Dagur - 08.02.1988, Blaðsíða 16
jæmmmsm
Hafið þið reynt
okkar þjónustu? -Tfediömyndir’
Hafnarstræti 98 - Akureyri Sími 96-23520.
Sel 2:
Sex mrn auð!
Á Seli 2, hjúkrunardeild aldr-
aðra við Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri, standa nú 6 rúm
auð vegna skorts á starfsfólki.
Samkvæmt upplýsingum frá
deildarstjóra hjúkrunardeildar-
innar mun þetta ástand hafa
komið upp um áramótin. Þykir
það að vonum bagalegt að þegar
tekist hafði að safna fé til að
koma deildinni af stað skuli
skortur á starfsfólki hamla því að
Sel 2 geti gegnt hlutverki sínu að
fullu.
Kópasker:
Dýpkun innsigl-
ingar mjög biýn
Dýpkun innsiglingarinnar í
höfnina á Kópaskeri er orðin
mjög brýn. Nokkur undanfarin
ár hafa strandflutningaskip
ekki getað lagst að bryggju á
staðnum, stærri rækjuveiði-
skip hafa ekki getað lagt upp
afla hjá rækjuvinnslu Sæbliks
hf. og nú er svo komið að
fiskiskip fyrirtækisins tekur
niðri í innsiglingunni þegar
eitthvað er að veðri.
„Þetta háir okkur verulega og
það er mjög mikilvægt að úr
þessu verði bætt,“ sagði Kristján
Ármannsson oddviti og fram-
kvæmdastjóri Sæbliks í samtali
við Dae.
Árni á Bakka hefur tekið niðri
í innsiglingunni nokkrum sinnum
án þess þó að neinar skemmdir
hafi orðið á skipinu. Þetta veldur
auðvitað nokkrum óþægindum
en meiri áhrif hefur þó það að
strandflutningaskip Ríkisskipa
skuli ekki geta komist inn í
höfnina. Af þeim sökum hefur til
að mynda þurft að aka allri olíu á
staðinn frá Húsavík auk þess sem
hafnarsjóður verður fyrir tekju-
tapi.
Kristján sagði að rækjuvinnsl-
an hefði vafalaust orðið af hráefni
vegna þessa, en stærri rækju-
veiðiskip geta ekki landað þar
afla. Nokkrum sinnum hafa skip-
in landað á Raufarhöfn og rækj-
unni verið ekið þaðan.
Sveitarstjórnin hefur óskað
eftir því við þingmenn kjör-
dæmisins og Vita- og hafnamála-
stofnun að þeir leiti úrbóta í
þessu máli. Ekki tókst að útvega
fjármagn til framkvæmdanna
áður en gröfuskip Dýpkunarfé-
lagsins fór frá Raufarhöfn og er
skipið nú komið til Siglufjarðar.
Framkvæmdirnar dragast því að
minnsta kosti fram á sumar þegar
dýpkað verður á Stöðvarfirði.
Gert er ráð fyrir að innsiglingin
verði dýpkuð niður á 6 metra og
grafa þurfi um 25-30 þúsund rúm-
metra. Kostnaðurinn er áætlaður
um 9 milljónir og af því greiðir
ríkið 90%. ET
Snjókast í morgunsárið
Upp úr hádegi í gær lauk sólarhringslöngu námsmaraþoni 23 nemenda í 9.c Gagnfræðaskóla Akureyrar. Markmiðið
með þessu uppátæki var að safna fé í ferðasjóð níunda bekkjar með áheitum. Alls söfnuðust eitthvað á annað
hundrað þúsund krónur. Þau voru síður en svo framlág þegar blaðamenn litu inn í stofu 11 um hádegisbilið í gær.
Þá stóð yfír setningahlutagreining og ekki annað að sjá en þarna væri unnið. í síðasta tímanum var svo skrifuð stutt
ritgerð um uppátækið. Að sögn Hjartar Steinbergssonar kennara sem stóð að undirbúningi og framkvæmd með
krökkunum, drógu þau hvergi af sér í náminu, voru jafnvel óvcnjulega dugleg. Nemendurnir voru sammála um að
tíminn frá 7-9 í gærmorgun hefði verið erfíðastur, syfjan hefði sótt verulega á. Til að hressa sig við fór allur hópurinn
þá út á lóð í snjókast. ET
Sérleyfismál Ólafsfirðinga:
Astandið kemur mörgum illa
- þetta er alveg ómögulegt ástand segir stöðvarstjóri Pósts og síma
„Nei, ég get ekki séð leið til að
leysa þetta mál,“ sagði Valtýr
Sigurbjarnarson, bæjarstjóri í
Olafsfirði vegna þeirrar stöðu
sem upp cr komin í samgöngu-
málum Ólafsfirðinga eftir að
sérleyfíshafi hætti akstri. Ýmis
smávara hefur verið flutt til
Ólafsfjarðar með áætlunar-
bílnum eins og t.d. póstur og
Akureyri:
Lögbann á
Glæsibíla
Krafa Bílstjórafélags Akureyr-
ar um lögbann á leigu- og
sendibílaakstur Glæsibfla sf.
innan bæjarmarka Akureyrar
hefur verið tekin fyrir hjá fóg-
eta og hljóðaði úrskurðurinn
upp á lögbann gegn tryggingu
frá stefnanda.
