Dagur - 21.03.1988, Side 10
' 10 - bÁÍQUR - 21. niars 1988
íþróttir
Enska knattspyrnan:
Fallbaráttan í hámarki!
Möguleikar Man. Utd. á öðru
sætinu í 1. deild jukust á laug-
ardaginn er liðið náði jafntefli
gegn Nott. For. á útivelli.
Leiknum lauk án þess að mark
væri skorað, en ekki vantaði
marktækifærin í leiknum. For-
est hafði undirtökin í fyrri hálf-
leik, en í þeim síðari náði Utd.
yfirhöndinni. Nigel Clough
varð 22 ára á laugardaginn og
fékk gott færi á að halda upp á
daginn með marki, en mistókst
að skora í fyrri hálfleik eftir að
hafa komist einn innfyrir vörn
Manchester liðsins.
Markvörður Forest Steve Sutt-
on var í miklum ham í síðari hálf-
leiknum er sóknarmenn Utd.
voru ágengir upp við markið hjá
honum og undir lokin átti Brian
McClair skot í stöng. Bryan Rob-
son fyrirliði Utd. lék ekki með,
fékk flensu rétt fyrir leikinn og er
nú vafasamur fyrir landsleikinn
gegn Hollendingum í vikunni.
Ótrúlega margt sem þjakar þenn-
an sterka leikmann. Paul
McGrath kom inná sem vara-
maður í leiknum hjá Utd., hans
fyrsti leikur í langan tíma vegna
meiðsla, en jafnteflið gott fyrir
Man. Utd.
Arsenal og Newcastle skildu
einnig jöfn, en Newcastle var þó
sterkari aðillinn í leiknum og
hefði átt að sigra. Perry Groves
náði forystunni fyrir Arsenal á
30. mín., skoraði úr þvögu
umdeilt mark sem dómari og
línuvörður komu sér saman um
að dæma gilt, en leikmenn New-
castle töldu að boltinn hefði aldr-
ei farið yfir marklínuna. Áður
hafði Paul Gascoigne misnotað
vítaspyrnu fyrir Newcastle 15
mín. fyrir leikslok með þrumu-
skoti og sókn liðsins var þung í
lokin, en John Lukic kom í veg
fyrir mörk með mjög góðri mark-
vörslu fyrir Arsenal.
Leroy Rosenoir skoraði eina
markið í leik West Ham gegn
Watford sem nú situr í neðsta
sæti deildarinnar. West Ham hef-
ur lengi leitað að miðherja til að
leika við hlið Tony Cottee, Kerry
Dixon, Lee Chapman og Mick
Harford eru meðal þeirra sem
liöið hefur verið að leita eftir en
ekki fengið. Rosenoir var því
keyptur frá Fulham og skoraði í
sínum fyrsta leik í síðari hálfleik
dýrmætt mark í fallbaráttunni.
Leikurinn var vel leikinn, sér-
staklega hjá West Ham sem
ávallt leikur skemmtilega knatt-
spyrnu, en Watford á í erfiðleik-
um, sérstaklega í sóknarleiknum.
Furðulegur leikur hjá Oxford
og Chelsea, en gífurlega spenn-
andi og skemmtilegur. Chelsea
lék mjög vel í fyrri hálfleik og
rúllaði Oxford hreinlega upp.
Þegar blásið var til leikhlés hafði
Chelsea skorað þrjú mörk án
þess að heimamenn gætu svarað
fyrir sig. Pat Nevin, John Bum-
stead og Kerry Dixon skoruðu
mörk liðsins og sigurinn virtist í
höfn. Tveim mín. eftir að síðari
hálfleikur hófst náði Peter
Rhoades-Brown að laga stöðuna
fyrir Oxford og allt fór í baklás
hjá Chelsea. Dean Saunders
bætti öðru við skömmu síðar og
Martin Foyle jafnaði 15 mín.
