Dagur - 29.03.1988, Blaðsíða 3
29. mars 1988 - DAGUR - 3
Ólafur Jensson formaður Lionsklúbbs Akureyrar afhendir hér Hjáimari Freysteinssyni yfirlækni á Heilsugæslustöð
Akureyrar „spirometertæki“ til eignar. Tækinu er ætlað að mæla starfshæfni lungna og kostaði 120 þúsund kr. og
söfnuðu Lionsmenn fénu m.a. með blómasölu á konudaginn. Mynd: tlv
Atvinnuleysi í febrúar:
Aukning á Akureyri
og Siglufirði
Á Norðurlandi var atvinnu-
leysi í febrúar mun minna en í
janúar, sérstaklega þó á
Norðurlandi eystra. Þar voru
skráðir 3.040 atvinnuleysisdag-
ar í febrúar á móti 5.147 í
janúar, atvinnulausir 140 á
móti 238. Samsvarandi tölur
fyrir Norðurland vestra eru
1.915 - 2.089, 88 - 96.
Ef við lítum á einstaka staði
má sjá gríðarlega fækkun
atvinnulausra á Dalvík og í
Ólafsfirði en á Siglufirði og
Akureyri hefur atvinnulausum
hins vegar fjölgað milli mánaða.
Annars lítur dæmið svona út,
svigatölur tákna fjölda atvinnu-
lausra í janúar:
Sauðárkrókur 25 (34), Siglu-
fjörður 11 (4), Drangsnes 2 (4),
Hólmavík 5 (7), Hvammstangi 20
(19), Blönduós 15 (13), Skaga-
strönd 10 (13), Hofsós 1 (3),
Ólafsfjörður 11 (58), Dalvík 2
(43), Akureyri 65 (57), Húsavík
og hreppar í Suður-Þingeyjar-
sýslu 50 (54), Árskógshreppur 2
(4), Kópasker 7 (6), Raufarhöfn
1 (7) og Þórshöfn 4 (9). SS
Ólafsfjörður:
Auknar
slysavarnir
við höfnina
Hafnarnefnd Ólafsfjarðar hef-
ur undanfarið rætt um fjár-
hagsáætlun hafnarinnar,
aðgerðir til slysavarna við
höfnina, nýframkvæmdir og
viðgerðir. Að sögn Óskars
Þórs Sigurbjörnssonar, for-
manns hafnarnefndar, hefur
aðalvandinn við Ólafsfjarðar-
höfn á liðnum árum verið að
mikið fé hefur farið til dýpkun-
ar hafnarinnar á 3-4 ára fresti,
og hafa þær aðgerðir hamlað
öðrum framkvæmdum við
höfnina.
í mörg ár hefur verið ljóst að
mikill sandur berst inn í Ólafs-
fjarðarhöfn á hverju ári, og
grynnkar höfnin stöðugt ef ekk-
ert er að gert. Sérfræðingar
Hafnamálastofnunar hafa rann-
sakað sandburðinn og komust að
þeirri niðurstöðu að eina varan-
lega ráðið til að hindra þessa
þróun væri að byggja sérstaka
sandvarnargarða. Kostnaður við
slíkt verk myndi væntanlega
nema tugum milljóna króna, og
er ekki fyrirsjáanlegt að fé fáist
til þeirra mála á næstunni.
Óskar Þór sagði, að sorglega
litlu fé væri varið til hafnarinnar,
og væri t.d. ekki áætlað að verja
nema 11,5 milljónum króna til
slysavarna í öllum höfnum lands-
ins á þessu ári. Ekki væri gerður
greinarmunur af opinberri hálfu
á því hvort kostnaður við höfnina
færi í dýpkunarframkvæmdir,
sem þyrfti að endurtaka með
stuttu millibili vegna staðhátta,
eða í aðrar og varanlegri fram-
kvæmdir.
Kostnaðarhlutfall ríkis og
sveitarfélaga vegna vinnu við
hafnir er mjög mismunandi eftir
því hvaða verk er unnið hverju
sinni. Þegar um dýpkun er að
ræða greiðir ríkið um 75% kostn-
aðar á móti bænum, en viðhald er
alfarið á kostnað bæjarins, Að
sögn Óskars er hafnarnefnd sam-
mála um að nauðsynlegt sé að
bæta öryggisbúnað s.s. lýsingu,
merkingar og fjölga bryggjustig-
um í höfninni, en hafnarstjóra
var falið að sækja um fjárveit-
ingu, kanna kostnað og skiptingu
hans hvað þetta snertir. EHB
DAGUR
Sauðárkróki
Norðlenskt dagblað
„ EG ER ...vegna þess að ég hugsa,
- og ég les fréttatímaritið
Þjódlíf
til þess að fylgjast með ”!
Þjódlíf
Samtímaspegill íslenskra og erlendra
málefna.
Spennandi fréttatímarit sem lætur sér
ekkert mannlegt óviðkomandi.
FÆST Á NÆSTA BLAÐSÖLUSTAÐ