Dagur - 29.03.1988, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - 29. mars 1988
„Yið göngum til Hans
í bæninni og trúnni“
- Biskup íslands, herra Pétur Sigurgeirsson
„Þó Vottarnir vilji kenna sig við kristindóminn þá er um að ræða ýmsar
kenningar hjá þeim sem Kristur kom aldrei fram með,“ segir biskup íslands,
herra Pétur Sigurgeirsson.
Biskup íslands, herra Pétur
Sigurgeirsson, er Akureyring-
um að góðu kunnur eftir ára-
tuga langa þjónustu við Akur-
eyrarkirkju, en hann tók við
því brauði árið 1947, og starf-
aði óslitið á Akureyri allt til
ársins 1982, er hann var kosinn
biskup íslensku þjóðkirkjunn-
ar, eftir 35 ára starf í þjónustu
kirkjunnar.
- Er kristilegur boðskapur
flókinn eða einfaldur?
„Kristilegur boðskapur er
ákaflega einfaldur og auðskilinn,
þannig að ekki þarf nein flókin
kenningakerfi til að nálgast Krist.
Við nálgumst Krist í trúnni og
bæninni. Við nálgumst Krist
gegnum guðspjöllin og reynum
síðan að skýra önnur rit Biblí-
unnar út frá því sem Hann sagði.
Biblían er á sumum stöðum afar
torskilin bók, en í því sambandi
vil ég benda á að vitur maður
sagði: Ég á nóg með það sem ég
skil.
Maður þarf ekki meira en hann
skilur, og að sumu leyti er erfið-
ast að framfylgja því í Heilagri
ritningu sem er auðskiljanlegast.
En auðvitað er ekki hægt að
útskýra alla hluti.“
- Er mjög breitt bil milli þjóð-
kirkjunnar og söfnuðar Votta
Jehóva?
„Já, það er rétt. Mér finnst til-
hneiging þeirra til að þröngva
skoðunum sínum upp á aðra vera
óeðlileg og óæskileg, og sú
aðferð brýtur mjög í bága viö það
sem Kristur sjálfur sagði læri-
sveinum sínum þegar hann sendi
postulana tvo og tvo af stað með
fagnaðarerindið til að útbreiða
það. Þó Vottarnir vilji kenna sig
við kristindóminn þá er um að
ræða ýmsar kenningar hjá þeim
sem Kristur kom aldrei fram
með, og þeir virðast taka trúar-
skoðanir stofnandans, Russells,
fram yfir Krist og kenningu hans.
Þeir hafa bundið trú sína í ákveð-
ið kerfi, sem reynslan hefur sýnt
fram á að fær ekki staðist og á
ekki erindi við sjálfan kristin-
dóminn. Við sjáum t.d. hvernig
þeir fjalla um endurkomu
Mannssonarins og hvernig Hann
komi aftur í dýrð sinni. Vottamir
hafa æ ofan í æ bundið endur-
komuna við ákveðin ártöl, sem
hafa svo reynst gjörsamlega til-
hæfulaus, en þá hafa þeir komið
með ný ártöl í staðinn.
Þetta fær alls ekki staðist því
Kristur segir um tíma endurkom-
unnar að um þann dag viti enginn
maður heldur aðeins Guð einn.
Ef við tiltökum þennan dag þá
samrýmist slíkt ekki því sem
Kristur kenndi.
Þá er einnig mjög aðfinnslu-
vert að ætla sér að binda frelsun
mannkynsins við ákveðna tölu,
144 þúsund manns, en þessa tölu
taka þeir úr Opinberun Jóhann-
esar, sem er ákaflega torskilið rit,
fullt af táknmáli. Það er fráleitt
að koma með slíka tölu inn í trú-
arboðskap í nafni kristni, því
Kristur vill að allir verði hólpnir
og að því stefnir allt starf krist-
inna manna. Þetta sýnir glögg-
lega út í hvaða villu menn eru
komnir, sem leyfa sér að tala
þannig um trúmálin. Það virðist
vera tilgangslaust að ræða við
Vottana um trúmál, því þeir virð-
ast trúa meira á kerfið, sem
Ieiðtogar þeirra hafa samið, en á
Krist. Við þurfum ekki neitt kerfi
til að taka á móti fyrirgefandi náð
Krists í samfélagi við Hann.
