhúsinu að brenna kaffibaunir, ilmurinn fyll- ir öll vit, þar sent ég stend í búr- inu og rnala jafnóðum í gömlu kaffikvörninni á veggnum. Amma að berja harðfisk á langa steininum, sem einnig gegndi hlut- verki hests í leikjum inínum. Amma með hlýjar hendur, þegar kuldaboli hafði bitið í fingur og tær, síðan töframeðalið hennar: Rjúkandi kakó, kleinur og soðið brauð. Amma „yfir og allt um kring“ eins og segir í einu af rnörgu versunum sem hún kenndi mér. Þolinmæði hennar óþrjót- andi þegar einstakar línur úr Faðirvorinu vefjast fyrir mér. Hún útskýrir og kennir. Og við eldhúsborðið hjá henni læri ég að lesa og draga til stafs, áður en hin eiginlega skólaganga hefst. Bendiprikið hennar prjónn og bókin Gagn og gaman. Ófáar sögur og kvæði nemur barnseyr- að af vörum ömmu. Þetta er margt, margt fleira eru nú perlur í minninganna sjóði. Engin orð ná að tjá það þakk- læti sem ég vildi færa henni að leiðarlokum. Hún var amma mín. Friður Guðs fylgi henni. Vaigerður Gunnarsdóttir. Opna barna- og unglingamótið í skák á Dalvík: Mikil þátttaka og tvísýn keppni Taflfélag Dalvíkur efndi til opins barna- og unglingamóts í skák sl. laugardag. Mótið fór fram í Víkurröst og var þátt- taka framar öllum vonum. AIIs mættu 89 börn og unglingar til leiks, víðs vegar að úr Eyja- fírði, þar af 13 stúlkur. Keppt var í þremur aldursflokkum drengja og tveimur aldurs- flokkum stúlkna. Stúlkurnar kepptu reyndar allar innbyrðis í einum flokki. Úrslit í einstökum flokkum urðu þessi: Drengir fæddir 1972-’74: 1. Rúnar Sigurpálsson Ak. 7,0 v. af 7 mögulegum. Húsavíkurfjall: Loftnets- diskur fauk niður - Siglufjörður, Grímsey og Fljótin símasambandslaus Víða norðanlands var all- hvasst í gær. Á Húsavíkurfjalli fauk niður loftnetsdiskur Pósts og síma með þeim afleiðingum að símasambandslaust var við Siglufjörð, Grímsey og Fljót. Loftnetsdiskurinn, „paraból- an,“ skemmdist talsvert þannig að nauðsynlegt reyndist að fá nýjan. Diskurinn kom með flugi frá Reykjavík og var strax fluttur austur. Vegna veðurs uppi á fjall- inu var ekki útséð um hvenær viðgerð gæti farið fram. Sambandsleysið kemur verst niður á skipum úti fyrir Norður- landi en loftskeytastöðin á Siglu- firði er þeirra helsti samskipta- miðill. Stöðin var þó ekki alveg sambandslaus því hún var í loft- skeytasambandi við stöðvar á ísafirði og Neskaupstað. ET 2. Reimar Pétursson Ak. 6,0 v. 3. Ragnar Þorvarðarson Ak. 5,0 v. Drengir fæddir 1975-’77: 1. Örvar Arngrímsson Ak. 6,0 v. af 7 mögulegum. 2. Birkir Magnússon Ak. 5,5 v. 3. Þórleifur Karlsson Ak. 5,0 v. 4. Henry Júlíus Indriðason Svalbarðsstr. 5,0. v. 5. Sigurbjörn Hreiðarsson Dalvík 5,0 v. Drengir fæddir 1978 eða síðar: 1. Hafþór Einarsson Ak. 7,0 v. af 7 mögulegum. 2. Einar 1. Gunnarsson Ak. 6,0 v. 3. Tómas H. Jónsson Ak. 5,0 v. Stúlkur fæddar 1972-’75: 1. Sigrún Bárðard. Ólafsf. 12,0 v. af 12 mögulegum. 2. Helga Jónsd. Ólafsf. 