Dagur - 28.01.1988, Síða 15
28. janúar 1988 - DAGUR - 15
m
íþróttir
Handbolti 1. deild:
F
Valsarar í heimsókn
- mæta Þór í Höllinni á laugardag
- KA-menn sækja Framara heim á sama tíma í fjögurra stiga leik
Þórsarar léku gegn efsta liðinu
FH, í 1. deildinni í handbolta
um síðustu helgi en töpuðu
þeim leik naumlega. A laugar-
daginn sækja svo Valsmenn
Þórsara heim og hefst leikur-
inn sem fram fer í HöIIinni, kl.
14. Valur situr við hlið FH í
efsta sætinu, bæði liðin hafa
gert tvö jafntefli en unnið aðra
leiki sína.
Þó svo að Þórsarar hafi staðið í
Úrvalsdeildin í körfubolta:
Þór mætir Val
Þórsarar sækja Valsmenn
heim í íþróttahúsið að Hlíðar-
enda á sunnudagskvöld í
úrvalsdeildinni í körfubolta.
Ellefta umferðin hefst á laug-
ardag með viðureign Hauka og
IBK í Hafnarfirði en á sunnu-
dag lýkur umferðinni með
þremur leikjum. Grindvíking-
ar fá Blika í heimsókn og KR-
ingar sækja Njarðvíkinga
heim, auk leiks Vals og Þórs.
Njarðvíkingar sitja sem fyrr í
efsta sætinu, hafa tapað einum
leik eins og Keflvíkingar er hafa
leikið einum leik færra. Vals-
menn eru skammt undan en önn-
ur lið koma varla til með að
blanda sér í baráttu um íslands-
meistaratitilinn. Flest bendir þó
til að þetta verði einvígi á milli
Suðurnesjaliðanna UMFN og
ÍBK.
Á botninum sitja Þór og
Breiðablik með tvö stig hvort
félag. Þórsarar unnu Blikana í
fyrri leik liðanna en Blikarnir
gerðu sér hins vegar lítið fyrir og
unnu Hauka skömmu síðar. Þór
og UBK leika seinni innbyrðis-
leikinn þann 11. mars á Akureyri
og verður það að öllum líkindum
uppgjör botnliðanna.
Bjarni Össururson og félagar hans í
Þór sækja Val heim á sunnudags-
kvöld.
1X2 1X2 1X2 1X2 1X2 1X2
Sölvi skorar
á Siguróla
Sölvi Ingólfsson hélt sigurgöngu sinni í getraunaleiknum áfram
um helgina og að þessu sinni lagði hann Ragnar Gunnarsson
söngvara Skriðjökla að velli. Hann var með fjóra leiki rétta en
Ragnar aðeins tvo. Sölvi heldur því áfram og hann hefur skorað
á annan söngvara og ekki síðri en það er Siguróli Kristjánsson
landsliðsmaður í knattspyrnu úr Þór. Siguróli segist vera dygg-
asti stuðningsmaður Liverpool norðan Alpafjalla en það lið er
sem kunnugt er í efsta sæti 1. deildar um þessar mundir. Siguróli
gerði sér ferð til Englands fyrir rúmum tveimur árum, ásamt
nokkrum félögum sínum og sá þá Tottenham leggja Liverpool
að velli, eins og mönnum er í fersku minni. Leikirnir á seðlinum
að þessu sinni eru í 4. umferð ensku bikarkeppninnar og aðal-
leikurinn er viðureign efstu liðanna í 1. og 2. deild, Liverpool og
Aston Villa. En við skulum sjá hvernig þeim Sölva og Siguróla
tekst upp um helgina og þannig er spá þeirra:
Sölvi:
Siguróli:
Aston Villa-Liverpool 2
Barnsley-Birmingham x
Bradford-Oxford 1
Brighton-Arsenal 2
L.Orient-Nott.Forest 2
Luton-Southampton 1
Man.United-Chelsea 1
Mansfield-Wimbledon 2
Newcastle-Swindon 1
Portsmouth-Sheff.United 1
Port Vale-Tottenham 2
2
Aston Villa-Liverpool 2
Barnsley-Birmingham 1
Bradford-Oxford 1
Brighton-Arsenal 2
L.Orient-Nott.Forest x
Luton-Southampton 1
Man.Unitcd-Chelsea 1
Mansfield-Wimbledon x
Newcastle-Swindon 1
Portsmouth-Sheff.United x
Port Vale-Tottenham 2
Q.P.R.-West Ham 1
Q.P.R.-West Ham
Tipparar munið að skila seðlunum inn fyrir hádegi á fimmtudög
um svo enginn verði nú af vinningi.
1X2 1X2 1X2 1X2 1X2 1X2
FH-ingum á sunnudaginn, var
margt að hjá liðinu. Leikmenn
fóru illa með góð marktækifæri,
voru oft of bráðir í sókninni og
þeim tókst ekki að nýta sér liðs-
muninn þegar þeir voru einum
fleiri inni á vellinum. Baráttan var
í ágætu lagi og takist liðinu að
lagfæra það sem miður fór, getur
allt gerst gegn Val á laugardag.
