Dagur - 21.03.1988, Side 6

Dagur - 21.03.1988, Side 6
6 - DAGUR - 21. mars 1988 Konur á Akureyri og nágrenni! Fundur veröur haldinn í Hafnarstræti 90, þriðjudag- inn 22. mars kl. 20.30. Fundarefni: Norræna kvennaráðstefnan í Ósló. Önnur mál. Nefndin. Samvinnuskólinn Bifröst Undirbúningsnám á Bifröst. Frumgreinadeild Samvinnuskólans veitir undir- búning fyrir rekstrarfræðanám á háskólastigi. Inntökuskilyrði: Þriggja ára nám á framhaldsskóla- stigi án tillits til námsbrautar, t.d. í iðn-, vél-, verk- mennta-, fjölbrauta-, mennta-, fiskvinnslu-, búnað- ar-, sjómanna- eða verslunarskóla o.s.frv. Viðfangsefni: Bókfærsla, hagfræði, tölvugreinar, enska, íslenska, stærðfræði, lögfræði, félagsmála- fræði og samvinnumál. Námslýsing: Áhersla lögð á sjálfstæð raunhæf verkefni, auk fyrirlestra og viðtalstíma o.fl. Námstími: Einn vetur, frá september til maí. Aðstaða: Heimavist, fjölskyldubústaðir, skólaheim- ili, félagsaðstaða og mötuneyti á Bifröst í Borgarfirði ásamt vinnustofum, bókasafni, tölvubúnaði o.s.frv. Kostnaður: Fæði, húsnæði, þjónusta og fræðsla áætluð um 32.000.- kr. á mánuði fyrir einstakling næsta vetur. Umsóknir: Með persónulegu bréfi til skólastjóra Samvinnuskólans á Bifröst fyrir 10. júní. Umsókn á að sýna persónuuppiýsingar, upplýsingar um fyrri skólagöngu með afriti skírteina og upplýsingar um fyrri störf. Ekki sérstök umsóknareyðublöð. Veitt er innganga umsækjendum af öllu landinu. Þeir umsækjendur ganga fyrir sem orðnir eru eldri en 20 ára og hafa öðlast starfsreynslu í atvinnulífinu. Samvinnuskólinn á Bifröst, 311 Borgarnesi, sími 93-50000. Samvinnuskólinn Rekstrarfræði á háskólastigi. Samvinnuskólapróf í rekstrarfræðum á háskóla- stigi miðar að því að rekstrarfræðingar séu undirbúnir til ábyrgðar- og stjórnunarstarfa í atvinnulífinu, einkum á vegum samvinnuhreyfing- arinnar. Inntökuskilyrði: Stúdentspróf af hagfræði- eða við- skiptabrautum eða lokapróf í frumgreinum við Sam- vinnuskólann eða annað sambærilegt nám. Viðfangsefni: Markaðarfræði, verslunar- og fram- leiðslustjórn, fjármálastjórn og áætlanagerð, starfs- mannastjórn og skipulagsmál, almannatengsl, lög- fræði og félagsfræði, félagsmálafræði, samvinnumál o.fl. Námslýsing: Áhersla lögð á sjálfstæð raunhæf verkefni og vettvangskannanir í atvinnulífinu, auk fyrirlestra og viðtalstíma o.fl. Námstími: Tveir vetur, frá september til maí hvort ár. Aðstaða: Heimavist, fjölskyldubústaðir, skólaheim- ili, félagsaðstaða og mötuneyti á Bifröst í Borgarfirði ásamt vinnustofum, bókasafni, tölvubúnaði o.s.frv. Kostnaður: Fæði, húsnæði, þjónusta og fræðsla áætluð um 32.000.- kr. á mánuði fyrir einstakling næsta vetur. Umsóknir: Með persónulegu bréfi til skólastjóra Samvinnuskólans á Bifröst fyrir 10. júní. Umsókn á að sýna persónuupplýsingar, upplýsingar um fyrri skólagöngu með afriti skírteina og upplýsingar um fyrri störf. Ekki sérstök umsóknareyðublöð. Veitt er innganga umsækjendum af öllu landinu. Þeir umsækjendur ganga fyrir sem orðnir eru eldri en 20 ra og hafa öðlast starfsreynslu í atvinnulífinu. íiðað er m.a. við reglur um námslán. amvinnuskólinn á Bifröst, 11 Borgarnesi, sími 93-50000. Rannveig og Ingvi eru bjartsýn á rekstur stofunnar. Gilið í gilinu: „Þetta á eftir að ganga“ - segja tveir eigendanna, Ingvi Guðmundsson og Rannveig Árnadóttir Seint í janúar, nánar tiltekið þann 23. var opnuð við