Dagur - 03.05.1988, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 3. maí 1988
Vinningstölur 30. apríl 1988.
Heildarvinningsupphæð kr. 4.678.052.-
1. vinningur kr. 2.341.650.-
Skiptist á milli 3ja vinningshafa kr. 780.550.-
2. vinningur kr. 701.730.-
Skiptist á milli 230 vinningshafa kr. 3.051.-
3. vinningur kr. 1.634.672.-
Skiptist á milli 7046 vinningshafa sem fá 232 kr. hver.
Ólafur Kristjánsson
sjómaður:
„Smánariaun sem
þetta fólk hefur“
„Þetta hefur bókstaflega engin
áhrif haft á mig. Ég er sjómað-
ur og ég man ekki til þess að
þetta hafi valdið mér vandræð-
um síðan ég kom í land á laug-
ardaginn.“
„Það eru smánarlaun sem
þetta fólk hefur það hljóta allir að
sjá. Að fólk skuli vera með innan
við 40 þúsund króna mánaðar-
i eftir að hafa unnið hjá sama
Verkfall verslunar- og skrifstofufólks:
sem ekki getur keypt sér mjólk
og brauð.“
Verkfall verslunar- og skrifstofufólks hefur nú staðið í
ellefu daga og ekki sér fyrir endann á því nema hjá hluta
fólks. Blaðamenn Dags brugðu sér í bæinn ígær og ræddu
við nokkra vegfarendur um áhrif verkfallsins og afstöðu til
þess. Niðurstaðan er sú að áhrif verkfallsins séu lítil en fólk
hafi fullan skilning á aðgerðunum.
vinnuveitandanum í tíu ár tekur um en ekki vera að rífast við fólk
bara engu tali. Verkföllin virðast
vera eina leiðin til að ná þessu
upp því annars væri farnar aðrar
leiðir.“
- Þú hefur þá fulla samúð með
þessu fólki sem er í verkfalli.
„Já svo sannarlega og þegar
farið er út í svona aðgerðir á ann-
að borð þá þýðir ekkert annað en
að sýna fulla hörku.
Þessi sáttatillaga var felld hér
með talsverðum mun, en fyrir
sunnan held ég að allt önnur við-
horf séu ríkjandi. Þar skilst mér
að þetta fólk í VR sé mun meira
yfirborgað en hér.“ ET
Halla Gunnlaugsdóttir
fóstra:
„Það lifir enginn
af lægri launum
en 42 þúsundum“
„Þetta hefur eiginlcga engin
áhrif á mig. Ég næ í allt sem ég
þarf ennþá, en það gæti breyst.
Ég hugsa að ég lifi alveg þó að
verkfallið standi í tvær vikur
enn.“
„Mér finnst þetta verkfall eiga
fullan rétt á sér. Hvað varðar hörk-
una sem víða er hlaupin í þetta þá
held ég að það sé alveg sama
hvaða félag er í verkfalli, það fari
|alltaf út í harðar aðgerðir að ein-
hverju leyti. Það er auðvitað
leiðinlegt en hjá því verður ekki
komist."
- Á krafan um 42 þúsund
króna lágmarkslaun rétt á sér?
„Já, vel það. Það lifir enginn af
lægri launum."
- Heldurðu að verkfallið
standi lengi enn?
„Nei ég held að þetta leysist
öðrum hvorum megin við helgina.
Það eru svo margir farnir að
semja. Eins og það er nú asnalegt
að menn geti ekki staðið saman.“
- Hvaða áhrif hefur verkfallið
haft á þig sjálfa?
»Ég er kannski neyslugrönn,
búin að venja mig á það, en þetta
verkfall hefur ekki haft teljandi
áhrif á mig. Þessir liðsmenn Þor-
steins geta selt manni það sem
mann vantar og þeir græða víst
vel þessa dagana.“
- Heldurðu að þetta verði
langt verkfall?