Ég efast ekki um, að Vottarnir
eru fólk sem vill vel, og tekur trú
sína alvarlega, en það hefur
ánetjast trúarkerfi sem í veiga-
miklum atriðum er ekki hægt að
kenna við Krist og kirkju hans.“
- Hvernig geta menn þekkt
meginatriði kristindómsins?
„Með því að tileinka sér orð
Frelsarans, og reyna að lifa eftir
þeim. Kristur kenndi okkur um
Guð á himnum sem kærleiksrík-
an og fyrirgefandi föður, sem
tæki menn í sátt við sig. Þetta er
meginatriði kristinnar trúar, sem
við megum ekki gleyma. Við
göngum til Hans í bæninni og
trúnni á Hann, eins og Kristur
sjálfur kenndi. Það er allt sem
þarf.“
- Viltu segja eitthvað að lok-
um við Akureyringa sérstaklega?
„Við hjónin biðjum innilega að
heilsa ölíum Akureyringum, og
þökkum fyrir öll þau ár sem við
| áttum í starfi kirkjunnar. Við
óskum öllum blessunar Guðs, og
að Hann blessi kirkjurnar ykkar
fyrir norðan og söfnuði þeirra.“
dagskrá fjölmiðla
17.00 Med öðrum morðum.
Svakamálaleikrit í ótal þáttum.
11. þáttur - Áríðandi morðsend-
ing.
Endurtekið - vegna þeirra örfáu
sem misstu af frumflutningi.
17.30 Haraldur Gíslason og
hressilegt helgarpopp.
18.00-18.10 Kvöldfréttatími Bylgj-
unnar.
i
20.00 Trekkt upp fyrir helgina
með hressilegri músík.
23.00 Þorsteinn Ásgeirsson
nátthrafn Bylgjunnar heldur
uppi helgarstemmningunni.
03.00-08.00 Næturdagskrá Bylgj-
unnar.
Tónlist fyrir þá sem fara seint í
háttinn og hina sem snemma
fara á fætur.
Páskaóratorían:
Dagskrá Rásar 1 á páskadag hefst með hefðbundnu
sniði, páskamessu kl. 8.00 en síðan tekur við Páska-
óratoría Johanns Sebastians Bach. Þetta er eitt af
verkum tónskáldsins sem naut mikillar hylli strax í
upphafi. Óratorían er fagurt og hátíðlegt verk sem
geislar af þeirri gleði sem upprisuboðskapurinn veitir.
Verkið er hér flutt af kammersveitinni í Stuttgart, Suð-
ur-þýska madrigalakórnum og einsöngvurunum Ter-
esu Zyllis-Gara, Patriciu Johnson, Theo Altmeyer og
Dietrich Fischer-Dieskau. Stjórnandi er Wolfgang
Gönnenwein.
SUNNUDAGUH
3. apríl
Páskadagur
08.00 Fréttir og tónlist í morguns-
árið.
09.00 Jón Gústaísson á sunnu-
dagsmorgni.
Þægileg sunnudagstóniist og
spjall við hlustendur.
11.00 Vikuskammtur Sigurðar G.
Tómassonar.
Sigurður litur ýfir fréttir vikunn-
ar með gestum í stofu Bylgjunn-
ar.
12.00 Hádegisfréttír.
12.10 Haraldur Gíslason og
sunnudagstónlist.
13.00 Með öðrum morðum.
Svakamálaleikrit 'í' ótal þáttum
eftir Karl Ágúst Úlfsson, Öm
Ámason og Sigurð Sigurjónsson.
12. þáttur.
Fylgist með einkaspæjaranum
Harry Röggvalds og hinum
hundtrygga aðstoðarmanni
hans Heimi Schnitzel er þeir
leysa hvert svakamáhð á fætur
öðru af sinni alkunnu snilld.
