Dagur - 15.02.1988, Qupperneq 7
15. februar 1988 - DAGUR,- 7
Visa-bikarmót SKÍ:
Tvöfaldur sigur
Önnu Maríu
Visa-bikarmót SKÍ í alpagrein-
um í flokki fullorðinna fór fram
í Hlíðarfjalli um helgina. Á
laugardag var keppt í svigi en í
stórsvigi í gær. Mótið átti að
fara fram á Siglufirði og var
Isafjörður varakeppnisstaður.
Þar sem ekki var hægt að
halda mótið á þessum stöðum,
vegna slæmra skilyrða, var það
flutt til Akureyrar.
Erfiðlega gekk að halda mótið
í Hlíðarfjalli og þá sérstaklega í
gær, vegna hvassviðris en það
tókst þó að lokum. Heimamenn
voru mjög sigursælir og hirtu öll
verðlaunin nema tvenn. Anna
María Malmquist frá Akureyri
sigraði bæði í svigi og stórsvigi en
þeir Örnólfur Valdimarsson úr
Reykjavík og Valdemar Valde-
marsson frá Akureyri sigruðu í
svigi og stórsvigi. Annars urðu
úrslit þessi:
Svig kvenna:
1. Anna María Malmquist A 1:54,25
2. Kristín Jóhannsdóttir A 2:00,95
Svig karla:
1. Ornólfur Valdimarsson ÍR 1:55,66
2. Kristinn Svanbergsson A 1:59,27
3. Ingólfur Gíslason A . 2:00,85
Stórsvig kvenna:
1. Anna María Malmquist A 2:08,63
2. Bryndís Ýr Viggósdóttir A 2:09,14
3. Ingigerður Júlíusdóttir D 2:14,68
Stórsvig karla:
1. Valdemar Valdemarsson A 2:04,05
2. Ingólfur Gíslason A 2:06,52
3. Rúnar Ingi Kristjánsson A 2:08,96
Fjarðargöngunni frestað
Fjarðargöngunni sem vera átti í
Ólafsfirði á laugardag, var frest-
að vegna þess að ófært var á
mótsstað.
Anna María Malmquist sigraði bæði í svigi og stórsvigi um helgina. Mynd: ehb
Úrvalsdeildin í körfubolta:
Þór litil hindrun
Valdemar Valdemarsson sigraði í stórsvigi á Visa-bikarmótinu um helgina.
Mynd: EHB
fyrir Njarðvíkinga
Það var eins og við mátti búast
að Þórsarar höfðu ekki mikið
að gera í Islandsmeistara
Njarðvíkur á heimavelli þeirra
síðarnefndu. Njarðvíkingar
gátu leyft sér þann munað að
láta varalið sitt spila bróður-
partinn af leiknum en sigra
samt örugglcga 91:69.
Strax frá byrjun var greinilegt
að Þórsliðið bar of mikla virðingu
fyrir andstæðingum sínum og
trúði því ekki að það gæti sigrað í
leiknum. Mikið var um klaufa-
lega mistök hjá þeim og niá sjálf-
sagt rekja það til taugaóstyrkni
Þýski handboltinn:
Obreytt a toppnum
- Dusseldorf og Gummersbach geröu jafntefli
og einnig Essen og Kiel
Engin breyting varð á toppn- 6:6. í seinni hálfleik leiddi
Gummersbach með þetta einu til
um í vestur-þýsku úrvalsdeild-
inni í handbolta að loknum
leikjum helgarinnar. Tveir
hörkuleikir fóru fram í gær og
varð jafntefli í þeim báðum.
Dússeldorf og Gummersbach
gerðu jafntefli 16:16 og í leik
Essen og Kiel urðu úrslitin
25:25.
Leikur Dússeldorf og Gum-
mersbach var mjög harður og
hörkuspennandi. Bæði liðin
sýndu mjög góðan varnarleik og
þá var markvarslan einnig mjög
góð. í hálfleik var staðan jöfn
tveimur mörkum þar til um 10
mínútur voru til leiksloka. Þá
náði Dússeldorf að jafna 13:13 og
komast yfir 14:13. Liðin skiptust
síðan á um að hafa forystu til
leiksloka en þegar leiktíminn var
úti, var staðan jöfn 16:16. Dússel-
dorf var með boltann síðustu
tvær mínútunar en tókst ekki að
koma boltanum í netið hjá
Gummersbach.
Páll Ólafsson lék vcl með
Dússeldorf og skoraði 2 mörk.
Kristján Arason stóð einnig fyrir
sínu í liði Gummersbach og skor-
aði 3 mörk.
Hinn stórleikur umferðinnar
var viðureign Essen og Kiel og
lauk honum einnig með jafntefli,
25:25. Staða efstu liða hefur því
ekkert breyst og á þessu stigi er
ómögulegt að spá í það hvaða lið
hreppir meistaratitilinn. Gum-
mersbach, Kiel og Dússeldorf
eru jöfn að stigum í efsta sætinu
en Gummersbach hefur besta
markahlutfallið. Essen lið
Alíreðs Gíslasonar er síðan í
fjórða sæti. Lemgo lið Sigurður
Sveinssonar er í áttunda sæti en
lék ekki um helgina.
og virðingar fyrir andstæðingun-
um. Ekki er hægt að segja að
leikurinn hafi verið vel spilaður,
en þó brá fyrir á milli skemmti-
legu samspili og fallegum
körfum.
Sturla Örlygsson og Árni
Lárusson voru fjarri góðu gamni
hjá Njarðvíkingum en það kom
ekki að sök, því mótstaða Þórs-
ara var ekki mikil. Að vanda var
Valur Ingimundarson bestur hjá
Suðurnesjamönnunum og áttu
þeir rauðklæddu oft í mestu erf-
iðleikum með að stöðva hann.
Annars er Njarðvíkurliðið skipað
jöfnum einstaklingum og er það
líklegast sterkasta hlið íslands-
meistaranna, þ.e. að enginn er
ómissandi í liðinu.
Þórsliðið náði sér ekki á strik í
þessum leik og mætti það ofjörl-
um sínum í þetta skiptið. Jóhann
Sigurðsson var einna bestur og
skoraði fallegar körfur. Bjarni
Össurarson og Konráö Óskars-
son áttu eitinig þokkalegan leik.
en í heild liefur liðið oft leikið
betur.
Stig Þórs: Jóhann Sigurðsson
16, Konráð Óskarsson 13, Jón
Héðinsson 12, Eiríkur Sigurðs-
son 10, Bjarni Össurarson 10,
Björn Sveinsson 6, Ágúst Guð-
mundsson 2.
Stig UMFN: Valur lngimund-
arson 24, Hrciðar Hreiðarsson
17, Helgi Rafnsson 13, Teitur
Örlygsson 11, Friörik Ragnars-
son 6, Ellert Magnússon 5,
Jóhann Sigurðsson 4, ísak
Tómasson 4. AP
Bjarni Össurarson og félagar í Þór hittu fyrir ofjarla sína í Njarðvíkum á
föstudagskvöld.