Dagur - 15.02.1988, Page 15
15. febrúar 1988 - DAGUR -15
Minning:
T Sæmundur Dúason
Fæddur 10. nóvember 1889 - Dáinn 4. febrúar 1988
Sæmundur Dúason, afi minn er
dáinn. 98 ára varð hann 10.
nóvember sl. Margt hefur drifið á
daga manns sem náði svo háum
aldri. Ég er ekki þess megnug að
geta rakið þá sögu, enda er það
ekki ætlunin. Fyrsta minning mín
af afa var þegar ég fékk að vera
hjá honum og ömmu, Guðrúnu
Þorláksdóttur í Grímsey. Hann
var kennari þar í 10 ár. Þá var ég
bara lítil stelpa, og þótti mér
mikið ævintýri að fá að dvelja hjá
þeim. Afi útbjó sérstakt rúm-
stæði handa mér í einu horninu á
herberginu þeirra. Það var eins
og lítill bás, bara fyrir mig. Svo
smíðaði hann litla hrífu, sem
passaði mér. Mér fannst ég vera
lítil prinsessa. Þetta var góður og
skemmtilegur tími. Síðan fluttu
þau til Siglufjarðar. Þar áttu
mamma og pabbi og við systkinin
heima. Afi fór að kenna við
barnaskólann þar. Ófáar ferðirn-
ar fór ég út í Bakka í hvernig
veðri sem var. Það var í lagi ef ég
komst þangað, því afi fylgdi mér
heim. Það vissi ég. Eftir að ég
flutti til Akureyrar með foreldr-
unt mínum 1953 fór ég á hverju
sumri til þeirra á meðan þau
bjuggu þar. 1959 fluttu þau til
Reykjavíkur og dvöldu þar til
ársins 1965 að þau fluttu til Akur-
eyrar og bjuggu með móður
minni Mögnu eftir það. Það var
mikið lán fyrir okkur að fá að
vera samvistum við þau. Afi var
mikill kennari og heill hafsjór af
fróðleik. Þegar við þurftum að
vita eitthvað þá var farið til afa.
Við höfðum þá trú að hann vissi
allt. Við kölluðum hann alfræði-
bókina okkar. Það brást heldur
ekki, en oft sagði hann ef hann
var ekki alveg viss „mig minnir",
svo kom svarið. Við gátum alltaf
treyst því að það væri rétt.
íslenskumaður var afi mikill og
þeir sem lærðu íslensku hjá hon-
um voru vel í stakk búnir í þeim
efnum. Börnin mín áttu því láni
að fagna að fá að vera honum
samtíða. Og öllum þótti svo vænt
um langafa. Margan fróðleik
sóttu þau til hans sem seint
gleymist. Hann fór með heilu
Ijóðabálkana fyrir okkur án þess
að hika þegar hann var 97 ára.
Mörg heilræðin gaf hann okkur í
veganesti. Eitt sinn sagði hann
við mig þegar honum þótti ég
heldur fljót að svara í bræði:
„Margrét frænka, lokaðu
munninum og teldu hægt upp að
tíu í huganum. Ef þig langar að
segja sömu orðin eftir það, þá
segðu þau.“ Oftar en ekki var
mesta reiðin runnin af og þá
sagði maður eitthvað allt annað
en í upphafi var ætlað. Sjálfur var
hann ákaflega varkár í orðum og
hugsaði áður en hann talaði.
Minningin um góðan afa mun
fylgja okkur. Hann náði ekki að
verða 100 ára eins og hann sagð-
ist alltaf ætla að verða. Nú er
hann búinn að hitta ömmu aftur.
Hún lést 13. maí 1980. Tveim
dögum áður, eða 11. maí höfðu
þau verið gift í 70 ár. Ég veit að
hún hefur tekið vel á móti
Sæmundi sínum. Þegar dóttir
mín sagði syni sínum 4 ára að
langilangi væri dáinn, þá sagði
hann: „Þá er hann kominn til
Guðs.“ Svo hrein og sannfærandi
er barnstrúin. í þeirri trú kveð ég
þig afi minn og þakka þér fyrir
allt.
Margrét Emilsdóttir.
Veggspjald
frá Umferð-
arráði
„Náum fótfestu í hálkunni"
Umferðarráð hefur látið gera
veggspjald til að vekja athygli á
slysahættu gangandi fólks í
vetrarfærð og fáanlegan búnað til
þess að koma í veg fyrir slys í
hálku.
