Dagur - 29.03.1988, Síða 7
ll?marsT9§§ - B'ÁSQfi - ^
I
Óperuhúsið í Sidney, sem þekkt er fyrir sérkennilega hönnun.
Mynd: Svcinbjörn
Tekið daginn eftir fellibylinn. Eins og sjá má hanga svefnpokarnir allir á
snúrum til þerris. Mynd: Gestur
Hringt heim,
Mynd: Gestur
Á mótssvæðinu þar sem þjóðfánar allra þátttökulanda blöktu
Mynd: Sveinbjörn
tókum við til víð verkefnin, eða
við röltum um svæðið, versluðum
og gerðum það sem hugurinn
girntist. Á kvöldin voru svo yfir-
leitt skemmtanir, eða við fórum í
heimsóknir milli tjaldsvæða.“
Sjúkraskýlin fylltust
- Er eitthvað eitt eftirminnilegra
en annað frá þessu móti?
„Já, við lentum í útjaðri á felli-
byl sem fór þarna yfir. Það vildi
svo til að flest tjöldin féllu niður,
þar á meðal tjaldið sem ég svaf í
og vaknaði ég í rigningu. Það var
frekar óþægilegt.
Það var reynt að koma öllum
fyrir í stórum húsum sem voru í
nánd og þar sem flestir voru kald-
ir og blautir var reynt að hita sér
með söng og leikjum.
Þarna voru margir skátar frá
Kyrrahafssvæðinu, þar sem felli-
byljir eru bæði grimmir og
sterkir. Meðal þeirra greip um sig
mikil skelfing og fylltust öll
sjúkraskýli af krökkum sem
fengu lost af hræðslu og móður-
sýkisköst.
Við íslendingarnir fengum
viðurkenningu fyrir að bregðast
vel við og hjálpa til. Við vissum
ekkert hvað var að gerast og
kunnum ekki að hræðast þar sem
fellibyljir eru óþekktir á íslandi.
Þarna voru jú bæði þrumur og
eldingar og við vissum að tré gátu
fallið, en hræðslan náði ekki
lengra.
Þarna kom líka í ljós að
margir, sérstaklega frá Indónesíu
og þeim slóðum, voru svo illa
klæddir, að öll föt sem við áttum
þurr voru á flakki út um allt tjald-
stæði daginn eftir hjá krökkum
sem hafði verið kalt nóttina áður.
Við þurftum ekki að hafa áhyggj-
ur af að fá þau ekki aftur, því
einn af þeim eiginleikum sem
skáti er gæddur er, að þú átt að
geta treyst honum.“
Litlar kengúrur
- Hvað með séreinkenni Ástral-
íu, kengúrurnar. Sáuð þið eitt-
hvað af þeim?
„Jú, við sáum kengúrur. Mér
fannst þær nú reyndar full litlar,
a.m.k. voru þær minni en ég
bjóst við, en það eru víst til svo
margar tegundir af þeim og sum-
ar eru allt að því 2 metrar á hæð.
Þessar sem við sáum, voru um
eins metra háar. Þær voru ekki
með afkvæmi í pokunum, en það
var auðvelt að sjá pokana. Okkur
var sagt að kengúrurnar væru
mjög gæfar. Ég sá t.d. mynd af
konu á sólarströnd og við hlið
hennar stóð kengúra og var að
skoða ferðamennina. Þetta er
víst ekki óalgengt."
Reynt að setja heimsmct í að troða sem flestum í einn bíl.
Mynd: Sveinbjörn
Skátar frá nokkrum löndum skiptast á merkjum.
Mynd: Gestur
- Nú fóruð þið ekki strax heim
eftir mótið.
„Nei, þá fórum við aftur í viku-
dvöl hjá hjá annarri mjög dýr-
elskri fjölskyldu, nú í Sidney.
Við lentum aftur hjá indælu fólki
sem hugsaði verulega vel um
okkur. Það má segja að við höf-
um lifað eins og kóngar þessa
daga.
Með fjölskyldunni fórum við í
ferðalag til systur konunnar. í
þeirri ferð sáum við alla þá nátt-
úrufegurð sem hægt er að bjóða
upp á. Náttúra Ástralíu er mjög
frábrugðin íslenskri. í nágrenni
Sidney er mikið sléttlendi, sem í
raun er háslétta.
Eftir þessa dvöl héldum við til
London þar sem við dvöldum
einn sólarhring. 20. janúar flug-
um við svo heim til íslands.“
- Hvað er þér svo efst í huga
eftir þessa ferð?
„Það er að þetta var alveg
ómetanleg reynsla og mjög
skemmtilegt ferðalag. Ég myndi
vilja endurlifa þetta. Þarna eign-
uðumst við vini og skrifumst t.d.
á við fólkið sem við bjuggum hjá.
Síðasta kvöldið fengum við öll
spjald sem við áttum að skrifa
nafn okkar og heimilisfang á, og
afhenda það einhverjum sem við
hittum. Við eigum því von á að fá
bréf eða heimsókn einhvern
daginn.“
- Ertu búinn að skrá þig á
næsta mót í Kóreu?
„Nei, ég læt nægja að hugsa
tvö ár fram í tímann. Núna stefni
ég að því að fara á skátamót í
Noregi á næsta ári. Bestu skáta-
mót í heimi eru haldin í Noregi,
því þeir eru þekktir fyrir frábær-
an undirbúning og skipulagn-
ingu.“
Við látum þessi orð Gests vera
þau síðustu, en vonum að lesend-
ur hafi haft gagn og gaman af
lestri frásagnarinnar. VG