KA leikur aftur á útivelli um
helgina og á laugardag mætir lið-
ið Fram í Laugardalshöllinni. Þar
er um sannkallaðan fjögurra stiga
leik að ræða, því bæði liðin eru í
bullandi fallhættu. KA-menn
hafa 7 stig að loknum 10 leikjum
en Framarar 5 stig. KA-menn
töpuðu mjög naumlega fyrir
Stjörnunni á sunnudag, í leik sem
þeir hefðu átt að vinna. En liðs-
menn KA fóru illa með góð færi á
mikilvægum augnablikum og því
fór sem fór. KA sigraði Fram í
fyrri leik liðanna og liðið hefur
alla burði til þess að endurtaka
þann leik á laugardag.
KR-ingar þokuðust af mesta
hættusvæðinu í bili með sigri á
UBK á mánudagskvöld en þeir
leika gegn Víkingum á laugar-
dag. Breiðablik og Stjarnan átt-
ust við í gærkvöld en 11. umferð
lýkur með leik FH og ÍR í Hafn-
arfirði á sunnudag.
Gunnar Gunnarsson fyrirliði Þórs í handbolta, verður í baráttunni með
félögum sínum gegn Val á laugardag. Mynd: EHB
Meistaramót íslands í atrennulausum stökkum:
Þrefaldur sigur Þóru
íslandsmótið í atrennulausum
stökkum var haldið í gamla ÍR-
húsinu í Reykjavík um síðustu
helgi. Keppt var í þremur
greinum karla og kvenna, há-
stökki, þrístökki og lang-
stökki. Þóra Einarsdóttir úr
UMSE var mjög sigursæl á
mótinu og sigraði í öllum
þremur kvennagreinunum. Þá
sigraði Flosi Jónsson, betur
þekktur sem kraftlyftingamað-
ur í langstökki.
Úrslit í einstökum greinum
urðu þessi:
Hástökk kvenna:
1. Þóra Einarsdóttir UMSE 1,34
2. Þuríður Ingvarsdóttir HSK 1,30
Langstökk kvenna:
1. Þóra Einarsdóttir UMSE 2,63
2. Snjólaug Vilhelmsd. UMSE 2,57
3. Þuríður Ingvarsdóttir HSK 2,41
Þrístökk kvenna:
1. Þóra Einarsdóttir UMSE 7,73
2. Snjólaug Vilhelmsd. UMSE 7,61
3. Þuríður Ingvarsdóttir HSK 7,14
Hástökk karla:
1. Jón A. Magnússon HSK 1,60
2. Unnar Garðarsson HSK 1,55
3. -4. Þorsteinn Þórsson ÍR 1,55
3.-4. Ólafur Guðmundss. HSK 1,55
Langstökk karla:
1. Flosi Jónsson UMSE 3,28
2. Unnar Garðarsson HSK 3,14
3. Helgi Sigurðsson UMSS 3,11
Þrístökk karla:
1. Unnar Garðarsson HSK 9,32
2. Helgi Sigurðsson UMSS 9,32
3. Ásmundur Jónsson HSK 9,24
Flugleiðir og HSI
með risasamning
_■ ■_r _ _■■■■ /
- metinn á um 20 m
Flugleiðir og HSI hafa gert
með sér samstarfssamning um
eflingu handknattleiksíþróttar-
innar á íslandi og kynningu á
þjónustu og starfsemi Flug-
leiða hf. Þetta er samningur
upp á tæpar 20 milljónir og er
þetta því stærsti samningur
sem íþróttasamtök hafa gert
við einkafyrirtæki hér á landi.
Helstu atriði í samningnum
eru að Flugleiðir verða aðal-
stuðningsaðili HSÍ vegna undir-
búnings og þátttöku í Ólympíu-
leikunum í Seoul 1988. Flugleiðir
munu einnig aðstoða HSÍ og taka
þátt í kostnaði við umsókn HSÍ
um heimsmeistarakeppnina
1994 og gerð kynningarefnis
vegna umsóknar HSÍ til Alþjóða
handknattleikssambandsins um
inótið. í samningnum er líka gert
ráð fyrir að Flugleiðir aðstoi
HSÍ við að halda alþjóðlegt
illjónir
itoði | handknattleiksmót hér
svokallað Flugleiðamót.
landi,
AP
Knattspyrna:
Þórsarar leika
gegn Lokeren
Fyrstu deildar lið Þórs í knatt-
spyrnu lieldur í æfínga- og
keppnisferð til Hollands í lok
mars og dvelur í vikutíma í
Kempervennen.
Þórsarar munu síðan bregða
sér yfir til Belgíu þann 30. mars
og leika gegn varaliði Lokeren á
aðalleikvangi félagsins í Loker-
en. Lokeren er eitt af toppliðun-
um í belgísku knattspyrnunni og
hefur einnig á að skipa mjög
sterku varaliði. Arnór Guð-
johnsen knattspyrnumaðurinn
snjalli hóf einmitt atvinnuferil
sinn hjá Lokerern árið 1978 og
lék með liðinu í fjölmörg ár við
góðan orðstír.