Dagur - 21.03.1988, Side 8
8 - DAGUR - 21. mars 1988
íþróffir
Akureyrarmótið í badminton:
Karl F. Karlsson
maður mótsins
- varð þrefaldur Akureyrarmeistari og stöðvaði áralanga
sigurgöngu Kristins Jónssonar - Jakobína Reynisdóttir og
Guðrún Erlendsdóttir urðu tvöfaldir meistarar
Sigurvegararnir í einliðaleik í A og B flokki karla. F.v. Haraldur Heimisson
og Karl F. Karlsson.
Karl F. Karlsson var svo sannar-
lega í essinu sínu á Akureyrar-
mótinu í badminton sem fram fór
í íþróttahúsi Glerárskóla á laug-
ardag. Hann varð þrefaldur
Akureyrarmeistari, í einlióaleik
karla, í tvíliðaleik ásamt Sigurði
Rúnari Sveinmarssyni og í tvenn-
darleik ásamt Guðrúnu Erlends-
dóttur. Hann stöðvaði þar með
sigurgöngu Kristins Jónssonar, í
bili að minnsta kosti en Kristinn
hefur verið ósigrandi á mótum
hér fyrir norðan undanfarin ár.
Kristinn hefur verið Akureyrar-
meistari karla síðustu 5 ár í röð en
hann gat ekki keppt á mótinu árið
1981 vegna meiðsla en þar áður
hafði hann einnig unnið titilinn að
minnsta kosti 5 sinnum til viðbótar.
En það er hins vegar ekki fyrr en
núna, að Karli tekst að velta Kristni
af stallinum. í kvennaflokki var
Jakobína Reynisdóttir sigursælust
og vann tvo titla.
Keppt var í A- og B-flokki karla,
flokki öðlinga og í kvennaflokki og
auk þess í tvíliða- og tvenndarleik
og var keppt með útsláttarfyrir-
komulagi. Helstu úrslit urðu þessi:
Einliðaleikur:
A-flokkur karla:
í A-flokki karla mættu sex kepp-
endur til leiks. Þórarinn Árnason
sigraði Sigurð Rúnar í fyrsta leik,
15/4-5/15-15/15 og Tómas Leifsson
lagði Þorstein Guðbjörnsson að
velli, 15/5-12/15-17/14. Því næst
léku Kristinn Jónsson og Þórarinn
Árnason saman annars vegar og
Tómas Leifsson og Karl F. Karls-
son hins vegar. Kristinn vann Þór-
arin 15/2-15/10 og Karl hafði betur
gegn Tómasi, 15/1-10/15-15/10.
Það voru því Karl og Kristinn
sem léku til úrslita og var þar um
hörkuleik að ræða. En eins og kom
fram hér að ofan, hafði Karl betur í
viðureigninni og tryggði sér Akur-
eyrarmeistaratitilinn. Hann vann
fyrri lotuna 18/17 en þá seinni 15/7.
Kvennaflokkur:
I kvennaflokki voru fjórir kepp-
endur og eins og svo oft áður, fór
Jakobína Reynisdóttir með sigur af
hólmi. Hún sigraði Guðrúnu Erl-
endsdóttur í úrslitaleik, 11/8-11/5.
Guðrún vann Jónínu Jóhannsdótt-
ur í fyrsta leiknum, 11/5-8/11-11/1
og Jakobína vann Gunnhildi Helga-
dóttur 11/5-11/1.
B-flokkur karla:
í B-flokki mættu 8 keppendur til
leiks og þar sigraði Haraldur Heim-
isson Guðbjörn Gíslason í úrslit-
um, 10/15-15/3-15/11. Guðbjörn
vann Axel Axelsson í undanúrslit-
um 15/3-8/15-15/3 og Haraldur
lagði Stefán Sæmundsson að velli
15/4-15/3.
Oðlingaflokkur:
Fjórir öðlingar mættu til leiks og
í þeim flokki stóð Kári Árnason
uppi sem sigurvegari. Hann vann
Finn Birgisson í úrslitaleik 15/5-17/
15. Finnur vann Erling Aðalsteins-
son í fyrsta leiknum 15/13-15/11 og
Kári vann Teit Jónsson 15/9-15/8.