„Mér sýnist á augunum í Þór-
arni V. að svo verði. Þeir virðast
spila vel saman hann og Þor-
steinn Pálsson." ET
Sigríður Jónasdóttir
starfsstúlka á barnaheimili:
„Maður fær allt
sem maður þarf“
„Mér finnst þetta ekki koma
mikið við mig. Maður fær eig-
inlega allt sem þarf í þeim
verslunum sem eru opnar. Á
meðan maður getur skipt þús-
undköllunum til að komast í
1 bensínsjálfsalana, þá er þetta í
lagi.“
- Hvað finnst þér um verkföll
almennt?
„Þau virðast vera nauðsynleg
ef fólk ætlar sér að fá mannsæm-
andi laun. Og þó að þetta hafi
ekki áhrif á mig þá hefur það sýnt
sig með flugið t.d. að áhrifin eru
einhver.“
- Finnst þér krafa um 42 þús-
und króna lágmarkslaun
sanngjörn?
„Já það finnst mér. Ég treysti
mér ekki til að lifa af minni laun-
um.“
- Heldurðu að þetta verði
langt verkfall?
„Það virðist ætla að verða það
fyrst þeir felldu þessa sáttatil-
lögu. “ ET
Sveinbirna Helgadóttir:
„Hamstraði mikið
fyrir verkfallið“
„Ég hamstraði mikið fyrir
verkfallið en ég get ekki sagt
að þetta hafí haft veruleg áhrif
á mig. Ég átti að vísu ekki von
á svona löngu verkfalli og er
því aftur farin að hamstra.“
- Hvað er það sem þú
hamstrar?
„Núna tók ég bara það allra
nauðsynlegasta en í fyrra skiptið
var það hveiti, smjörlíki og
fleira. Svo keypti maður bara
meira í matinn og mikla mjólk.
Tuttugu lítrarnir voru fljótir að
fara enda er ég með fimm börn.“
- Hvað finnst þér annars um
þetta verkfall?
„Mér finnst það ósköp asnalegt
að ekki sé bara hægt að semja við
fólkið um þessi hlægilegu laun.
Fólk lifir ekkert af minni launum
núorðið. Þetta dugir rétt fyrir
matnum." ET
Þórhildur Svanbergsdóttir
þroskaþjálfi:
„Þeir spila vel saman
Þórarinn og Þorsteinn"
„Ég skil hreinlega ekki af
hverju Þorsteinn Pálsson og
aðrir ráðamenn eru svona
vondir við verslunarfólk. Ég
myndi gjarnan vilja bjóða
Steina og öðrum þeim sem
ekki skilja hvernig það er að
lifa í þessu landi, vinnu með
mér innan heilbrigðiskerfísins,
nema þeir vilji afgreiða í
verslun.“
„Ég hef alltaf verið á móti því
að byggja allar þessar hallir
þarna fyrir sunnan og ég held að
þeir ættu að byrja á þeim endan-
!__________________________________!
Námskeið í framsögn,
ræðumennsku og tjáskiptum verður haldið 7. og 8.
maí á Akureyri.
Leiðbeinendur eru Baldvin Halldórsson og Kristján
Hall.
Hámarksfjöldi 16 manns.
Upplýsingar og þátttökutilkynningar í símum
23950 (Kolbrún) og 22881 (Úlfhildur).
STAK
auglýsir opnunartíma skrifstofu félagsins að
Ráðhústorgi 3, II. hæð
frá í. maí til 1. september 1988.
Mánudaga ................. kl. 14.00-19.00.
Þriðjudaga ............... kl. 14.00-17.00.
Miðvikudaga .............. kl. 14.00-17.00.
Formaður félagsins verður til viðtals á skrifstofunni
mánudaga og miðvikudaga frá kl. 16.00-18.00.
Sími skrifstofunnar er 25599.
Stjórnin.
Auglýsing
um bann við notkun matarleifa
til skepnufóðurs
Vegna hættu á búfjársjúkdómum og samkvæmt lög-
um nr. 28/1928, um varnir gegn því að gin- og
klaufaveiki og aðrir alidýrasjúkdómar berist til
landsins, er hér með bannað að nota til skepnufóð-
urs matarleifar sem aflað er utan heimilis. Þetta gildir
þar til öðruvísi verður ákveðið.
Landbúnaðarráðuneytið.
26. apríl 1988.
Rætt við vegfarendur