Dagur - 12.02.1988, Side 17
12. febrúar 1988 - DAGUR - 17
Rætt við þrjá nemendur í Hrafnagilsskóla:
„Hef áhuga á að fara í
hárgreiðslu eða lyfjafræði
- segir Helga Berglind Hreinsdóttir formaður nemendaráðs
Um 9 km sunnan við Akureyri
er Hrafnagilsskóli, einn af
þessum fáu heimavistarskólum
sem eftir eru á landinu. 84
nemendur eru í skólanum og
þar af 78 á heimavist. Félagslíf
er frekar fjölbreytt þessi fjögur
kvöld vikunnar sem krakkarnir
eru í skólanum þó að íþróttir
séu í miklum meirihluta. A
hverjum fimmtudegi er
skemmtikvöld en önnur kvöld
eru það íþróttirnar og ýmsir
klúbbar. Sjoppa skólans er
opin einu sinni í viku. En
hvernig líkar krökkunum í
skólanum? Nemendur 9.
bekkjar hafa verið í starfs-
kynningu víðs vegar um Akur-
eyri undanfarna viku. Ég fór á
tvo vinnustaði og ræddi við
krakkana um skólann og ýmis-
legt annað.
Helga Berglind Hreinsdóttir er
formaður nemendaráðs skólans.
Hún er einnig í sjoppu- og
skemmtinefnd. Ég tók hana tali.
- Hvernig finnst þér skólinn?
„Yfirleitt alveg ágætur."
- Hvernig líst þér á félagslífið
í skólanum?
„Pað er oftast gott, þó er
stundum ekkert að gera á kvöldin
og þá er ekkert gaman.“
- Hvernig líst þér á samræmdu
prófin?
Ekkí nógu gott
- segja þeir Sigurður og Hreinn
Sigurður Einar Guðbrandsson
og Hreinn Októ Karlsson eru
báðir í starfskynningu í Brauð-
gerð KEA. Ég fór þangað og
ræddi við þá.
- Hvernig finnst ykkur
skólinn?
„Hann er ágætur, greyið.“
- Hvernig finnst ykkur félags-
lífið í skólanum?
„Félagslífið í skólanum? Pað
er ekki nógu gott, það gæti verið
betra.“
- Hvernig líst ykkur svo á
samræmdu prófin?
Sig.: „Ágætlcga, annars er ég
hálfhræddur um að falla!“
Hr.: „Mér líst alveg ágætlega á
þau.“
- Hvað ætliði að gera eftir 9.
bekk?
Sig.: „Ég ætla í VMA á við-
skiptabraut. Eða kannski fer ég í
bakaranám.“
Hr.: „Það er ekki alveg ákveð-
ið. Sennilega fer ég í MA.“
- Hvernig er að vera í starfs-
kynningu? Hvað eru þið að gera?
„Það er rosalega gaman! Við
bökum, búum til deig og troðum
því í vélarnar, búum til kringlur,
rúnstykki, hafrakex og alls konar
drasl!“
- Gætiði hugsað ykkur að
vinna við þetta í framtíðinni?
„Já, já! Það er bara svolítið
erfitt að þurfa að vakna svona
snemma á morgnana. Maður þarf
að vakna klukkan hálf fimm!“
- Finnst ykkur starfskynning
eiga rétt á sér?
„Já! Okkur finnst alveg nauð-
synlegt að krakkar kynni sér
atvinnumarkaðinn áður en þeir
eru búnir í skóla!“
Samið af Björgu Birgis. 9. bckk llrafnagilsskóla
sem var í starfskynningu á Dcgi dagana 1., 3. og
4. febrúar.
„Ég er alveg skíthrædd! Nei,
og þó. Maður á alveg að geta
þetta. Ég er bjartsýn þó að ég
geri örugglega fullt af klaufavill-
um.“
- Hvað ætlarðu að gera eftir 9.
bekk?
„Fara í Menntaskólann og
klára hann. Sjá svo til. Ég hef
áhuga á að fara í hárgreiðslu eða
lyfjafræði, eitthvað í sambandi
við eðlis- og efnafræði. Annars er
ég óákveðin."
- Nú ert þú búin að vera í
starfskynningu þessa viku.
Hvernig er það og hvað gerirðu?
