Dagur - 21.03.1988, Side 7

Dagur - 21.03.1988, Side 7
a or.- ► ,»* •- r* r f71r. 21. mars 1988 - DAGUR - 7 T tþróttír $ Halldór íþróttamaöur Noröurlands 1987 Dagur veitti fimm íþróttamönnum viðurkenningu Halldór Áskelsson knatt- spyrnumaður í Þór, var kjör- inn íþróttamaður Norðurlands árið 1987. Það er Dagur sem stendur fyrir þessu kjöri í sam- vinnu við lesendur sína og er þetta í þriðja sinn sem útnefn- ingin fer fram. Alls fengu 5 íþróttamenn viðurkenningu frá blaðinu og fór verðlauna- afhendingin fram í hófi á Hótel KEA á laugardag. Blaðið útnefnir 10 íþrótta- menn í hvert sinn og raðar þeim í sæti frá 1 til 10. Fimin þeirra fá veglega verðlaunagripi til eignar og auk þess hlýtur íþróttanraður Norðurlands glæsilegan farand- grip til varðveiðslu í eitt ár. Guðrún H. Kristjánsdóttir skíða- maður í KA hafnaði í öðru sæti, Hans Rúnar Snorrason júdómað- ur í KA varð í 3. sæti, Þorvaldur Jónsson knattspyrnumaður í Leiftri í 4. sæti og Kári Elíson kraftlyftingamaður á Akureyri hafnaði í 5. sæti. I 6. sæti varð Hafsteinn Jakobs- son knattspyrnumaður í Leiftri og blakmaður í KA, í 7. sæti .Eyjólfur Sverrisson körfuknatt- leiks- og knattspyrnumaður Tinda- stóls á Sauðárkróki, í 8. sæti Þor- valdur Örjygsson knattspyrnu- rnaður í KA, í 9. sæti Daníel Hilnrarsson skíðamaður frá Dal- vík og Arnar Bragason skíða- maður frá Húsavík hafnaði í 10. sæti. Halldór Áskelsson knattspyrnu- maður úr Þór er óunrdeilanlega einn fremsti knattspyrnumaður landsins og hann hefur átt fast sæti í Iandsliðum íslands undan- farin ár. Á síðasta ári lék hann bæði með ólympíulandsliðinu og A-landsliðinu og stóð sig mjög vel. Halldór átti sitt albesta tímabil með liði sínu og varð nr.a. næstmarkahæsti leikmaður 1. deildar og hlaut að launum silf- urskó Adidas. Hróður Halldórs hefur borist víða og hafa félög bæði þér heima og erlendis lagt mikið á sig til þess að krækja í þennan snjalla leikmann. En hann er ekki farinn enn og ætlar að leika með félögum sínurn í Þór í a.m.k. eitt tímabil enn. Guðrún H. Kristjánsdóttir skrðamaður frá Akurcyri varð í öðru sæti. Guðrún hefur verið í fremstu röð skíðamanna í nokk- ur ár og í fyrra var hún í mjög góðu formi, þó að hlutirnir hafi kannski ekki alveg gengið upp á sjálfu landsmótinu. Hún varð engu að síður öruggur bikar- nreistari SKÍ í fyrra. Guðrún hef- ur verið fastur landsliðsmaður í íþrótt sinni síðustu ár og hún og Daníel Hilmarsson frá Dalvík, eru nýkominn heim af ólympíu- leikunum í Calgary í Kanada, þar sem þau kepptu sem fulltrúar íslands. Hans Rúnar Snorrason júdó- maður úr KA hafnaði í þriðja sæti. Hans Rúnar er geysilega efnilegur júdómaður og hann sigraði í sínum flokki í öllum þeim mótum sem hann tók þátt í hér innanlands. Hann varð Islandsmeistari drengja og þá var hann í sigursveit KA sem sigraði í Sveitakeppni Júdósambandsins. Hann sigraði í sínum flokki í haustmóti Júdósambandsins og þá varð hann Akureyrarmeistari í sínunr flokki. Hans Rúnar keppti á alþjóðlegu júdómóti unglinga í Svíþjóð í sumar og hafnaði þar í 3. sæti í sínum þyngdarllokki. Loks má geta þess