Dagur - 08.02.1988, Page 10
10— DAGUfi—8. februar 1008
íþróffir
Enska knattspyrnan:
l
Ellefu mörk í einum leik!
- West Ham náði jöfnu á Anfield - Forest og Man. United sigruðu
Mesta athygli á laugardaginn
vakti leikur Luton og Oxford á
gervigrasvelli þeirra Luton
manna. Eins og sjónvarps-
áhorfendur fengu að sjá urðu
mörkin alls 11 talsins og þar af
gerði heimaliðið sem greini-
lega kunni betur við sig á plast-
inu sjö mörk. Liðin mætast aft-
ur í undanúrslitum deildabik-
arsins á miðvikudag á heima-
velli Oxford og verður fróðlegt
að fylgjast með þeirri viður-
eign.
Varnarleikur liðanna var ekki
upp á það besta, en því meiri
áhersla lögð á sóknina. Mark
Stein skoraði þrjú af mörkum
Luton, Mick Harford gerði tvö
og þeir Brian Stein og Darron
McDonough sitt markið hvor.
Fyrir Oxford skoruðu Dean
Saunders úr vítaspyrnu, Martin
Foyle, Richard Hill og Les
Phillips. Luton hafði yfir í leik-
hléi 3:2 í þessum stórskemmtilega
leik.
Óvænt úrslit urðu í leik Liver-
pool á heimavelli gegn West Ham.
Mark Stein skoraði þrjú at' sjö
mörkum Luton gegn Oxford og liö-
in mætast að nýju á miðvikudaginn í
undanúrslitum deildabikarsins.
Á sunnudag fór fram fyrri
undanúrslitaleikur Everton og
Arsenal í deildabikarnum og
var leikið á heimavelli Ever-
ton. Arsenai hóf leikinn af
mun meiri krafti en heimalið-
ið, sem hefur þurft að leika 2-3
leiki á viku að uridanförnu
vegna margra jafntefla í bikar-
ieikjum.
Alan Smith og Perry Groves
voru hættulegir í framlínu Arsen-
al og strax á 10. mín. sneri hinn
eldsnöggi Groves varnarmenn
Everton af sér og skoraði fram
hjá Neville Southall í marki
Everton. Miðvallarleikmenn
Arsenal réðu að mestu gangi
þar sem gestunum tókst að halda
markalausu jafntefli og var það í
fyrsta skipti í 11 ár sem West
Ham sleppur taplaust frá An-
field. Liverpool lék ekki af sama
krafti og undanfarið og West
Ham átti fullan rétt á stiginu úr
leiknum. John Barnes var mikill
klaufi upp við markið í þessum
leik ásamt John Aldridge og
Steve McMahon. En West Ham
fékk einnig hættuleg færi og þeir
Mark Ward og Alan Dickens
voru nærri að skora, en þeirra
besti maður var þó Tom McAll-
ister markvörður sem varði oft
glæsilega fyrir framan 42.000
áhorfendur á Anfield sem sáu að
leikmenn Liverpool eru mann-
legir eftir allt saman.
Alex Ferguson framkvæmda-
stjóri Man. Utd. hefur nú sett
stefnuna á annað sætið í deildinni
sem gæfi liðinu þátttökurétt í
Evrópukeppni næsta ár ef bann-
inu verður aflétt. Einnar mín.
þögn var á Old Trafford áður en
leikur Utd. gegn Coventry hófst
þar sem 30 ár voru á laugardag-
inn síðan besta lið félagsins frá
upphafi fórst í flugslysi á heim-
leið frá Evrópukeppni. Utd.
tókst að ná hinum dýrmætu stig-
um úr leiknum, en leikur liðsins
var allt annað en sannfærandi.
Eftir aðeins 4 mín. skoraði Liam
O’Brien sem komst í liðið á síð-
ustu stundu vegna meiðsla
Clayton Blackmore, eina mark
leiksins eftir undirbúning Gord-
on Strachan og Viv Anderson.
Eftir rnarkið sótti Man. Utd. stíft
og Brian Borrows bjargaði tví-
vegis á marklínu Coventry. En
smám saman náðu bikarmeistar-
ar Coventry tökum á leiknum,
Trevor Peake átti stórleik og
Graeme Hogg bjargaði á línu frá
Micky Gynn. Rétt fyrir leikslok
slapp síðan Utd. með skrekkinn
þegar David Smith sem komið
hafði inn á sem varamaður hjá
Coventry komst í hættulegt færi,
en Steve Bruce miðvörður Utd.
náði á síðustu stundu að bægja
hættunni frá.
Pað eru ávallt skemmtilegir
leikir þar sem Nottingham For. á
hlut að máli, liðið leikur góða
knattspyrnu, enjiinir ungu leik-
menn liðsins fá einnig á sig ntörk
rrtála í fyrri hálfleiknum gegn
slæptum leikmönnum Everton,
sem þó fengu síri færi og Gary
Stevens átti skot sem hafnaði í
þvérslánni hjá Arsenal. Everton
lék undan nokkrum vindi í síðari
hálfleik og sótti mun meira en í
þeint fyrri. Arsenal dró sig í vörn
og markvörður þeirra John Lukic
varð að taka á hinum stóra sínum
til að stöðva skot heimamanna.