fyrir leikslok. Þá fór fram furðu-
leg skipting hjá Chelsea, Mike
Hazard langbesti maður þeirra í
leiknum, sem hafði átt þátt í öll-
nm mörkum liðsins í fyrri hálfleik
og ráðið miðjunni að mestu var
tekinn útaf. Þrátt fyrir stöðuga
sókn Oxford náði Chelsea enn á
Chelsea missti niður þriggja marka forskot
Mike Hazard er ekki í miklu uppá-
haldi hjá Juhn Hollins fram-
kvæmdastjóra Chelsea og var tek-
inn útaf í 4:4 jafnteflinu gegn
Oxford.
ný forystu 5 mín. fyrir leikslok er
Dixon slapp í gegn og skoraði að
því er virtist sigurmark leiksins.
Mikil fagnaðarlæti á bekknum
hjá Chelsea, en þeir fögnuðu of
snemma því Saunders jafnaði
fyrir Oxford með síðustu spyrnu
leiksins. Staða Oxford slæm og
litlu betri hjá Chelsea, bæði liðin
gætu fallið.
Peter Shilton markvörður
Derby og enska landsliðsins var
fluttur á sjúkrahús hálfrotaður
eftir samstuð við David Bennett
þrem mín. fyrir leikslok í leik
Coventry og Derby. Það er því
vafasamt að Shilton geti leikið
landsleikinn gegn Hollandi í
vikunni. Derby kom verulega á
óvart í leiknum og sigraði með
þremur mörkuni gegn engu.
Mick Forsyth kom liðinu á
bragðið, en hann skoraði jöfnun-
armark Derby gegn Liverpool í
fyrri viku. Phil Gee og Geraint
Williams bættu síðan við mörk-
um fyrir liðið sem ekki veitti af
stigunum í fallbaráttunni.
Clive Goodyear bakvörður
Wimbledon var borinn útaf fót-
brotinn rétt fyrir lok fyrri hálf-
leiks. Leikmenn liðsins létu það
þó ekki á sig fá í leik sínum gegn
Tottenham og skoruðu þrjú
mörk í síðari hálfleik. Hörkutól-
ið Vince Jones skoraði fyrst, en
John Fashanu og Dennis Wise
bættu síðan tveimur mörkum við.
Garth Crooks skoraði sigurmark
Charlton í síðari hálfleik á úti-
velli gegn Southampton og liðið
virðist nú hafa möguleika á að
forðast fallið sem virtist óum-
flýjanlegt til skamms tíma.
Q.P.R. vann góðan sigur á
heimavelli gegn Norwich, Justin
Channing skoraði sitt fyrsta mark
fyrir félagið í fyrri hálfleik og á
eftir fylgdu mörk frá Dean Coney
og Wayne Fereday.
Sheffield Wed. hafði tapað síð-
ustu fimm leikjum sínum, en
tókst nú að sigra Portsmouth á
heimavelli. Mel Sterland skoraði
eina mark leiksins úr vítaspyrnu í
fyrri hálfleik. Portsmouth á nú í
miklum vandræðum og allt útlit
er fyrir að liðið hafni í 2. deild í
vor.
Aston Villa tryggði stöðu sína í
efsta sæti 2. deildar með góðum
útisigri gegn Reading. Paul Birch
og Garry Thompson skoruðu
mörkin í síðari hálfleiR og Ast-
on Villa hefur nú sigrað í 13 leikj-
um á útivelli í vetur.