að hann var kjörinn Júdó- maður Akureyrar 1987. Þorvaldur Jónsson knatt- spvrnumaður úr Leiftri í Ólafs- firði varð í 4. sæti. Þorvaldur varði mark liðsins í sunrar og var auk þess fyrirliði þess. Þorvaldur átti frábært sumar með liði sínu og fékk aðeins á sig 22 mörk í 2. deildinni, eða færri mörk en nokkur annar markvörður deild- arinnar. Þá má geta þess að Þor- valdur var valinn besti leikmaður Leifturs í sumar af leikmönnum liðsins. Kári Elíson kraftlyftingmaður á Akureyri varð í 5. sæti. Kári varð Norðurlandameistari í 67,5 kg flokki á Norðurlandamótinu sem fram fór í Danmörku í haust og var þetta í fjórða skiptið sem hann hlaut þennan titil. Þá varð hann íslandsmeistari í bekk- pressu á móti sem haldið var fyrir réttu ári. Kári hefur verið einn allra besti kraftlyftingamaður íslands undanfarin ár og hann varð einmitt fyrstur til að hljóta titilinn íþróttamaður Norður- lands í kjöri blaðsins. Hafsteinn Jakobsson knatt- spyrnumaður úr Leiftri og blak- maður í KA. hafnaði í 6. sæti. Hafsteinn var einn af burðarás- unr Leiftursliðsins í knattspyrnu sem vann sér sæti í 1. deild í sum- ar og þá var hann einn besti leikmaður KA í blaki á síðasta keppnistímabili. En KA-liðið átti sitt besta tímabil og lék nr.a. til úrslita í bikarkeppninni. Eyjólfur Sverrisson körfu- bolta- og knattspyrnumaður frá Sauðárkróki varð í 7. sæti. Eyjólfur er einn snjallasti körfu- knattleiksmaður landsins og þá er hann einnig mjög sterkur knattspyrnumaður. Eyjólfur varð langstigahæsti leikmaður 1. deildar í körfubolta á síðasta keppnistímabili og var auk þess með bestu vítahittnina. Þá varð hann langmarkahæstur í B-riðli 3. deildar í knattspyrnu og átti stóran þátt í að Tindastóll vann sér sæti í 2. deild síðastliðið haust. Þorvaldur Örlygsson knatt- spyrnumaður í KA varð í 8. sæti. Þorvaldur er mjög vaxandi leikmaður og hann lék mjög vel með KA í 1. deildinni í sumar. Hann lék auk þess ineð U-21 árs landsliðinu, ólympíuliði íslands og þá fékk hann að spreyta sig með A-landsliðinu gegn Rússunr ytra síðastliðið haust. Hann á „Þaö er alltaf gaman aö vita aö það er metið sem maður er að gera og þetta virkar mjög hvetjandi á mig,“ sagði Hall- dór Áskelsson er hann hafði verið útnefndur Iþróttamaður Norðurlands 1987 á laugardag. „Ég hafði nú ekki haft mikinn tíma til þess að hugsa um möguleika mína í þessu kjöri en þegar ljóst var að ég var einn af fimm efstu, var hann vissulega fyrir hendi.“ Þessi viðurkenning blaðsins er ekki sú eina senr Halldór hefur hlotið fyrir árangur sinn á síðasta ári. Hann var kjörinn Knattspyrnumaður Akureyrar 1987, hann var valinn besti leikmaður Þórs 1987 í kjöri sem leikmenn stóðu sjálfir að og hann hlaut silfurskó Adidas sem næst- markahæsti íeikmaður 1. deildar á síðasta keppnistímabili. „Ég held að síðasta sumar hafa verið það besta sem ég hef átt til þessa en það er alltaf hægt að gera betur og ég stefni að sjálf- sögðu að því.