10,0 v. 3. Halla B. Arnarsd. Ak. 8,0 v. Stúlkur fæddar 1976 eða síðar: 1. Þorbjörg Þórsd. Ak. 10,0 v. af 12 mögulegum. 2. Dóra Sif Sigtryggsd. Ak. 9,0 v. 3. Sigríður Torfad. Ak. 8,0 v. Þetta fyrsta opna barna- og unglingamót í skák á Dalvík þótti heppnast vel og hefur Taflfélag Dalvíkur í hyggju að halda annað slíkt mót í marsmánuði nk. og má þá vænta enn meiri þátttöku en nú. Vinsældalisti Hljóðbylgjunnar - vikuna 22/1-29/1 1988 Sæti Áður Vikur Lag Flytjandi 1. (4) 3 Need you tonight Inxs 2. (D 5 China in your hand T’pau 3. (3) 3 Always on my mind Pet Shop Boys 4. (6) 2 Truedevotion Samantha Fox 5. (5) 3 Rauðurbíll 6. (2) 8 Tears on the ballroom floor Cry/no/more 7. (8) 3 Manstu Bubbi Mortens 8. (10) 3 Wonderful life Black 9. (9) 4 Everlasting love Sandra 10. (7) 8 Little lies 11. (13) 4 Come back and stay Bad boys blue 12. (12) 6 Cant take my eyes of you Kim Ross 13. (11) 6 Aldrei fór ég suður Bubbi Mortens 14. (18) 4 Púla Greifarnir 15. (19) 3 Horfðu á björtu hliðarnar Sverrir Stormsker 16. (22) 2 Thedrum Roger Chapman 17. (16) 6 Ástar-bréf (Merkt-x) Model 18. (N) 1 Hvítlaukurinn Laddi 19. (14) 9 Can't stand (loosing you) Fate 20. (24) 2 Madonna (on the radio) The Flyers 21. (17) 7 So emotional Withney Houston 22. (25) 10 Loner GaeyMoore 23. (N) 1 Breytingar skeyðið Laddi 24. (N) 1 Whatanight Dolly Dots 25. (21) 10 Pump up the volume M/A/R/R/S Vinsældalisti Hljóðbylgjunnar er valinn á föstudagskvöldum, milli kl. 20 og 22,1 símum 27710 og 27711. Listinn er spilaður á laugardagskvöldum milli kl. 20 og 23. Auk þess sem ný lög eru kynnt. Vertu með. . 28. janúar 1988 - PAQUR -11 HVUnDPII PÍANÓ Verð frá kr. 99.000.- m SUIMIMUHLlO a* 22111 Námskeið í launabókhaldi HUGA Fell hf. og Hugi efna til námskeiðs í launabókhaldi Huga og er dagskráin eftirfarandi: ★ Farið í helstu breytingar frá útgáfu 1.0 til 2.0. ★ Launaútreikningur og allar helstu aðgerðir launa- bókhaldsins. ★ Staðgreiðslukerfi skatta. ★ Almennir innheimtuhættir. ★ Nýju orlofslögin. ★ Tenging við ALLT bókhaldskerfið. Námskeiðið er nk. laugardag og sunnudag 30. og 31. janúar. Þátttaka tilkynnist til Fells, sími 25455. FELL hf. Kaupvangsstræti 4 • Akureyri - slml 25455 Vegna aukinna umsvifa óskar Securitas að ráða tvo menn til öryggisgæslu strax. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofunni virka daga eftir hádegi. SECURITAS AKUREYRI sf. Ráðhústorgi 5, II. hæð, sími 26261. Oska eftir vélstjóra eða vélaverði á 130 tonna bát sem gerður er út frá Dalvík. Einnig vantar fólk til að vinna við saltfisk- verkun. Upplýsingar á daginn í síma 96-61368 og á kvöldin og um helgar í símum 96-61221 og 61324. Haraldur hf., Dalvík.______________ Verslunarstjóri Kaupfélag Skagfirðinga óskar að ráða versl- unarstjóra að útibúi félagsins á Hofsósi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og starfsreynslu, sendist til Ólafs Friðrikssonar, kaupfélagsstióra fyrir 8. febrúar n.k.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.