Dagur - 03.05.1988, Side 6
6-DAGUR-3. rriaí 1988
\\wí i'MS - -
Nýtt pípuorgel smíðað fyrir Akureyrarkirkju:
verður aðgengilegri fyrir tónfötarihitninf
Síðar á þessu ári mun nýtt
hljóðfæri prýða Akureyrar-
kirkju. Ákveðið var í vetur að
smíða nýtt pípuorgel fyrir
kirkjuna, færanlegt orgel sem
kemur til með að verða stað-
sett inni í kór kirkjunnar og
verða notað við minni athafnir
og tónleika. Orgelið verður
smíðað suður í Mosfellsbæ í
sumar og væntanlega flutt til
Akureyrar þegar hausta tekur.
En orgel eins og þetta kostar
mikla peninga þó svo að hér sé
um tiltölulega lítið orgel að
ræða, a.m.k. ef miðað er við
það pípuorgel sem fyrir er í
kirkjunni, stærsta pípuorgel
landsins. Nýja orgelið kostar
900 þúsund krónur sem að %
verður greitt af sóknarnefnd
og kór kirkjunnar mun safna
fyrir þriðjungi kaupverðsins. í
tilefni af þessu fór Dagur til
fundar við Jón Árnason for-
mann fjáröflunarnefndar og
Björn Steinar Sólbergsson
organista Akureyrarkirkju og
spurði þá nánar um nýja orgel-
ið.
Mikil not fyrir
nýtt pípuorgel
„Mörgum finnst sem það sé að
bera í bakkafullan lækinn að vera
að fá annað orgel inn í þessa
kirkju, sem líklega hefur fyrir
besta orgel landsins. En málið er
hins vegar að aukinn metnaður er
í kirkjukórnum að fara út í meiri
tónlistarflutning, hér er mikill
tónlistarflutningur fyrir og eigi að
nota orgelundirleik, sem er
afskaplega skemmtilegt við
kórsöng, þá kemur í ljós að sval-
irnar í kirkjunni rúma ekki stóra
kóra hvað þá með hljómsveit og
einsöngvara. Önnur ástæða fyrir
því að við höfum áhuga á þessum
orgelkaupum er sú að með þessu
getum við haft tónlistarflytjendur
niðri í kirkjunni í stað þess að
vera uppi á svölum og mörgum
áhorfendum finnst gott að geta
séð þá sem eru að flytja tónlist-
ina,“ segir Jón.
- Er þetta orgel fyrst og fremst
hugsað til að nýtast við tónleika-
hald?
„Nei, það kæmi til með að nýt-
ast við minniháttar messur og t.d.
skírnir og giftingar,“ segir Björn
Steinar. „Fyrir mér er það mest
um vert að maður er í betra
sambandi við söfnuðinn þegar
maður er niðri við orgelið og
áhorfandinn sér það sem fram
fer. Hvað varðar möguleikana
sem þetta nýja orgel gefur þá er
ljóst að þegar komið er út í flutn-
ing á stærri verkum þá er ekki
pláss á svölunum uppi við stóra
pípuorgelið og þess vegna höfum
við meiri möguleika með því að
vera niðri í kirkjunni sjálfri,“
bætir Björn við.
Kirkjan verður
aðgengilegra tónleikahús
Nýja orgelið verður með 4x/i
rödd, eitt nótnaborð og án fót-
pedala. Hljóðfærið er fyrst og
fremst hugsað sem undirleiks-
orgel en orgel eins og þetta tíðk-
ast víða í kirkjum erlendis. Hins
vegar er þetta fyrsta orgel þessar-
ar tegundar sem smíðað er fyrir
íslenska kirkju hér heima og
jafnframt fyrsta orgelsmíði
Björgvins Tómassonar orgel-
smiðs frá grunni en hann kom
fyrir tveimur árum frá Þýskalandi
þar sem hann lærði orgelsmíði í
fjögur ár og starfaði önnur fjögur
ár við smíðar eftir nám. Hug-
mynd um að smíða nýtt orgel fyr-
ir Akureyrarkirkju var færð í tal
við Björgvin fyrr í vetur og hefur
hann nú lokið við að teikna orgel-
ið og byrjað verður á smíðinni á
næstu dögum.
„Það sem gerist við tilkomu
þessa hljóðfæris er að Akureyrar-
kirkja, sem er besta tónleikahús
bæjarins, verður mun aðgengi-
legri fyrir tónlistarflutning og
skapar möguleika á að taka á
móti stórum kórum að sunnan.
Nú er að opnast hér moguleiki
sem ekki hefur verið fyrr. Og það
má líka gjarnan koma fram að
það er mjög ánægjulegt að þetta
hljóðfæri skuli vera smíðað hér
heima á íslandi, þetta er fyrsta
kirkjuhljóðfæri sem hér er
smíðað,“ segir Jón.
Fjársöfnun til orgelkaupa
í gangi
- En svo við snúum okkur beint
að söfnuninni, hvernig ætlið þið
hjá kirkjukórnum að afla þessara
300 þúsunda króna sem þið legg-
ið til kaupanna?
„Við sóttum um styrk til Akur-
eyrarbæjar sem veitti okkur
100.000 kr. og við höfum líka sótt
um styrk úr menningarsjóði
KEA. Því sem á vantar ætlum við
að safna með tónleikahaldi og
fólki gefst jafnframt kostur á að
koma peningum til okkar ef það
hefur áhuga á að leggja hönd á
plóginn. Hægt er að leggja pen-
inga inn á gullreikning í Búnað-
arbankanum á Akureyri nr.
241000 og fólk getur líka komið
framlögum til okkar beint,“ segir
Jón Árnason.
Björn Steinar Sólbergsson organisti Akureyrarkirkju við orgelið.
