Dagur - 15.02.1988, Side 10
10 - DAGUR - 15 febrúar 1988
íþróttir
Enska knattspyrnan:
Man. Utd. að komast á skrið
- en ekkert stöðvar Liverpool - Óvænt hjá Norwich gegn Newcastle
Aðstæöur til að leika knatt-
spyrnu á Vicarage Road í Wat-
ford á laugardaginn voru væg-
ast sagt lélegar, völlurinn
furðuleg blanda af leðju, vatni,
sandi og einstaka grastoppur
þar á milli. En leikmenn
Liverpool sem mættu heima-
mönnum létu það ekkert á sig
fá og þrátt fyrir hinar slæniu
aðstæður léku leikmenn liðsins
mjög góða knattspyrnu. Peter
Beardsley átti sérlega góðan
leik, ásamt John Barnes sem
var fagnað innilega af áhorf-
endum sem fylltu leikvanginn
og kunnu vel að meta þessa
fyrrverandi hetju sína. Ray
Houghton, Steve McMahon og
Nigel Spackman héldu öllum
völdum á miðjunni út leikinn
og Watford sem ekki hafði tap-
að leik síðan Steve Harrison
tók við sem framkvæmdastjóri
átti ekki möguleika í leiknum,
þrátt fyrir að leikmcnn liðsins
fengju sín marktækifæri.
Á 29. mín. tók Liverpool for-
ystu, Beardsley lék lagiega á Wilf
Rostron bakvörð Wattord og
sendi boltann í netið. Þrátt fyrir að
Watford léki undan vindi og
regni í síðari hálfleik hélt Liver-
pool sömu yfirburðum og á 48.
mín. bætti John Aldridge við
öðru marki Liverpool eftir send-
ingu frá Houghton. Tveim mín.
síðar gerði Beardsley þriðja
mark liðsins eftir einleik og á 60.
mín. gerði Barnes fjórða markið
upp á eigin spýtur. Luther Blissett
skoraði eina mark Watford 15
mín. fyrir leikslok.
Manchester Utd. fylgir í
humátt á eftir Liverpool í topp-
baráttunni, en það er 12 stiga
munur á liðunum. Tvö mörk
Utd. á tveim mín. í upphafi síð-
ari hálfleiks dugðu liðinu til
sigurs á útivelli gegn Chelsea.
Steve Bruce skoraði fyrra markið
er boltinn barst til hans er bjarg-
að var á línu frá Viv Anderson og
Liarn O’Brien bætti síðara mark-
inu við eftir undirbúning Brian
McClair. Liðið lék af krafti og
leikmenn virtust ákveðnir að láta
ekki sigurinn af hendi, en Chelsea
átti betra skilið í leiknum, þeir
hefðu hæglega getað skorað fjög-
ur mörk í leiknum, en urðu að
láta eitt nægja rétt í lokin. Vara-
maðurinn Colin West skoraði
markið eftir aukaspyrnu Tony
Dorrigo, en óheppnin hefur elt
Chelsea í vetur og liðið þarf að
taka sig verulega á ef falldraugur-
inn á ekki að ríða húsum þar í
vor.
Bobby Robson landsliðsein-
valdur Englendinga sá leik Sout-
hampton og Nottingham For.
sem fram fór í drullusvaði sem
gerði leikmönnum ómögulegt að
leika almennilega knattspyrnu.
Miðvörður Forest, Des Walker
sem var undir smásjá Robson átti
mjög góðan leik og hélt Danny
Wallace algerlega niðri. Pví er nú
spáð að Walker taki stöðu Terry
Butcher í enska landsliðinu.
Southampton hóf leikinn betur
og markvörður Forest. Steve
Sutton varði mjög vel frá Andy
Townsend áður en liðið náði for-
ystu á 31. mín. með marki Colin
Clarke úr vítaspyrnu eftir brot
Stuart Pearce. En framkvæmda-
stjóri Forest, Brian Clough brosti
þó að nýju er sonur hans Nigel
jafnaði í lok fyrri hálfleiks hans
17. mark í vetur. Clough var ekki
ánægður fyrr í vikunni er stjórn
félagsins neitaði honum um leyfi
til að taka við framkvæmda-
stjórastöðunni hjá landsliði
Wales jafnframt því að stjórna
Forest. Ekki er þó talið að
Clough yfirgefi félagið, heldur
láti nægja að senda stjórnar-
mönnum Forest tóninn f gegnum
dagblöðin. Southampton fékk
dauðafæri í lok leiksins, en
Clarke brenndi af og liðin sættust
á jafntefli.
Everton lék sinn 13. leik síðan á
nýársdag um helgina og þrátt
fyrir mikið álag á liðið vegna
fjölda bikarleikja tókst leik-
mönnum að leggja Q-P.R. að
velli á heimavelli sínum. Á 39.
mín. tók heimaliðið forystu, Paul
Power tók hornspyrnu sem sner-
ist inn að marki Q.P.R. þar sem
Paul Parker reyndi að hreinsa
frá, en tókst ekki betur en svo að
hann þrumaði knettinum í eigið
mark. Yfirburðir Everton voru
miklir, en upp við mark and-
stæðinganna á liðið í erfiðleikum.