Innan skamms verður gefin út
stefna í málinu hjá bæjarfógeta
og þess krafist af hálfu Bílstjóra-
félags Akureyrar að lögbannið
veröi staðfest með dómi.
Lögbannskrafan byggir á
reglugerð um einkaleyfi á leigu-
bílaakstri innan bæjarmarkanna
og þeirri staðreynd að bílstjórar
Glæsibíla sf. hafa ekki viður-
kennd atvinnuleyfi.
Verði lögbannið staðfest með
dómi munu Glásibílar væntan-
lega hverfa af götum Akureyrar.
Fái bílstjórarnir hins vegar
atvinnuleyfi geta þeir að öllum
líkindum stundað leiguakstur í
Glæsibæjarhreppi, þar sem fyrir-
tækið er skráð, en þá vaknar sú
spurning hvort þeir megi fara
með farþega t.d. suður til
Kristness. Þá þurfa þeir nefnilega
að aka í gegnum Akureyri. SS
dagblöð en einnig hafa fyrir-
tæki notið þessarar þjónustu.
Margir, bæði eldra og yngra
fólk, hafa notið þjónustu áætl-
unarbílsins en verður nú að
leita annarra leiða.
„Væntanlega verður sérleyfið
auglýst og vonandi sér einhver
sér fært að aka á þessari leið en
það verður að koma í ljós þegar
frá líður. Algjörlega er útilokað
að reka leyfið með farþegaflutn-
inga eina í huga. Vöruflutningar
verða að halda þessum akstri
uppi,“ sagði Valtýr.
Póstur var fluttur til Ólafs-
fjarðar með áætlunarbílnum en
síðan akstri var hætt hefur póstur
verið fluttur þrisvar í viku frá
Akureyri með fraktbíl. „Meðan
þetta ástand varir verðum við að
sæta lagi og spá í veðrið,“ sagði
Ásta Helgadóttir, stöðvarstjóri
Pósts og síma í Ólafsfirði. „Þetta
er alveg ómögulegt ástand og ég
skil ekki að við getum unað við
þetta. En við þetta fyrirkomulag
verður að notast fyrst um sinn.“
Kristín Adolfsdóttir rekur
Söluskálann í Ólafsfirði og hefur
þurft að fá vörur sínar með áætl-
unarbílnum frá Akureyri. „Þetta
er bara alveg hryllilegt. Við höf-
um alveg getað treyst á áætlunar-
bílinn hingað til en nú er maður
alltaf í vandræðum. Ég hef ekki
getað notað flugið og verð því
núna að fara til Akureyrar cinu
sinni í viku til að sækja vörur. Og
ég get ekki sagt að ég sé ánægð
með ástandið,“
segir Kristín.
JÓH
Bensínverð lækkað
- smásöluálagning á mjólk hækkar
sjóðs vegna þessa er áætlaður 44
milljónir á árinu.
Þegar söluskatturinn var lagð-
ur á, voru niðurgreiðslur ekki
auknar nema um 8,71 kr. á lítra
en söluskatturinn aflaði ríkissjóði
tekna upp á 9,58 kr. Ríkissjóð-
ur hafði þannig 87 aura í tekjur
og þessari upphæð er nú í raun-
inni verið að skila aftur til
kaupmanna. ET
Meðal
níu bestu
Á fundi verðlagsráðs á föstu-
daginn var tillaga olíufélag-
anna um verðlækkun á bensíni
og svartolíu samþykkt sam-
hljóða. Venjulegt bensín lækk-
ar um 5,3% en svartolía um
14,5%. Þá var á fundinum
ákveðið að hækka smásölu-
álagningu á mjólk.
Eldsneytislækkunin tók gildi á
laugardaginn. Þá lækkaði bensín-
lítrinn úr 33,70 krónum í 31,90
krónur eða um 5,3%. Svart-
olíutonnið kostar eftir lækkun
5900 krónur en kostaði áður
6900, lækkunin er 14,5%.
Þegar söluskattur var lagður á
mjólk og mjólkurvörur, var sölu-
verði mjólkurinnar haldið
óbreyttu með því að auka niður-
greiðslur. Heildsöluverð lækkaði
því en álagningarprósentu kaup-
manna var haldið óbreyttri og
tekjur þeirra af mjólkursölunni
minnkuðu. Á fundinum á föstu-
daginn var ákveðið að hækka
álagninguna aftur í sömu krónu-
tölu frá og með deginum í dag.
Niðurgreiðslur verða liins vegar
enn hækkaðar til að halda sölu-
verði óbreyttu. Kostnaður ríkis-
Með sigri í áttundu einvígis-
skák sinni við Viktor Kortsnoj
á föstudagskvöldið, tókst
Jóhanni Hjartarsyni að tryggja
sér rétt til áframhaldandi
keppni um rétt til að skora
heimsmeistarann á hólm.
Aðrir keppendur í átta manna
úrslitum verða þeir, Timman frá
Hollandi, Short og Speelman frá
Englandi, Jusupov og Karpov frá
Sovétríkjunum, Portisch frá
Ungverjalandi og Spraggett frá
Kanada. ET