Kaup- vangsstræti ný knattborðsstofa sem ber nafnið „Gilið“. Þetta er önnur knattborðsstofan er opnuð á Akureyri og hin er raunar ekki langt undan stend- ur nokkru neðar við gilið sunn- anvert. Það er hlutafélagið Fella hf. sem rekur þessa nýju knattborðs- stofu. Eigendurnir eru þrenn hjón, Ingvi Guðmundsson og Rannveig Árnadóttir, Aðalsteinn Árnason og Guðlaug Friðjóns- dóttir og Tryggvi Sveinbjörnsson og Anna Halla Emilsdóttir. Félagið leigir neðstu hæð „gamla Sjafnarhússins", alls um 330 fer- metra. í syðri hluta húsnæðisins eru fimm átta feta „pool“ borð en í norðurhlutanum er ætlunin að koma fyrir 10 og 12 feta stórum borðum, í lokuðum herbergjum. Loks er ætlunin að koma upp aðstöðu fyrir pílukast eða „dart“. „Fella“ er orð sem notað er í keilu, segir Ingvi að þegar fél- agið var stofnað fyrir um ári hafi verið ætlunin að opna keilu- sal. Sótt var um íóð á svæðinu norðan við Höepfner en því var hafnað. í*á vaknaði hugmyndin um veggtennissal en þar urðu aðrir á undan. Því næst kom hug- myndin um rekstur knattborðs- stofu sem nú er orðin að veru- leika. „Ég held að við séum með allt aðra viðskiptavini en gamla Bill- iardstofan. Stærstur hlutinn af okkar viðskiptavinum er fólk sem hefur aldrei leikið þetta áður,“ segir Ingvi. Þá segir hann and- rúmsloftið vera allt annað hér efra því hingað komi menn ekki til annars en að leika ballskák, ekki sé um að ræða peningakassa eða annað sem dregur að. Reglurnar eru einfaldar og byrjendum er sagt til í byrjun. Nokkuð er um að starfsmenn fyrirtækja taki sig saman og haldi sín eigin mót og þá hélt Verk- menntaskólinn sitt eigið mót í tengslum við opna daga sem haldnir voru. „Þetta gengur og vel það,“ seg- ir Ingvi og þau Rannveig segjast vera bjartsýn á rekstur stofunnar. ET „Of fáar stelpur koma“ -segja þær Berglind I viðtali við eigendurna Rann- veigu og Ingva, kom fram að á stofuna komi aðallega strákar. „Það er eins og stelpurnar séu eitthvað hræddar við þetta. Ef hér eru einhverjir strákar fyrir þegar þær reka inn nefið þá snúa þær nær undantekninga- laust við,“ sagði Rannveig. og Haila sem eru nu daglegir gestir í Giiinu Rétt í þessum svifum gengu í salinn tvær ungar stúlkur, þær Berglind Sigurðardóttir og Halla Halldórsdóttir 16 ára gamlar. Þær uppgötvuðu leikinn fyrir um þremur vikum og hafa verið nær daglegir gestir síðan. Þær stöllur sögðust kannast við söguna um stelpurnar sem sneru við í dyrunum ef þær sáu stráka fyrir innan. Ástæðan er dæmi- gerð hræðsla byrjenda við aðhlát- ur þeirra sem lengra eru komnir eða telja sig a.m.k. vera það. „Við erum að ná tökum á þessu en komum þó helst ekki ef hér er mjög margt inni,“ sagði Halla. Þær sögðust ætla að gefa sér 4-5 ár áður en þær tækju fyrst þátt í íslandsmóti í greininni. „Þetta er jafnt fyrir stráka og stelpur,“ sögðu þær en vissu ekki um neinar aðrar stelpur sem sleg- ið hefðu til. ET Leiðrétting: Magnús í 5. sæti Vinkonurnar Berglind og Halla segja leikinn jal'nt fyrir stráka sem stelpur. Vegna fréttar í Degi um IBM skákmót unglinga var ranglega farið með röðun í sæti í elsta aldursflokki. Rétt er að Magnús Teitsson lenti í 5. sæti með sjö vinninga. Rúnar Sigurpálsson var með sex og hálfan vinning og lenti í 7. sæti. Er þetta mjög góður árangur hjá strákunum, því í þessum aldurs- flokki voru 119 þátttakendur. VG

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.