Dagur - 21.03.1988, Page 5

Dagur - 21.03.1988, Page 5
 21. mars 1988 - DAGUR - 5 „Gaman, Lcikklúbburinn Saga: Grænjaxlar Höfundur: Pélur Gunnarsson Tónlisl: Spilverk þjóöanna Lcikstjóri: Arnheiöur Ingimundardóttir Hönnun Iýsingar: Skúli Gautason Ljósamaður: Magnús S. Sigurólason Leikklúbburinn Saga á Akur- eyri er fyrir löngu búinn að festa sig í sessi sem atorkusamt áhugaleikfélag. Unglingastimp- illinn er að mestu horfinn því þó að meðlimir klúbbsins séu flestir um eða innan við tvítugt þá hefur Saga sýnt það með vönduðum uppfærslum að hér er alvöru leikfélag á ferðinni sem höfðar ekki eingöngu til áhorfenda af yngri kynslóð- inni. Vissulega snýst verkefnaval leikklúbbsins að mestu um ungl- ingana, enda er þessum stóra þjóðfélagshópi lítið sinnt sérstak- lega af öðrum leikfélögum á Norðurlandi. Síðastliðið fimmtu- dagskvöld frumsýndi Saga leikrit- ið „Grænjaxla" eftir Pétur Gunn- arsson. Þetta leikrit er árangur af samvinnu Péturs Gunnarssonar, Þórhalls Sigurðssonar, Helgu Jónsdóttur, Sigmundar Arnar Arngrímssonar, Þórunnar Sig- urðardóttur, Stefáns Baldursson- ar, Spilverks þjóðanna og ungl- inga á skemmtistöðum og í skól- um í Reykjavík. Útkoman var frumsýnd haustið 1977. Skemmst er frá því að segja að sýning Leikklúbbsins Sögu var geypilega kröftug og skemmtileg. Leikgleðin geislaði af leikendum og áhorfendur hrifust með og skemmtu sér konunglega. Samt var hér ekki um „hefðbundinn“ áhorfendahóp að ræða, því lítið var um unglinga í hópi boðs- gesta, en viðbrögð áhorfenda sýndu glögglega að þetta sniðuga leikrit á erindi til fólks á öllum aldri, segjum frá 12 ára og upp úr. Arnheiður Ingimundardóttir er með úrvals efni í höndunum til að stíga sín fyrstu spor sem leik- stjóri. Pétur Gunnarsson tilheyrir rithöfundum af „fyndnu kynslóð- inni“ og ekki að ástæðulausu. Spilverk þjóðanna var ein skemmtilegasta hljómsveit sem fslendingar hafa átt og það var mikill fengur að fá leyfi til flutn- ings á lögum hljómsveitarinnar, s.s. „Arinbjarnarson“ og „Söng- ur skýjanna“. Pá eru leikendur hjá Sögu búnir að öðlast tölu- verða reynslu, þetta er góður hópur og útkoman verður góð sýning. í leikritinu fylgjumst við með Kára, Dóra, Grétu og Láru frá leikskólaaldri til unglingsáranna. Þau byrja snemma að velta fyrir sér vandamálum á borð við verð- bólguna sem étur peninga og gleypir hús. Þegar þau vaxa úr grasi koma upp ný vandamál og snúast þau um áfengi, kynlíf og samskipti við foreldrana. Frá þessu öllu er sagt á gamansaman hátt, hér er enginn áróður eða bein fræðsla eins og í „Pæld’íði" þar sem boðskapurinn var: Þú skalt gera svona og ef þú gerir það ekki þá er illt í efni. í „Grænjöxlum“ er gamanið í fyrirrúmi og mörg atriðanna eru drepfyndin. Krafturinn í leikhópnum var slíkur í fyrri hluta sýningarinnar að ég óttaðist að allt myndi springa í loft upp. Eftir hlé hægð- ist dálítið um, leikendur kannski teknir að lýjast, en heildarsvipur sýningarinnar var sterkur. Arn- heiði hefur tekist virkilega vel upp að stjórna þessari hröðu sýn- ingu og á stöku stað hefur hún greinilega breytt textanum í sam- „Grænjaxlar“: virkilega gaman“ Til sölu lítið ekin Bedford vörubifreið 4 tonn, árg. 1978. Upplýsingar gefur Hallgrímur Gíslason verkstjóri á Bifreiðaverkstæöinu Þórshamri sími 22700. Kaupfélag Eyfirðinga Leikmynd er afar einföld en ágæt lausn að mörgu leyti þótt setningar eins og „Mikið er þetta kalt borð“ missi marks þegar ekkert kalt borð sést í veislunni. Lýsingin er nokkuð vel útfærð hjá Skúla Gautasyni og Magnús Sigurólason stjórnaði henni fumlaust. Spurningunni: „Hvernig var í Dynheimum?