Björgvin Tómasson við stillingar á pípuorgeli Akureyrarkirkju. Sennilegast
hafa ekki margir séð hvernig umhorfs er „innan í“ pípuorgeli, eins og sjá má
pípur um allt enda 3100 pípur í þessu orgeli.
Björgvin Tómasson orgelsmið-
ur var staddur í Akureyrar-
kirkju fyrir skömmu þar sem
hann var að stilla pípuorgel
kirkjunnar, stærsta pípuorgel
landsins. Björgvin hefur tekið
að sér að smíða nýja pípu-
orgelið í kirkjuna og þegar lok-
ið við að teikna orgelið og
ákveða gerð þess, raddafjölda
og þess háttar. Á næstu dögum
koma járnpípurnar í nýja
Auðvitað er maður speimtur j
- segir Björgvin Tómasson orgelsmiður sem tekið hefur að sér a<
orgelið til landsins en Björgvin
sér síðan sjálfur um að full-
smíða þær. Aðra hluta orgels-
ins mun hann sjálfur smíða frá
grunni eins og hann hefur Iært
til.
„Menn teikna yfirleitt sín orgel
sjálfir þó t.d. sé að finna hálf-
gerða arkitekta á stærri verkstæð-
um erlendis sem sjá um að hanna
útlit á hljóðfærunum. En þetta
verða allt að vera fagmenn þ.e.
orgelsmiðir vegna þess að það er
ekki hægt að teikna eitthvað út í
bláinn. Einhver glóra þarf að
vera í öllum lengdum t.d. á píp-
unum. Ég vildi t.d. ekki smíða
orgel sem einhver iðnhönnuður
hefði hannað,“ segir Björgvin um
leið og hann útskýrir hvernig mis-
munandi lengd á pípunum í orgeli
kirkjunnar hefur áhrif á dýpt
tónsins sem hún gefur frá sér.
Mikill tími í að teikna
og útfæra
- Nú færð þú þetta verkefni að
teikna og smíða lítið pípuorgel
fyrir Akureyrarkirkju. Getur þú
lýst þessum ferli, raunverulega
hvernig eitt pípuorgel verður til?
„Eftir að við vorum búnir að
ræða þessa hugmynd og ákveða
að ráðast í verkið þá settist mað-
ur niður og fór að teikna orgelið
og leggja niður fyrir sig hvernig
það kæmi til með að líta út. Síð-
an er ekki nóg að teikna útlínur
heldur verður líka að huga að því
hvort hlutirnir eru tæknilega
framkvæmanlegir. í upphafi fer
mikill tími í að teikna og útfæra í
tengslum við raddaval hljóðfæris-
ins en það er organistans að
ákveða hvaða raddir eiga að vera
í hljóðfærinu og út frá því verður
orgelið endanlega til.
Þegar þessu var lokið kom ég
norður með teikninguna og sýndi
hana en það verður að taka það
fram að orgelið kemur til með að
líta betur út endanlega vegna
þess að inn á teikningarnar vant-
ar allt skraut og slíkt.“
Nýsmíðin er alltaf
skemmtilegri
- Úr hvaða efni verður orgelið
smíðað?
„í Akureyrarkirkju er mikið
smíðað úr eik og sama efni verð-
ur í orgelhúsinu sjálfu svo og
þeim pípum sem smíðaðar verða
úr tré. Alls verða 288 pípur í
orgelinu og þar af 24 þeirra úr
tré. Dýpstu pípurnar í hljóðfær-
inu eru smíðaðar úr tré og í
svona litlu hljóðfæri eins og þessu
væri ekki framkvæmanlegt að
hafa allar pípurnar úr tré vegna
þess hve þessar pípur eru pláss-
frekar. Yfirleitt eru alltaf mun
fleiri járnpfpur en trépípur í
pípuorgelum,“ segir Björgvin.
- Nú er þetta fyrsta orgelið
sem þú teiknar og smíðar frá
grunni. Ertu ekki spenntur?
„Jú, auðvitað er maður spennt-
ur og jafnframt mjög þakklátur
fyrir að manni er sýnt þetta traust
því enginn hefur enn séð hljóð-
færi eftir mig. Það lifnar eiginlega
yfir manni við þetta verkefni,
nýsmíðin er alltaf skemmtilegri
en viðgerðir á gömlum hljóðfær-
um.“
Pípuorgel smíðuð
eftir pöntun
- Nú vannstu lengi við orgel-.
smíðar á verkstæði í Þýskalandi,
Var þetta einhvers lconar verk-
smiðjuframleiðsla?
„Nei, það má aldrei tala um að
pípuorgel séu verksmiðjufram-:
leidd. Þessi orgel eru eingöngu
smíðuð eftir pöntunum og enginn
orgelsmiður getur smíðað á
lager. Ástæður fyrir þessu eru
þær að hvert orgel er sérhannað
fyrir hverja kirkju og síðan er
mismunandi eftir orgelum hvaða
raddir eru notaðar, hve margar
raddir eru o.s.frv.,“ segir Björgvin
og bætir við að vanda þurfi til að
velja raddir í orgelin þannig að
þær nýtist sem best hverju sinni.
Ákveðnar raddir þurfa að vera í
hverju hljóðfæri og síðan þarf að
taka tillit til þess hvaða gerð tón-
listar á að leika á hljóðfærið.
Að stilla eitt pípuorgel er mik-
ið verk. Ef fara á yfir allar pípur
í orgeli Akureyrarkirkju þá tekur
það fulla þrjá daga fyrir tvo
menn. Enda ekki að furða því
pípurnar eru alls 3100 talsins.
Þetta orgel hefur 45 raddir en>
pípuorgelið sem sett verður upp í