„Pað er fínt, tilbreyting frá
skólanum. Gott að þurfa ekki að
læra heima. Ég er í Stjörnu-
apóteki. Ég fylgist með, lími
varúðarmiða á meðalaglös sem
ég raða svo upp í hillur og vigta
súrdoðaskammta fyrir kýr (hlær).
Ég hef líka verið að afgreiða. Pað
er nú meira vesenið! Eg veit ekki
hvar neitt er og þarf alltaf að vera
að spyrja.“
- Gætirðu hugsað þér að vinna
Helga Berglind. „Vigta súrdoðaskammta fyrir kýr!“
við þetta í framtíðinni?
„Pað fer eftir því hvort ég læri
lyfjafræði eða ekki. Það fer líka
eftir því hvað maður er hátt sett-
ur og hvort maður ræður sér
sjálfur!“
Sigurður og Hreinn. „Alveg rosalega gaman!“
vísnaþátfur
Myndarleg kona skildi eftir glas af
víni og ætlaðist til launa í ljóði.
Sundurlaust er samlíf vort,
það sést á fasi.
Ég get svo sem ekkert ort
af einu glasi.
Afmælisvísa:
Ævin tifar áfram greitt,
illa er tíma varið.
Núna hefur ennþá eitt
ár í súginn farið.
Séra Sigurður Norðland í Hindisvík
kvað þessa sléttubandavísu um
Strandarkirkju:
Dauða sanda andar á
auðug Strandarkirkja.
Snauða landið höldar hjá
hauðurs bandi yrkja.
Jósef S. Húnfjörð orti er hann kom
að Strönd í Þjórsárdal.
Hugann næra fornhelg föng
forna æru að kynna.
Gildan mæring Gauk á Stöng
gaman væri að finna.
í skálatóftinni:
Segir fátt af feigra val
forni ættarlaukur.
Hér í þínum höfðingssal
heilsa ég þér Gaukur.
ísleifur Gíslason kvað svo um
útvarpstækið sitt:
Oft ég fremdi axarskaft
eða missti affregnum
hefði ég ekki hjálparkjaft
hangandi á veggnum.
Baldur á Ófeigsstöðum var þjóð-
kunnur maður, gamansamur og
hagmæltur. Svo bar við að hann
eignaðist dótturdóttur. Þá kvað
hann:
Á föstudaginn fæddist lamb.
Fagrar vonir rættust.
Við Ófeigsstaða ættardramb
ellefu merkur bættust.
Á sameiginlegu gleðimóti Suður-
og Norður-Þingeyinga er haldið var
fyrir alllöngu, flugu vísur yfir borð
og kom til mannjafnaðar. Sagt var
mér að Baldur hefði ort síðustu vís-
una er hljóðaði svo:
Ef þeir rétta úr kuldakeng
og kvefið ekki þvingar
okkur ná í naflastreng
Norður-Þingeyingar.
Heiðrekur Guðmundsson skáld kom
sem gestur að Ófeigsstöðum. Er
hann hélt úr hlaði kvað hann:
Aldrei framar ek ég hjá
Ófeigsstaða bænum.
Heyrast þaðan heiman frá
hendingar í blænum.
Þá koma gamlir húsgangar birtir til
gamans og án ábyrgðar hvað höf-
unda snertir.
Magnús raular, músin tístir,
malar kötturinn.
Kýrin baular, kuldinn nístir,
kumrar hrúturinn.
Ég er að meina héma sko
að vera ei með neinu rugli.
Ég er að reyna að drepa tvo
steina með einum fugli.
Daglega að mér drífur mjöll,
digna ég gjaman þerrður.
En þegar ég kem í himnahöll
hríðar upprof verður.
Jón
Bjarnason
frá Garðsvík
skrifar
Næst kemur eins konar sálmur.
Heimagerður.
Hvar á hrjóstri blóm og blað
berst við erfiðleika
trúin býður okkur að
annast reyrinn veika.
Ætlir þú í illri vist
eld að húsum bera
hugsaðu um herran Krist,
hvað hann myndi gera.
Reka illt með illu frá
engum tekist hefur
því að grimmum heimi hjá
hefndin um sig grefur.
Sæmra væri sáttahönd
sína fram að rétta,
góðu sá í lundarlönd
langrækni og pretta. '