Samkvæmt niðurstöðum
könnunar sem Grétar O.
Róbertsson læknir og prófessor
Gunnar Þór Jónsson yfirlæknir á
slysadeild Borgarspítalans gerðu,
er rosknu vinnufæru fólki hættast
í hálku. Athugunin spannar árin
1985 og 1986 og voru framhand-
leggsbrot sérstaklega könnuð.
Vegna beinþynningar er roskn-
um konum hættara en öðrum í
þessum efnum og brotna þær oft
eftir fremur lítið fall.
Umferðarráð hvetur fólk til að
sýna aðgæslu í vetrarumferð,
hvort sem það er akandi eða
gangandi og að nota öryggisbún-
að sem hæfir ferðum á þessum
árstíma.
Ferðu stundum
á hausinn?
Fullorðnum er hættara við slysum
en ungu fólki.
Sérstaklega er rosknum konum,
vegna beinþynningar,
h»tt vift hfiinhrntiim.
negldum
getum við verið nokkuð
„svellköld“..
en - FORUM ÞO VARLEGA!
Hundruð gangandi manna
slasast árlega í hálkuslysum.
Hvemig værí
að heimsækja
skósmiðinn
strax!
| UMFERÐAR
'RÁÐ
•m Laus staða
Starf fjármálastjóra (rekstrarstjóra) við Kennaraháskóla
íslands er laust til umsóknar. Fjármálastjóra er ætlað að hafa
i umboði rektors og skólaráðs umsjón með gerð fjárhags-
áætlana, rekstri og fjármálum skólans.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir með ýtarlegum upplýsingum um námsferil og störf
skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Flverfisgötu 6,150
Reykjavík, fyrir 7. mars nk.
Menntamálaráðuneytið, 8. febrúar 1988.
Laus
Staða kennslustjóra í uppeldis- og kennslufræðum
við félagsvísindadeild Háskóla íslands er laus til
umsóknar.
í starfinu felast eftirtaldir þættir:
1. Umsjón æfingakennslu og kennslu sem henni tengist.
2. Skipulagning endurmenntunar framhaldsskólakennara í
uppeldis- og kennslufræðum.
3. Samvinna um kennaramenntun við aðrar deildir háskól-
ans og við grunnskóla og framhaldsskóla.
4. Önnur verkefni sem félagsvísindadeild kann að ákveða
vegna menntunar og starfsþjálfunar kennara.
Áskiliö er að umsækjandi hafi full kennsluréttindi á fram-
haldsskólastigi og a.m.k. fimm ára starfsreynslu sem kennari
í framhaldsskóla eða grunnskóla.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt rækilegri greinargerð um námsferil,
kennslu og önnur störf skulu sendar menntamálaráðuneyt-
inu, Flverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 10. mars nk.
Menntamálaráðuneytið, 8. febrúar 1988.
Sjukraliöar
Laus er til umsóknar staða sjúkraliða á sjúkra- og
ellideild Flornbrekku í Ólafsfirði.
Umsóknum skal skila á bæjarskrifstofuna Ólafsvegi
4, Ólafsfirði, fyrir 25. febrúar nk.
Nánari upplýsingar veita eftirtalin:
Formaður stjórnar í síma 96-62151.
Forstöðumaður Hornbrekku í síma 96-62480.
Hjúkrunarforstjóri Hornbrekku í síma 96-62480.
Matsveinn!
Matsvein vantar á togarann Rauðanúp frá Raufar-
höfn.
Upplýsingar í síma 96-51200 og á kvöldin og helgar
í símum 96-51296 eða 96-51212.
I FRAMSÓKNARMENN 1
AKUREYRI
Bæjarmálafundur
verður að Hafnarstræti 90 mánud. 15. febrúar
kl. 20.30. Fjárhagsáætlun bæjarins 1988.
Fulltrúar í nefndum beðnir að mæta.
Ert þú áskrifandi?
Dagur Akureyri, sími 96-24222
Dagur Húsavík, sími 96-41585
Dagur Reykjavík, sími 91-17450
Dagur Sauðárkróki, sími 95-5960
Dagur Blönduósi, sími 95-4070
Skílið getraunaseðlinum fyrir
janúar sem fyrst
Einungis skuldlausir áskrifendur
geta tekið þátt í getrauninni.