Dagur - 08.02.1988, Page 7

Dagur - 08.02.1988, Page 7
&: Vébyuar 'léaí6 - 7 „Þetta var kærkomið stig en þau hefðu mátt vera tvö, við vorum klaufar að missa þetta niður í jafntetli í lokin. Þetta var nokkuð góður leikur af okkar hálfu og við héldum haus nær allan leikinn,“ sagði Eggert Tryggvason hornamað- ur KA í handbolta eftir leikinn við Val á laugardag. Vals- mönnum tókst að krækja í annað stigið á elleftu stundu, eftir að hafa verið undir lengst af í leiknum. Hvort lið skoraði 20 mörk og geta Valsmenn verið sáttir við þau úrslit en KA-menn geta nagað sig í handarbökin, fyrir að hafa misst leikinn niður í jafntefli. KA brá á það ráð að taka þá Júlíus Jónasson og Jón Kristjáns- son úr umferð og gafst það nokk- uð vel. Það var helst Jakob Sig- urðsson sem reyndist KA-mönn- um erfiður. Leikurinn var í jafn- vægi í byrjun og var jafnt á öllum tölum upp í 4:4 en þá tóku KA- menn góðan kipp, skoruðu 3 mörk í röð og breyttu stöðunni í 7:4. Eftir 20 mín. íeik var staðan 10:6 fyrir KA en Valsmönnum tókst að minnka muninn í tvö mörk fyrir hlé, 11:9. KA-menn juku muninn á ný í þrjú mörk í upphafi síðari hálf- leiks og héldu héldu honum fram í miðjan hálfleikinn. Þegar um 17 mín. voru til leiksloka, hafði KA yfir 16:13. Þá var Guðmundur Guðmundsson rekinn af velli í 2 mín. og á þeim tíma skoraði Valdimar Grímsson tvö mörk fyrir Val og minnkaði muninn í eitt mark, 16:15. KA hafði síðan yfir 17:16 en þá voru þeir Erling- ur Kristjánsson og Friðjón Jóns- son reknir af leikvelli í 2 mín., með stuttu millibili, Valsmenn náðu þá að jafna 17:17 og komast yfir 18:17. Pétur Bjarnason jafn- aði fyrir KA 18:18 og Erlingur kom liðinu síðan yfir á ný, 19:18. Júlíus jafnaði 19:19 en Erlingur var aftur á ferðinni með 20. mark KA, þegar um 2 mín. eru eftir. Þegar um ein og hálf mín. var til leiksloka, varði Brynjar Kvaran meistaralega frá Valdimari og KA náði boltanum. En þegar um 50 sek, voru til leiksloka, missti Friðjón Jónsson boitann, Vals- menn geystust í sókn og fengu dæmt vítakast. Júlíus Jónasson skoraði úr vítinu og jafnaði leik- inn 20:20 er um 20 sek. voru eftir. KA-menn misstu boltann aftur þegar um 4 sek. voru til loka en Valsmenn náðu ekki að bæta við marki og jafntefli því staðreynd. Leikurinn á laugardag vel leik- inn og æsispennandi og sérstak- lega voru KA-menn frískir. Brynjar Kvaran varði vel, eða alls 15 skot, Friðjón Jónsson var góður og þá sérstaklega í fyrri hálfleik, Pétur Bjarnason og Eggert Tryggvason voru frískir Friðjón Jónsson átti góðan leik með KA gegn Val á laugardag og skoraði 7 niörk. Á myndinni takast fyrirliðar liðanna á, þeir Friðjón og Geir Sveinsson Vals- ari. og þá var Erlingur Kristjánsson drjúgur í lokin. Það er athygl- isvert að aðeins fjórir leikmenn KA skoruðu í leiknum. í jöfnu liði Vals var Jakob Sigurðsson bestur. Mörk KA: Friðjón 7, Erlingur 5, Pétur 5 og Eggert 3. Mörk Vals: Júlíus Jónasson 8/ 5. Jakob Sigurðsson 6, Þórður Sigurðsson 2, Valdimar Gríms- son 2, Einar Naaby 1 og Þorbjörn Guðmundsson 1. Sigurður Baldursson og Björn Jóhannsson dæmdu leikinn sæmi- lega. Vestur-þýski handboltinn: Alfreð bjargaði öðru stiginu - skoraði jöfnunarmark Essen í leiknum gegn Gummersbach Aðalleikurinn t v.-þýsku úr- valsdeildinni í handbolta um helgina, var viðureign Gumm- ersbach og Essen sem frant fór á heimavelli Gummersbach. Þar öttu þeir félagarnir Krist- ján Arason og Alfreð Gíslason kappi en þeir leika sem kunn- ugt með þessum liðum. Leikn- um lauk með jafntefli 14:14 og það var Alfreð Gíslason sem jafnaði fyrir Essen í lokin og tryggði liði sínu annað stigið. Heimamenn léku betur framan af og leiddu leikinn lengst af. Gummersbach hafði tveggja marka forystu í leikhléi 7:5. í síð- ari hálfleik jók liðið muninn í 4 mörk, 14:10 en þá skoraði Essen þrjú mörk í röð og minnkaði muninn í 14:13. Skömmu fyrir leikslok misstu leikmenn Gumm- ersbach boltann klaufalega frá sér og Alíreð Gíslason skoraði jöfnunarmark Essen. Alfreð skoraði 4 mörk í leikn- um og þar af eitt úr víti. Kristján Arason skoraði 3 mörk fyrir Gummersbach, eitt úr víti. Landsliðsmarkverðirnir Stefan Hecker hjá Essen og Andreas Thiel hjá Gummersbach voru í aðalhlutverki í þessum leik en einnig léku liðin góðan varnar- leik, með þá Kristján og Alfreð sem bestu menn. Lemgo sigraði Schwabing með 20 mörkum gegn 18 og skoraði Sigurður Sveinsson þrjú mörk fyrir Lemgo, þrátt fyrir að vera tekinn úr umferð allan leikinn. Þrjú lið eru nú efst og jöfn í úrvalsdeild- inni. Það eru Gummersbach, Kiel og Dússeldorf, lið Páls Olafssonar en þau eru öll með 25 stig að loknum 16 umferðum. Dússeldorf gerði sér lítið fyrir og sigraði Göppingen í síðustu viku með 23 mörkum gegn 19 og sat því eitt á toppnum þar til á laygardag að Gummerbach og Kiel bættust í hópinn. Alfreö Gíslason skoraði 4 mörk gcgn Gummersbach. Enn missti KA af sigri! - Valsmenn fóru heim með eitt stig úr æsispennandi leik í Höllinni

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.