Dagur


Dagur - 08.02.1988, Qupperneq 1

Dagur - 08.02.1988, Qupperneq 1
26. tölublað HAFNARSTRÆTI 92 . 602 AKUREYRI. SÍMI 96-26708 . BOX 397 71. árgangur Akureyri, mánudagur 8. febrúar 1988 Meirihluti ríkisins í Slippstööinni: Ákvörðun um sölu ekki verið tekin - verið að meta raunverulegt verðmæti fyrirtækisins Eins og fram hefur komið var meirihiuti ríkisins í Slippstöð- inni auglýstur til sölu árið 1983. Á vegum fjármálaráðu- neytisins er nú verið að meta þennan hlut en að sögn Svein- björns Óskarssonar, sem hefur umsjón með matinu af hálfu ráðuneytisins, liggur ekki fyrir ákvörðun um það hvort núver- andi ríkisstjórn auglýsir bréfin til sölu. Slippstöðin er eitt þeirra fyrir- tækja sem er á lista ríkisstjórnar- innar yfir þau sem hugsanlega verða seld. Ákvörðun um sölu verður hins vegar ekki tekin fyrr en niðurstöður úttektarinnar liggja fyrir. Pær verða lagðar fyrir ráðherra en fara síðan í „pólitísk- an farveg“. Eins og komið hefur fram hafa einkaaðilar á Akureyri lýst yfir áhuga á kaupum bréfanna. í framhaldi af því fór ráðherra fram á að úttekt á eignum og skuldum Slippstöðvarinnar yrði hraðað, sett efst á listann. Úttektin hófst í byrjun janúar en Sveinbjörn sagðist gera ráð fyrir að henni lyki ekki fyrr en í lok febrúar enda væri hér um mjög „flókið fyrirtæki" að ræða. ET Gaffalbitaframleiðsla: Síld hf. fær ekki framleiðslurétt - forsendur fyrir rekstrinum brostnar Stjórn Sölustofnunar lagmetis ákvað á fundi sínum á föstu- daginn að bjóða Síld hf. á Siglufirði inngöngu í samtökin Um leið var tilkynnt að fyrir- tækið geti ekki fengið hlut- deild í „Sovétsamningum“ um sölu á gaffalbitum. Þær verk- smiðjur sem fyrir eru, hafa nú þegar meiri afkastagetu en magn sölunnar gefur tilefni til og því er ekki talin ástæða til að fjölga þeim. Þar með má telja fullvíst að hið nýstofnaða fyrirtæki verði ekki annað en nafnið. Að sögn Theodórs S. Hall- dórssonar framkvæmdastjóra SL þá var mál þetta „mjög fljótaf- greitt,“ og enginn sem greiddi atkvæði á móti. K. Jónsson á Akureyri hafði sett það sem skilyrði fyrir meiri- hlutaeign í fyrirtækinu að fyrir- tækið fengi „Siglósneiðina“ í gaffalbitasölunni, alla. Sá biti hefur verið afhentur Fiskimjöls- verksmiðju Hornafjarðar og verður þar áfram. Ólafur Marteinsson fram- kvæmdastjóri K. Jónssonar vildi ekki láta uppi álit sitt á þessari afgreiðslu en sagðist telja allar forsendur fyrir rekstri fyrirtækis- ins brostnar. Kristján Jónsson verksmiðjustjóri, sem sæti á í stjórn SL vildi ekkert um málið segja, en hann mun hafa setið hjá við atkvæðagreiðsluna. Síld hf. er heimilt að framleiða gaffalbita. Fyrirtækið verður hins vegar að sjá sjálft um söluna, og þá til annarra landa en Sovétríkj- anna, sem hafa verið eini kaup- andinn til þessa. Þar hefur SL einkaleyfi. Einnig er framleiðsla á öðru lagmeti möguleg en að sögn Skarphéðins Guðmundssonar, eins af forsvarsmönnum Síldar hf., þá er slíkt ólíklegt. Fyrirtæk- ið hafi verið stofnað í kringum hugsanlega gaffalbitaframleiðslu. „Við erum náttúrlega mjög ósáttir við þessa niðurstöðu. Við höfum hér starfsfólk sem er mjög þjálfað í þessari framleiðslu og mér finnst lítið tillit tekið til þess,“ sagði Skarphéðinn. ET Húsavík: Fálki rændi dúfum - var gefinn kjúklingur og sleppt í Eyjafirði Ungur fálki fór að venja komur sínar í dúfna- húsið í Skógargerði á Húsavík og næla sér í dúfur í matinn. Dúfurnar í húsinu og eigendur þeirra voru ekki sátt við þessa hegðun hins óboðna gests. Einn eigendanna setti upp gildru í húsinu sem hann náði fálkanum í á fimmtudaginn og bað síðan lögregiuna að hirða ræningjann. Lögreglan hirti fangann og yfirheyrði en ekki er ljóst hvort hann játaði sök sína. Lögreglumaður fór til að afla fæðu handa fanganum og þar sem músakjöt var ekki fáanlegt í verslun kaupfélags- ins var keyptur kjúklingur sem fálkinn borðaði með jafn góðri lyst og dúfurnar áður. Haft var samband við Ævar Petersen fugla- fræðing og hann spurður hvað gera ætti við dúfna- ræningjann og í framhaldi af því var ákveðið að sleppa fálkanum í Eyjafirði. Fálkinn .dvaldist f góðu yfirlæti á lögreglustöðinni fram á föstudag en þá fékk hann far með lögreglumanni yfir í Eyjafjörð og var sleppt neðan við Víkurskarð. IM Alafoss hf: Verða aðstöðugjöld felld niður af ullariðnaði? - „Munum taka hliðstæða ákvörðun og Mosfellsbær“ segir Sigfús Jónsson, bæjarstjóri „Fyrirtækið hefur ekki óskað eftir niðurfellingu á aöstöðu- gjaldi og afstaða verður því ekki tekin til slíkrar beiðni fyrr en hún berst bæjarstjórn,“ sagði Sigfús Jónsson, bæjar- stjóri á Akureyri, þegar hann var spurður álits á dreifíbréfi um niðurfellingu aðstöðu- gjalda á fyrirtækjum í ullariðn- aði. Bréfið var sent frá iðnaðar- ráðuneytinu. í því er þeim ein- dregnu tilmælum beint til sveitar- stjórna, sem hýsa ullariðnað, að þær felli tímabundið niður aðstöðugjald af ullariðnaði eða lækki þau a.m.k. til samræmis við það, sem sjávarútvegsfyrirtæki greiða. Almennt aðstöðugjald er í dag 1%, en í fiskiðnaði er greitt 0,35% aðstöðugjald á fiskveiðar en 0,65% á vinnslu. Sigfús sagði, að sveitarfélög landsins væru í sameiginlegum samtökum, og þau reyndu að vinna saman að ýmsum málum. Ákvörðun um aðstöðugjöld af Álafossi hf. væri rniklu erfiðari fyrir Mosfellsbæ en Akureyri, „og skoðun mín er sú, að við verðum að fylgjast að í þessu máli, því Álafoss hf. er hlutfalls- lega svo stórt fyrirtæki þar, og 40- 50% af öllum aðstöðugjöldum í Mosfellsbæ koma frá Álafossi hf. Hjá okkur er þetta miklu minni upphæð. Eg á ekki von á því að afstaða verði tekin fyrr en beiðni kemur frá fyrirtækinu og ég á líka von á því að við munum hafa samband við Mosfellsbæ, þegar þar að kemur, og taka hliðstæða ákvörðun og þeir taka,“ sagði Sigfús að lokum. EHB

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.