Karlar tvíðliðalcikur:
Úrslitaleikurinn í tvíliðaleik
karla var æsispennandi og stór-
skemmtilegur á að horfa. Til úrslita
léku Kristinn Jónsson og Sveinn B.
Sveinsson gegn Karli Karlssyni og
Sigurði Rúnari Sveinmarssyni. Karl
og Sigurður Rúnar unnu fyrstu lot-
una 15/12 en í þeirri næstu snéru
þeir Kristinn og Sveinn dæminu við
og unnu 15/4. í oddalotunni var síð-
an rosaleg spenna en þó höfðu þeir
Kristinn og Sveinn yfirhöndina
lengst af. En ungu strákarnir, Karl
og Sigurður Rúnar, voru ekkert á
því að láta „gömlu“ mennina hafa
titilinn og náðu að vinna sigur, 17/
16 með stórgóðum endaspretti.
Konur tvíliðaleikur:
Til úrslita í tvíliðaleik kvenna
léku þær Jakobína Reynisdóttir og
Guðrún Erlendsdóttir gegn þeim
Gunnhildi Helgadóttur og Heiðdísi
Sigursteinsdóttur. Jakobína og
Guðrún höfðu betur og unnu 17/14-
15/7.
Öðlingar tvlliðaleikur:
Aðeins var um einn leik að ræða
í öðlingaflokki, Finnur Birgisson og
Erlingur Aðalsteinsson unnu þá
Kára Árnason og Teit Jónsson, 15/
10-11/15-15/8.
Tvenndarleikur:
Það var einnig hörku leikur í
„Þetta var erfiður leikur en það
er ánægjulegt að hafa unnið
hann,“ sagði Karl Karlsson eftir
að hafa lagt Kristin Jónsson að
velli í úrslitum einliðaleiksins í
Akureyrarmótinu í badminton á
laugardag. „Kristinn hefur ein-
okað þetta síðustu ár og það var
því kominn tími til þess að
stöðva karlinn,“ sagði Karl einn-
'8- .
„Eg er búinn að vera að reyna að
vinna hann síðustu tvö ár og það
hefur ekki tekist fyrr en núna. Ég
tapaði síðast fyrir honum á innan-
félagsmóti fyrir um mánuði."
- En áttirðu von á því að vinna
hann í dag?
„Já ég átti alveg eins von á því.
Ég var vel upplagður en hef að vísu
lítið getað æft að undanförnu vegna
meiðsla og því ekki í nógri góðri
æfingu.“
- Þú æfir einnig í handbolta og
fótbolta með KA. Þarftu ekki að
fara gera það upp við hvaða íþrótta-
grein þú ætlar að stunda í framtíð-
inni?
„Jú það fer að koma að því og ég
reikna með því að handboltinn
verði ofan á. Hann er a.m.k. númer
eitt í dag og ég hef sett stefnuna á
að komast í meistaraflokkinn eftir
tvenndarleiknum en þar mættu
Karl Karlsson og Guðrún Erlends-
dóttir þeim Kristni Jónssyni og Jak-
obínu Reynsdóttur í úrslitum. Karl
og Guðrún höfðu betur í annars
mjög jafnri viðureign og sigurðu 15/
13-12/15-15/5. Þar með nældi Karl
sér í sinn þriðja Akureyrarmeistar-
atitil.
Sigurður Rúnar Sveinmarsson sigraði í
tvíliðaleik ásamt Karli Karlssyni.
svona tvö ár. Ég hef einnig mjög
gaman af körfubolta en hef því
miður ekki tíma til þess að stunda
hann,“ sagði Karl að lokum.
Karl Karlsson fagnar sigri í einiiða-
leiknum á laugardag.
Öðlingarnir á Akureyrarmótinu skiptu verðlaununum nokkuð bróðurlega á milli sín. F.v. Erlingur Aðalsteinsson, Finnur
Birgisson, Teitur Jónsson og Kári Árnason. Myndir: kk
Þessar tvær voru sigursælar á mótinu og unnu báðar tvöfalt. F.v. Jakobína Reyn-
isdóttir og Guðrún Erlendsdóttir.
„Kominn tími til að
stöðva karlinn"
- sagði Karl Karlsson
eftir úrslitaleikinn í einliðaleiknum