“ - Hvað urn möguleika Þórsara í sumar? „Það þýðir ekkert annað en að stefna hátt og við ætlum að gera betur en í fyrra. Þá misstunr við af Evrópusæti fyrir algjöran aum- ingjaskap og það má ekki koma fyrir aftur. Við fáum ekki slíkt örugglega eftir láta enn meira að sér kveða í náinni framtíð. Daníel Hilmarsson frá Dalvík hafnaði í 9. sæti að þessu sinni en hann varð einmitt kjörinn íþróttamaður Norðurlands 1986. Daníel hefur verið einn fremsti skíðanraður landsins undanfarin ár eins og flestunr er kunnugt. Hann sigraði nr.a. í svigi á lands- mótinu á ísafirði unr síðustu páska og þá keppti Daniel á heimsmeistaramótinu í Crans Montana í Sviss í fyrra. Arnar Bragason skíðanraður frá Húsavík luifnaði í 10. sæti. Arnar er einn efnilegasti skíða- maður landsins og hann sýndi og sannaði á síðasta unglingameist- aramóti hversu snjall hann er. Hann sigraði í svigi, stórsvigi og tækifæri á hverjum degi og því þarf að nýta það.“ - Þú varst næstmarkahæsti leikmaður 1. deildar í fyrra, hefurðu sett stefnuna á gullskó- inn í ár? „Ég stefni að sjálfsögðu að því aö skora sem mest í sumar og það yrði ekkert leiðinlegt að ná í gull- skóinn í haust. Það er mikilvægt að byrja að skora strax í fyrsta leikjunum og í fyrra skoraði ég strax í fyrsta leiknum og losnaði þá undan mikilli pressu. Ég skor- aði tvö mörk í þremur æfinga- leikjum með Ol-landsliðinu í Hollandi í vikunni og vonandi held ég áfram á sömu braut." - Ertu búinn að gefa það frá þér að fara og leika knattspyrnu í Noregi í vor? „Já ég verð kyrr hjá Þór. Ég geng ekkert með grasið í skónum fyrir atvinnumennsku. Ég hef kynnst erfiðum æfinga- og keppnisferðum með landsliðum íslands og er ekkert viss um að atvinnumennska eigi neitt allt of vel við nrig. Ég myndi náttúrlega skoða gott tilboð frá góðu liði ef það bærist. Ég hef ekki skoðað nein svona mál þar til ég fór til Brann fyrir skömmu og það er ágætt að lrafa prófað þetta,“ sagði Halldór að lokunr. Að lokum nrá geta þess að Halldór hefur spilað 30 leiki með landsliðunr íslands. Hann á að að lokinni útnefningunni. Mynd: ehb alpatvíkeppni og varð auk þess bikarnreistari SKÍ í flokki 13-14 ára unglinga. Þá var hann valinn íþróttamaður Húsavíkur 1987. Dagur óskar þessunr íþrótta- mönnunr til hamingju með árang- urinn og vonandi verður þetta framtak blaðsins til þess að hvetja þá til enn frekari dáða. I baki 15 A-landsleiki, 6 leiki með U-21 árs liðinu, 5 leiki nreð U-18 ára liðinu og 4 leiki með U-16 ára I liðinu. Dregið í bikar Á laugardag var dregið í undanúrslit í bikarkeppni HSÍ, bæði í karla- og kvenna- flokki og einnig í bikar- keppni KKÍ en þar eru einn- ig fjögur lið eftir. í karlaflokki í bikarkeppni HSÍ leika KR og Valur annars vegar og Franr og Breiðablik hins vegar. í bikarkeppni kvenna mætast Valur og FH og Franr og Stjarnan. í bikarkeppni KKÍ leika sanran UMFN og ÍR annars vegar og KR og Haukar hins vegar. Leikið er heima og heinran í bikarkeppni KKI og fara fyrri leikirnir fram á finrmtudaginn en ÍR og UMFN leika seinni leik sinn þann 29. nrars en Haukar og KR þann 31. mars. „Gaman að vita að það er metið sem maður er að gera“ - segir Halldór Áskelsson íþróttamaður Norðurlands 1987

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.