Eina tækifæri Q.P.R. kom á 63.
mín., en Neville Southall mark-
vörður Everton varði glæsilega
frá Martin Allen. Sex mín. síðar
gerði Everton út um leikinn en
bakvörðurinn Neil Pointon
skrapp fram í sóknina og skoraði.
Trevor Steven meiddist eitthvað í
leiknum og talið vafasamt að
hann geti leikið með enska
landsliðinu í vikunni, en Everton
leikur um næstu helgi gegn
Liverpool í FA-bikarnum og þar
verður örugglega hart barist.
Arsenal og Luton mættust á
heimávelli Arsenal, en miklar
líkur eru á því að þessi lið muni
Jeika til úrslita um deildabik-
arinn í vor. Arsenal vann
fyrri leikinn gegn Everton og
Luton hélt jöfnu í útileik sínum
gegn Oxford í vikunni. En á laug-
ardag hafði Arsenal umtalsverða
yfirburði gegn Luton þrátt fyrir
nauman sigur. Bakvörðurinn Lee
Dixon sem Arsenal keypti nýlega
frá Stoke City lék sinn fyrsta leik
með liðinu og stóð sig mjög vel.
Arsenal skoraði tvívegis á fyrstu
sex mín. leiksins, fyrst Mike
Thomas með skalla eftir mistök í
vörn Luton og síðan David
Rocastle sem fékk sendingu inn
fyrir vörn Luton frá David
O’Leary. Mark Stein skoraði
mark Luton á síðustu mín. leiks-
ins.
Óvænt úrslit urðu í leik New-
castle gegn Norwich þar sem
heimaliðið tapaði 1:3 og Norwich
lék mjög vel, þó enginn betur en
útherjinn Ruel Fox sem var óvið-
ráðanlegur í leiknum. Fox lagði
upp fyrsta inarkið strax eftir 16
sek. fyrir Robert Fleck og þrátt
fyrir að Paul Gascoigne langbesti
maður Newcastle næði að jafna
með fallegu marki á 20. mín.
tókst heimamönnum ekki að ná
tökum á leiknum. Ekki hafði síð-
ari hálfleikur staðið lengi er Fox
lék á tvo varnarmenn Newcastle,
scndi síðan fyrir markið þar scm
Fleck var mættur og skoraði af
öryggi. Sex mín. fyrir leikslok
kom síðan þriðja markið, Dale
Gordon lék vörn Newcastle grátt
áður en hann vippaði boltanum
yfir markvörðinn, en Kevin
Drinkell náði þó af honum mark-
inu er hann hjálpaði boltanum
yfir marklínuna.
Coventry vann sinn fyrsta sigur
í deildinni síðan fyrir jól. David
Phillips skoraði fyrsta markið og
síðan bætti David Bennett við
tveim mörkum í 3:0 sigri liðsins á
Sheff. Wed.
Portsmouth á nú í alvarlegum
fjárhagsvanda og gjaldþrot jafn-
vel yfirvofandi. Liðið náði þó í
stig á útivelli gegn West Ham,
Tony Cottee náði forystunni fyrir
West Ham, en Tcrry Connor
jafnaði fyrir Portsmouth, bæði
mörkin skoruð í síðari hálfleik og
bæði liðin fengu tækifæri til að
bæta við mörkum.
Charlton náði forystu á heima-
velli gegn Wimbledon með marki
Mark Reid úr vítaspyrnu, en
Terry Gibson náði að jafna leik-
inn fyrir Wimbledon.
Oxford og Tottenham skildu
jöfn í markalausum leik og
Tottenham heldur því áfram að
valda sínum mörgu fylgismönn-
um vonbrigðum.
I 2. deild tapaði Crystal Palace
óvænt á útivelli gegn W.B.A.
Don Goodman skoraði eina
mark leiksins 20 mín. fyrir leiks-
lok, en Palace sótti látlaust nær
Mike Thomas skoraði fyrra mark
Arsenal gegn Luton með skalla.
allan tímann en fór illa með
fjölda tækifæra og markvörður
Álbion, Peter Hucker sem er þar
í láni frá Oxford varði frábærlega
vel.
Blackburn heldur öðru sætinu,
sigraði Barnsley á útivelli, Scott
Sellars skoraði eina mark leiks-
ins.
Bradford sigraði Oldham í
miklum markaleik 5:3. John
Hendrie skoraði þrjú af mörkum
Bradford.
Millwall sigraði Reading 3:2
eftir að hafa verið undir 1:2.
Teddy Sherringham gerði tvö af
mörkum Millwall.
Manchester City sigraði í sín-
um fyrsta deildarleik á árinu.
Mörk frá Imre Varadi og Paul
Stewart dugðu gegn Bourne-:
mouth.
Leicester sigraði Leeds Utd. í
mjög fjörugum leik, Gary McAll-
ister skoraði tvö af mörkum Leic-
ester, en niörk Leeds Utd. gerðu
Gary Williams, fyrsta mark leiks-
ins, og John Sheridan úr víti.