Everton fékk gullið tækifæri til
að jafna leikinn .10 mín. fyrir
leikslok, en vítaspyrna Trevor
Steven fór hátt yfir markið,
mistök sem gætu orðið afdrifarík
og komið í veg fyrir að Everton
komist í úrslitaleik keppninnar á
Wembley. Á þriðjudag mun
sem stafa af reynsluleysi þeirra.
Liðið náði tveggja marka forystu
á heimavelli gegn Chelsea með
mörkum Colin Foster og Mark
Crossley sem lék sinn fyrsta leik
með liðinu. En aðeins 5 mín. síð-
ar hafði Chelsea náð að jafna,
Kerry Dixon skoraði eftir horn-
spyrnu sem vörn Forest hafði
mistekist að hreinsa frá og Kevin
Wilson jafnaði síðan með þrumu-
skoti eftir að Dixon hafði átt skot
í þverslá. En heimaliðinu tókst
þó að merja sigur með marki
Nigel Clough úr vítaspyrnu eftir
að brotið var á Tommy Gaynor.
Chelsea var þó óheppið að tapa
leiknum, Pat Nevin og Roy Weg-
erle léku mjög vel, en Steve Sutt-
on í marki Forest var öruggur og
í lokin bjargaði þversláin heima-
liðinu.
Wimbledon og Newcastle
skildu jöfn í markalausum leik
þar sem öllum brögðum var beitt.
Leikurinn var harður og jafn,
Mirandhinha var lítt áberandi og
hefur eflaust talið hollast að
halda sig frá hörkutólum Wim-
bledon sem greinilega töldu Paul
Gascoigne þann leikmann sem
yrði að stöðva í liði Newcastle.
Vince Jones var settur honum til
höfuðs og beitti öllum þeim
fólskubrögðum sem hann kunni,
hvað eftir annað rak hann oln-
bogann framan í Gascoigne auk
annarra brota og lét síðan dæluna
ganga (tæplega vinalegt rabb), en
þrátt fyrir meðferðina hélt Gas-
coigne ró sinni. Liðin mætast í
FA-bikarnum síðar í mánuðin-
um, þá í Newcastle og verður
örugglega hart barist þar.
Portsmouth vann góðan sigur á
heimavelli gegn Derby sem er
komið í bullandi fallhættu. Vince
Hilaire í fyrri hálfleik og Mike
Quinn í þeim síðari skoruðu
rnörk Portsmoulh, en Mark
Wright skoraði mark Derby.
Daufum leik Norwich og Wat-
ford lauk án þess að mark væri
skorað, en Watford hefur nú
leikið 7 leiki í röð án taps í deild
og bikar síðan Steve Fíarrison
tók við framkvæmdastjórastöð-
unni.
Colin Clarke náði forystu fyrir
Southampton á útivelli gegn
Sheffield Wed., í fyrri hálfleik,
Everton verða í eldlínunni að
nýju, er liðið mætir Middles-
brough á heimavelli í þriðja sinn
í 4. umlerð FA-bikarkeppninn-
ar.
Oxford og Luton leika einnig í
undanúrslitum deildabikarsins og
fer fyrri leikur þeirra fram í
Oxford á miðvikudaginn. Liðin
léku á laugardaginn í 1. deild og
þá sigraði Luton 7:4. Nú hefur
verið tilkynnt að markvörður
Oxford, Steve Hardwick, verði
látinn víkja úr markinu og Maur-
ice Evans framkvæmdastjóri
Oxford hefur valið í hans stað
Alan Judge, en hann hóf einmitt
feril sinn hjá Luton.
Þ.L.A.
hans 100. deildarmark. En í síð-
ari hálfleiknum tóku heimamenn
við sér og Mel Sterland jafnaði.
Það var síðan Lee Chapman sem
tryggði Sheffield sigurinn með
marki 6 mín. fyrir leikslok.
Charlton situr á botninum og
tapaði á útivelli gegn Q.P.R.
Mark Falco og John Byrne sáu
um mörkin.
Aston Villa er enn efst í 2.
deild, en lenti í óvæntu basli með
Leicester á heimavelli. Leicester
hóf leikinn vel og á 9. mín. var
bjargað á línu hjá Villa. En þá
mjög óvænt gerðu leikmenn Ast-
on Villa tvö mörk á jafn mörgum
mínútum, Mark Lillis skoraði á
18. inín. eftir að skot Tony Daley
var aðeins hálfvarið og Allan
Evans bætti síðan við marki eftir
hornspyrnu. Leicester hélt þó
áfram að sækja, en Nigel Spink
hélt hreinu markinu hjá Villa
með góðri markvörslu og lét sig
ekki muna um að verja víta-
spyrnu frá Gary McAllister. hann
átti hins vegar ekki möguleika að
verja skot Mike Newell, en það
var það eina sem framhjá honum
fór.
