Dagur - 03.05.1988, Síða 5

Dagur - 03.05.1988, Síða 5
3. maí 1988 - DAGUR - 5 Frá aðalfundi Sölufélags Austur-Húnvetninga. Mynd: FH Forsvarsmenn mjólkursamlags- ins hugleiða þann möguleika að fara inn á framleiðslu arðbærari afurða e.t.v. ráðast með þær inn á markaðinn á Stór-Reykja- víkursvæðinu. Innvegið kjöt af sauðfé var 695 tonn, af nautgripum 127 tonn og af hrossum 84 tonn. Innvegin ull var 71 tonn. Samdráttur varð um 53 tonn í kindakjöti. Samdrátttur varð einnig nokkur í stórgripa- kjöti, en ullarinnlegg jókst nokkuð. Slátrun gekk vel á sl. hausti en launakostnaður jókst verulega með tilkomu bónuskerfis en menn voru þó flestir sammála um að það kerfi hefði leitt til vand- aðri vinnubragða. Ljóst er að áætlaður slátur- og heildsölu- kostnaður nægir ekki lengur til rekstrar sláturhúsanna. Umsetning í kjötvinnslu varð 61 millj. króna, sem er aukning um 127%. Þrátt fyrir svo mikla aukningu var reksturinn erfiður og var talin ástæða til að taka hann til endurskoðunar á þessu ári. Rekstur hótelsins gekk vel. Endurbætur voru gerðar á húsinu fyrir 6,5 millj. Heildarvelta varð 23,6 millj., aukning á milli ára 27,8%. Þar er þörf á frekari endurbótum þó að gæta þurfi varúðar og sníða stakk eftir vexti. Þótt blikur væru á lofti, var hugur í fundarmönnum og greini- legt að þeir voru reiðubúnir til að berjast til þrautar fyrir tilveru SAH. Fram kom á fundinum að fimmmannanefndin virðist taka sínar ákvarðanir, án tillits til fenginna upplýsinga frá afurða- sölufélögunum, sem nú virðast öll eiga undir högg að sækja. Fram kom á fundinum að afkoma bænda hafði almennt verið þokkaleg á sl. ári þó að nokkrir bændur séu illa settir. Þetta vekur nokkra athygli þar sem samdráttur í landbúnaði hef- ur verið gífurlegur á síðustu árum, ekki síst hjá sauðfjárbænd- um og samdrátturinn hefur kom- ið mjög illa við afurðasölufélögin. Eftir að fundi lauk, var full- trúum og gestum boðið til kvöld- verðar á Hótel Blönduósi, ásamt mökum, í tilefni af 80 ára afmæli SAH. Heiðursgestir þar voru Ólafur Sverrisson, fyrrum fram- kvæmdastjóri SAH og kona hans Anna Ingadóttir. Ólafi var veitt gullmerki SAH fyrir vel unnin störf í þágu félagsins. Ólafur var formaður og framkvæmdastjóri SAH um 10 ára skeið, frá árinu 1958 til 1968. Hann er fyrsti mað- urinn sem SAH veitir þessa viðurkenningu. fh Bílstjórar Akureyri Tjarnargerði, sumarbústaður bílstjóra verður leigður í sumar frá 16. júní. Skriflegar umsóknir berist á BSO fyrir 15. maí. Launþegar, á skrifstofu Einingar.. Pool - Pool — Pool Fyrsta opna Pool mótið á Akureyri verður haldið í Gilinu, knattborðsstofu, laugardaginn 7. maí kl. 10.00 f.h. Vertu með, góð verðlaun. Við veitum allar upplýsingar og tökum á móti skráningum. Ath! Akureyrarmót í Pool verdur haldið laugard. 21. maí. Nánar augiýst síðar. ^ 11 |JT\ knattborðsstofa Vjl LIH/ símj 21877. Laus staða við verkfræðideild Háskóla íslands. Staða kerfis- og rafeindafræðings við verkfræðideild Háskóla (slands er laus til umsóknar. Starfið er einkum fólgið í því að hafa yfirumsjón með tækjum og tölvum deildarinnar og sjá um þjónustu fyrir deildina í raf- eindamálum. Æskileg menntun er tæknifræði. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um námsferil og störf umsækjanda, skulu sendar til skrifstofu deildarinnar að Hjarðarhaga 6, 107 Reykjavík, fyrir 25. maí 1988. Nánari upplýsingar veitir Valdimar K. Jónsson, deildarforseti, í síma 694653. Menntamálaráðuneytið. 25. apríl 1988. m. ■ " . ■. • j * Já, Kjörbókareigendur góðir, nú er komið að því. Þeir sem átt hafa innstæðu, eða hluta hennar, óhreyfða í 16 mánuði fá reiknaða fyrstu þrepahækkunina nú um mánaðamótin: 1,4% viðbótarvextir reiknast á innstæðuna 16 mánuði aftur í tímann, samtals 70 milljónir króna. Á hverjum degi héðan í frá bætast svo fleiri og fleiri Kjörbókareigendur við, sem ná 16 mánaða þrepinu. Átta mánuðum síðar hefst á sama hátt, útreikningur á afturvirka 24 mánaða vaxtaþrepinu. Kjörbókin ber háa vexti auk verðtryggingar- ákvæðis, verðlaunar þá sérstaklega sem eiga lengi inni, en er engu að síður algjörlega óbundin. Landsbanki Islands Banki allra landsmanna

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.