“ er auðvelt að svara. „Gaman, virkilega gaman.“ Og þá held ég að mark- miðinu með sýningunni hafi verið náð. Stefán Sæmundsson Mynd: TLV Friðþjófur, Ásta Jfúlía, Helga Hlín og Gunnar. ræmi við tíðarandann í dag, þannig að í fljótu bragði sé ég ekkert í þessari uppfærslu sem stangast á við nútfmann, nema hvað verðbólgan er ekki eins mikil nú og fyrir 10 árum (en það getur breyst á skömmum tíma). Leikendur í verkinu eru 15 talsins, en hlutverkin eru ótelj- andi. Skiptingar voru snöggar og vel útfærðar. Með hlutverk Kára fór Friðþjófur Sigurðsson, þræl- reyndur leikari þótt ungur sé, enda farinn að berja að dyrum hjá Leikfélagi Akureyrar þar sem hann leikur lítið hlutverk í „Horft af brúnni" og hann mun einnig taka þátt í „Fiðlaranum á þakinu“. Friðþjófur er ágætur gamanleikari og jafnvel enn efni- legri sem skapgerðarleikari. í hlutverki Kára stóð hann sig vel, skýrmæltur og agaður en dálítið kærulaus á köflum. Gunnar Gunnsteinsson er líkt og Friðþjófur „gamalreyndur“ leikari hjá Sögu og honum fellur greinilega vel við gamanhlutverk. Hann leikur með öllum líkaman- um og þótt stundum jaðri við ofleik þá fellur látbragð hans mjög vel að sýningunni og Dóri verður skemmtileg persóna í meðförum hans. Helgu Hlín Hákonardóttur hef ég lítið séð á sviði. Hún lék að vísu smáhlutverk í „Smá- myndum" á síðasta leikári en í hlutverki Grétu kemur í ljós að hér er efnileg leikkona á ferðinni með skýra rödd, ágæta framsögn og góða tjáningarhæfileika. Ásta Júlía Theodórsdóttir er líkt og Helga í sínu stærsta hlutverki til þessa, að ég held, og kemst vel frá sínu. Hún má þó vara sig á því að ofnota ekki andlitsfettur því hún er að túlka stúlku á mis- munandi aldri í hlutverki Láru og látbragð fólks breytist með árun- um. Af öðrum leikendum má nefna Rebekku Þráinsdóttur sem sló í gegn sem lík í „Seppanum“. Hér er hún hins vegar sprelllifandi og er unun að hlusta á framsögn hennar. Rebekka afsannar eftir- minnilega þá kenningu að allir unglingar séu óskýrmæltir. Þá er Þráinn Brjánsson kostulegur að vanda, en Garðar Á. Árnason var ekki alveg í réttu hlutverki sem faðir Grétu, full „passífur“. Aðrir leikendur stóðu einnig vel fyrir sínu og hljómsveitin; Inga Vala Jónsdóttir, söngur, Haraldur Davíðsson, gítar og söngur, og Freyr Vilhjálmsson, bassi, var örugg og flutti lög Spil- verksins með ágætum. Tónlistin skipar veglegan sess í verkinu og lögin eru ákaflega hressilega og vel sungin af krökkunum. m Veistþú Marair vita Bestu kaupin gerír fólk hjá okkur. Við bjóðum nýjar vörur. Dömukjóla, blússur, pils, peysur, rúllukraga- boli, blaðsloppa. Sængur, sængurföt, teygjulök, myndateppi, 5 st. handklæðasett. Barnafatnað. Herrabuxur ódýrar. Sigurbar GubmwuLssonarhf. HAFNARSTRÆTI96 SÍMI96-24423 AKUREYRI Verslunin þar sem úrvalið er J

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.