Leikur Middlesbrough og
Aston Villa var leikinn á sunnu-
daginn. Tony Daley náði forystu
l'yrir Aston Villa í fyrri hálfleik
og allt leit út fyrir að Villa sigraði
í sínum 12. leik á útivelli, þegar
Bruce Rioch framkvæmdastjóri
Boro skipti báðum varamönnum
sínum inn og annar þeirra, Alan
Kernaghan jafnaði á 81. mín. og
þrem mín. síðar skoraði mið-
vörðurinn Tony Mowbray sigur-
mark liðsins.
Á toppi 3. deildar er Sunder-
land með 63 stig, Notts County
60. Á botninum eru Doncaster
með 27 stig og York City með 15
stig.
I 4. deild er Wolves í efsta sæti
með 57 stig og Cardiff City 54
stig, en á botninum eru Stockport
með 29 stig og Newport með 19
stig.
Scarborough sem kom inn í 4.
deildina í fyrra á í miklum fjár-
hagskröggum og forystumenn
félagsins efast um að það hafi
verið félaginu til góðs að komast
upp í deildina. Liðið náði þó góð-
um úrslitum á laugardag á útvelli
gegn Leyton Orient. Orient var
yfir 2:0, en Scarborough var ekki
búið og skoraði þrjú mörk á síð-
ustu fjórum mín. leiksins og sigr-
aði.
Brian McClair lagði upp síðara mark Man. Utd. í leiknum gegn Chelsea.
Knatt-
spymu-
úrslit
Úrslit leikja í 1. ug 2. deild
ensku knattspyrnunnar um
helgina urðu þessi:
1. dcild:
Arsenal-Luton 2:1
Charlton-Wimbledon 1:1
Chelsea-Man.United 1:2
Coventry-Sheff.Wed. 3:0
Everton-Q.P.R. 2:0
Newcastle-Norwich 1:3
Oxford-Tottenhain 0:0
Southampton-Nott.Forest 1:1
Watford-Liverpool 1:4
West Ham-Portsmouth 1:1
2. deild:
Barnsley-Blackburn 0:1
Bradford-Oldham 5:3
Huddersfield-Swindon 0:3
Hull-Stoke 0:0
Ipswich-Plymouth 1:2
Leicester-Leeds 3:2
Man.City-Bournemouth 2:0
Middlesbro-Aston Villa 2:1
Reading-Millwall 2:3
Sheff.Utd.-Shrewsbury 0:1
W.B.A.-C.Palace 1:0
Getraunaröðin er þessi:
Ix2-12x-x2x-211
Staðan
1. deild
Liverpool 26 20- 6- 0 63:12 66
Man.United 28 15- 9- 4 43:27 54
Nottm.Forest 26 14- 7- 5 50:24 49
Everton 26 13- 7- 6 38:16 46
Arscnal 27 13- 6- 8 39:26 45
Q.P.R. 27 12- 7- 8 32:30 43
Wimbledon 27 11- 9- 7 40:31 42
Luton 26 11- 5-10 40:32 38
Sheff.Wed. 27 11- 4-12 33:42 37
Tottenham 27 9- 7-11 26:31 34
Southampton 27 8- 9-10 35:39 33
Newcastle 26 8- 9- 9 31:38 33
West Ham 27 7-11- 9 29:35 32
Chelsea 28 8- 7-13 34:47 31
Portsmouth 28 6-12- 10 27:44 30
Norwich 27 8- 5-14 26:34 29
Coventry 25 7- 7-11 27:39 28
Derby 25 6- 6-13 22:32 24
Oxford 26 6- 6-14 32:53 24
Watford 27 5- 8-14 18:36 23
Charlton 27 4- 9-14 24:41 21
Staðan
2. deild
Aston Villa 32 17- 10- 5 51:27 61
Blackburn 31 17- 9- 5 45:28 60
Middlesbro 31 16- 8- 7 43:25 56
C.Palace 32 17- 4-11 66:48 55
Millwall 32 17- 4-11 52:40 55
Bradford 30 16- 6- 8 48:38 54
Leeds 32 14- 8-10 45:41 50
Hull 30 13- 10- 7 43:40 49
Ipswich 31 13- 7-11 40:31 46
Man.City 31 13- 7-12 60:45 45
Swindon 28 13- 6- 9 52:37 45
Stoke 31 12- 7-12 38:40 43
Plvmouth 30 12- 6-12 48:46 42
OÍdhani 31 11- 7-13 42:45 40
Barnsley 28 11- 6-11 42:37 39
Birmingham 31 10- 8-13 31:48 38
Bournem. 30 9- 7-14 43:49 34
W.B.A 32 9- 5-18 36:54 32
Leicester . 30 8- 7-15 39:46 31
Sheff.Utd. 31 8- 6-17 32:53 30
Shrewsbury 32 6- 11-15 27:42 29
Reading 30 6- 6-18 34:55 25
Huddersf. 30 4- 8-18 31:71 20
Þ.L.A.