Taugaveikluðu og viðkvæmu
fólki er ráðlagt að hlusta.
13.30 Haraldur Gíslason.
15.00 Valdís Gunnarsdóttir.
Sunnudagstónlist að hætti Val-
dísar.
18.00-18.10 Fréttir.
19.00 Þorgrímur Þráinsson
byrjar sunnudagskvöldið með
góðri tónlist.
21.00 Þorsteinn Högni Gunnars-
son og undiraldan.
Þorsteinn kannar hvað helst er á
seyði í rokkinu.
Breiðskífa kvöldsins kynnt.
24.00-07.00 Næturdagskrá Bylgj-
unnar.
- Bjami Ólafur Guðmundsson.
Hljóðbylgjan
FM 101,8
FIMMTUDAGUR
31. mars
Skírdagur
07.00 G. Ómar Pótursson
kemur okkur af stað í vinnu með
tónlist og fróttum af Norður-
landi.
Rás 1:
Sunnudagur 3. apríl, páskadagur
I fótspor
Sigurðar Fáfnisbana:
Á páskadag kl. 13.00 er á Rás 1 dagskráin í fótspor
Sigurðar Fáfnisbana, þáttur um Niflunga og arf þeirra
í Þýskalandi sarhtímans. Arthúr Björgvin Bollason tók
saman. Hin fornu hetjuljóð um Niflunga eru einn
merkasti menningararfur germanskra þjóða. ( þættin-
um er gerð grein fyrir þeim og einnig leitast við að
varpa Ijósl; á hvernig Þjóðverjar nú á tímum líta á
þennan forna arf. JJmsjónarmáður fór um söguslóðir
og kom að’Sigurðarbrunni í Óðinsskógi þarsem sagt
er að Högni hafi lagt Fáfnisbanann að velli. Arthúr
Björgvin ræðir við bæjarstjórann í bæ þeim sem ligg-
ur í hlíðinni fyrir neðan brunninn.
09.00 Olga B. Örvarsdóttir.
Hressileg morguntónlist,
afmæliskveðjur og spjall.
12.00 Stund milli stríða, gullald-
artónlist.
13.00 Pálmi Guðmundsson
leikur óskalög hlustenda. Tón-
listarmaður dagsins tekinn fyrir.
17.00 Snorri Sturluson.
Létt tónlist og tími tækifæranna.
19.00 Með matnum, róleg tónlist.
20.00 Þráinn Brjánsson
á ljúfum nótum.
22.00 Kvöldrabb Steindórs G.
Steindórssonar.
Spjallað við Norðlendinga í
gamni og alvöru.
24.00 Dagskrárlok.
Fréttir klukkan 10.00, 15.00 og
18.00.
Rás 1
Mánudagur 4. apríl,
annar í páskum kl. 22.20:
Af helgum mönnum
( kvöld er á dagskrá Rásar 1, síðari þátlur Sigmars B.
Haukssonar um dýrlinga kirkjunnar, mannverur sem
hafa verið teknar í helgra manna tölu. ( síðasta þætti
fjallaði umsjónarmaður m.a. um heilagan Frans frá
Assisi og Þorlák helga. ( kvöld mun Sigmar færa sig
örlítið nær nútímanum og segja frá fólki sem hefur
orðið dýrlingar á síðari tímum, t.d. Theresu frá Lisi-
eux sem var fædd 1873, gerðist nunna og dó ung.
Hún var tekin í tölu heilagra eftir dauða sinn og er
dýrlingur hinna einföldu hluta. Ennfremur fjallar hann
um Maximilian Kolbe, hetju fangabúðanna, mann
sem fórnaði lífi sinu fyrir fjölskyldumann í fanga-
búðum nasista og var líflátinn. Eftir dauða hans var
hann tekinn helgra manna tölu.
TÓNLISTARKROSSGÁTAN NO:102
1 pn n m n
CHP
Lausnir sendist til: Ríkisútvarpsins RÁS 2
Efstaleiti 1
108 Reykjavík
Merkt Tónlistarkrossgátan