Aðalleikurinn í 2. deild á laug-
ardag var þó viðureign Black-
burn og Leicester. Leicester var
betra liðið í fyrri hálfleik. Mike
Newell átti skot í stöng, en var
auk þess bókaður, en hálfleiknum
lauk án marka. Mikið gekk á í
síðari hálfleiknum, Paul Reid
náði forystu fyrir Leicester með
skoti af löngu færi og Newell
bætti öðru marki við. Þá var
komið að Blackburn að skora,
Scott Sellars sendi hættulega
sendingu fyrir markið og Steve
Walsh skallaði í eigið mark, öll
þrjú mörkin skoruð á 5 mín.
kafla. Newell var því næst rekinn
útaf fyrir að sparka í Chris Price,
en þrátt fyrir það skoraði Reid
eftir mikinn einleik þriðja mark
Leicester og útlitið dökkt hjá
Blackburn. Þeir gáfust þó ekki
upp og eftir að hafa skotið tví-
vegis í þverslá auk þess sem
bjargað var á línu frá þeim, skor-
aði Sellars 11 mín. fyrir leikslok
2:3. Tveim mín. eftir að venju-
legum leiktíma var lokið jafnaði
síðan Colin Hendry leikinn fyrir
Blackburn.
Leeds Utd. heldur enn dauða-
haldi í veika von um að komast í
1. deild. Yfir 22.000 áhorfendur
sáu liðið leika sér að Sheffield
Utd. á Elland Road. Peter Swan
náði forystu fyrir Leeds Utd. í
fyrri hálfleik og í þeim síðari
skoraði John Pearson þrjú mörk
og John Sheridan eitt, í 5:0 sigri
liðsins.
Millwall fór létt með Hudders-
field, Teddy Sherringham skor-
aði tvö mörk og þeir Tony
Cascarino og Dean Horrix sitt
markið hvor.
Mark Dean Glover úr víta-
spyrnu á 73. mín. dugði Middles-
brough til sigurs gegn Shrewsbury
á útivelli.
Manchester City náði aðeins
jafntefli á heimavelli gegn Swind-
on þrátt fyrir að Paul Stewart
næði forystuni fyrir liðið.
Crystal Palace og Bradford
gerðu einnig jafntefli í leik sínum
þar sem Ian Ormondroyd náði
forystu fyrir Bradford.
Þá virðist Ipswich vera að
missa af lestinni í 2. deild eftir
tap á heimavelli gegn Bourne-
mouth. Neil Woods skoraði fyrir
Ipswich, en þá höfðu leikmenn
Bournemouth þegar skorað tvö
mörk. Þ.L.A.
Met Leeds of stór
biti fyrir Liverpool
- tapaði sínum fyrsta leik í deildinni gegn Everton
Liverpool jafnaöi 14 ára
gamalt met Leeds Utd. í fyrri
viku með jafntctli gegn Derby
og átti möguleika á að setja
nýtt met á sunnudaginn, þ.e.
leika 30 leiki án taps frá upp-
liafi keppnistímabils. En því
miður fyrir Liverpool voru
mótherjar þeirra í þessum
mikilvæga leik sjálfir erki-
fjendurnir Everton, sem ekk-
ert gáfu eftir á heimavelli gegn
nágrönnum sínum.
Og Everton varð fyrst allra liða
í 1. deildinni í ár til að sigra
Liverpool og reyndar var þetta
aðeins í anrrað skiptið scm
Liverpool tapar leik í vetur, fyrra
skiptið éinnig 'fyrir Everton í
deildabikarnurry.
Liverpool átti þó lengst af leik-
inn gegn Eyerton á sunnudaginn
og þeir John Barnes, Peter
Beardsley og Ray Houghton
sýndu oft snjöll tilþrif studdir af
vinnuþjörkunum Steve Mc-
Mahon og Nigel Spackman.
En miðvörður Everton, Dave
Watson átti frábæran leik í vörn
Everton og barðist af gífurlegum
krafti. Hann öðrum fremur ásamt
markverðinum Neville Southall
sem varði frábærlega skot Craíg
Johnstone úr opnu færi urðu til
þess að koma í veg fyrir að metið
félli. Eina mark leiksins kom á
15. mín., Trevor Steven tók þá
hornspyrnu, boltinn barst aftur
til hans lrá varnarmönnum
Liverpool, Steven sendi knöttinn
aftur fyrir markið þar sem 'Wayne
Clarke afgreiddi hann í netið.
