Dagur - 21.03.1988, Side 9

Dagur - 21.03.1988, Side 9
21. mars 1988 - DAGUR - 9 Úrslitakeppnin í blaki: KA kvaddi meö tapi - HK, ÍS og Þróttur leika að nýju um íslandsmeistaratitilinn KA menn urðu að sætta sig við tap í síðasta leik sínum á þessu tímabili. Andstæðingarnir voru HK piltarnir úr Kópavogi og sigruðu þeir í leiknum með þreinur hrinum gegn tveimur. Leikurinn var jafn en ekkert sérstaklega vel leikinn. Það var einkunt léleg móttaka hjá KA liðinu sem gerði útslagið að þessu sinni. Haukur lenti næstum alltaf í vandræðum að vinna úr slakri fyrstu móttöku og gat því ekki almennilega lagt boltann upp fyrir smassarana. Fyrsta hrinan í leiknum var bæði jöfn og spennandi. Liðin skiptust á um að hafa forystuna en að lokum hafði HK betur 15:13. I annarri hrinu snérist dæmið algerlegá við og hafði KA mikla yfirburði á öllum sviðum og sigraði örugglega 6:15. Svipað var upp á teningnum í þriðju hrinunni og sigraði KA nú 11:15. HK piltarnir komu frískir til leiks í þriðju hrinunni og sigruðu örugglega 15:9. Þá var komið að úrslitahrinunni og byrjaði hún vel hjá þeim gulklæddu. Þeir komust í 7:3 en þar með var draumurinn búinn. HK tók öll völd á vellin- um og sigraði sannfærandi 15:9. Leikurinn tók 107 mínútur og var farið að draga af leikmönnum undir lokin. KA liðið náði sér ekki á strik í þessari úrslita- keppni og var þessi leikur engin undantekning þar frá. Bestur þeirra í þessum leik var Haukur þjálfari en einnig átti Stefán góða spretti en annars var liðið nokk- uö frá sínu besta. Hjá HK bar mest á Einari Ásgeirssyni og Kristjáni Arasyni. Þessi sigur HK þýðir að þrjú lið eru efst og jöfn í úrslitakeppn- inni. Þar með þurfa Þróttur, ÍS og HK að leika að nýju um íslandsmeistaratitilinn en KA er úr leik. AP KA tapaði fyrir HK í gær og liðið tapaði því öllum leikjum sínum í úrslita- keppninni. Úrslitakeppni 4. flokks í handbolta: Valur vann Fram í tvíframlengdum leik - og tryggði sér þar með Islandsmeistaratitilinn Valur-ÍA 21:11 FH- Þór 10:7 Valur hlaut 10 stig, FH 6, Vík- ingur 4, Þór 2 og IA 0. B-riðill: Frant-ÍR 16:16 Týr-KR 11:16 Fram-Stjarnan 19:19 ÍR-Týr 12:12 KR-Stjarnan 21:10 Fram-Týr 17:11 ÍR-KR' 13:14 Týr-Stjarnan 15:18 Fram-KR 22:10 ÍR-Stjarnan 15:13 Fram hlaut 7 stig, KR 6, ÍR 4, Stjarnan 3 og Týr 1. Leikið um sæti: 9. sætið ÍA-Týr 5:15 7. sætið Þór-Stjarnan 24:6 5. sætið ÍR-Víkingur 16:22 3. sætið FH-KR “ 10:17 1. sætið Valur-Fram 22:21 Þórsarar sáu um framkvæmd úrslitakeppninnar sem fór í alla staði mjög vel frant. Keppni hófst á föstudagskvöld og lauk með sjálfum úrslitaleiknum í gær. Þrenn dómarapör sáu um dóm- gæslu í keppninni, þeir Stefán Arnaldsson og Ólafur Haralds- son, Guðmundur Lárusson og Guðmundur Stefánsson og Arnar Guðlaugsson og Pálmi Pálmason og stóðu þeir sig mjög vel. en þá léku Valsmenn maður á mann frá miðju og við það riðlað- ist leikur Framara. Valsmenn skoruðu þrjú síðustu mörkin og jöfnuðu 15:15. Því var framlengt í 2x5 mín. og að þeim loknum var enn jafnt 20:20. Þá var aftur framlengt í 2x5 mín. og þá gerðu Valsmenn út um leikinn og sigr- uðu 22:21. Valsmenn hafa leikið rnjög vel í vetur og unnið þá 30 leiki sent þeir hafa spilað í alvörukeppni. Þeir eru því vel að þessum sigri komnir, þótt það hafi verið tæpt að þessu sinni. Liðin 10 sem þátt tóku í úr- slitakeppninni léku í tveimur riðlum og sigurvegarar þeirra léku til úrslita, liðin í öðru sæti um 3.-4. sætið og svo framvegis. KR-ingar höfnuðu í 3. sæti, FH- ingar í 4. sæti, Víkingar í 5. sæti, ÍR-ingar í 6. sæti, Þórsarar í 7. sæti, Stjarnan í 8. sæti, Týr í 9. sæti og ÍA í 10. sæti. Úrslit leikja í riðlakeppninni urðu þessi: A-ríðill: Valur-FH 15:7 Víkingur-ÍA 16:10 Valur-Þór 12:11 FH-Víkingur 14:11 ÍA-Þór 8:30 Valur-Víkingur 13:10 FH-ÍA 13:12 Víkingur-Þór 17:13 Valsmenn urðu íslandsmeist- arar í 4. flokki drengja í hand- bolta, er þeir lögðu Framara að velli í stórgóðum úrslitaleik í Höllinni á Akureyri í gær. Tvívegis þurfti að framlengja leikinn til þess að fá fram úrslit og þá reyndust Valsmenn sterkari. Framarar voru með unninn leik í lok venjulegs leiktíma en misstu hann niður i jafntefli og urðu síðan að gera sér annað sætið að góðu. Þegar rúm 1 mín. var til leiks- loka, var staðan 15:12 fyrir Fram íslandsmcistarar Vals í 4. flokki ásamt þjálfara sínuni Theódóri Guðfinnssyni. Mynd: KK Þórsarar urðu að gera sér 7. sætið að góðu þrátt fyrir að leika á heimavelli. Á myndinni er liðið ásamt þjálfaranum Gunnari Gunnarssyni Mynd: ehb . Hákon Örvarsson skoraði mörg lagleg mörk og var auk þess mjög öruggur í vítunum. Mynd: EHB

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.