Dagur - 03.05.1988, Blaðsíða 11

Dagur - 03.05.1988, Blaðsíða 11
3. maí 1988 - DAGUR - 11 Haraldur Ólafsson var nokkuð frá sínu besta á Evrópumeistaramótinu í lyft- ingum um helgina. Evrópumótið í lyftingum: Haraldur nokkuð frá sínu besta Haraldur Ólafsson lyftinga- maður frá Akureyri keppti um helgina á Evrópumeistaramót- inu í ólympískum lyftingum í Cardiff í Wales. Haraldur var nokkuð frá sínu besta að þessu sinni en hann hafði nýverið sett þrjú glæsileg íslandsmet í 82,5 kg flokki á Islandsmótinu sem fram fór á Akureyri. „Ég átti ekki von á því að gera stóra hluti þarna úti,“ sagði Haraldur í samtali við blaðamann Knattspyrna: KA vann Val í Reykjavík KA sigraði Val 3:1 í æfíngaleik í knattspyrnu í Reykjavík á sunnudaginn. Ágúst Sigurðs- son, Valgeir Barðason og Örn Viðar Arnarson skoruðu mörk KA en Sigurjón Kristjánsson svaraði fyrir Valsmenn. Mark Arnar var sérlega glæsilegt, þrumuskot af um 30 m færi í bláhornið. Jón Kristjánsson íslandsmeist- ari með Val í handbolta, lék við hlið Erlings bróður síns í þessum leik og stóð sig mjög vel. Jón hyggst leika með KA í sumar og hann kemur örugglega til með að styrkja vörn liðsins mikið. Á meðan KA lagði Val að velli í Reykjavík, lék 1. flokkur félags- ins æfingaleik við Tindastól á Sauðárkróki og lauk þeirri viður- eign með sigri Tindastóls, 6:2. Dags, við komuna til Akureyrar í gær. „Ég var nýbúinn að gera ágæta hluti á íslandsmótinu og það var hreinlega of stutt á milli þessara móta til þess að ég gæti gert einhverjar rósir. Ég náði mér þó ágætlega á strik í jafn- hendingunni og varð í 14. sæti af 23 keppendum. Ég klikkaði hins vegar algjörlega í snöruninni en þar varð ég í 18. sæti, enda 13 kg frá mínum besta árangri í þeirri grein. „Þetta var engu að síður nokk- uð gott mót og á því voru m.a. sett ein 5 heimsmet,“ sagði Haraldur ennfremur. Haraldur hefur þegar náð alþjóðlega ólympíulágmarkinu í sínum þyngdarflokki en hann vantar enn 7 kg upp á að ná íslenska ólympíulágmarkinu. Enska knattspyrnan: Millwall í fyrsta sinn í 1. deild - Portsmouth falliö - Chelsea þarf að sigra Charlton í síðasta leik í gær var leikin næstsíðasta umferðin í ensku knattspyrn- unni. Portsmouth varð þriðja og síðasta liðið til að falla úr 1. deild, en sæti þeirra tók Mill- wall sem aldrei fyrr hefur leik- ið í 1. deild. Portsmouth tapaði á heima- velli gegn Newcastle, Kevin Scott skoraði snemma í leiknum fyrir Newcastle og þegar Tony Loh- man bætti öðru marki við snemma í þeim síðari var öll nótt úti fyrir liðið. Mike Quinn skor- aði þó fyrir liðið, en þrátt fyrir þunga pressu í lokin náði liðið ekki að jafna og 2. deildar sæti því staðreynd. Nú stendur því baráttan um fjórða neðsta sætið sem þýðir úrslitakeppni. Það ræðst á laugardaginn í leik Chels- ea og Charlton og nægir þá Charl- ton jafntefli til að sleppa úr hætt- unni. Charlton gerði jafntefli á heimavelli gegn Tottenham, Steve Hodge skoraði fyrir Tott- enham á 17. mín., en þrem mín. síðar jafnaði Mark Reed úr víti fyrir Charlton. West Ham bjarg- aði sér með 4:1 sigri heima gegn Chelsea, Leroy Rosenoir skoraði tvö mörk fyrir West Ham í fyrri hálfleik, en var síðan rekinn út af á 66. mín. fyrir að lemja á -Steve Clarke. Paul Hilton gerði þriðja mark West Ham, Colin West lag- aði stöðuna, en á síðustu mín. leiksins gerði Tony Cottee fjórða mak liðsins. David Smith jafnaði fyrir Coventry gegn Arsenal eftir að Brian Marwood hafði skorað úr víti fyrir Arsenal og Man. Utd. tryggði sér annað sætið með sigri á Oxford. Gífurleg fagnað- arlæti áhangenda Millwall eftir sigurinn gegn Hull City sem færir liðinu sæti í 1. deild og sigurlaun- in í 2. deild. Mark Kevin O’Call- aghan úr vítaspyrnu á 12. mín." dugði til sigurs. Um hitt örugga sætið er enn barist, þar stendur nú Middles- brough best eftir 3:0 sigur á úti- velli gegn Barnsley. Bernie Slav- en skoraði tvö og Stuart Ripley eitt og nú þarf liðið aðeins að sigra Leicester heima á laugar- daginn til að fara upp. Aston Villa sigraði