Það var rnikil barátta hjá ýms-
um liðum að komast út úr frum-
skógi 2. deildar, Blackburn leik-
ur vel um þessar mundir og sigr-
aði Manchester City 2:1.
Crystal Palace vann góðan sig-
ur heima gegn Birmingham 3:0
þar sem Mark Bright skoraði sitt
19. mark í vetur.
Ian Ormondroyd skoraði fyrir
Bradford á útivelli gegn Millwall
mínútu fyrir leikslok.
Middlesbrough gerði jafntefli
úti gegn Swindon, Dave Bamber
náði forystu fyrir Swindon, en
Tony Mowbray skallaði inn
jöfnunarmark Boro.
Hull City tapaði illa gegn
Bournemouth 2:6 og er að gefa
eftir í baráttunni. En Leeds Utd.
er að færast upp töfluna. Vann
dýrmætan sigur gegn Ipswich á
Elland Road með marki John
Pearson.
í 3. deild er Sunderland efst
með 62 stig, Notts County 60 og
Wigan 56 stig.
Wolves er efst í 4. deild með 54
og Cardiff 50 stig.
Þ.L.A.
Perry Groves skoraði sigurmark
Arsenal gegn Everton og liðið á því
góða mögulcika á að halda deilda-
bikarnum sem það vann í fyrra.
Deildabikarkeppnin:
Arsenal með annan
fótinn á Wembley
Urslit
Úrslit leikja í 1. og 2. deild
ensku knattspyrnunnar um
helgina urðu þessi:
1. deild:
Liverpool-West Ham 0:0
Luton-Oxford 7:4
Man.United-Coventry 1:0
Norwich-Watford 0:0
Nott.Forest-Chelsea 3:2
Portsmouth-Derby 2:1
Q.P.R.-Charlton' 2:0
Sheff.Wed.-Southampton 2:1
Wimbledon-Newcastle 0:0
2. deild:
Bournemouth-Hull 6:2
Aston Villa-Leicester 2:1
Blackburn-Man.City 2:1
C.Palace-Birmingham 3:0
Leeds-Ipswich 1:0
Millwall-Bradford 0:1
Oldham-Reading 4:2
Plymouth-Barnsley fr.
Shrewsbury-W.B.A. 0:1
Stoke-Sheff.Utd. 1:0
Swindon-Middlesbro 1:1
Getraunaröðin er þessi:
xxl-llx-lll-21x
Staðan
1. deild:
Liverpool 25 19- 6- 0 59:11 63
Nott.Forest 25 14- 6- 5 49:23 48
Man.United 2613- 9- 439:25 48
Everton 25 12- 7- 6 36:16 43
Q.P.R. 26 12- 7- 7 32:28 43
Arsenal 26 12- 6- 8 37:25 42
Wimbledon 26 11- 8- 7 39:30 41
Luton 25 11- 5- 9 39:30 38
Shcff.Wed. 26 11- 4-11 33:39 37
Newcastle 25 8- 9- 8 30:35 33
Tottenham 26
Southampton 26
West Hain 26
Chelsea 27
Portsmouth 27
Norwich 26
Coventry 24
Derby 24
Watford 26
Oxford 25
Charlton 26
9- 6-11 26:31 33
8- 8-1034:3832
7- 10- 9 28:34 31
8- 7-12 33:45 31
6- 11-10 26:43 29
7- 5-14 23:33 26
6- 7-11 24:39 25
6- 6-12 21:30 24
5- 8-13 17:32 23
6- 5-14 32:53 23
4- 8-14 23:40 20
2. deild:
Aston Villa 31 17-10- 4 50:25 61
Blackburn 30 16- 9- 5 44:28 57
C.Palace 31 17- 4-10 66:47 55
Middiesbro 30 15- 8- 7 41:24 53
Millwall 30 16- 4-10 49:37 52
Bradl'ord 29 15- 6- 8 43:35 51
Leeds 31 14- 8- 9 43:38 50
Hull 29 13- 9- 7 43:40 48
Ipswich 30 13- 7-10 39:29 46
Man.City 30 12- 7-12 58:45 42
Swindon 27 12- 6- 9 49:37 42
Stoke 30 12- 6-12 38:40 42
Oldham 30 11- 7-12 39:40 40
Barnsley 27 11- 6-10 42:36 39
Plymouth 29 11- 6-12 46:45 39
Birmingham 30 9- 8-1330:4835
Bourncm. 29 9- 7-13 43:47 34
Sheff.Utd. 30 8- 6-16 32:52 30
W.B.A 31 8- 5-18 35:54 29
Leicester 29 7- 7-15 36:44 28
Shrewsbury 31 5-11-15 26:42 26
Reading 29 6- 6-17 32:52 25
Huddersf. 29 4- 8-17 31:68 20