Clarke er einmitt bróðir Allan
Clarke er lék í liði Leeds Utd.
sem setti metið á sínum tíma.
Á lokamínútu Ieiksins fékk
bakvörður Everton Neil Pointon
upplagt færi á að bæta öðru
marki við, cn skaut yfir úr opnu
færi. Liverpool mun þrátt fyrir
þetta sennilega verða Englands-
meistari, en Everton gæti nú tek-
ið annað sætið. Þ.L.A.
Wayne Clarke skoraði sigurmark
Everton gegn Liverpool í gær.
I
Knatt-
spymu-
úrslit
Úrslit leikja í 1. og 2. deild
ensku knattspyrnunnar um
heigina urðu þessi:
1. deild:
Arsenal-Newcastle 1:1
Coventry-Derby 0:3
Nott.Forest-Man.Utd. 0:0
Oxford-Chelsea 4:4
Q.P.R.-Norwich 3:0
Sheff.Wed.-Portsmouth 1:0
Southampton-Charlton 0:1
West Ham-Watford 1:0
Wimbledon-Tottenham 3:0
Everton Liverpool 1:0
2. deild:
Birmingham-Oldham 1:3
Blackbnrn-Leicester 3:3
C.Palace-Bradford 1:1
Hull-Plymouth 1:1
Ipswich-Bournemouth 1:2
Leeds-Sheff.United 5:0
Man.City-Swindon 1:1
Millwali-Huddersfíeld 4:1
Reading-Aston Villa 0:2
Shrewsbury-Middlesbro 0:1
Stoke-Barnsley 3:1
Getraunaröðin er þessi:
x2x-xll-211-xx2
Staðan
1. deild
Liverpool 30 22- 7-1 67:14 73
Man.Cnited 32 16-11-5 48:30 59
Everton 31 16- 8-7 42:18 56
Notlm.Forest 29 15- 8-6 52:2653
Arsenal 30 15- 7-8 46:28 52
Q.P.R. 31 15- 7-9 38:32 52
Wimbledon 30 13- 9-8 45:32 48
Tottenham 34 11- 9-14 34:41 42
Sheff.Wed. 32 12- 4-16 36:53 40
Norwich 32 11- 6-15 34:40 39
Coventrv 31 10- 9-12 37:46 39
Luton 28 11- 5-12 40:38 38
Newcastle 30 9-11-10 36:42 38
Southampton 32 9-10-13 38:44 37
W'est Ham 31 8-12-1131:40 36
Derby 31 8-10-13 28:34 34
Chelsea 32 8-10-14 42:57 34
Charlton 32 7-10-15 32:47 31
Portsmouth 30 6-12-12 27:47 30
Oxford 30 6- 9-15 39:62 27
Watford 30 5- 8-17 18:39 23
Staðan
2. deild
Aston Villa 37 20-10-7 63:35 70
Blackburn 36 19-11-6 57:38 68
Middlesbro 36 18-10-8 47:27 64
Millwall 37 19- 7-11 59:43 64
Bradford 35 18- 8-9 56:43 62
C.Palace 36 18- 6-12 72:53 60
Leeds 37 17- 9-11 56:46 60
Man.City 36 16- 8-13 67:48 55
Stoke 37 15- 9-13 45:46 54
Ipswich 36 15- 7-14 46:39 52
Hull 35 13-11-1146:49 50
Swindon 33 14- 7-12 60:45 49
Oldham 35 13- 8-14 51:53 47
Plymouth 34 13- 7-14 54:53 46
Barnsley 35 13- 7-15 50:50 46
Leicester 36 11-10-15 48:51 43
Birmingham 36 10-11-15 36:57 41
Bournem. 35 10- 8-17 48:57 38
Shrewsbury 36 8-12-16 31:45 36
W.B.A 36 10- 6-20 38:59 36
Sheff.Ctd. 36 10- 6-20 36:62 36
Reading 35 8- 8-19 38:60 32
Huddersf. 35 5- 9-21 35:81 24