Bradford á heima- velli 1:0 með marki David Platt á 23. mín. og bæði liðin örugg um sæti í úrslitakeppninni að minnsta kosti. Það verður síðan annað hvort Blackburn eða Crystal Palace sem einnig kemst þangað, en bæði liðin töpuðu f gær. Blackburn heima gegn Reading 1:2, og Crystal Palace tapaði á útivelli gegn Leeds Utd. 0:1. Wolves tryggði sér sigurinn í 4. deild í gær og Lincoln sem féll úr deildakeppninni í fyrra vann í gær sæti sitt til baka og leikur í 4. deild næsta vetur. Þ.L.A. Knatt- spyrnu úrslit í gær var leikin næstsíðasta umferðin í 1. og 2. deild ensku knattspyrnunnar og urðu úrslit leikjanna þessi: 1. deild Arsenal-Coventry 1:1 Charlton-Tottenham 1:1 Derby-Everton 0:0 Liverpool-Southampton 1:1 Luton-Watford 2:1 Oxford-Man.United 0:2 Portsmouth-Newcastle 1:2 West Ham-Chelsea 4:1 2. deild Aston Villa-Bradford 1:0 Barnsley-Middlesbro 0:3 Blackburn-Reading 1:2 Bournemouth-Swindon 2:0 Hull-Millwall 0:1 Ipswich-Birmingham 1:0 Leeds-C.Palace 1:0 Man.City-W.B.A. 4:2 Plymouth-Oldham 1:0 Stoke-Shrewsbury 1:1 Handbolti: Sigur og tap í Japan Islenska handboltalandsliðið er nú á keppnisferð í Japan, þar sem liðið leikur fjóra Knattspyrna: KS vann KA og Þór Knattspyrnulið KS frá Siglu- fírði kom í heimsókn til Akur- eyrar um helgina og lék gegn liðum KA og Þórs. KS-ingar gerðu sér lítið fyrir og lögðu bæði Akureyrarliðin að velli. KS og KA léku á Sanavellinum á föstudagskvöld og sigruðu gest- irnir 2:0. Hafþór Kolbeinsson skoraði fyrra markið og var það nokkuð slysalegt og verður að skrifast á Hauk Bragason mark- vörð KA. En það var síðan Bald- ur Benónýsson sem gulltryggði sigur KS-inga er hann bætti við öðru marki. Á laugardag mættust síðan Þór Colin Thacker kemur ekki til KS i sumar Coiin Thacker kemur ekki Englendingurinn Colin Thacker og KS á sama stað og enn fóru Siglfirðingar með sigur af hólmi. Úrslitin urðu 3:1 og skoruðu þeir Þorleifur Elíasson og Baldur Benónýsson mörkin. Baldur skoraði tvö mörk, bæði beint úr : aukaspyrnum en Einar Arason lagaði stöðuna fyrir Þórsara. KS hefur aðeins leikið þrjá leiki í undirbúningi sínum fyrir 2. deildina sem hefst innan skamms. Auk leikjanna við KA og Þór, lék liðið gegn Hvöt á Blönduósi fyrir rúmri viku. KS vann þann leik 2:0 og skoruðu þeir Baldur Benónýsson og Þor- leifur Elíasson mörkin. kemur ekki til með að leika með KS í 2. deildinni í sumar eins og til stóð. Colin sem er geysilega sterkur leikmaður lék síðast með liðinu árið 1986 og stóð sig þá mjög vel. Þrátt fyrir að Colin komi ekki, eru tveir aðrir enskir leikmenn á leið til félagsins eins og komið hefur fram í Degi. Þetta eru þeir Steve Rutter og Paul Fraier en hann var m.a. atvinnumaður með Leicester fyrir nokkrum árum. Von er á þeim félögum á næst- unni. landsleiki við heimamenn. Tveimur þeirra er lokið og hafa liðin unnið sinn leikinn hvort. Á laugardag sigruðu íslending- ar með 24 mörkum gegn 23 í æsi- spennandi leik. Það var Atli Hilmarsson sem skoraði sigur- markið 5 sekúndum fyrir leiks- lok. Júlíus Jónasson var atkvæða- mestur íslendinganna og skoraði 9 mörk en Atli Hilmarsson skor- aði 7 mörk. Liðin léku síðan að nýju í gærmorgun og þá höfðu Japanir betur. í hálfleik voru þeir komnir með 4 marka forystu, 11:7. íslendingar náðu að minnka muninn í eitt mark, 19:20 skömmu fyrir leikslok en misstu síðan tvo leikmenn út af í 2 mín. Japanir nýttu sér liðsmuninn vel, skoruðu tvö síðustu mörkin og sigruðu 22:19. Atli Hilmarsson skoraði flest mörk íslendinga eða 7 og Júlíus Jónasson skoraði 4. Liðin eiga eftir að mætast tví- vegis enn. Þriðji leikurinn fer fram á morgun en sá fjórði á fimmtudaginn. Stærsti bókamarkaður á Akureyrí Markaðurinn er í mjög rúmgóðu húsnæði að Glerárgötu 36 (þar sem áður var Byggingavörudeild KEA). Nýir titlar bætast við daglega. Fjöldi góðra bóka á 100 krónur og minna. Sími: 27699. Norðlendingar! Missið ekki af þessu einstæða tækifæri til að eignast góðar bækur á 6 daqar

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.